Morgunblaðið - 14.01.1998, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRETTIR
ÞETTA var ansi snöggt seðla-bað . . .
VOLVO DAIHATSU
Fáðu þér nýjan bíl
á nýju ári
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • 515 7010
Brimborg-Þórshamar • Tryggvabraut 5 Bflasala Keflavíkur • Hafnargötu 90
Akureyri • slmi 462 2700 Reykjanesbæ • simi 421 4444
Verður línudansinn nýjasta æðið?
Ekkert lát á
vinsældum
sveitadansa
spor
NÝLEGA var auglýst
eftir pörum til að
taka þátt í lime
danskeppni en í þeim dansi
dansa pör með sítrusávöxt-
inn lime milli sín allan tím-
ann. Jóhann Öm Ólafsson
danskennari kann skil á
þessum dansi og öðrum
dönsum sem landinn er að
stíga um þessar mundir.
„Limedansinn er ekki
nýjung í danskennslu í
dansskólum. Þessi dans er
ætlaður pörum og hefur
víða um heim verið að
skjóta upp kolli á skemmti-
stöðum. Pörin dansa eftir
laginu María sem var mjög
vinsælt í sumar og aðalmál-
ið er að þau dansa með svo-
kallaðan lime sítrusávöxt,
eða súraldin, á milli sín.
Súraldinið er aðeins minna
en sítróna og grænt að lit.“
- Þarf að læra sérstök
fyrir limedansinn ?
„Nei, það er lykilatriði að pör
búi sjálf til sporin sín. Eina skil-
yrðið er að lime sé alltaf á milli
þeirra. Pörin geta haft ávöxtinn
milli mjaðma, enna eða maga.
Lagið María býður síðan upp á á
að dönsuð séu til dæmis samba-
eða mambóspor. Eg hef ekki
prófað að dansa með þessum
hætti en hef horft á pör dansa
limedansinn og held að þetta
hljóti að vera töluvert erfitt en
skemmtilegt."
- Hvaða aðrir dansar eru vin-
sælirnúna?
Break er að koma aftur en það
var mjög vinsælt hér á landi upp-
úr 1980. Diskódansar eru líka að
ná vinsældum á ný en núna m.a.
við tónlist Spice girls hljómsveit-
arinnar. Það sem kallaðist break
uppúr 1980 heitir núna hip, hop
jam. Upphaflega voru það klík-
urnar á götum stórborga Banda-
ríkjanna sem dönsuðu break og
síðan barst þessi danslist víðar,
m.a. hingað til lands. Break
krefst töluverðrar leikni, þetta
eru nánast fimleikar og færustu
dansaramir stökkva aftur fyrir
sig í kollhnísa, taka nokkra snún-
inga í loftinu og gera allskyns
kúnstir.“
- Hvað með sveitadansana?
„Þeir hafa slegið rækilega í
gegn. Byrjað var að kenna kántrí
fyrir noklu’um ámm og það er
ekkert lát á eftirspuminni. Þar að
auki era æ fleiri farnir að dansa
sveitadansa að staðaldri, halda
semsagt áfram eftir byrjunai'-
námskeið og dansa allt --------
að þrisvar í viku í fram-
haldshópi. Skemmti-
staðurinn Næturgalinn
á Smiðjuvegi hefur að __________
undanfömu boðið upp á
sveitatónlist og það má alveg
benda á þann stað þar sem fólk
kemur ekki bara saman til að
drekka áfengi heldur til að dansa
kántrí."
- Hvers vegna eru sveitadans-
ar svona vinsælii-?
„Sveitatónlist á miklum vin-
sældum að fagna og skýrir að
hluta til vinsældir sveitadansa.
Geisladiskar kántrístjarna á borð
við Garth Brooks era famir að slá
sölumet í Bandaríkjunum.“
Jóhann Örn segir sveitatónlist-
ina létta og skemmtilega, söng-
textana einfalda og hann segir að
línudansinn sé vinsælastur af
Jóhann Örn Ólafsson
►Jóliann Örn Ólafsson er
fæddur í Reykjavfk árið 1971.
Hann er danskennari og lærði
fagið bæði hér á Iandi og í
Bretlandi. Jóhann Öm hefur
kennt dans frá 18 ára aldri og
keppt í samkeppnisdönsum frá
árinu 1986. Hann kennir sam-
kvæmisdansa og gömlu
dansana, break, kántrí og
diskódans. _
Jóhann Örn hefur rekið eig-
in dansskóla og verið í sam-
starfi við aðra frá árinu 1993.
Hann rekur nú Danssmiðju
Hermanns Ragnars og Dans-
skóla Auðar Haralds.
Eiginkona Jóhanns Arnar er
Guðrún Bjömsdóttir fjármála-
stjóri og eiga þau einn son.
„Pörin búa
sjálf til
sporin“
sveitadönsunum. „í línudansi þarf
ekki dansfélaga og einhleypir
geta því komið og tekið þátt í
dansinum líka. Þegar stór hópur
nær vel saman í línudansi mynd-
ast alveg sérstakt andrúmsloft
sem er engu líkt.“
- Eru gömlu dansarnir ekki
lengur kenndir?
„Jú en það verður að segjast
eins og er að það er ekki mikið
beðið um kennslu í gömlu döns-
unum. Við kennum þá með sam-
kvæmisdönsunum. Það er mikið
spurt um kennslu í samkvæmis-
dönsum og fólk á öllum aldri virð-
ist hafa gaman af þeim.
I raun er allur dans vinsæll
núna, argentískur tangó, break,
kántrí, afrískur dans og sam-
kvæmisdansar svo eitthvað sé
nefnt. Nú er það í rauninni
-------- smekkur sem ræður
vali frekar en tísku-
straumar."
- Dansar fólk ennþá
___ macarena?
„Já. Macarena er
bland af línudansi og diskói. Það
sem gerir þann dans vinsælan er
að allir geta lært hann og dansað.
Hann er líka það auðveldur að
hann gleymist ekki.“
Jóhann Öm segir það geta
komið sér vel að kunna að dansa
og ekki einungis á skemmtistöð-
um. „Um jólin var ég staddur
með fjölskyldunni á Flórída og
fór á mexíkóskan veitingastað.
Þar var matargestum boðið í
danskeppni sem fólst í að dansa í
kringum mexíkóskan hatt. Eg sló
til, vann keppnina og fékk að
launum frían málsverð fyrir fjöl-
skylduna."