Morgunblaðið - 06.01.1998, Side 33

Morgunblaðið - 06.01.1998, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 33 j SIGMUNDUR JÓNSSON Sigmundur Jónsson fæddist að Kambi í Reyk- hólasveit 11. októ- ber 1911. Hann lést | á Landakotsspítala 23. desember síðastliðinn Foreldr- I ar hans voru hjónin Jón Hjaltalín Brandsson bóndi f. 25. sept. 1875, d. 15. júní 1947 og Sesselja Stefánsdóttir f. 22. júní 1881, d. 12. júlí 1971. Systkini Sig- mundar voru: Elín | Gróa húsmóðir, f. 1902, Stefán prentsmiðjustjóri Eddu hf., f. 1904, Guðbjörg húsmmóðir, f. I 1905, Ólafur stórkaupmaður í Electric hf., f. 1908, Guðmundur f. 1909 (lést ungur), Kristján verslunarmaður f. 1915, Magnús vélvirkjameistari, f. 1918, Bjarni vélstjóri, f. 1922, Guðmundur vél- stjóri, f. 1922. Fóstursystir Lilja Hannesdóttir f. 1926. Hinn 24. ágúst 1940 giftist Sig- | mundur eftirlifandi eiginkonu sinni Nönnu Gunnlaugsdóttur snyrtifræðingi og fótaaðgerða- ( meistara sem ættuð er frá Ytra- Ósi við Steingrímsfjörð. Börn þeirra eru: 1) Gunnlaugur Magn- ús, alþingismaður og forstjóri, f. 30. júní 1948, kona hans er Sig- ríður G. Sigurbjörnsdóttir, skrif- stofustj. f. 5. október 1948. Börn þeirra eru: 1) Sigmundur Davíð, f. 12. mars 1975, Sigurbjörn | Magnús, f. 6. apríl 1977, Nanna Margrét f. 9. apríl 1978. 2) Jón Richard tæknifræðingur, f. 3. ( júní 1951, kona hans er Björk Högnadóttir húsmóðir, f. 14. mars 1956. Þeirra sonur er Brandur Máni, f. 2. desember 1993. Synir Jóns af fyrra hjónabandi eru: Gunnlaugur, f. 15. desember 1979 og Sigmundur, f. 20. október 1983. Sigmundur stund- aði nám í Samvinnu- skólanum og fram- haldsnám í verslun- arfræðum við Kooperativa För- bundet í Svíþjóð á árunum 1938 til 1939. Eftir heimkomu starfaði Sigmundur fyrst við Kaupfélag Steingrímsfjarðar, varð síðan fjármálastjóri Bygginganefndar Sfldarverksmiðja ríkisins við byggingu sfldarverksmiðjunnar á Skagaströnd. Hann var gjaldkeri Vélsmiðjunnar Héðins í 22 ár eða frá hausti 1946 til ágúst 1968 og íjármálastjóri Slysavarnafélags- ins frá 1968 til 1982 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Sam- hliða þessum störfum var Sig- mundur frumkvöðull að stofnun nokkurra fyrirtækja og tók virk- an þátt í rekstri þeirra. Meðal þessara fyrirtækja voru: Beina- mjöls- og st'ðar lifrarbræðslu- verksmiðja á Hólmavík, sfldar- söltun á Skagaströnd, sfldarsölt- unarstöðin Hafblik hf. á Vopna- firði og fiskimjölsverksmiðjan Sfjörnumjuöl hf. í Örfirisey í Reykjavík sem var fyrsta verk- smiðjan sem gufuþurrkaði fiski- mjöl hér á landi. Útfór Sigmundar verður gerð frá Neskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Nokkur þakkarorð til horfins heiðursmanns, sem var svo grand- var og vandur að virðingu sinni, að frá mínum kagaðarhóli verður i hvorki greindur blettur né hrukka á framgöngu hans. Sigmundur ( Jónsson var þeirrar gerðar, að líf ( hans verður vart á annan hátt skil- greint en með því að segja, að hann hafi verið vammlaus til orðs og æð- is. - Prútt og ljúfmannlegt viðmót hans var hins vegar engin ábending um meyrt skap eða skoðanaleysi. - Hann tók mjög ákveðna afstöðu til manna og málefna, fór ekki geyst með skoðanir sínar, en stóð á sínu; | öllu því, sem honum þótti sannast og réttast. Hann var nánast aristókratískur á að horfa, bæði í ( allri umræðu, viðmóti og klæða- burði. Ég kynntist Sigmundi, þegar ég kvæntist inn í ætt konu hans, Nönnu Gunnlaugsdóttur, sem var systir tengdaföður