Morgunblaðið - 06.01.1998, Qupperneq 44
. 44 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
KIRKJUSTARF
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 10-14. Láttur málsverður.
Dómkirkjan. Kl. 13.30-16
mömmufundur í safnaðarh., Lækj-
.argötu 14a. Kl. 16.30 samveru-
stund fyrir börn 11-12 ára.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í há-
degi. Altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Neskirkja. Farið verður að álfa-
brennu á Ásvöllum í Hafnarfirði í
kvöld, þrettándakvöld. Farið verður
frá Neskirkju kl. 18.45. Þátttaka
tilkynnist í síma 551 6783 mili kl.
16-18.
Breiðholtskirlga. Bænaguðsþjón-
'usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 10-12.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið
hús fyrir 8-10 ára börn kl.
17-18.30 í safnaðarheimilinu Lin-
netstíg 6.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Vonarhöfn í safnaðarh. Strandbergi
fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30.
Bessastaðakirkja. Bæna- og
kyrrðarstund kl. 21. Hægt er að
koma bænaefnum til presta og
djákna safnaðarins.
Vídalínskirkja. Fundur í æskulýðs-
félaginu, yngri deild kl. 19.30, eldri
deild kl. 21.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
Borgarneskirkja. Helgistund
þriðjudaga kl. 18.30. Mömmumorg-
unn í Félagsbæ kl. 10-12.
Grindavíkurkirkja. Foreldra-
morgunn kl. 10. TTT starf kl. 18-19
fyrir 10-12 ára. Unglingastarf kl.
20.30 fyrir 8. 9. og 10. bekk.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin
14-16. Starfsfólk kirkjunnar í
Kirkjulundi 14-16.
ÚTSALA - ÚTSALA
Halló!
5-50%
afsláttur
Úlpur - ullarjakkar
kápur - pelsar
alpahúfur - hattar
Kíkið inn
\(#HÚ5IÐ
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Bílastæði við búðarvegginn.
FORVAL
Umsýslustofnun varnarmála, sala varnarliðs-
eigna f.h. varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli auglýsir
hér með eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í
forvali vegna útboðs á verkefni sem felur í sér
* lagningu og tengingu Ijósleiðara í hinar ýmsu bygg-
ingar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli ásamt
reglulegu viðhaldi leiðarans. Nánari verklýsing
(Description of Work, Solicitation N62470-98-D-
4107) ásamt lista yfir kröfur sem gerðar eru til verk-
takans fylgja forvalsgögnum. Ef þátttakendur áforma
að ráða undirverktaka til verksins að hluta eða öllu
leyti skal veita sömu upplýsingar um þá og krafist
er af forvalsþátttakendum, skv. forvalsgögnum.
Samið verður til eins árs með möguleikum á
framlengingu til eins árs í senn næstu fjögur árin
þar á eftir.
Áætluð samningsfjárhæð er 50.000 til 200.000
Bandaríkjadalir á ári.
Opnum tilboða er áætluð 24. febrúar 1998.
Forvalsgögn ber að fylla samviskusamlega út.
Forvalsnefnd utanríkisráðuneytisins áskilur sér rétt
til að hafna forvalsögnum sem ekki eru fullnægjandi.
Ekki verður tekið við upplýsingum frá þátttak-
endum eftir að forvalsfrestur rennur út.
Forvalsfrestur er til 16. janúar 1998.
Forvalsgögn fást hjá Umsýslustofnun varnar-
mála, sölu varnarliðseigna, Grensásvegi 9,
Reykjavík og að Brekkustíg 39, Reykjanesbæ.
Umsýslustofnum vamamála.
Sala varnarliðseigna.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
voru rangar
myndir í umslag-
inu og kannast
sá sem fékk
þessar myndir
ekkert við þær.
Vili hann hafa
upp á þeim sem
tók þessa mynd
og biður um að
haft verði sam-
band við sig í
síma 557 8087.
Kannast einhver
við þessa mynd?
