Morgunblaðið - 06.01.1998, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
HVALSKURÐUR á laugardag við Kálkn á Búlandsnesi við Djúpavog,
frá vinstri Hálfdán Björnsson frá Kvískeijum, Ævar Petersen
og Þorlákur Björnsson.
Hvalreki við Djúpavog
Skurður gaf engar
vísbendingar
um banamein
Hættir sem ljosmóðir á Höfn eftir 40 ára farsælt starf
Tók á móti 708 börnum
sem fæddust í sýslunni
Homafirði. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjörnsdóttir
MÆÐGURNAR Vilborg Einarsdóttir og Laufey Helgadóttir láta af
störfum sem ljósmæður á Höfn í Hornafirði.
ÆVAR Petersen, hjá Náttúrufræði-
stofnun íslands, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hvalurinn, sem
rak á land á Búlandsnes við Djúpa-
vog, væri af tegund sem sé sjaldgæf
hér við land og að því hefði þetta verið
merkur fundur. Þá sagði Ævar að
þetta hefði verið nærri fullvaxið karl-
dýr, líklega ekki alveg kynþroska, en
að engar skýringar hefðu fundist á því
hvers vegna það hefði drepist.
Hvalurinn var í Morgunblaðinu
kallaður gáshnallur og var það heiti
fengið úr nýlegri bók eftir Sigurð
Ægisson um íslenska hvali. Ævar
Petersen segist hins vegar vilja
nefna tegundina skugganefju, auk
þess sem nafnið gæsanefja hafí verið
notað um hana.
Menn frá Náttúrufræðistofnun
fóru austur um helgina þar sem þeir
skáru hvalinn. Þeir komu síðan með
hausinn með sér til baka auk magans
sem notaður verður til rannsókna á
því á hverju dýrið hafi lifað. Einnig
komu þeir með lungu og lifur og sýni
úr vef og spiki sem fara á Hafrann-
sóknastofnun til frekari rannsókna.
Afgangurinn af hræinu var fluttur
frá strandstað úr alfaraleið og von-
ast menn til þess að mávar og bakt-
eríur muni eyða kjötinu utan af bein-
unum. Einnig sagðist Ævar vonast
til þess að fólk léti beinagrindina í
friði þannig að hægt yrði að sækja
hana í vor eða sumar og setja hana
upp til sýningar þegar fram líða
stundir.
ÞÆR Vilborg Einarsdóttir og
Laufey Helgadóttir láta nú af
störfum sem ljósmæður í Aust-
ur-SkaftafellssýsIu. Vilborg
lauk námi 1954 og frá því 1957
hefur hún verið við störf í sýsl-
unni. Vilborg á mjög svo far-
sælt starf að baki og fyrir A-
Skaftafellssýslu var hún ómet-
anlegur starfskraftur þar sem
sýslan var mjög einangruð áð-
ur en hringvegurinn opnaðist.
Hún hefur alls tekið á móti 708
börnum hér í sýslunni. Þær
Laufey og Vilborg eru mæðgur
og hafa starfað saman frá 1982
þegar Laufey lauk námi.
„Þetta starf hefur verið mér
mjög kært og blessunarlega
farsælt. Ég hef lifað miklar
breytingar í þessu starfí allt frá
því að konurnar fæddu heima
hjá mér í heimasmiðuðu fæð-
ingarrúmi. Þá var ekki einung-
is fæðingin sjálf á minni hendi
heldur og umönnun öll og
þvottar og hafði ég þar að auki
mitt heimili til að sinna.
Síðar kom svo aðstaða í
Skjólgarði, vistheimili aldr-
aðra, og á síðasta ári fluttist
svo fæðingaraðstaðan á heilsu-
gæslustöðina,“ sagði Vilborg.
„Stóri draumurinn var nú ekki
að feta í fótspor móður minnar
en svona æxlaðist þetta og höf-
um við átt mjög gott samstarf í
gegnum árin. Ég hætti núna
því ég hef öðru að sinna og bý
auk þess út í sveit. Við
mæðgurnar höfum getað unnið
vel saman eins og þegar ég
átti ekki heimangengt hljóp
mamma í skarðið fyrir mig og
öfugt. Það verður kærkomin
tilbreyting að geta farið með
foreldrum mínum í ferðalög og
annað sem ekki hefur verið
hægt til þessa. Það er aðeins
eitt sem okkur hefur greint á
um og er það notkun á mon-
itor, hjartsláttarrita, en
mamma vill alls ekki notast við
hann,“ segir Laufey og hlær.
