Morgunblaðið - 06.01.1998, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 21
ERLENT
Nyrup Rasmussen heimsækir Færeyjar
Oumbeðin heimsókn
vekur deilur
Deilur bæði í Dan-
mörku og Færeyjum
vegna heimsóknar
Pouls Nyrup Rasmus-
sen, forsætisráðherra
Dana, vekja ýmsar
spurningar um sam-
band landanna, eins og
Sigrún Davíðsdóttir
reifar hér á eftir.
HEIMSÓKN Pouls Nyrup Rasmus-
sen, forsætisráðherra Dana, í dag til
Færeyja hefur gefið tilefni til
st.jórnmálaværinga bæði í Dan-
mörku og Færeyjum. Margir spyrja
hvers vegna forsætisráðherra hafi
valið að heimsækja eyjarnar einmitt
nú, níu dögum áður en 2.500 blað-
síðna skýrsla um bankamálið marg-
umtalaða verður birt. Ráðherrann
hefur ekki heimsótt eyjarnar síðan
1994, því hann hefur ekki verið vel-
kominn þar meðan eyjaskeggjar
álíta að danska stjórnin og þá einnig
Nyrup hafi hlunnfarið þá í banka-
málinu. En bæði í Danmörku og í
Færeyjum snerta tengsl landanna
önnur pólitísk deilumál og þá einnig
þingkosningar í Danmörku, sem
ýmsir spá að verði þegar í vetur.
Með danska forsætisráðherranum
er Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlensku heimastjórnarinnar, því
ástæða heimsóknar Nyrups er fund-
ur leiðtoga þeiiTa þriggja þjóða,
sem myndá dönsku ríkisheildina.
Þeir Nyrup og Motzfeldt koma því
til að funda með Edmund Joensen,
lögmanni Færeyja, og um leið hugð-
ist Nyrup funda með færeyskum
frammámönnum. Þessir þrír funda
árlega, en nýmælið nú er fundar-
staðurinn. Ef fundurinn hefði ekki
verið haldinn á Færeyjum við nú-
verandi aðstæður hefði það vísast
vakið hrifningu að nú væru leiðtogar
smáþjóðanna ekki lengur kallaðir í
konungsgarð, heldur væru þrír jafn-
réttháir fundarstaðir. Heima fyiTi'
hefur Færeyjaferðin gefið andstæð-
ingum Nyrups tilefni til að deila
hart á hann og í Færeyjum hefur
hún kynt undir óvild í garð Dana.
Nyrup og Ellemann-Jensen,
lykilpersónur í dönskum
Færeyjadeilum
Ferð Nyrups hefur verið umdeild
í Danmörku. Hann hefur margoft
lýst því yfir að hann hafi mikið dá-
læti á norðurslóðum og þeir sem
þekkja hann vita að lönd eins og
Færeyjar, Grænland og Island eiga í
honum sterk ítök, svo persónulega
sárnar honum ugglaust að vera nú
óvinsælasti maðurinn í augum
Færeyinga. Stjómmálalega séð hef-
ur moldviðrið komið honum illa, því
það hefur gefið erkiandstæðing
hans, Uffe Ellemann-Jensen, for-
manni Venstre og leiðtoga stjómar-
andstöðunnar og fyrrverandi utan-
ríkisráðherra, byr undir báða vængi.
NYRUP Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, í þungum
þönkum á danska þinginu.
Líkt og Nyrup hefur Ellemann-
Jensen löngum gert sér mikinn mat
úr tengslum norður á bóginn. Sem
utanríkisráðherra hafði hann mikið
samband við Færeyjar, þar sem
Poul Schlúter, þáverandi forsætis-
ráðherr,a sinnti utanríkismálum lítið
miðað við Nyrap. Og sem leiðtogi
stjómarandstöðunnar hefur Ellem-
ann-Jensen gi'ipið hvert tækifæri til
að brýna stjórnina í málefnum
Færeyinga og nú síðast hvatti hann
Nyrap til að hætta við heimsóknina.
