Morgunblaðið - 14.01.1998, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vélstjórar vilja endurskoða hlutaskiptakerfíð á skipunum
Yerkfalli frestað til 2. feb.
Morgunblaðið/Þorkell
HELGI Laxdal, formaður Vélstjórafélagsins, lagði áherslu á að krafa
vélstjóra um aukinn hlut þýddi ekki breytingar á launum annarra í
áhöfn. Til vinstri við Helga er Friðrik Hermannsson Iögfræðingur.
VÉLSTJÓRAFÉLAGIÐ ákvað í
gær að fresta verkfalli, sem boðað
hafði verið 16. janúar, til 2. febrúar.
Helgi Laxdal, formaður félagsins,
sagði ekki líklegt að viðræður vél-
stjóra og útgerðarmanna skiluðu
árangri nú þegar hin sjómannasam-
tökin hafa boðað verkfall. Að mati
vélstjóra væri ekki verjandi að
halda dýrustu og öflugustu skipum
íslenska flotans við bryggju þegar
ljóst væri að samningaviðræður
myndu engum árangri skila fyrsta
hálfa mánuð verkfallsins.
Þetta er í annað sinn sem vél-
stjórar fresta verkfalli, en upphaf-
lega var það boðað 1. janúar. Til að
fresta verkfalli til 2. febrúar þurftu
vélstjórar að leita eftir samþykki
LIÚ, sem hafði boðað verkbann á
aðra sjómenn í áhöfn frá og með 20.
janúar, en því hefur einnig verið
frestað.
Ekki verið að
skerða hlut annarra
Vélstjórafélagið boðaði til blaða-
mannafundar í gær til að skýra af-
stöðu félagsins og rökstyðja kröfu-
gerðina. Helgi sagði að þess mis-
skilnings hefði gætt hjá mörgum að
krafa vélstjóra um aukinn hlut
þýddi að laun annarra í áhöfn lækk-
uðu. Hann sagði þetta ekki rétt
vegna þess að vélstjórar væru að
fara fram á hækkun á aukahlutum
og aukahlutir væru greiddir af út-
gerð, en hefðu engin áhrif á hlut
annarra í áhöfn.
Núverandi hlutaskiptakerfí gerir
ráð íyrir að ákveðið hlutfall af afla-
verðmæti komi til skipta og er
u.þ.b. 30% af því skipt jafnt milli
áhafnar. Síðan er skipstjórinn með
einn aukahlut, 1. stýrimaður og yf-
irvélstjóri með hálfan, 1. vélstjóri
með fjórðung o.s.frv. Helgi sagði að
vélstjórar krefðust þess að auka-
hlutur yfirvélstjóra færi úr 0,5 í
0,75, hlutur 1. vélstjóra færi úr 0,25
í 0,5 og 2. vélstjóra úr 0,125 í 0,25.
Heigi sagði að hlutaskiptakerfíð
hefði orðið til um síðustu aldamót
og síðan hefðu engar breytingar
verið gerðar á launahlutföllum. Um
aldamót hefðu flest fiskiskip á ís-
landi verið með litlar vélar og vél-
stjóranámið tekið 4 mánuði. I dag
væru vélstjórar að stjórna stórum
vélum í verksmiðjuskipum og
þyrftu að ljúka 7 ára námi þar af
væru 5 ár bókleg. Hann sagði að við
ákvörðun launa í þjóðfélaginu væri
ekki síst horft til menntunar og um-
fangs starfa. Vélstjórar væru ein-
faldlega vanmetnir.
Helgi sagði að krafa vélstjóra um
aukinn hlut væri í samræmi við það
sem væri að gerast í öðrum löndum.
Á fundi fiskimannadeildar IFT í
haust hefði verið samþykkt launa-
viðmiðun þar sem væri gert ráð fyr-
ir að skipstjóri hefði 3,37 sinnum
hærri laun en háseti og að yfirvél-
stjóri hefði 3,06 sinnum hærri laun
en háseti. Sé þetta kerfi yfirfært á
íslenska kerfið ætti yfirvélstjóri að
hafa 0,87 í aukahlut, en ekki 0,5.
Helgi sagði að það væri umfram-
eftirspurn eftir vélstjórum og þeir
væru þvi margir yfirborgaðir. Krafa
vélstjóra væri því að hluta til um að
færa laun að greiddu kaupi. Kostn-
aðarauki útgerðarinnar við að fall-
ast á þessa kröfu væri þvi ekki eins
mikill og LÍÚ hefði haldið fram.
Vélstjórar styðja kröfu LÍtí
LIÚ hefur sett fram kröfu um að
útgerðin njóti ávinnings af því ef
fækkað er i áhöfn skipa, en eins og
kerfið er í dag leiðir fækkun til þess
að útgjöld útgerðarinnar aukast.