míns. Þau reyndust mér og konu minni miklir vinir og traustir félagar, einkum þegar við vorum að hefja búskap og ( eignuðumst okkar fyrsta barn. Þau j skipa hóp þess fólks, sem fegrar minningu um löngu horfna daga. ( Þegar ég um skamma stund gegndi starfi, sem Sigmundur þekkti vel til, lagði hann á sig, hálf- blindur, langa ferð til að fræða mig um sögu viðkomandi stofnunar, hvað bæri að varast og hvernig best væri að málum staðið. Þekking hans kom mér að notum, þegar taka þurfti afdrifaríkar ákvarðanir. Þessum heiðursmanni fylgja góðar kveðjur frá fjölskyldu minni um leið 'l og við látum í ljós aðdáun á þeirri ( umhyggju og ást, sem eiginkona hans og fjölskylda sýndu með skýr- um hætti í langvarandi og erfiðum veikindum Sigmundar. Guð blessi þennan góða mann. Ámi Gunnarsson og fjölskylda. Með Sigmundi Jónssyni, Þorra- (5 götu 5 hér í borg, er fallinn frá j merkur maður, sem ég hefi ætíð . haft miklar mætur á og mér er * kunnugt um að naut trausts og virðingar þeirra, sem honum kynntust. Þvi tel ég mér ljúft og skylt að minnast hans nokkrum orðum að þeim leiðarlokum. Við Sigmundur kynntumst fyrst, þegar ég var nýlega fluttur til Hólmavíkur og hafði tekið við emb- ætti sýslumanns í Strandasýslu. Það var sumarið 1940, að ég stóð í þeim framkvæmdum að koma upp embættisbústað í Hólmavik og var Sigmundur þá í heimsókn hjá Elínu systur sinni, sem var gift héraðs- lækninum á staðnum, Karli G. Magnússyni. Það varð þá úr, að Sigmundur réðst til vinnu hjá mér við húsasmíði þessa. Fór þá þegar vel á með okkur, og hélzt eftir það góð vinátta milli okkar. Ég sá brátt, að hann var traustur og vel fær maður og jafnframt heiðarlegur sem bezt mátti vera. Næstu árin var hann í starfi við Kaupfélag Steingrímsfjarðar á Hólmavík. Síð- an skildi leiðir með okkur. Hann fluttist til Reykjavíkur með konu sinni haustið 1946. Eftir það hóf hann þar margvísleg störf. Þótt leiðir skildi þannig milli okkar, héldum við kunningsskap og fylgd- umst hvor með öðrum, eftir því sem ástæður leyfðu. Mér var ánægju- legt að verða þess áskynja, að við hin margvíslegu störf reyndist Sig- mundur jafnan hinn trausti, dug- andi og heiðarlegi maður, sem ávann sér viðurkenningu og virð- ingu mætra manna fyrir mannkosti sína. Eftir að ég fluttist hingað til Reykjavíkur að loknum embættis- ferh, urðum við Sigmundur ná- grannar og hittumst oft og endur- nýjuðum og bættum forna vináttu okkar. Þá sagði hann mér ýmislegt frá störfum sínum og viðskiptum við ýmsa menn, þ. á m. þekkta at- hafnamenn, bankastjóra og stjóm- málamenn. Eigi er unnt að greina hér frá einstökum atvikum í því efni, en það fór ekki á milli mála, að allir þessir mætu menn, sem hann þurfti að eiga skipti við, sýndu Sig- mundi fyllsta traust og urðu margir þeirra ýmist góðir vinir eða kunn- ingjar hans. Lengst var hann gjald- keri Vélsmiðjunnar Héðins eða alls 22 ár, og vann hann þau trúnaðar- störf með sóma þar til í ágúst 1968. Um það leyti vildu forráðamenn Slysavarnafélags Islands fá hann til starfa fyrir félagið og leituðu af því tilefni umsagnar um Sigmund hjá Sveini Guðmundssyni forstjóra Héðins. Umsögn hans var á þá leið, að hann taldi Sigmund vera strang- heiðarlegan mann, sem hann sagð- ist treysta sér til að taka alla ábyrgð á ef á þyrfti að halda. Síðan varð Sigmundur fjármálastjóri Slysavarnafélags íslands og gegndi því starfi til ársins 1982, er hann lét af störfum vegna aldurs. Honum voru þessi störf fyrir