Morgunblaðið - 14.01.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.01.1998, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI ✓ Islandsflug með áætlunarflug milli Humberside og Aberdeen Deilur milli eigenda Lyfjabúða ehf. Fyrst íslenskra flugfélaga í innanlandsflug erlendis Hópur eigenda kærir fram- kvæm dastjóra ÍSLANDSFLUG hefur hafið áætl- unarflug milli Humberside á Englandi og Aberdeen í Skotlandi. Er þetta í fyrsta sinn sem íslenskt flugfélag tekur að sér innanlands- flug erlendis. Farþegaflug þetta hófst 1. desember síðastliðinn og hefur farið vel af stað, að sögn Gunnars Þorvaldssonar, stjómar- formanns íslandsflugs. Gunnar segir þetta flug lið í þeiiri stefnu Islandsflugs að auka erlenda starfsemi félagsins en hún nemur nú rúmum helmingi af um- svifum þess. Hann segir íslandsflug hafa haft spumir af því að Air UK, sem áður flaug á þessari flugleið, hefði ákveðið að hætta því frá og með 1. desember síðastliðnum í kjölfar þess að hollenska flugfélagið KLM keypti Air UK. „Þetta þýddi þó ekki að þessi flugleið væri ekki arðbær heldur var þessi niðurskurður fyrst og fremst liður í þeirri stefnu KLM að auka áhersluna á tengiflug við Schiphol og draga um leið úr innan- landsflugi í Bretlandi. Við leituðum því eftir því í samstarfi við Eastem Airways að taka við þessari flugleið og tókust samningar þess efnis sl. haust.“ Gunnar segir að flogið sé undir merkjum Eastem Aii-ways og sé notuð til flugsins Metro-vél íslands- flugs auk áhafnar frá íslandsflugi, en vélin var áður í leiguflugsverk- efni á Spáni. „Með tilkomu nýrra reglugerða Evrópusambandsins um frelsi í inn- anlandsflugi hafa skapast tækifæri fyrir íslensk flugfélög sem ekki vom fyrir hendi áður,“ segir Gunnar. „Við erum auk þessa flugs að kanna möguleikann á flugi til annarra staða innan Englands og Skotlands jafnframt því sem við höfum verið að kanna möguleikann á fleiri leiguflugsverkefnum á þessu svæði.“ Kæra lögð fram áður en sáttatil- raunir hófust SÁTTAVIÐRÆÐUR standa enn yfir milli eigenda Lyfjabúða ehf. en eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur risið upp deila milli eig- enda um eignarhald í fyrirtækinu. Þrír hluthafar hafa lagt fram kæru á hendur framkvæmdastjóra versl- ananna vegna meðferðar hans í hlutafé í fyrirtækinu. Kæran var lögð fram áður en sáttaumleitanir hófust en hefur þó enn ekki verið dregin til baka. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins er búist við að málið skýrist á næstu dögum. Eins og fram hefur komið kröfð- ust þeir Almar Grímsson, apótekari í Hafnarfirði, og Bessi Gíslason, lyfjafræðingur, sem báðir eru hlut- hafar í Lyfjabúðum ehf., og Þór Sigþórsson, forstjóri Lyfjaverslun- ar Islands, lögbanns á meðferð framkvæmdastjóra Lyfjabúða ehf., Guðmundar Reykjalín, á hlut í fé- laginu sem Þór Sigþórsson gerir til- kall til. Sögðu þremenningarnir í lögbannsbeiðninni að fullvíst væri að Guðmundur, og tveir aðrir hlut- hafar, Jóhannes Jónsson í Bónus og Haraldur Jóhannson, framkvæmda- stjóri, væru með ólögmætum hætti að sölsa undir sig meirihluta í Lyfjabúðum. Sýslumaður synjaði sem kunnugt er lögbannsbeiðninni og í kjölfarið kærðu þremenningarnir Guðmund Reykjalín til embættis ríkislög- reglustjóra vegna meðferðar hans á hlutabréfum í Lyfjabúðum. I kjölfarið hófust hins vegar sáttatilraunir milli deiluaðila en kæran hefur þó enn ekki verið dregin til baka. Sem fyrr segir er reiknað með því að línur muni skýr- ast á næstu dögum. Velheppnuð fjárfestingarstefna hjá Auðlind Söluhagn- aður 284 milljónir á sex mán. HAGNAÐUR hlutabréfasjóðsins Auðlindar hf., sem Kaupþing hefur umsjón með, á fyrri helmingi reikn- ingsárs sjóðsins 1. maí - 31. október 1997, nam 223 milljónum króna. Auk þess voru 339 milljónir færðar yfir á eigið fé vegna gengistaps hlutabréfa, að því er fram kemur í frétt frá Kaupþingi. Söluhagnaður