ÞESSI mynd var afhent,
ásamt fleiri myndum, í
versluninni Ljósmyndavör-
um, Skipholti 31. En það
Vonbrigði
með
Laufskálann
SEM mikill aðdá-
andi Rásar 1 hjá
Ríkisútvarpinu
og sem hlustandi að Lauf-
skálanum mér til ánægju,
þá langar mig að lýsa
þeirri skoðun minni að
Laufskálinn í morgun,
mánudaginn 5. janúar, var
sá allra leiðinlegasti sem
farið hefur í loftið og vona
að þetta sé ekki forsmekk-
urinn að því sem komi á
árinu.
Hlustandi.
Tapað/fundið
Fjallahjól týndist
í Blönduhlíð
MONGOOSE hjól, hvítt
fjallahjól, týndist frá
Blönduhlíð fyrrihluta des-
embermánaðar. Þeir sem
hafa orðið varir við hjólið
hafi samband í síma
551 0785.
Dýrahald
Gréta er týnd
ÉG heiti Gréta og er þrílit
10 ára læða. Ég á heima
á Ránargötunni og er mjög
heimakær en nú er ég búin
að vera týnd í marga daga.
Mín er sárt saknað og er
fundarlaunum heitið þeim
sem finna mig. Hugsanlegt
er að ég sé lokuð inní skúr
eða ruslageymslu. Viljið
þið vera svo væn að svip-
ast um eftir mér?! Vinsam-
legast hafið samband í
heimasíma 552 4744,
vinnusíma 515 6417 eða
GSM: 897 4478.
SKÁK
Umsjðn Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á áskor-
endamóti kvenna sem fram
fór í Groningen í desember.
Alisa Galliamova (2.445),
Rússlandi, var með hvítt
og átti leik, en Maja Chib-
urdanidze (2.525), Georg-
íu, hafði svart.
21. Rxf6+! (Ennþá sterk-
ara en 21. Rxc7 - Dxc7
22. Dd5+ - Df7 23. Dxf5
sem er líka gott á hvítt.)
21. — Hxf6 (Betra var 21.
- Bxf6 22. Dd5+ - Hf7
23. Bxf6 - Dxf6 24.
Dxa8H— Hf8 og
svartur er aðeins
einum skiptamun
undir.) 22. Bxf6 -
Dxf6 23. Dd5+ -
De6 24. Dxa8+ -
Kf7 25. Dd5 -
Dxd5 26. Hxd5
og með tveimur
skiptamunum yfir
vann hvítur enda-
taflið auðveld-
lega.
Þessi sigur
síðustu umferð
tryggði Gall-
iamovu sigur: 1.
Galliamova 13'A
v. af 18 möguiegum, 2. Xie
Jun, Kína, 12 'A v., 3.-4.
Chiburdanidze og Ioseliani,
Georgíu, 11 v., 5.-7. Peng,
Kína, Alisa Maric, Júgó-
slavíu, og Arakhamia-
Grant, Englandi, 9 v., 8.
Pia Cramling, Svíþjóð, 8'A
v., 9. Nino Gurieli, Georgíu,
5 v., 10. Kachiami, Þýska-
landi, 1 'A v. Sú síðast-
nefnda varð að hætta
keppni vegna veikinda.
Tvær efstu, Galliamova
og Gurieli, munu tefla ein-
vígi um áskorunarréttinn á
Zsuzsu Polgar, heimsmeist-
ara kvenna.
Heimsmeistaraeinvíg-
ið: Fjórða skákin er tefld
í dag. Anand hefur hvítt.
HVÍTUR leikur og vinnur.
Með morgunkaffinu
Ást er...
allt i kringum þig.
TM R*g. U.S. P»1 Ofl. — »1 nghls r»j*rved
(c) 1996 Los Ang*WS Tm*s SynckaM
ÞAÐ biðja allir á skrif-
stofunni að heilsa þér en
alla langar líka að vita
hvað í ósköpunum þú
sagðir við nýja fram-
kvæmdastjórann.
lega vasa ekki afur, kem ég með 25 kolvitlausa krakka
og leyfi þeim að leika lausum hala í búðinni þjá þer.
