Morgunblaðið - 06.01.1998, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Mikið óveðurs-
tjón í V-Evrópu
Braut djúpra lægða liggur
yfír sunnanvert Bretland
’WifMÍÍ
London. Reuters. Daily Telegraph.
RÚMLEGA 100 þúsund heimili
urðu rafmagnslaus á sunnudag í
Bretlandi vegna illviðris en bæði
þar og í Frakklandi varð mikil
röskun á daglegu lífi vegna óveð-
urs. Breska veðurstofan spáði vax-
andi veðri að nýju í gærkvöldi og
að búast mætti við hvössu veðri
fram eftir vikunni þar sem braut
djúpra lægða lægi um þessar
mundir yfir Bretland sunnanvert.
Talið er að tjón af völdum óveð-
ursins á sunnudag nemi jafnvel
milljörðum króna. Maður beið bana
í vestanverðu landinu er tré féll á
bifreið hans, en algengt var að tré
rifnuðu upp með rótum í veðrinu.
Þak rifnaði af byggingum og víða
flæddi inn í hús er ár rufu bakka
sína í Bretlandi. Hvassviðrið hefur
.....
ekki verið ven-a í áratug en vind-
hraðinn mældist 175 kílómetrar á
klukkustund í mestu hviðunum við
Swansea í Wales þegar veðurhæð-
in var hvað mest. Tjón á rafmagns-
línum hefur ekki verið meira um
langt árabil en af þeim völdum
urðu 50.000 heimili í Wales, 30.000
í Devon og 26.000 í Cornwall raf-
magnslaus.
Mikil röskun varð á samgöngum
í Bretlandi og ferjusamgöngur um
Ermarsund fóru úr skorðum. Þús-
undir flugfarþega komust hvergi
frá Heathrow en aflýsa varð ferð-
um 47 flugvéla vegna veðurs. Veru-
legar tafír urðu á ferðum annarra
véla þar sem ekki reyndist unnt að
nota aðalbrautir vallarins vegna
bilana en notast var við hliðar-
... ,-. . - •
!I I I
Reuters
DJÚPAR lægðir ganga yfir Bretlandseyjar þessa daga og valda mikilli
röskun. Þó flestir hefðu ama af veðrinu fóru aðrir niður á bryggjur við
suðurströndina og fylgdust af áhuga með briminu.
vindsbrautir með ófullkominn að-
flugsbúnað.
I Frakklandi var öll umferð
bönnuð um stór svæði í strandhér-
uðum vegna veðurofsa. Mikið tjón
varð víða á Bretagne-skaga.
Áhöfn spænsks togara, Sonia
Naci, var bjargað frá borði 200 sjó-
mílur suðvestur af Englandi á
sunnudag. Skipið varð vélarvana
og rak stjórnlaust í haugasjó þar
sem ölduhæð mældist 18 metrar.
Ríkisstjórn Benjamins Netanyahus í fsrael hangir á bláþræði
Palestímimenn fagna af-
sögn vamarmálaráðherrans
Jenísalem. Reuters.
ÞÓTT David Levy, utannTdsráðherra ísrael,
hafi sagt af sér embætti á sunnudag tekur af-
sögnin samkvæmt ísraelskum lögum ekki gildi
fyrr en í dag, tveimur sólarhringum eftir að
hann tilkynnti um hana. Umræður og atkvæða-
greiðsla um fjárlagafrumvarp stjórnarinnar
fóru fram í gær og þótt ekki væri búist við að af-
sögn Levys réði úrslitum um afdrif frumvarps-
ins hefur hún vakið umræður um erfíða stöðu
Netanyahus.
Fréttaskýrendur telja líklegt að þótt stjórn
Netanyahus hafí meirihluta á þinginu eftir af-
sögnina megi búast við að boðað verði til kosn-
inga áður en langt um líður. „Stjómin getur
ekki haldið velli lengi eins og málum er komið,
líf hennar hangir á bláþræði,“ sagði Rafael Eit-
an, landbúnaðarráðhema og félagi í hægri-
flokknum Tsomet.