Slysavarnafé- lagið mjög hugleikin. Sama máli gegndi um störf hans fyrir bygg- ingarnefnd Síldarverksmiðjunnar á Skagaströnd. Hann talaði oft um þessi og reyndar fleiri störf sín og hafði þá frá ýmsum atvikum margt að segja, en eigi er unnt að rekja þær frásagnir nánar hér. Þess ber einnig að geta, að Sigmundur var með öðrum merkum mönnum frumkvöðull að stofnun nokkurra fyrirtækja. Hugleiknust meðal þeirra var honum Fiskimjölsverk- smiðjan Stjörnumjöl hf., sem hann reisti ásamt fjórum öðrum í Örfiris- ey í Reykjavík. Þessi verksmiðja var sú fyrsta hér á Iandi, sem gufu- þurrkaði mjöl í stað eldþurrkunar, en nú er gufuþurrkun hin sjálf- sagða aðferð. A árunum kringum 1960 og fram til 1965 átti hann og rak ásamt fleirum síldarsöltun í Vopnafirði undir nafninu Hafblik hf. Meðal meðeigenda eru til- greindir þeir Halldór Asgrímsson (eldri), Sveinn Benediktsson, Ólaf- ur, bróðir Sigmundar, og Óli Hertervig. Þá skal þess getið, að Sigmundur var mjög áhugasamur og ræktar- legur í garð heimabyggðar sinnar Reykhólasveitar og fór þangað ár- lega í heimsóknir, meðan heilsan leyfði. Af sama toga var spunnið framlag hans og afskipti af hótel- rekstri, sem Barðstrendingafélagið stóð fyrir að Bjarkarlundi og síðar einnig að Flókalundi. Jón Hjaltalín Brandsson, faðir Sigmundar, átti jörðina Berufjörð og gaf landið, sem Bjarkarlundur stendm- á. Sig- mundur átti mikinn þátt í að koma báðum þessum hótelum upp, og eft- ir að rekstur hófst fór hann mörg vor og sumur vestur til að undirbúa og efla reksturinn. Eftirlifandi eiginkona Sigmundar er Nanna Gunnlaugsdóttir frá Ósi í Steingrímsfirði, glæsileg kona, vel gefin og vel á sig komin á allan hátt, komin af þekktu myndarfólki. Hjónaband þeirra hefir verið gott og farsælt og einkennzt af gagn- kvæmri virðingu. Sigmundur dáði mjög sína góðu konu og hún reynd- ist honum stoð og stytta á alla lund. Þau hjón eignuðust tvo syni, sem eru dugandi og mestu myndar- menn. Þeir eru: Gunnlaugur Magn- ús, alþingismaður og forstjóri og Jón Richard tæknifræðingm-, og hafa þeir báðir veitt foreldrum sín- um óblandna gleði, svo og barna- börnin, sem nú eru sex að tölu. Nanna rak um árabil af dugnaði og myndarskap snyrtistofu á Hótel Sögu, sem hefir vissulega skilað góðum og verðskulduðum árangri. Þau hjón áttu m.a. sumarbústað, sem þau reistu á landi, sem þau keyptu við Álftavatn í Grímsnesi. Þar þótti þeim ákjósanlegt að vera og leið þar vel. Sigmundur naut sín eigi hvað sízt við endurbætur á bú- staðnum og lagfæringu á landinu og gróðursetningu þar. Þess má enn geta, að hin síðari æviár sín fóru þau hjón í allmikil ferðalög saman, og lágu leiðir þeirra þá til margra landa víða um heim. Sigmundur sagði mér frá þessum ferðalögum og virtist hafa notið mikillar ánægju af kynnum sínum af hinum ýmsu löndum. Fyr- ir kom, að hann sendi mér ágæt bréf frá ýmsum löndum, sem hann var þá staddur í, bæði austan hafs og vestan. Sigmundur hafði lengst af ævinn- ar haft góða heilsu, nema hvað sjón tók að bila hjá honum um það bil sem hann hætti vinnu, um 1982. Svo var það í ágústmánuði 1994, að hann fékk heilablóðfall, sem olli lömun líkamans vinstra megin, og jafnframt missti hann þá algerlega sjónina. Þessi hörmulegi heilsu- brestur hafði það í för með sér, að Sigmundur var vistaður á sjúkra- hús, fyrst í Landspítala, þar næst í endurhæfingardeild í Hátúni og síðast á Landakotsspítala. Nanna sinnti honum í veikindunum af fá- dæma fórnfýsi