Helgi sagðist telja að þessi krafa
LÍU væri réttmæt og sjómönnum
bæri að taka tillit til hennar. Krafan
sýndi vel að það væri nauðsynlegt
að endurskoða hlutaskiptakerfið.
Kerfið tæki ekki nægilega mikið
mið af þeim tæknibreytingum sem
hefðu orðið á síðustu árum og ára-
tugum.
Vélstjórar og útgerðarmenn áttu
stuttan samningafund í gær og hitt-
ast aftur á föstudag. Sjómannasam-
bandið og Farmanna- og fiski-
mannasambandið hitta útgerðar-
menn hjá sáttasemjara í dag.
■ Yfírlýsing vélstjóra/41
Færri mál
fyrir Hér-
aðsdómi
Reykjaness
MUN færri mál komu til
kasta Héraðsdóms Reykja-
ness í fyrra en árið á undan.
Þingfest einkamál voru færri
en nokkurn tíma á starfstima
dómstólsins og ákærumál,
þ.e. mál sem ákæruvald höfð-
ar til refsingar, hafa ekki ver-
ið færri frá fyrsta heila
starfsári dómstólsins, árið
1993.
1285 einkamál voru þingfest
fyrh- Héraðsdómi Reykjaness
árið 1997. Þau voru 1341 árið
1996 og hefur farið fækkandi
ár frá ári síðan 1993 en það ár
voru 1859 mál þingfest fyrir
dómstólnum.
Ákærumál, sem handhafi
ákæruvalds höfðar til refsing-
ar lögum samkvæmt, voru
383 talsins í fyrra en voru 585
árið 1996. Slík mál hafa verið
á sjötta hundrað ár hvert
undanfarin ár en voru þó 308
talsins árið 1993.
646 aðfararbeiðnir bárust
Héraðsdómi Reykjaness í
fyrra en höfðu verið 708 árið
á undan og hafa ekki verið
færri frá því dómstóllinn tók
til starfa. Sama á við um
gjaldþrotaskipti. 321 bú var
tekið til gjaldþrotaskipta fyrir
Héraðsdómi Reykjaness í
fyrra. Frá 1993 hafa árlega
528-667 bú verið tekin til
gjaldþrotaskipta þar.
Ákvörðun samkeppnisráðs vegna kæru
Islenska farsímafélagsins hf.
Ekki ástæða til
íhlutimar vegna
GSM tilboðs
Morgunblaðið/RAX.
FJOLU Rundlfsdóttur, húsfreyju á Skarði, gafst í gær loksins tækifæri
til að hreinsa burt sandinn sem stöðugt laumaði sér inn um útidyrnar
og alla glugga.
SAMKEPPNISRÁÐ telur ekki
ástæðu til íhlutunar vegna kæru
Islenska farsímafélagsins hf. á
tímabundnu tilboði á GSM þjón-
ústu Landssímans, en Islenska far-
símafélagið hf. taldi Landssímann
hafa misnotað markaðsráðandi
stöðu sína með tilboðinu.
Tilboðið fól í sér að hverjum sem
er gæfist kostur á að gerast áskrif-
andi að GSM símaþjónustu félags-
ins án þess að greiða stofngjald
sem auglýst sé í gjaldskrá félags-
ins. í auglýsingu um tilboðið var
getið helstu smásala hér á landi
sem annast sölu á GSM símtækjum
og taldi íslenska farsímafélagið að
ástæða væri til að ætla að sam-
vinna væri á milli Landssímans og
smásalanna um aðgerð þá sem lýst
var í auglýsingunni.
Fimm með
fíkniefni
FIMM voru handteknir í
fyrrakvöld í húsi í vesturbæ
Reykjavíkur vegna gruns um
fíkniefnaneyslu. Var þeim
sleppt eftir yfirheyrslu í íyrr-
inótt þar sem málið taldist
upplýst.
Lögreglan fann milli 30 og
40 marijuana-plöntur og nokk-
urt magn fíkniefna sem ýmist
var tilbúið til neyslu eða í
þurrkun. Einnig fundust tæki
til fíkniefnaneyslu.
Landssfminn sýndi
ýtrustu aðgæslu
í ákvörðun samkeppnisráðs
kemur fram að Landssíminn hafi
leitað til samkeppnisyfirvalda og
óskað álits á tímabundnu tilboði
um GSM þjónustu félagsins, en
Samkeppnisstofnun gerði ekki at-
hugasemdir við fyrirhugað tilboð.
Stofnunin áskildi sér hins vegar
allan rétt til að fjalla um málið á ný
ef kæra bærist.
Ekki skaðleg undirverðlagning
Fram kemur að Landssíminn
hafi í máli þessu sýnt ýtrustu að-
gæslu varðandi markaðsstarfsemi
sína, og að mati samkeppnisráðs
hafi íslenska farsímafélagið ekki
sýnt fram á að þetta tímabundna
tilboð Landssímans hafí skaðleg
áhrif á væntanlega samkeppni á
markaðnum fyrir GSM þjónustu.
