Morgunblaðið - 06.01.1998, Síða 25

Morgunblaðið - 06.01.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 25 LISTIR Nýárstónleikar Selkórsins Klarínetta, selló og píanó á Kjar- valsstöðum TÓNLIST Scltjarnarncskirkja NÝÁRSTÓNLEIKAR Selkórinn ásamt Þuríði G. Signrðar- dóttur sópran, undir stjóm Jóns Karls Einarssonar. Undirleikari Amdis Inga Sverrisdóttir. Þver- flautuleikarar: Berglind Sveinsdóttir og Karen B. Jóhannsdóttir. Sunnudagurinn 4. janúar 1998. SELKÓRINN er blandaður kór af Seltjamamesi, stofnaður árið 1968. Kórinn var í upphafi aðeins skipaður kvenröddum en að tíu árum liðnum gengu karlaraddir til liðs við kórinn. Jón Karl Einarsson tók við stjórn kórsins vorið 1991 auk þess að vera skólastjóri Tónlistarskólans á Seltjamamesi. Tónleikamir í Sel- tjamarneskirkju sl. sunnudag mörk- uðu upphaf þrítugasta starfsárs kórsins. Enda þótt tónleikar Selkórsins hafi borið heitið Nýárstónleikar var fyrri hluti tónleikanna einkum helg- aður jólum. Efnisskráin hófst á þremur fomum lögum: Borinn er sveinn og Jesú, mín jólastjama í útsetningu Jóns Þórarinssonar og Kom þú vor Immanúel í útsetningu Róberts A. Ottóssonar. Kórinn fang- aði strax athygli áheyrenda í þessum lögum með öruggum söng. Næsti hluti efnisskrárinnar var helgaður íslenskum tónskáldum. Fyrst var sungið Jesú barn eftir Eyþór Stefánsson, þá Englar hæstir eftir Þorkel Sigurbjömsson. Lög þessi em mjög ólík að gerð. Hugsan- lega hefði mátt syngja lag Eyþórs hægar og blíðlegar og sálm Þorkels að sama skapi sterkar og ákveðnar til þess að draga fram andstæðurnar í lögunum, en það er vissulega smekksatriði hvers og eins. Lögin Jól eftir Bám Grímsdóttur og Að- fangadagskvöld jóla eftir Sigvalda Kaldalóns voru bæði mjög vel flutt - einkum var ánægjulegt að heyra lag Sigvalda flutt í fullri lengd. Fjögur næstu lög voru flest eftir þekkt erlend tónskáld. Það aldin út er spmngið eftir meistara Praetorius kom fyrst, þá Kom líknin heims eft- ir Lahusen, þá Heilagur, messuþátt- ur eftir Schubert, og loks Vögguljóð eftir Berlioz. Þessi lög voru ágætlega flutt, sérstaklega hið síðastnefnda. Þá fylgdu tvö jólalög sem oft heyr- ast sungin á tónleikum: Jólaklukkur kalla og Stráið salinn greinum græn- um, hið fyrra franskt en hið seinna frá Englandi. Bæði lögin voru flutt af miklum þrótti og sönggleði. Jóhann Sebastian Bach var í aðal- hlutverki í næsta hluta efnisskrár- innar. Flutt var sálmalagið Halelúja dýrð sé drottni erftir Nicolai í radd- setningu Bachs, þá fimm radda þátt- ur úr Magnificat: Sicut locutus est, síðan Hjörð í sumarsælum dölum eftir Bach í útsetningu Jóns Þórar- inssonar fyrir kór, píanó og tvær þverflautur og loks Slá þú hjartans hörpustrengi úr samnefndri kantötu. Þessi verk em töluvert snúin en kórinn söng þau af miklu öryggi. Hugsanlega hefði þátturinn úr Magnificat mátt hljóma hraðar, því það hefði bæði auðveldað sönginn og gert eltingarleikinn, fimmradda fúguna, fjöragri. Tónleikunum lauk með þremur verkum eftir erlenda höfunda. Þar kom raddþjálfi kórsins, Þuríður G. Sigurðardóttir sópransöngkona, kórnum til aðstoðar. Hún söng ásamt kórnum Fögur er foldin, þá Allsheijar Drottinn eftir Franck og loks Heyr mína bæn (Hear my pray- er) eftir Mendelssohn. Tvö síðustu verkin vom hápunktur tónleikanna. Þuríður hefur fallega, náttúmlega sópranrödd sem naut sín sérlega vel í verkinu eftir Mendelssohn. Kórinn studdi hana ágætlega og í samein- ingu ásamt undirleikaranum Arndísi Ingu Sverrisdóttur gerðu þau þessa áhrifaríku bæn að glæsilegum loka- punkti tónleikanna. Kórstjórinn Jón Karl Einarsson hafði mjög góð tök á kórnum og leiddi sönginn af öryggi. Það að stjóma kór er fýrst og fremst að leiða öndun og Jón Karl hefur sér- lega gott vald á því. Undirleikarinn