Morgunblaðið - 06.01.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 23
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
r
>
>
9
>
>
ERLENT
Valdas Adamkus kjörinn forseti Litháens
Kjósendur völdu læri-
svein vestræns lýðræðis
Morg’unblaðið. Vilnius.
Reuters
VALDAS Adamkus fagnar sigri í fyrrinótt.
Lög um kannabis
verði endurskoðuð
London. Reuters.
VALDAS Adamkus bar í síðari um-
ferð forsetakosninga í Litháen á
sunnudag sigurorð af keppinauti sín-
um Arturas Paulauskas, með meiri-
hluta sem vart getur hugsazt naum-
ari, eða 49,9% á móti 49,3%. Frá
þessu greindi yfirkjörstjórnin í Viln-
ius í gærmorgun, eftir mjög spenn-
andi kosninganótt þar sem frambjóð-
endurnir skiptust á um forystuna
fram undir morgun. Um ellefu þús-
und atkvæði skildu á milli, en sam-
tals höfðu 2,6 milljónir hinna 3,7
milljóna íbúa Litháens kosningarétt.
Kjörsókn í síðari umferðinni var um
74 af hundraði.
Sigurvegarinn er 71 árs og hefur
alið stærstan hluta ævinnar í Banda-
ríkjunum, þar sem hann starfaði um
25 ára skeið fyrir bandarísku um-
hverfisverndarstofnunina (Environ-
ment Protection Agency, EPA).
Hann flúði frá Litháen 1944 og hlaut
bandarískan ríkisborgararétt á
sjötta áratugnum. Til þess að bjóða
sig fram þurfti hann ekki að afsala
sér bandaríska vegabréfinu, en í gær
lýsti hann því yfir að meðal fyrstu
verka eftir kosningasigurinn yrði að
skila vegabréfinu í bandaríska sendi-
ráðið í Vilnius.
Fráfarandi forseti, Algirdas Braz-
auskas, óskaði Adamkus til ham-
ingju með kjörið í gær og sagðist
hlakka til innsetningar hans í emb-
ættið 25. febrúar næstkomandi.
Brazauskas, sem er fyrrverandi
leiðtogi litháíska kommúnistaflokks-
ins og náði kjöri í fyrstu forsetakosn-
ingunum 1992, kaus að sækjast ekki
eftir endurkjöri en studdi Paulauskas
opinberlega. Þar sem Brazauskas er
enn vinsælasti stjórnmálamaður Lit-
háens munaði vafalaust um stuðning
hans en fyrri tengsl Paulauskas við
kommúnistaflokkinn á Sovéttíman-
um virðast einnig hafa takmarkað
möguleika hans.
Paulauskas er 44 ára fyrrverandi
saksóknari og þótt hann hafi sjálfur
aldrei tilheyrt neinum stjórnmála-
flokki var hann í tengslum við for-
ystu litháíska kommúnistaflokksins
áður en hans tíð leið undir lok er
landið endurheimti sjálfstæði sitt
1991. Vytautas Landsbergis, sem
fór fyrir sjálfstæðisbaráttunni, gerði
mikið úr þessum tengslum Paulausk-
as í kosningabaráttu sinni fyrir
fyrstu umferð forsetakosninganna
21. desember sl. Þá féll Landsbergis
sjálfur úr leik í slagnum um forseta-
embættið; hann hlaut aðeins tæp
16% atkvæða og var þriðji í röðinni
að baki Paulauskas og Adamkus.
í kosningabaráttunni gerði Paul-
auskas út á ímynd ungs og orkumik-
ils manns, sem hikaði ekki við að
bera sig saman við John F. Kennedy,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta. I
fyrri umferðinni fékk hann nærri
45% atkvæða og Adamkus um 28%.
Það sýndi sig í síðari umferðinni,
að Adamkus tókst að krækja í flest
atkvæði þeirra sem kusu einhvern
af þeim frambjóðendum sem féllu
út eftir fyrri umferðina, en þeir voru
samtals fimm.