„Það er nú ekki eintóm sér-
viska í mér að vilja ekki nota
tækið, því þegar hann er not-
aður er alltaf meira stress í
kringum konuna en mér finnst
að það eigi að gera fæðinguna
eins afslappaða og unnt er,“
sagði ljósmóðirin, Vilborg Ein-
arsdóttir.
Byrjað að fjarlægja
jdlatrén á morgun
GATNAMALASTJORINN í
Reykjavík byrjar á morgun að
hirða jólatré borgarbúa. Eru þeir
beðnir að setja trén út fyrir lóða-
mörk og verða þau þá fjarlægð.
Þá hefur borgarstjórinn í
Reykjavík einnig sent frá sér
áskorun til borgarbúa um að
hirða upp leifar af skoteldum og
blysum í nágrenninu.
Sýslumaður rannsakar kjörskrá og búferlaflutninga vegna deilna í Skorradalshreppi
MEIRIHLUTI hreppsnefndar
Skorradalshrepps eða þrír fulltrúar
af fímm fóru um helgina fram á það
við sýslumanninn í Borgarnesi að
hann gerði ráðstafanir vegna
meintra ágalla á kjörskrá fyrir
sameiningarkosningar sex hreppa
sem fram eiga að fara 17. janúar.
Jafnframt var óskað eftir að fram
færi opinber rannsókn á tilkynn-
ingum um búferlaflutninga í og úr
hreppnum. Meirihlutinn telur að
framin hafí verið brot á lögheimilis-
lögum, lögum um tilkynningar að-
setursskipta og kosningalögum.
Stefán Skarphéðinsson sýslumaður
sagðist í gær gera ráð fyrir að
senda hreppsnefndinni svar sitt í
dag.
Kjósa á um sameiningu sex sveit-
arfélaga í Borgai-fírði norðan
Skarðsheiðar, þ.e. í Hvítársíðu-,
Hálsa-, Reykholtsdals-, Lundar-
reykjadals-, Andakíls- og Skorra-
dalshreppi. Talið er að deilurnar í
Skorradal kunni að leiða til þess að
fresta þurfi sameiningarkosningun-
um í öllum hreppunum. Ágreining-
urinn snýst um fjölda til-
kynninga um aðseturs-
skipti og breytingar á
lögheimilum sem átt hafa
sér stað í hreppnum á sl.
ári.
Ef íbúatala sveitarfélags fer nið-
ur fyrir 50 getur félagsmálaráð-
herra ákveðið að sameina hreppinn
öðru sveitarfélagi jafnvel þótt
meirihluti hreppsbúa hafi verið á
móti sameiningu í kosningum. I
dag eru íbúar Skorradalshrepps 52
talsins skv. íbúaskrá Hagstofunnar
Ásakanir um brot
á lögnm um lög-
heimili og kosningar
Málamynda-
tilflutningar á
lögheimili?
og þar af eru 44 á kjörskrá. Ganga
ásakanir á víxl um málamyndatil-
fiutninga fólks í eða úr sveitarfélag-
inu í þeim tilgangi að hafa áhrif á
niðurstöðuna.
„Skráð sig til heimilis í óíbúð-
arhæfum vistarverum"
Á fundi hreppsnefndar sl. laugar-
dag samþykkti meirihlutinn tillögu
þar sem segir m.a. að kjörskrár-
stofn beri með sér að við tilurð hans
hljóti að hafa verið fram-
in brot á lögum. „Virðast
brot þessi til að mynda
lýsa sér í því að fjöldi
_________ manns hefur látið flytja
lögheimili sitt í Skorradal
og ýmist skráð sig til heimilis í óí-
búðarhæfum vistarverum á eyðibýli
eða á öðrum býlum í sveitinni, án
þess að um raunverulegan flutning
sé að ræða, eða skilyrði slíkrar lög-
heimilisskráningar séu að öðru
leyti uppíyllt. Þá virðist vanta í
kjörskrárstofninn nöfn aðila sem í
raun hafa búsetu hér í hreppnum,"
segir í samþykktinni. Eru þetta
taldir augljósir málamyndatilflutn-
ingar á lögheimili og brot á kosn-
ingalögum og fleiri lögum.