Aukin hægri slagsíða
Palestínskir embættismenn kváðust vona að
afsögn Levys myndi ekki hefta friðarumleitanir,
en viðurkenndu að þeir væru ánægðir með
ákvörðun hans, ef hún mætti verða til þess að
fella stjóm Netanyahus. Fréttaskýrendur segja
að brottför Levys hafí orðið til þess að auka
hægri slagsíðuna á stjóminni.
Reuters
ÞÓTT Levy og Netanyahu sætu hlið við hlið
að venju við umræður og atkvæðagreiðslu í
þinginu í gær og tækjust jafnvel í hendur voru
fáleikar með þeim, að sögn fréttaskýrenda.
Levy ókvað að hverfa úr ríkisstjóminni ásamt
fjórum félögum sínum í Gesher-flokksbrotinu
vegna þess að stjómin hefði ekkert aðhafst í
málefnum láglaunafólks og í engu þokað friðar-
viðræðum við Palestínumenn, að því er Levy
sagði er hann tilkynnti afsögn sína á frétta-
mannafundi á sunnudag. „Ég er búinn að fá mig
fullsaddan af þessu samstarfi,“ sagði hann.
Eftir brottför Levys og flokksmanna hans
hefur stjóm Netanyahus 61 sæti af 120 á þing-
inu. Þegar umræða um fjárlagafrumvarpið hófst
í gær settist Levy í sæti sitt við hlið Netanyahus
í þinginu en þeir virtu hvor annan vart viðlits.
Levy sagði að Gesher myndi ekki ganga til liðs
við stjórnarandstöðu Verkamannaflokksins
heldur myndi flokksbrotið standa á eigin fótum.
Fjárlagafrumvarpið er ekki eini vandinn sem
Netanyahu stendur frammi fyrir. Strax í næstu
viku reynir aftur á styi'k stjórnarinnar er sverf-
ur til stáls milli harðlínumanna og hófsamra í
stjómarliðinu vegna væntanlegrar afhendingar
lands á Vesturbakkanum til Palestínumanna.
Fréttaskýrendur segja að án Levys verði
Netanyahu að reiða sig enn frekar á stuðning
hægrisinnaðra harðlínumanna og flokkabanda-
lag trúaðra og muni því ekki verða of viljugur til
„umtalsverðs og trúverðugs" landaafsals líkt og
Bandaríkjastjórn krefst. Sjálfur sagði Netan-
yahu, er Levy tilkynnti um afsögn sína, að ríkis-
stjómin myndi lifa þetta af. „Þessi stjórn mun
reynast mun stöðugri en margir halda,“ sagði
Netanyahu.
Baráttumaður
fyrir málstað
þróunarlanda
David Steel
DAVID Steel lávarður, íyrrver-
andi leiðtogi Frjálslynda flokksins
í Bretlandi, er nú staddur hér á
landi í boði Halldórs Ásgrímsson-
ar utanríkisráðherra. Steel hefur
látið utanríkis- og þróunarmál til
sín taka og heldur í dag tvö erindi
um þau efni.
Steel er kunnur í Bretlandi fyrir
baráttu sína fyrir málstað þróun-
arlanda. Hann var um tíma for-
maður samtaka gegn aðskilnaðar-
stefnunni í S-Afríku og hefur mikil
sambönd í ríkjum suðurhluta Afr-
íku.
Þekktastur er Steel þó fyrir
þingmennskuferil sinn, en hann
var formaður Frjálslynda flokks-
ins brezka um tólf ára skeið, 1976-
1988, og er einn af stofnendum
Frjálslynda Demókrataflokksins.
Hann hóf þingmennsku í neðri
deild brezka þingsins 1965, þá 27
ára að aldri. Hann hætti setu í
neðri deildinni í fyrra, en tók sæti
í lávarðadeildinni.
Fljótlega eftir að Steel lét af
formennsku í Frjálslynda flokkn-
um gerðist hann talsmaður Frjáls-
lyndra demóki-ata í utanríkismál-
um. 1994-1996 var hann forsetu
Alþjóðasamtaka frjálslyndra. í
tenglsum við fundi Alþjóðasam-
takanna hefur Steel tvisvar áður
sótt ísland heim, 1990 og 1994.
Meðal starfa sem Steel hefur
gegnt utan stjómmálanna eru
pistlaskrif íyrir ýmsa fjölmiðla.