tímabilsins varð 284 milljónir króna af hlutabréfa- eign félagsins, sem er meira en allt síðasta rekstrarár. Þennan sölu- hagnað má rekja til áherslubreyt- inga í fjárfestingarstefnu félagsins á tímabilinu. Seld voru innlend hlutabréf fyrir önnur verðbréf í þeim félögum þar sem mat stjómar Auðlindar hf. var að oftnat væri á verði þeirra. Til marks um vel heppnaða fjár- festingastefhu er bent á að fjögur stærstu hlutafélög í hlutabréfasaíhi sjóðsins hækkuðu mest á markaðn- um á síðasta ári. Þau eru Marel, ís- landsbanki, Pharmaco og SR-mjöl. Skilaði sjóðurinn bestu ávöxtun hlutabréfasjóða á síðasta ári eða 12% að teknu tilliti til 10% arðgreiðslu. Auðlind hf. er nú þriðja fjölmenn- asta almenningshlutafélag landsins og voru heildareignir þess um fjórir milljarðar 31. október sl. Verðbréfaeignin skiptist þannig að innlend hlutabréf nema 45%, inn- lend skuldabréf 32%, erlend hluta- bréf 20% og erlend skuldabréf 3%. Innlend hlutabréfaeign félagsins skiptist á þann veg milli atvinnu- greina að 29% eru í framleiðslufyr- irtækjum, 24% í sjávarútvegsfyrir- tækjum, 18% í þjónustufyrirtækj- um, 6% í verktakastarfsemi, 3% í samgöngufyrirtækjum og 1% í olíu- félögum. Höldum okkar á hliðarlínunni Hilmar Þór Kristinsson, sjóðs- stjóri Auðlindar, sagði aðspurður um áætlaðar fjárfestingar sjóðsins á þessu ári að þegar væri búið að end- urskoða hagnaðarspá fyrir árið 1997 og setja fram áætlun fyrir 1998. Ekki væri ráðgert að breyta að marki núverandi samsetningu á Auðlind hf. V Eignir 1. desember 1997 Hlutabréf í... 1 Marelhf. 2 Pharmacohf. 3 íslandsbanki hf. 4 SR-Mjöl hf. 5 Síldarvinnslan hf. 6 S.Í.F. hf. 7 Sláturfélag Suðuriands svf. 89 8 Hraðfrystihús Eskifjarðar hf 81 9 Haraldur Böðvarsson hf. 73 10 Tryggingamiðstöðin hf. 70 11 Jarðboranir hf. 66 12 Sjóvá Almennar hf. 58 13 Samvinnusjóður íslands hf. 53 14 Plastprent hf. 48 15 Skinnaiðnaður hf. 48 16 Tæknivalhf. 44 17 Hf. Eimskipafélag Islands 34 18 Fóðurblandan hf. 33 19 Lyfjaverslun íslands hf. 20 20 Stálsmiðjan hf. 20 21 Þormóður rammi-Sæberg hf. 16 22 GKS hf. 15 23 Skeljungur hf. 12 24 Vaki hf. 10 Önnur hlutabréf samtals 76 Innlend hlutabréf 1.742 Innlend skuldabréf 1.248 Erlend hlutabréf 785 Eriend skuldabréf 100 Handbært fé -18 Samtals eign 3.857 hlutabréfaeign sjóðsins en fylgst yrði með breytingum í umhverfi fyrirtækjanna. „Það er mat stjómenda Auðlind- ar að hlutabréf margra félaga sem Auðlind á ekki í og hafa verið að lækka í verði frá miðju síðasta ári séu ennþá of dýr. Við munum því halda okkar á hhðarlínunni gagn- vart þessum félögum og fyrst og fremst taka þátt í einkavæðingu og kaupa bréf í fyrirtækjum sem ætla á Verðbréfaþing innan þriggja ára. Við vitum af slíkum tækifærum og erum þegar byrjaðir að nýta okkur þau,“ sagði hann. Þá sagði Hilmar að tryggt yrði að 10% af sjóðnum yrðu í auðseljanlegum bréfum, þannig að auðvelt væri að grípa góð tældfæri. Markaðsverð milljónir kr. 239 159 152 125 111 91 Islensk-am eríska kaupir hlutafé í Innnesi HEILDVERSLUNIN íslensk-am- eríska ehf. hefur keypt helming hlutafjár í heildsölunni Innnesi ehf. af Ólafi Bjömssyni og Guðmundi Rafni Bjamasyni. Ráðgert er að starfsemi Innness verði á næstunni flutt í húsakynni Íslensk-ameríska að Tunguhálsi 11 og fyrirtækin muni þar samnýta lagerhúsnæði og dreifingarkerfi. Að öðra leyti munu fyrirtækin starfa sjálfstætt og starf- rækja eigin sölu- og markaðsdeildir. Ólafur Bjömsson mun áfram gegna starfi framkvæmdastjóra Inness að því er segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækjunum. Innnes flytur inn og dreifir mörg- um þekktum vöramerkjum, t.d. Hunts tómatvöram, Wesson og Fil- ippio Berio matarolíum, Swiss Miss súkkulaðidrykkjum, Tilda hrís- grjónum, Örville poppkomi og Heidelberg salatsósum. íslensk-ameríska hefur umboð fyrir fjölmörg þekkt vörumerki, m.a. framleiðsluvörar Procter og