„Samkvæmt 17. grein kosninga-
laga skal sýslumaður jafnskjótt og
hann fær vitneskju um að lög hafi
verið brotin við undirbúning kjör-
skrár gera nauðsynlegar ráðstafan-
ir til að kjörskrá verði tafarlaust
samin á grundvelli löglegi'a for-
sendna. Með vísan til þessa Iagaá-
kvæðis samþykkir hreppsnefnd
Skorradalshrepps að tilkynna
sýslumanni tafarlaust þá ágalla
sem kjörskrárstofninn fyi-ir hrepp-
inn er haldinn, þannig að hann geti
án tafar gert nauðsynlegar ráðstaf-
anir lögum samkvæmt. Jafnframt
óskar hreppsnefnd þess að fram
fari rannsókn að hætti laga um
meðferð opinbeira mála varðandi
þau brot á lögheimilislögum, lögum
um tilkynningar aðsetursskipta og
kosningalögum, sem virðast hafa
segir m.a. í sam-
verið framin,
þykktinni.
Á móti þvingaðri
sameiningu
„Ég hef aldrei talað á móti sam-
einingu en ég er hins vegar á móti
þvingaðri sameiningu. Fólkið á
sjálft að ráða því en þetta á ekki að
gera með valdboði,“ segir Davíð
Pétursson á Grund, oddviti hrepps-
ins, sem tilheyrir minnihluta
hreppsnefndar í málinu. _________
Hann segist ekki fá séð
hvað sýslumaður geti að-
hafst í þessu máli. Honum
beri að sjá til þess að allir
sem áttu lögheimili í
sveitarfélaginu fímm vikum fyrir
\kjördag séu á kjörskrá. Ef einhverj-
ir vefengi það verði þeir hinir sömu
að fara í mál við þá sem þeir telja
ranglega á íbúaskrá. Það heyri hins
vegar ekki undir sýslumann, sem er
ekki dómari.
Andstæðingar Davíðs hafa haldið
því fram að fjórðungur íbúa hrepps-
ins sé nú skráður til heimilis hjá
honum. Davíð segir eðlilegar skýr-
ingar á því að 12 manns séu skráðir
til heimilis á Grund. „Ástæðan er sú
að sonur minn og dóttir eru búin að
ná sér í kærustu og kærasta og þau
vildu vera skráð saman,“ svarar Da-
víð. „Þegar uppgötvaðist að íbúar
fluttu inn í hreppinn brugðust þess-
ir menn við með því að flytja út
börn sín og raunar alla hér á næsta
bæ við mig, á Vatnsenda, til að
koma íbúatölunni niður fyrir 50.
Þessi vinnubrögð eru með ólíkind-
um,“ segir Davíð ennfremur.
Lífsnauðsynlegt að færa
stjórnvaldið úr hreppnum
„Ef sveitarstjórn hefði samþykkt
að leggja þessa kjörskrá fram hefð-
um við þar með viðurkennt að allt
sem hér hefur verið að gerast á
undanförnum vikum væri löglegt.
Við treystum okkur ekki til þess,“
segir Jón Jakobsson í Dagverðar-
nesi, einn þremenninganna í meiri-
hluta hreppsnefndar.
__________ „Það er alls ekki rétt
að við séum á móti því að
nýir íbúar flytjist hingað
en við ætlumst þá til að
______ fólk flytji hingað. Fæstir
sem skráðir eru hér nýir
hafa flutt og ekkert bendir tii þess
að þetta fólk ætli að flytja," segir
Jón. „Ég tel að þetta sýni hvað það
er lífsnauðsynlegt að færa stjórn-
valdið út úr hreppnum svo þessar
örfáu manneskjur sem hér eru
dagsdaglega, geti hætt að berjast
innbyrðis."
Ekki á móti
því að nýtt fólk
flytjist hingað