Morgunblaðið - 06.01.1998, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 39
I
I
I
I
'
I
MINNINGAR
JÓNAS
ÓLAFSSON
+ Jónas Ólafsson fæddist á
Tortu í Biskupstungum í
Arnessýslu 5. desember 1912
en ólst upp að Hólum á sama
stað. Hann lést 20. desember
síðastliðinn og fór útför hans
fram frá Skálholtskirkju 3. jan-
úar.
Elsku afi minn, nú ertu farinn
frá okkur og er söknuðurinn míkill.
Þú hefur verið í lífi mínu frá því
að ég man eftir mér og þú kenndir
mér svo margt. Ég mun aldrei
gleyma því hvað þú varst þolinmóð-
ur við okkur systkinin þegar þú
varst að kenna okkur á spil og að
leggja kapal, ég kann þá enn þann
dag í dag, og mun sennilega aldrei
gleyma þeim. Eða þeim stundum
þegar þú sast og tálgaðir út litla
fugla úr ýsukinnum og gafst okkur.
Þú kenndir mér og frænku minni
líka fyrsta alvöru lagið, það var
Álfareiðin eftir Jónas Hallgrímsson.
Þú hættir ekki fyrr en við vorum
búnar að læra það utanbókar, við
vorum ekki nema svona 8 eða 9 ára.
Svo var sagan farin að endurtaka
sig þegar ég kom í heimsókn með
dóttur mína hana Ólöfu Örnu. Hún
fór alltaf beint inn í herbergi til þín
og ömmu og bað þig að leika við
sig. Og þú söngst og spilaðir við
hana. Henni fannst svo gaman að
heimsækja ykkur ömmu, og finnst
enn. En það vantar eitthvað, hann
langafa Jónas.
Ég held að hún hafi verið sú
eina í fjölskyldunni sem kallaði þig
Jónas. Við hin kölluðum þig afa
Jóa. Þú verður í minningu minni
og okkar allra um alla ævi elsku
afi minn.
Elsku amma mín, ég samhrygg-
ist þér svo innilega.
Á gömlum gulum blöðum
ég geymi ár og tíð.
Sem flugu fótum hröðum
í fjarlægð, minning blíð.
Anna Björk og fjölskylda.
Þann 20. desember náði pabbi í
mig í vinnuna. Venjulega er hann
hress og grínast í mér, en mér
fannst hann vera eitthvað daufur
en spurði ekki neitt hvað væri að.
Þegar ég kom heim sagði mamma
mér að hann afi Jói hefði dáið um
morguninn.
Það er alltaf mikið áfall þegar
einhver nákominn manni deyr. En
þegar maður hefur jafnað sig á
áfallinu þá getum við sem eftir lif-
um huggað okkur við minningar
okkar um þá látnu.
Mín fyrsta minning um afa minn
er þegar hann situr með mig í fang-
inu inni í eldhúsi og er að gefa
mér slátur að borða, hann er sá
eini sem hefur tekist það. Einnig
man ég eftir því þegar ég fór með
honum að gefa hænsnunum, ég fór
þó aldrei með honum inn. Í eitt
skiptið herti ég mig upp og dreif
mig nú inn en hljóp strax aftur
út því eitthvað urðu hænsnin
stygg. Hvort það var vegna mín
eða einhvers annars veit ég ekki,
en ég veit það að afi gat verið stríð-
inn. í einni af okkar heimsóknum
til ömmu og afa fórum við I bíltúr
uppí Haukadal, því afi hafði tekið
eftir hvítum bletti I skóginum. Það
reyndist vera gamall bíll sem lá á
hliðinni en inni í honum var svo
lítið hreiður. Það sem ég man þó
helst úr þessum bíltúr var þegar
afi hringdi kirkjuklukkunum í
Haukadalskirkju. Hann afi minn
gat verið grallari í sér og atast í
okkur barnabörnunum. Hann var ^
duglegur að bjóða okkur barna-
börnunum í nefíð og alltaf var
hann til í að syngja fyrir okkur.
En systurdóttir mín hún Fanney
kallar hann afa sem syngur. í
minningunni er afi stór og myndar-
legur syngjandi grallari og enn-
fremur bóndi sem vann hörðum
höndum allt sitt líf.
Elsku afi minn, þín er sárt sakn-
að, en ég hugga mig við það að
nú sértu kominn aftur í sveitina
þína og syngur með hinum englun-
um. Afi minn, ég gleymi þér aldrei
því þú átt alveg sérstakan stað í
hjarta mínu og í hvert sinn sem ég
heyri sungin íslensk ættjarðarlög
minnist ég þín.
Elísabet Stefánsdóttir.