frá upphafi, unz yfir lauk. Um helgar tók hún hann heim til dvalar á heimili þeirra, frá föstu- degi til sunnudagskvölds, og aðra daga sat hún yfir honum frá morgni til kvölds í sjúkrahúsunum. Rétt þykir að geta þess, að þau nær þrjú og hálft ár, sem Sigmundur lá veik- ur, lét Nanna sig ekki vanta einn einasta dag, ef frá eru skildir 3 dag- ar, sem hún þurfti að undirgangast augnauppskurð. Sigmundur tók veikindum sínum af æðruleysi og karlmennsku, en hann var lengst af allvel málhress. í veikindum hans heimsótti ég hann oft, fyrst á heim- ili hjónanna á Grímshaga og síðar á heimili þeirra að Þorragötu 5. Þarna heimsóttu hann einnig ætt- ingjar og ýmsir aðrir vinir. Vil ég nú þakka Sigmundi sam- fylgd og góða vináttu. Um hann munu lifar góðar minningar. Eftirlifandi konu hans, bömum, barnabörnum, öðram venzlamönn- um og vinum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Jóhann Salberg Guðmundsson. Aldraður maður, rúmliggjandi og blindur um árabil, hefur nú fengið hvfldina eilífu. Ekki kom það mér beint á óvart, er Gunnlaugur Sig- mundsson hringdi til mín árdegis á aðfangadag jóla og sagði mér, að faðir sinn væri látinn, hefði sofnað daginn áður. Ég hafði komið til hans næstum á hverri helgi síðan hann varð blindur fyrir nokkrum árum, en hann var heima á helgum. Annars var hann í sjúkrahúsi, síð- ast á Landakotsspítala. Konan hans, Nanna Gunnlaugsdóttir, ann- aðist hann jafnt í sjúkrahúsinu sem heima, og sýndi einstakan dugnað og fómarlund, sjálf á efri áram, við að hlynna að manninum sínum síð- ustu æviárin. Synir Sigmundar, Jón Richard tæknifræðingur og Gunn- laugur alþingismaður, einnig fjöl- skyldur þeirra, veittu og Sigmundi góða aðstoð og umhyggju, árin sem hann var máttvana og blindur. Sigmundur Jónsson var fæddur og uppalinn að Kambi í Reykhóla- sveit, og þannig sveitabarn í húð og hár. Hann leitaði sér menntunar, eins og jafnan hefur verið háttur námfúsra unglinga. Leiðin lá fyrst að Laugum í Reykjadal. Þar stund- aði hann nám í tvo vetur hjá hinum ágætustu lærifeðram. Þarna var ekki um langskólanám að ræða, heldur góðan undirbúning undir al- menn störf í þjóðfélaginu. Sá sem lauk héraðsskólaprófi var ekki að öllu ómenntaður af skólagöngu. Hann hafði lagt grandvöll að sjálfs- námi síðar, og vissulega gerðu það margir. En Sigmundur stefndi að verslunar- og skrifstofustörfum, og þess vegna sótti hann um inngöngu í Samvinnuskólann, sem þá var undir stjórn hugsjónamannsins Jónasar frá Hriflu. Og ekki nóg með það. Hann fékk inni, víst fyrir tilstilli Jónasar, í samvinnuháskóla Svía, Vár Gárd í Stokkhólmi. Þar var hann fram að styrjöld, og mátti ekki miklu muna, að hann kæmist ekki heim, áður en það óveður skall á. Hann sagði mér frá því öllu sam- an, meðan hann var sjáandi og heill. Sé ég eftir að hafa ekki náð þessari frásögn hans heilli, meðan mátti. En svona er lífið: óútreiknanlegt. Sigmundur var samvinnumaður og fylgjandi stefnu Framsóknarflokks- ins alla ævi. Hann þekkti einnig mai-ga af forystumönnum flokksins. Kynni okkar Sigmundar vora ekki löng, en góð. Gaman var við hann að ræða. Jafnvel eftir að hann var blindur orðinn, sagði hann frá mörgu, sem gaman er nú að eiga í huganum. Ekkert er dýrmætara en farsæl kynni við fólk, sem tekur mann eins og maður er, en ekki eins og maður ætti kannski að vera. Ég þakka fyrir kynnin við Sigmund Jónsson frá Kambi. Þau eiga eftir að ylja mér um ókomna tíð. Afkom- endum votta ég samúð við fráfall hans. Auðunn Bragi Sveinsson. „Þú grætur vegna þess sem eitt sinn var gleði þín.