Nyrap hefur svarað af þunga, sagt
Ellemann-Jensen skaða samband
Dana og Færeyinga, veikja ríkis-
heildina, ekki af velvild í garð
Færeyinga heldur til að seilast eftir
forsætisráðherrastólnum. Orðaskipti
stjómmálaleiðtoganna eru vísbend-
ing um að áköf stjómmálaátök muni
fylgja í kjölfar bankaskýrslunnar.
Afstaða Dana til Færeyinga:
kærleikur eða þreyta?
Af orðaskiptum stjórnmálaleið-
toganna má ætla að Færeyjamálið
muni óhjákvæmilega setja svip sinn
á aðdraganda dönsku þingkosning-
anna, sem verða í síðasta lagi í
haust. Það hefur legið í loftinu að
Nyrup hafi áhuga á að blása til
kosninga þegar í febrúar og að hann
muni þá tilkynna það á næstu dög-
um. Það gæti þó reynst vogað, um
það bil sem bankaskýrslan verður
birt. Hann hljóti því að vera mjög
viss um að niðurstöður hennar verði
sér ekki óþægilegar og eins að
danskir kjósendur kippi sér ekki
upp við niðurstöður hennar.
Það er erfitt að segja um hver
áhrif það muni hafa á danska kjós-
endur ,ef í ljós kemur að danska
stjómin hirði fremur um hag
danskra banka en Færeyinga í
bankamálinu. Málið snertir grand-
vallarspumingar eins og upplýs-
ingaskyldu ráðherra gagnvart þing-
inu og trúverðugleika ráðhema, sem
Dönum er ákaft umræðuefni, svo
það hefur víðtækari skírskotun en
þá færeysku. Hins vegar er ekki
ósennilegt að Nyrap og hans menn
meti það svo að hinn almenni kjós-
andi sé löngu orðinn leiður á
Færeyjum og fjáraustri Dana þang-
að. Nyrup muni því ekki hafa þung-
ar áhyggjur af víðtækari afleiðing-
um skýrslunnar heima fyrir, þrátt
fyrir málþóf stjómarandstæðinga.
Atta þingflokkar eiga sæti á fær-
eyska lögþinginu og af þeim hafa
tveir fullt sjálfstæði eyjanna á
stefnuskrá sinni. Nyrup hafði boðað
fulltrúa flokkanna átta á sinn fund,
en fulltrúar fimm þeirra hafa lýst
því yfir að þeir hafi ekkert við for-
sætisráðherra að tala fyrr en skýrsl-
an liggi fyrir. Bæði frá danska
Ihaldsflokknum og Venstre hafa
heyrst gagnrýnisraddir um að þessi
afstaða færeyski-a stjórnmálamanna
sýni skort á lýðræðislegum vinnu-
brögðum og kjarki.
Sjálfstæðiskröfur Færeyinga
séðar með dönskum augum
I Danmörku hafa fáii' það á tilfinn-
ingunni að færeyskum sjálfstæðis-
kröfum fylgi sérstök alvara. Það seg-
ir þó kannski meira um lítinn áhuga
Dana á Færeyjum en um kröfurnar,
því flestir Danir vora einnig alveg
andvaralausir um áð Islendingar
meintu fullveldiskröfur sínar af
neinni alvöra, fyrr en þeir gerðu al-
vöra úr fullveldinu 1944. Samband
Færeyja og Danmerkur er ekki
ósvipað og samband Islands og Dan-
merkur var eftir sambandslaga-
samninginn 1918, mótað af sjálf-
stjóm eyjaskeggja, en Danir fai-a
með utanríkismál þeirra og Dana-
drottning er þjóðhöfðinginn.
Það vekur ekki tiltrú Dana á sjálf-
stæðistilburðum Færeyinga hve stíft
eyjaskeggjar hafa sótt í danska rík-
iskassann. Þar á móti kemur þó að
fram á þennan áratug hefur Dönum
verið féð mjög útbært, kannski með-
al annars vegna þess að dönsku
minnihlutastjómimar hafa iðulega
verið háðar atkvæðum færeyskra
þingmanna í danska þinginu. Allir
sem hafa heimsótt eyjamar kannast
við gífurlega vega- og jarðgangagerð
þai', gi'eidda af dönsku fé. Það er vart
fyrr en á þessum áratug að Færey-
ingar hafa fundið fyrir fjárþrenging-
um, en þá munaði líka rækilega um.