Víkveiji skrifar...
KALIFORNÍURÍKI, sem er
sennilega eitt framfarasinn-
aðasta samfélag í heiminum, hefur
gert þá kröfu til bílaframleiðenda,
að 10 af hveijum 100 bílum, sem
seldir verða í ríkinu á árinu 2003,
verði knúnir með vistvænna elds-
neyti en benzíni eða dísilolíu. Marg-
ir eru þeirrar skoðunar, að þegar
tuttugu ár verða liðin af næstu öld
muni menn furða sig á því, að fólk
hafi svo lengi látið bjóða sér farar-
tæki sem menga andrúmsloftið í
þeim mæli, sem bílar gera nú.
Að þessu er vikið vegna þess,
að Sorpa heldur því fram, að fyrir-
tækið geti séð fyrir metangasi úr
sorphaugum höfuðborgarsvæðisins,
sem nægja mundi til að knýja 3.000
bíla. Hins vegar telur fyrirtækið
nauðsynlegt að haga skattlagningu
slíkra bíla við innflutning þannig
að þeir verði samkeppnisfærir í
verði.
Það er ekki lengur ástæða til að
vísa slíkum hugmyndum á bug.
Bílaframleiðendur um allan heim
reyna nú að þróa bílvélar, sem verða
umhverfísvænni en þær, sem nú
þekkjast. Þeim er ljóst, að dagar
bílvélarinnar í núverandi mynd eru
taldir. Þeir sem verða fyrstir til að
koma fram með raunhæfan valkost
fá stórkostlegt tækifæri til að ná
forskoti á keppinauta sína.
Stjómvöld ættu þess vegna að
huga vel að hugmyndum Sorpu-
manna.
XXX
*
IÞESSU sambandi er fróðlegt að
kynnast sjónarmiðum Birgis
Guðnasonar, sem rekur fyrirtækið
BG Bílakringluna í Keflavík. Hann
segir í samtali við Morgunblaðið í
fyrradag: „í framtíðinni held ég að
fólk kaupi sér bíla til að eiga í lang-
an tíma. Menn vanda betur valið í
dag vegna þess, að það er orðið svo
kostnaðarsamt að skipta um
bíl... bílar eru gerðir til að endast
í 250-300 þúsund kílómetra akst-
ur...“
Það er áreiðanlega marktækur
munur á því hvað bílar eru betur
úr garði gerðir nú en fyrir 20 árum
og endast þar af leiðandi lengur.
Hitt er svo annað mál, hvort þeir
verða vistvænni eftir því, sem árin
líða. Sennilega er það frekar þveröf-
ugt. En hvað sem því líður er lík-
legt að á næstu árum verði hugar-
farsbreyting hjá fólki varðandi bíla
og að almenningur vakni til vitund-
ar um nauðsyn þess að koma sam-
göngumálum í nýjan farveg.
xxx
AÐ VERÐUR fróðlegt að fylgj-
ast með því á næstu árum,
hvað tölvupóstur tekur í ríkum
mæli við hlutverki símtala. Það er
alveg ljóst, að fólk notar tölvupóst
í vaxandi mæli til þess að koma
ýmiss konar erindum á framfæri,
sem áður voru rekin með heimsókn-
um eða í símtölum. Þess vegna er
ekki ólíklegt að það dragi umtals-
vert úr símtölum á næstu árum eða
a.m.k. verði ekki um jafn mikla
aukningu að ræða og ella.
Þá er alveg ljóst, að Netið hlýtur
að draga mjög úr ýmiss konar fyrir-
spurnum til fyrirtækja vegna þess,
að þau nota Netið í vaxandi mæli
til að koma á framfæri upplýsing-
um, sem ella hefðu verið veittar
munnlega eða verið dreift prentuð-
um. Glöggt dæmi um þetta eru
auglýsingar frá bönkum, fjármála-
fyrirtækjum og tryggingafélögum,
sem oftar en ekki vísa á upplýs-
ingar á heimasíðum þessara aðila.