1982-1985 var hann rektor háskól-
ans í Edinborg.
Aðildarviðræðum
lokið um aldamðt?
London. Reuters.
ROBIN Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, sem nú fer með forsæti í
ráðherraráði Evrópusambandsins,
segist vona að hægt verði að ljúka
aðildarviðræðum við sum ríki Mið-
og Austur-Evrópu í kringum alda-
mót, þótt viðræðumar verði erfíðari
en þær, sem leiddu til aðildar
þriggja EFTA-ríkja fyrir þremur
árum.
I sjónvarpsviðtali á BBC sagði
Cook að aðildarviðræðurnar við Sví-
þjóð, Finnland og Austurríki hefðu
tekið þrjú ár. „Þetta vom vel stæð
ríki, lítil ríki sem öll greiða meira í
sjóði ESB en þau fá úr þeim,“ sagði
Cook. „Það tekur að minnsta kosti
sama tíma að semja við ríki Mið-
Evrópu, sem era stærri og auðvitað
fátækari og hafa þess vegna sérstök
vandamál í fór með sér fyrir fjárhag
ESB.“
Síðar á þessu ári hefjast aðildar-
viðræður við Ungverjaland, Pól-
land, Tékkland, Eistland, Slóveníu
og Kýpur. „Ég hefði haldið að það
væri raunsætt að ljúka viðræðum í
kringum árið 2000 og hefja síðan
staðfestingarferli með sumum þess-
ara ríkja,“ sagði Cook. Hann sagði
hins vegar að það væri ekki skyn-
samlegt að ákveða einhverja dag-
setningu, sem viðræðunum ætti að
ljúka.
Hljóðriti
úr þotu
SilkAir
fundinn
Jakarta. Reuters.
LEIT var hætt í gær að braki
úr singaporískri farþegaþotu
sem fórst á Súmötra með 104
innanborðs í desember. Hljóð-
riti úr stjómklefa vélarinnar
fannst á sunnudag og vonast
rannsakendur eftir því að hann
geti varpað Ijósi á hvað olli slys-
inu.
Þotan var af gerðinni Boeing
737-300 í eigu flugfélagsins
SilkAir, sem er dótturfélag
Singapore Airlines, og var á
leið frá Jakarta til Singapore
þegar hún fórst 19. desember.
Vélin var einungis tíu mánaða
gömul og sú nýjasta í flota
SilkAir. Ekkert hefur komið í
ljós sem bendir til ástæðu þess
að hún fórst er flugið var rétt
hálfnað. Veður var gott er slys-
ið varð.
Hljóðritinn gæti haft að
geyma upptökur af samtölum
flugmanna, hljóð frá hreyflum
eða önnur hljóð sem gætu gefið
vísbendingar um orsakir slyss-
ins. Hljóðritinn fannst á um tíu
metra dýpi í ósum Musi-fljóts,
þar sem þotan hrapaði.
Flugriti vélarinnar, sem
geymir tækniupplýsingar um
virkni vélarinnar í fluginu,
fannst fyrir viku og er nú til at-
hugunar hjá bandarískum sér-
fræðingum í Washington.
Singaporísk flugmálayfirvöld
munu hins vegar frá hljóðrit-
ann til athugunar.
Fuglaflensa
í Hong Kong
Rannsaka
ekki
ferðalanga
Hong Kong. Reutcrs.
STJÓRNVÖLD í Hong Kong
sögðust í gær ekki ætla að taka
sýni úr ferðamönnum til þess
að kanna hvort þeir bæru
fuglaflensusmit, sögðu það
bæði ógerlegt og óþarft.
Yfirvöld á Filippseyjum hafa
gripið til þess ráðs, að hvetja
alla sem þangað koma frá Hong
Kong að gangast undir sér-
staka læknisrannsókn kenni
þeir sér einhvers krankleika.
Óstaðfestar fregnir hei-ma,
að fuglaflensan hafi stungið sér
niður í Kína, en stjórnvöld í
Peking héldu hinu gagnstæða
fram i gær og sögðu að veikinn-
ar hefði ekki orðið vart í Kína.
Engin vísbending um veiruna
hefði fundist í nýrri blóðrann-
sókn á kjúklingabúum í Guang-
dong-héraði.