Amdís Inga Sverrisdóttir fylgdi einnig stjórnanda og kór vel eftir og naut dyggrar aðstoðar kornungr- ar dóttur sinnar við flettingar. Þær Berglind Sveinsdóttir og Karen B. Jóhannsdóttir, nemendur í Tónlistar- skólanum á Seltjarnarnesi, settu einnig skemmtilegan svip á tónleik- ana með flautuleik sínum. Selkórinn er stór kór og skipaður prýðilega þjálfuðu söngfólki. Það sem háir kórnum lítillega er mis- vægi í röddum; sópranraddirnar em fjölmennastar og eiga það til að skyggja á hinar raddimar. Með sam- eiginlegu átaki ætti að vera hægt að sporna við þessu. Selkórinn sýndi á tónleikunum að hann er til alls líklegur og kæmi ekki á óvart þótt hann réðist næst á eitthvert af stærri verkum tónbókmenntanna. Honum er ámað heilla á afmælisári. Gunnsteinn Ólafsson SIGURÐUR Ingvi Snorrason klarínettuleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanó- leikari halda tónleika á Kjarvals- stöðum á morgun, miðvikudag, kl. 20.30. Á efnisskránni eru þrjú tríó fyrir kiarinettu, selló og píanó. Hið fyrsta er eftir norska tón- skáldið Jon Öivind Ness sem fæddur er árið 1968, en við flutn- ing verksins njóta flytjendur styrks úr Norræna tónleikasjóðn- um (Fonden för nordiska kon- serter). Þá kemur tríó Beetho- vens op. 11 frá árinu 1798. Loka- verk tónleikanna er „Plutöt blanche qu’azurée" eða „Fremur hvítt en heiðblátt" eftir Atla Heimi Sveinsson. Atli samdi verkið í Danmörku sumarið 1976 og Iýsir það löngum, björtum og hlýjum sumardegi í fjarlægri eyju - frá sólarupprás til sólar- lags. Aðgöngumiðar fást við inn- ganginn. Morgunblaðið/Árni Sæberg ANNA Guðný, Bryndís Halla og Sigurður Ingvi leika á Kjarvalsstöðum á morgun. Heim til einskis- mannslands MIKIÐ hefur verið skrifað um (jóð Henriks Nordbrandts. HENRIK Nordbrandt hefur verið eitt virtasta ljóðskáld Dana, síðan hann kom fram fyrir um þrjátíu ámm. Á þeim tíma hefur hann sent frá sér tvo tugi ljóðabóka auk nokk- urra safna ljóðaúrvals, reyfara, mat- reiðslubókar o.fl. Hann hefur lengst- um búið við Miðjarðarhaf, einkum í Tyrklandi, og setur það mikinn svip á ljóð hans. Hvað eftir annað hefur hann verið tilnefndur til bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs, en á jafnáberandi hátt verið gengið fram hjá honum. Mikið hefur verið skrifað um ljóð hans, og nú síðast kom heil bók eft- ir Tomas Bredsdorff bókmenntapró- fessor. Þetta er óvenju aðgengileg bók, ætti að vera auðskilin öllum almenningi sem áhuga hefur á Ijóð- um. Reyndar flallar hún ekki síður um líkingar almennt, kenningar um þær allt frá Aristotelesi, en þó eink- um á síðustu árum, og um hvernig dönsk ljóðskáld hafi beitt þeim und- anfarna áratugi. Bredsdorff færir sannfærandi rök fyrir því, að enginn gmndvallarmun- ur sé á líkingum („Gunnar er ljón“) og samlíkingum („Gunnar er einsog ljón“), en mestu skipti spennan á milli þess sem um er talað og hins sem því er líkt við, og hvaða hug- myndatengsl fara frá því síðar- nefnda til hins fyrrnefnda. Hann fjallar þó mest um líkingar Nord- brandts, og telur þær einkennast af tilfærslu; einu fyrirbæri er líkt við annað, en því síðan líkt við það þriðja. Bredsdorff tekur dæmið: „Á allt of björtum dögum milli dægur- rigningardaga, rignir sólin með hljóði eins og rottur gegnum gras.