RAOAUGLVSIIVIGAR
Fundur um þróunaraðstoð
David Steel, lávaröur og fyrrverandi formað-
j ur Frjálslynda flokksins í Bretlandi, sem er sér-
fróður um málefni þróunarlanda, flytur fyrir-
■ lestur um þróunaraðstoð og áhrif hennar í
9 Afríku, á vegum Þróunarsamvinnustofnunar
íslands og utanríkisráðuneytisins, þriðjudag-
inn 6. janúar nk.
Fundurinn verður haldinn í stofu 101, Odda,
húsi félagsvísindadeildar Háskóla íslands, og
hefst kl. 17:00 með ávarpi Halldórs Ásgríms-
sonar utanríkisráðherra.
j Fyrirspurnir og umræður verða að loknu fram-
söguerindi.
m Fundurinn er öllum opinn og eru áhugamenn
9 um þróunarmál hvattir til að koma.
3
I
J
I
I
I
Morgunverðarfundur
Rannsóknarráðs íslands og Kynningar
miðstöðvar Evrópurannsókna
Hvammur, Grand Hótel, föstudaginn
9. janúar 1998
Er hægt að bæta sam-
keppnisstöðu iðnaðarins
með verndun eignaréttar?
Það erstefna Tæknisjóðs Rannsóknarráðs
íslands að hvetja styrkþega sjóðsins að huga
betur en áður að verndun niðurstaðna rann-
sókna- og þróunarverkefna.
í framtíðinni verður vaxandi áhersla lögð á
verndun eignaréttar og ávinnings verkefna
í samningum sjóðsins og styrkþega. Af því
tilefni hafa RANNÍS og KER, í samvinnu við
Marel hf., fengið Jack S. Barufka, sérfræðing
hjá einkaleyfastofunni Cushman, Darby &
Cushman í Washington DC, til að flytja fyrir-
lesturum markaðssetningu nýrrartækni í
Bandaríkjunum með og/eða án vernd einka-
leyfa. Fundurinn verður haldinn í Hvammi,
Grand Hótel, föstudaginn 9. janúar nk. kl. 8.00.
Dagskrá:
8.00 Mæting
8.15 Fundarstjóri Vilhjálmur Lúðvíksson,
framkvæmdastjóri Rannís
8.25 Stefna Marel í einkaleyfismálum.
Gunnar Örn Harðarson, Marel hf.
8.40 Geta fyrirtæki, sem markaðssetja
nýjungar í Bandaríkjunum, lifað af
v án verndun eignaréttar?
• Einkaleyfisvernd eda ekki
• Einkaleyfi á reikniaðferdum og tölvutengdri tækni
Jack Barufka, sérfræðingur hjá einkaleyfa-
stofunni Cushman Darby & Cushman,
Washington DC.
9.25 Fyrirspurnir og umræða
Skráning á fundinn er hjá:
Rannsóknarráði íslands, Laugavegi 13,101
Reykjavík, sími 562 1320, fax 552 9814.
RANNÍS
Reykja
D
Esigim
TILKYNNINGAR
Vinningsnúmer í happdrætti félagsins
24. desember 1997:
1. vinningur Corolla Hatchback Terra, 3ja dyra,
sjálfskiptur, kr. 1.400.000
nr. 23914.
2. -5. vinningur bifreið að eigin vali fyrir
kr. 500.000
nr. 8429 - 9431 - 12213 - 22879.
Félagið þakkar veittan stuðning.
Auglýsing um skipulag
vatnsverndar á höfuð-
borgarsvæðinu
Samkvæmt 13. grein skipulagslaga nr. 73/1997
er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu
að skipulagi vatnsverndar á höfuðborgarsvæð-
inu.
Tillagan næryfirhluta lögsagnarumdæma
Reykjavíkur, Mosfellsbæjar, Kópavogs, Garða-
bæjar, Hafnarfjarðar, Bessastaðahrepps og
Seltjarnarneskaupstaðar.
Tillaga að skipulagi vatnsverndar á höfuð-
borgarsvæðinu, þ.e. skipulagsuppdráttur
ásamt samþykkt um verndarsvæði vatnsból-
anna liggurframmi almenningi til sýnis frá
6. janúar 1998 til 4. febrúar 1998.
Tillagan liggurframmi á skrifstofutíma á eftir-
töldum stöðum:
1) Reykjavík, á skrifstofu Borgarskipulags
Reykjavíkur, Borgartúni 3.
2) Mosfellsbæ, á bæjarskrifstofu Hlégarði.
3) Kópavogi, á skrifstofu skipulagsdeildar
Fannborg 2.
4) Garðabæ, á bæjarskrifstofu Garðatorgi 7.