Til þess er einnig tekið að dönsk út-
gerð hafí ekki endumýjað sig og lag-
að sig að nýjum háttum líkt og sú ís-
lenska hafi frekar gert. Að ýmsu
leyti má hugsanlega til sanns vegar
færa að Færeyingar hafi ekki haft
gott af dönsku fé, því það hafi haldið
þeim frá að taka fast á eigin málum.
Enginn vafi er á að olíuvonin hefur
eflt kjark og sjálfstæðishugmyndir
eyjaskeggja. Almennt er reiknað
með að gjöfular olíulindir séu á
næsta leiti við eyjarnar og að þær
muni skila milljörðum á næstu ára-
tugum. Danir hafa þegar samið við
Grænlendinga um auðlindaskipt-
ingu, sem tryggir Grænlendingum
drjúgan hlut, og enginn vafi á að
þeir samningar munu leggja línurn-
ar í sömu hlutum milli Færeyinga
og Dana. En þetta er framtíðartón-
list. Það kemur hins vegar á næst-
unni í ljós hvort Færeyjamálin verða
Nyrap pólitísk gildra, eða hvort
Færeyjar breyta engu í dönskum
stjómmálum.
Reuters
Deilt um kúrdíska flóttamenn
MANFRED Kanther, innanrík-
isráðherra Þýskalands, gagn-
rýndi í gær ítölsk og grísk
stjórnvöld fyrir að hafa ekki
gert nóg til að hindra að hund-
ruð Kúrda kæmust til landa
Evrópusambandsins með ólög-
legum hætti.
Um 1.200 flóttamenn, margir
þeirra Kúrdar frá Tjrklandi,
fóru með bátum til Italíu í vik-
unni sem leið og fregnir herma
að allt að 1.300 flóttamenn til
viðbótar séu á leiðinni þangað.
Rúm hálf milljón Kúrda býr
nú í Þýskalandi og Þjóðverjar
óttast að flóttamennirnir fari
þangað frá Italiu. Klaus Kink-
el, utanríkisráðherra Þýska-
lands, sagði á sunnudag að
stjórnvöld í Tyrklandi yrðu að
binda enda á þrettán ára upp-
reisn Kúrda í landinu með við-
ræðum án þess að beita her-
valdi. Itölsk stjórnvöld sögðu
að Kúrdarnir væru að flýja
pólitíska kúgun í Tyrklandi en
tyrkneska utanríkisráðuneytið
neitaði því í gær og sagði að
fólkið væri að flýja fátækt og
sæktist eftir betri lífskjörum í
ESB-löndunum.
Tvær kúrdískar konur
hengja hér upp þvott í flótta-
mannabúðum í suðurhluta Ital-
íu.
Söngskólinn í Reykjavík
SÖNGNÁMSKEHD
12 vikna kuöldnámskeið hefst 13. janúar.
Innritun stendur yfir.
Fyrir fólk á öllum aldri
fyrir unga að árum og/eða unga í anda
Kennt er utan venjulegs vinnutíma
á kvöldin og/eða um helgar
Tónmennt / kennari Violeta Smid
Undirstöðuatriði í tónfræði, tónheyrn og nótnalestri
Einsöngur / kennari Ragnheiöur Guömundsdóttir
Klassískur söngur, raddbeiting og túlkun
A léttu nótunum / kennari Magnús Ingimarsson
Söngleikja- og dægurtónlist
Fyrir kórfólk, sturtusöngvara og félagslynt fólk.
Allir finna eitthvaö skemmtilegt
og fræðandi viö sitt hæfi.
Upplýsingar og innritun á skrifstofu skólans f
sfma 552-7366, frá kl. 13.30-17.30, mánudag til föstudags.
Raddprófun og stundarskrárgerð fer fram mánudaginn 12.01.
Námskeiðinu lýkur með umsögn og tónleikum.
Skólastjóri
\_________________________________________________________________/