Ekki verði séð að veittur afslátt-
ur með niðurfellingu stofngjalds sé
þess eðlis að í tilboðinu felist skað-
leg undirverðlagning í skilningi
samkeppnislaga, og í skilmálum til-
boðsins felist engin binding fyrir
neytendur, sem séu frjálsir að nýta
sér þjónustu annarra þegar hún
býðst. Hvað varðar fullyrðingu um
að um hafí verið að ræða samvinnu
milli Landssímans og smásöluaðila
GSM símtækja bendir samkeppn-
isráð á að Landssíminn sé í þessu
hlutverki ekki á sama markaði eða
sölustigi og smásalarnir og þegar
af þeirri ástæðu geti umrædd sam-
vinna ekki fallið undir ákvæði sam-
kepp islaga.
Landeyð-
ingaröflin
minna á sig
í Landsveit
VIND lægði í gær í Rangárvalla-
sýslu og sandfokið sem geisað
hefur frá síðastliðnum miðviku-
degi stöðvaðist, að minnsta kosti
í bili. Hjá heimilisfólkinu á
Skarði í Landsveit og öðrum
bæjum í grenndinni gefst nú
tækifæri til að hreinsa burt
sandinn sem stöðugt safnaðist
fyrir við glugga og útihurðir.
Sandfokið náði hámarki á
sunnudagskvöld og mánudag.
Að sögn heimilismanna á Skarði
var skyggni þá svo slæmt að
erfítt var að rata. Sums staðar
hefur viðkvæmur gróður gefið
eftir, en víðast hvar í grennd við
Skarð virðist hann hafa haldið
velli. „Ef snjóar eða rignir á
þetta og jarðvegurinn blotnar
fer allt vel,“ segir Kristinn
Guðnason bóndi.
Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri er lfka bjartsýnn
þó að skaðinn virðist hafa orðið
nokkur. „Norðan við Stóra-
Klofa í Landsveit eru jarðir með
miklum vikri og rofsvæðum og
talið er að þar hafí orðið tölu-
verðar skemmdir á Iandi sem
var að gróa upp. Það er samt
engin Ieið að meta umfangið í
hekturum."
Sveinn vonast eins og Kristinn
eftir snjónum og vætunni. „Ef
hann rýkur upp aftur áður en
sqjóar þá heldur landeyðingin
áfram.“
Vorstormar
orðnir fátíðari
Heimilisfólkið á Skarði er
ekki óvant sandfoki, en tima-
setningin er óvanaleg. Yfirleitt
verða sandstormarnir á vorin.
Þeir hafa þó orðið stöðugt fátíð-
ari eftir því sem meira land hef-
ur verið grætt upp. Sandurinn
sem Fjóla húsfreyja hefur þurft
að sópa frá útidyrahurðinni er
að mestu úr Skarðsmelum norð-
an við bæinn, sem eru um
80-100 hektarar að stærð.
„Það fauk úr öllum opnum
jarðvegssárum, rofabörðum, ár-
farvegum og efnisnámum og
annars staðar þar sem jörð var
lítt gróin eða ógróin," segir
Sveinn. „Sandfokið var ekkert
ósvipað því sem við fáum oft í
maí, en höfum samt sloppið við
sfðustu árin, en þetta var mjög
algengt áður fyrr á vorin.“
Ógninni bægt frá
á næstu fimm árum
Ástandið skömmu fyrir alda-
mót var þannig að færa þurfti
bæjarstæðið í Skarði því sand-
fokið hafði fyllt upp í bæjarlæk-
inn. Nokkrum árum síðar varð
kona úti í sandbyl, við Skarðs-
Qall, skammt frá byggð.
„Fram yfír 1500 þöktu hinir
víðáttumiklu Landskógar allan
efri hluta Landsveitar, norðan
við Skarð og Stóra-Klofa. Þeir
byrjuðu að eyðast á 16. öld og
eyðingin var fyrst og fremst
mannanna verk í harðri lífsbar-
áttunni hér áður fyrr,“ segir
Sveinn.
Um og upp úr 1930 var farið
að græða land og friða í
Landsveitinni. „Fjölda bæja var
bjargað frá eyðingu og því að
fara undir sand, til dæmis Stóra-
Klofa, Galtalæk og Skarði. Mað-
ur trúir því af fenginni reynslu
að það takist að bægja þessar
ógn frá. Ég spái því að eftir
fímm ár eða svo hafi okkur tek-
ist að koma í veg fyrir að þetta
endurtaki sig í þessum mæli,
þótt alltaf megi búast við ein-
hveiju mistri í lofti,“ segir
Sveinn.