Forsetaembættinu í Litháen fylgja
takmörkuð völd, en hlutverk Lithá-
ensforseta er þó veigameira en for-
seta íslands. Hann velur forsætis-
ráðherra og getur sent lagafrumvörp
til endurtekinnar umfjöllunar í þing-
inu. Hann er jafnframt andlit lands-
ins_ út á við.
í gærmorgun sagði Adamkus að
það fyrsta sem hann óskaði sér eftir
kosningasigurinn væri „að minnsta
kosti viku frí“, þar sem fjögurra
mánaða þrotlaus kosningabarátta
hefði tekið sinn toll og nú væri hann
orðinn mjög þreyttur. En eftir það
hyggst hann hefla viðræður við full-
trúa allra þingflokka og segist full-
viss um að einhveijar breytingar
verði gerðar á ríkisstjórninni í kjöl-
farið.
Óbreyttar áherslur
í utanríkismálum
Hann segist hins vegar ekki munu
vilja breyta utanríkispólitískum
áherzlum svo neinu nemi. Aðild að
hinum vestrænu stofnunum, Evr-
ópusambandinu og Atlantshafs-
bandalaginu, verði eftir sem áður
mestu forgangsverkefnin í því tilliti.
Hæfni sína til að gegna forseta-
embættinu rekur Adamkus helzt til
þess að sem héraðsstjóri bandarísku
umhverfísverndarstofnunarinnar í
norðausturhluta Bandaríkjanna
stjórnaði hann starfsemi sem stærri
fjárlög stóðu að baki en fjárlög lit-
háíska ríkisins.
Ennfremur segir hann hálfrar ald-
ar reynslu sína af bandarísku lýð-
ræði gera sig hæfari en keppinautinn
til að gegna æðsta embætti hins
endurreista litháíska lýðveldis.
JACK Straw, innanríkisráðherra
Bretlands, er nú mjög hvattur til
að endurskoða lög um bann við
notkun kannabisefna, í kjölfar þess
að sonur Straws hefur verið ákærð-
ur fyrir að selja slíkt efni.
Þijú bresk blöð birtu á sunnudag
forystugreinar þar sem stjórnvöld
voru hvött til að skipa nefnd til að
athuga málið, og niðurstöður
tveggja skoðanakannana benda til
að meirihluti Breta sé fylgjandi til-
slökunum á lögunum.
Straw sagði í viðtali að fregnirn-
ar um að 17 ára sonur hans, Will-
iam, hefði selt rannsóknarblaða-
manni smáskammt af kannabis fyr-
ir tíu pund hefðu komið „eins og
þruma úr heiðskíru lofti“. Kvaðst
Straw enn þeirrar skoðunar að
kannabis gæti verið „mjög hættu-
legt“.
Götublaðið People hvatti til þess
í forystugrein að einhver jákvæður
lærdómur yrði dreginn af „sögunni
um Jack Straw“, og að sá lærdóm-
ur ætti að verða sá, að kannabis
yrði ekki lengur bannað. Að
minnsta kosti yrði að skipa nefnd
til að athuga málið. The Observer
og Sunday Express tóku undir með
People.
Föstudag 9. og laugardag 10. janúar 1998
Hínír landskunnu, síkálu og frábæru skagfirsku söngvarar:
Vinsælasta danshliómsveit landsins:
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
leikur fyrír dansi.
Húsið opnað kl. 19:00 fyrir matargesli. • Skemmlun hefst kl. 21:30.
Verð: Kr. 4500 matur og skemmtun • Kr. 1800áskemmtun
og ðansleik. • Kr. 950 á dansleik.
Glæsilegasta hlaðborð landsins: Fiöldikjöt-, fisk,-
grænmetis- og pastarétta. Aukþess úrvat af eftirréttum.
Slml 568-7111 - Fax 568-5018. • Miðasala opln daglega kl. 13-17. • Vlnsamlega pantlð tfmanlega.
HÓm fjM.AND
FYRIR ÞA
SEM VILJA
NÁ LENGRA
FYRST KEM ÉG
SVO BÍLLINN MINN
GUNNAR BERNHARD EHF.
VATNAGARÐAR 24
SÍMI: 520 1100
Verð frá
2.1 9 0.0 0 0,
[0
HONDA