5) Hafnarfirði, á skrifstofu skipulagsdeildar
Strandgötu 6.
6) Bessastaðahreppi, á skrifstofu Bjarnastöð-
um.
7) Seltjarneskaupstað, á bæjarskrifstofu
Austurströnd 2.
8) Samtökum sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu, á skrifstofunni í
Hamraborg 12, Kópavogi.
Skriflegum athugasemdum við skipulags-
tillöguna skal skila á einhvern framangreindra
staða fyrir 18. febrúar 1998.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Samtök sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu.
Skipulagsstjóri ríkisins.
Breskir námsstyrkir
Breska sendiráðið býður íslenskum náms-
mönnum, sem uppfylla eftirfarandi skilyrði,
að sækja um nokkra styrki til náms við breska
háskóla skólaárið 1998/99. ir-
Umsækjendur þurfa annað hvort að haf tryggt
sér skólavist eða hyggja á nám við breskan
háskóla. Venjulega koma þeir einir til greina
sem eru í framhaldsnámi. Styrkirnir eru til
greiðslu á skólagjöldum — annar kostnaður
er ekki innifalinn í þeim.
Háskólarnir í Hull og Newcastle bjóða styrki
í samvinnu við sendiráðið. Einnig er samvinna
milli sendiráðsins og fyrirtækisins Glaxo- Wel-
come um að bjóða styrktil náms í einhverri
heilbrigðisgrein. <■
Umsóknareyðublöð fást aðeins í breska sendi-
ráðinu, Laufásvegi 31,101 Reykjavík, (sími
550 5100) virka daga frá kl. 9.00—12.00.
Einnig er hægt að fá þau send.
Umsóknum berað skila fyrir 31. janúar 1998,
fullfrágengnum. Umsóknir, sem berast eftir
það, koma ekki til greina við úthlutun.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
□ EDDA 5998010619 III - 2
□ FJÖLNIR 5998010619 1
KENNSLA
□ Hlín 5998010619 VI
Aglow fundur
Konur athugiö.
Fyrsti fundur Aglow á nýju ári
verður ( kvöld (þriðjudaginn 6.
jan.) kl. 20.00 í Kristniboðssaln-
um, Háaleitisbraut 58—60. Ester
Jakobsen frá Hvítasunnusöfnuð-
inum verður gestur okkar. Verið
allar hjartanlega velkomnar.
Stjórn Aglow í Reykjavík.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Þriðjudagur 6. janúar kl. 20:
Þrettándaganga og blysför
um álfabyggðir í Öskjuhlíð.
Nýja árinu er einnig fagnað með
blysför og veður farin að venju
þrettándaganga um álfabyggðir í
Öskjuhlíð. Brottför er kl. 20.00 frá
Perlunni að kvöldi þrettándans 6.
janúar og verður farin fjölskyldu-
ganga um skógarstiga Öskjuhlíð-
ar. Blys kr. 300 verða seld fyrir
upphaf göngu og er fólk hvatt til
að mæta tímanlega. Allir vel-
komnir.
Fyrstu ferðir ársins eru
kynntar á textavarpi sjón-
varps bls. 619.
Farsælt ferðaár.
Ferðafélag fslands.
Yoga-námskeið
Acarya Ashiishananda Avad-
huta og Acarya Rudreshhvar
Brahmacarii, sérþjálfaðir yoga-
kennarar halda reglulega 3 og 6
vikna yoga-námskeið. Hópkenn-
sla og einkatímar. Lærðu að hug-
leiða á árangursríkan hátt með
persónulegri leiðsögn. Lærðu yo-
ga-lík- amsæfingar, einstaklings-
bundin kennsla sem tekur mið af
líkam- legu ástandi hvers og eins.
Þýskunámskeið Germaníu
hefjast á ný 19. janúar. Boðið er
upp á byrjendahóp, þrjá fram-
haldshópa og tvo talhópa.
Upplýsingar í sima 892 4145.
Næstu námskeið byrja mánu-
daginn 12. janúar og þriðjuda-
ginn 13. janúar.
Ac. Ashiishananda Avt.
Mánudaga og
þriðjudaga
kl. 17.30-19.30.
Lindargata 14,
Reykjavík.
sími: 551 2970.
Ac. Kudreshvar
Brc.
Þriðjudagar og
föstudagar 17.30
-19.30.
Hafnarbraut 12,
Kópavogur
sími 564 4038.
Uppl. og skráning i síma
551 2970 og 564 4038 kl.10-12
og eftir kl. 21 á kvöldin. Verð kr.T
6.000, afsláttur fyrir skólafólk.
Ananda Marga Yogahreyfing
á íslandi, Lindargata 14, Rvík.