“, og segir (b!s. 43) að heildaráhrifin verði samskynjun; sýnilegt verði heyranlegt, sólgeislar verði að regni sem verði að þruski rottna. En Nordbrandt gengur lengra, oft verður það sem við er líkt að aðalat- riði ljóðsins, þar gerist sú hreyfing sem getur jafnvel gripið liði úr fyrsta atriðinu, því sem líkt var við annað. Bredsdorff tilfærir dæmi, sem einnig sýnir hvernig ein lína afneitar og umskapar undanfarandi, 2. lína bessa lióðs snvr alvee við bví sem Henrík Nordbrandt er eitt virtasta skáld Dana og hefur sent frá sér tvo tugi ljóðabóka áþijátíu •• + ára ferli. Orn Olafsson ffallar um þetta sér- stæða skáld sem hefur búið lengst við Miðjarð- arhaf, einkum í Tyrk- landi og á Spáni. ætla mátti eftir fyrstu, ljóðmælandi hafnar því að nota líkinguna „rós“ um stúlkuna, enda er það ein marg- þvældasta líking bókmenntasögunn- ar. En síðan notar hann samt líkingu um hana, líkir henni við fljót, og í lok kvæðisins eru ljóðmælandi og viðmælandi komin inn á sviðið, þar sem hún þó var fljótið! Af þessari tilfærsluaðferð leiðir það, segir Bredsdorff (bls. 33), að ljóðið firrist röklegt samhengi lausamáls, það er ekki hægt að endursegja. Og þetta leiðir til þeirra mótsagna, sem ein- kenna ljóð Nordbrandts. Nú get ég ekki notað þig lengur sem rós í ástarljóðum mínum: Þú ert allt of mikil, allt of fógur og allt, allt of mikið þú sjálf. Nú get ég í rauninni aðeins litið á þig eins oe litið er á fliót sem fundið hefur sinn eigin farveg og nýtur hans í sérhverri hreyfingu sinni sérhverri bugðu sinni, sérhveijum fiski sín- um og sérhveiju sólarlagi sínu milli blárra, snæviþakinna fjalla sem eru mín, einungis mín. því þú hefur rutt þér braut gegnum þau Nú get ég aðeins speglað mig í vötnum þínum sem streyma rólega hjá ásamt fallandi blómablöðum prömmunum og yfirgefnum námabæjum þar sem elskhugar þínir drekka sig fulla og drekkja sér í tunglskini þínu og skolast upp á bakkana i fjarlægum löndum, þar sem við hittumst í draumum okkar. Síðasta lióðabók Nordbrandts. Slöngurnar við himins hlið, birtist upphaflega í hitteðfyrra, en var nú að koma út í þriðja upplagi. Þar rík- ir ástarsöknuður, eins og svo oft áður, Nordbrandt hefur verið kallað- ur einkar rómantískur. í eftirfarandi ljóði er sérkennilegt hvernig fyrir- bæri úr heimi auglýsinga, staðlað munaðartákn, ummyndað í drasl, verður tákn ástarsaknaðar: Bílar Kvöld. Þau síðustu eru farin frá markaðinum. Bak við glampandi möl torgsins standa dauðu bílamir, sem þú nefndir: Tegundir sem þig dreymdi um að eiga... Ford, Opel og rauður Alfa Romeo sem ég hefði viljað fóma öllu fyrir að sjá þig aka burt í: Yfir ryðsár ris eamalt lakk í bólum. Fjaðrimar hafa stungist út gegnum bólstrin einnig þær em ryðgaðar, tækjaborðið horf- ið... Spider! Þú bragðaðir á orðinu, eins og það heimili sem okkur dreymdi um að eignast lægi á stað sem aðeins Alfa Romeo Spider gæti ekið til eyðilagður nú, vélhlífin opin hlutamir komnir í aðra bíla: Vömmerki sem þú hefur nefnt, ummerki tannfór þín í ryði... Eins og fleiri skáld sér Nord- brandt nærtækt tákn mannslífs í minnisbók, og öðru dóti, sem er mikilvægt fyrst, en úreldist fljótt. Hæst nær þetta í erfðagripnum í lokaerindi, sem sýnir hvernig ljóð- mælandi er kominn úr takt við tím- ann - ,og umhverfi sitt. Það snýst hinsvegar við í draumum hans (í 2.-3. erindi). í þessum meginand- stæðum Ijóðsins fáum við skarpa mynd af firringu. Heimilisfangabókin Ég veit ekki hvert ég á að snúa mér: Helmingur nafnanna í heimilisfangabókinni minni er lokaður með ósýnilegum krossi og lyklamir í vösum mínum ganga að lásum sem fyrir löngu er búið að skipta um. Sóttheitum nóttum mínum verð ég að skipta milli allra húsanna sem ég hefi búið í. Á morgnana bera ókunnir mig heim til einskismannslands. Ég hleð sjálfan mig eins og segul sem rennur stjórnlaust þegar rökkvar: Allt og allir vilja halda sér í mig til þess eins að deyja, þegar strauminum lýkur. Tími minn er eins og sá sem lesa má á úri sem kom í arf og ég þori ekki að kaupa mér nýtt. Heimildir: líenrik Nordbrandt: Ormene ved himlens port. Gyldendal 3. opl. 1997. Thomas Bredsdorff: Med andre ord. Om Henrik Nordbrandts poetiske sprog. Gvldcndal 1996.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.