Gamble, Revlon snyrtivörar, Ger- ber barnavörar, BKI kaffi, Sun C og Sunquick ávaxtasafa, Beauvais rauðkál og Campbells súpur. Fyr- irtækið dreifir einnig innlendum framleiðsluvörum frá Kexsmiðj- unni, AM frystivörum, Trico sokk- um og Cato kattamat. Aukin hagræðing Egill Ágústsson, framkvæmda- stjóri Islensk-ameríska, segir að með kaupunum sé verið að auka hagræðingu í rekstri fyrirtækjanna. Á undanfómum áram hafi umtals- verð samþjöppun átt sér stað á smásölumarkaðnum og verslanir óski í síauknum mæli eftir því að versla við færri og stærri birgja. Krafa markaðarins sé því sú að gætt sé ýtrustu hagkvæmni í inn- flutningsverslun jafnt sem smásölu- verslun og heildsölufyrirtæki stækki til að unnt sé að halda verði þjónustunnar niðri. Samvinna fyrir- tækjanna sé liður í því að verða við þeim kröfum. íslensk-ameríska var búið að sprengja utan af sér fyrra húsnæði þegar ráðist var í byggingu nýs lag- erhúsnæðis á síðastliðnu ári, að sögn Egils. Hann segir að með þessari hagræðingu náist full nýting á húsnæði fyrirtækisins og aukin hagkvæmni í vöradreifingu. Framvegis verða þrjú fyrirtæki til húsa að Tunguhálsi 11. Auk Is- lensk-ameríska og Innness er áfengisheildsalan Allied Domeq starfrækt í húsinu. Samanlögð velta fyrirtækjanna þriggja var 2,1 millj- arður króna á síðastliðnu ári. EasyJet flugfélagið úiugar að bjóða í Air Holland London. Reuters. EASYJet, evrópskt flugfélag með bækistöð í Bretlandi sem heldur uppi ódýram ferðum, íhugar tilboð í hollenzka flugfélagið Air Holland, sem er í einkaeign. Talsmaður EasyJet sagði að ef samningar tækjust fengi félagið nýja bækistöð, sem það hefði sótzt eftir í þeirri viðleitni að taka upp áætlunarflug á fleiri leiðum á meg- inlandi Evrópu. Samkvæmt þeim fyrirætlunum á að koma upp annarri miðstöð í Aþenu. Fjölbreytni verður þannig aukin í rekstrinum á sama tíma og yfir vofa átök við British Airways í Luton skammt frá London, aðalbækistöð EasyJet í Bretlandi. BA hyggst koma á fót nýju flugfélagi síðar á þessu ári og mun það halda uppi ódýram ferðum frá nálægum flug- velli, Stanstead. Grískur kaupsýslumaður Þrítugur grískur kaupsýslumað- ur, Stelios Haji-Ioannou, stofnaði EasyJet 1995 með stuðningi skip- eigendættar, sem hann er kominn af, og hóf flug með tveimur Boeing 737 milli Luton, Glasgow og Edin- borgar. Nú er félagið með sex Boeing 737 flugvélar í föram á 13 leiðum í Bret- landi og meginlandi Evrópu og hyggst fjölga ferðum og taka upp flug til fleiri staða síðar á þessu ári. Sjöunda flugvélin verður tekin í notkun í ágúst, sú fyrsta af 12 nýj- um Boeing 737, sem félagið hefur pantað og verða afhentar fyrir árs- lok 1999. Auk þess mun Air Holland leggja til sjö B-737. I athugun er að taka upp flug til Alicante, Malaga og Madrid auk staða í Þýzkalandi Ítalíu og Skand- inavíu. Einnig í Liverpool Þótt Luton-flugvöllur norðan við London sé aðalbækistöð EasyJet hefur félagið tekið í notkun aðra miðstöð á Liverpoolflugvelli, en það- an er flogið til Amsterdam og Nizza. Búizt er við að Luton verði áfram aðalbækistöð EasyJet á Lundúna- svæðinu þrátt fyrir deilur við flug- vaUaryfirvöld vegna fyrirætlana um að bæta aðstöðuna. í fyrra bauðst EasyJet til að taka við stjóm flugvallarins og reisa nýja flugstöð, en eigandinn, bæjarstjóm Lutons, hafnaði boðinu. Flugleiðir annast viðhald Tæknideild Flugleiðia hefur ný- verið tekið að sér hluta viðhalds Áir HoUand eins og fram hefur komið í fréttum. Jafnframt mun deildin ann- ast ýmis önnur verkefni fyrir flugfé- lagið og sjá um eftirlit með viðhalds- stjórnun á flugvélum þess. Samning- ar náðust í kjölfar reynsluskoðana tæknideildarinnar á vélum Air Hol- land en innra skipulag hennar hefur nú verið endurskoðað í því skyni að hún geti boðið samkeppnishæfa við- haldsþjónustu fyrir flugvélar á al- þjóðamarkaði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.