“ Þessi orð eiga svo sannarlega við í dag þegar ég minnist hans Sigmundar afa míns með fáeinum orðum. Það var svo margt sem mig langaði að segja við afa þessa seinustu daga hans héma, vitandi það að hann væri að fara frá okkur. Ég bara vissi ekki á hveiju ég ætti að byrja og ég vissi að seint myndi ég finna endi á öllu því sem ég vildi sagt hafa. Ég vona að hann hafi heyrt til mín þegar ég sagði við hann: „Afi minn ég mun alltaf muna þig. Muna þig eins og þú varst áður en þú varðst svona veikur.“ Mínar fyrstu minningar um afa era frá því þegai’ við fjölskyldan bjuggum í Ameríku og afi, amma og Fjóla frænka komu að heimsækja okkur. Tilhlökkunin hjá okkur var auðvitað mikil og afi lék sér við okkur allan daginn. Skiptist á að hlaupa með okkur á háhesti, hring eftir hring í kringum húsið, og fór með okkur systkinin í lautarferðir inn eftir „svarta“ stígnum. Hann útbjó nesti, fann prik og klút og inn í klútinn fór nestið og þar með var þetta orðin ævintýraferð. Svo var hann hjá okkur þegar við þurftum að flytja og þó að við höfum e.t.v. bara verið fyrir þá leyfði afí okkur alltaf að hjálpa. Hann vissi hvað við höfðum gaman af því og hvað við nutum þess að fá hrósið þegar afi sagði okkur, eins og hann gerði svo oft, hvað við væram dugleg. Eftir að við komum heim fór sumarbústaðarferðunum að fjölga. Þar áttum við fjölskyldan margar góðar stundir saman og ég fann að afa leið alltaf best þar. Og alveg sama hvað var; afi gerði aldrei upp á milli barnabarnanna sinna. Hann kunni líka alltaf ráð við öllu, t.d. þegar við krakkamir vorum að fara með bátana okkar niður að vatni og einn bát vantaði, þá var afi ekki lengi að redda því og smíðaði bara bát úr spýtum sem hann átti. Ég minnist jólanna 1986, þau voru öragglega bestu jólin hjá fjölskyldunni minni vegna þess að afi og amma gáfu okkur systkinunum bækur og dót til að safna frímerkjum í og öll jólin fóru í að leysa upp frímerki og byrja að safna. Við eyddum ófáum stundum seinna með afa í að stússast með frímerkin okkar. Það kom alloft fyrir að við systkinin gistum á Grímshaganum hjá afa og ömmu þegar mamma og pabbi vora erlendis. Þær stundir sem við áttum með afa þá eru afar ljúfar og minnisstæðar. A meðan amma var í vinnunni passaði afi upp á að okkur leiddist nú ekki. Hann fann alltaf upp á einhverju sniðugu og svo í hádeginu fengum við oftar en ekki skyr og brauð með mysingi, sem var alltaf jafngott hjá afa. Eitt það skemmtilegasta við afa var að maður fann að honum fannst virkilega gaman að vera með okkur og hafa okkur í heimsókn. Afi vildi allt fyrir okkur gera, hann virtist kunna endalausar sögur að segja okkur, fór með okkur út um allt í strætó og sýndi okkur mikið af bókum og myndum, t.d. af honum og ömmu, pabba og frænda frá fyrri áram, svo ég tali nú ekki um hvað það var skemmtilegt þegar við fóram að gramsa uppi á háalofti. Þegar við heimsóttum afa og ömmu og fóram með strætó beið afi oftast eftir okkur á strætóstoppistöðinni og hann fylgdi okkur þegar við voram að fara heim eða í skólann. Við barnabörnin, og án efa aðrir sem þekktu afa, litum mjög mikið upp til hans og ég veit að það mun ég ætíð gera. Góðu minningarnar era svo margar og ég mun alltaf varðveita þær. Hann Sigmundur Jónsson var afi eins og allir vildu eiga, hinn fullkomni afi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.