Morgunblaðið - 14.01.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 23
Heldur dregur úr sviptingum á f]ármálamörkuðum Suðaustur-Asíu
Athafnir fylgi
orðum um efna-
hagsumbætur
Singapore. Reuters.
Reuters
NÁMSMAÐUR í Djakarta, höfuðborg Indónesíu, hrópar slagorð gegn
ríkisstjórn Suhartos forseta. Á borðanum lýsa mótmælendur stuðningi
sínum við Megawati Sukarnoputri, leiðtoga stjórnarandstöðunnar.
SVIPTINGAR héldu áfram á fjár-
málamörkuðum Asíu í gær, en
reyndust þó heldur minni en und-
angengna daga. Fulltrúar banda-
rískra stjórnvalda og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins (IMF), sem eru á ferð
um höfuðborgir landa í þessum
heimshluta sem efnahagskreppa
hefur leikið harðast á undanförn-
um mánuðum, ítrekuðu í gær lof-
orð um stuðning, en ítrekuðu að at-
hafnir yrðu að fylgja fyrirheitum
stjórnvalda þar um slóðir um um-
bætur á efnahagskerfinu.
Að viðskipti í kauphöllinni á Wall
Street skyldu ekki fylgja hruninu
sem varð í Hong Kong og víðar í
fyrradag hjálpaði til við að róa
markaðina í Asíu. Hang Seng-verð-
bréfavísitalan í Hong Kong hækk-
aði um 7,38% og vann þar með
næstum því upp hið mikla gengis-
fall mánudagsins, sem var 8,7%.
Einnig virðast vonir sem bundnar
eru við að neyðarhjálparáætlanir
IMF skili árangri hjálpa til við að
skapa stöðugleika.
I Hong Kong tilkynntu stofnend-
ur Peregrine-fjárfestingabankans
opinberlega um gjaldþrot á tilfinn-
ingaþrungnum blaðamannafundi.
Lýstu þeir grátklökkir hvemig
hrunið á fjármálamörkuðum
Indónesíu knésetti einn stærsta
sjálfstæða fjárfestingabanka álf-
unnar.
Vonarglæta í S-Kóreu
I Seoul sagði Michel Camdessus,
aðalframkvæmdastjóri IMF, að
Suður-Kóreubúar ættu hrós skihð
fyrir það hve skjótt þeir hefðu
hrint róttækum umbótum í fram-
kvæmd, en beindi einnig varnaðar-
orðum til þeirra: „Þið hafið aðeins
unnið fyrstu orrustuna, stríðið er
ekki unnið enn.“ Að byggja upp
traust á efnahagslíf landsins á ný
yrði þrautin þyngri, sagði Cam-
dessus.
Næstu viðkomustaðir aðalfram-
kvæmdastjórans eru Singapore og
Djakarta, en upplýst var um það í
gær að hann myndi bráðlega
einnig leggja leið sína til Peking,
þar sem hann muni eiga viðræður
við kínverska ráðamenn um fjár-
málakreppuna í suðausturhluta álf-
unnar og viðbrögð við henni.
Pólitískar afleiðingar efnahags-
legra sviptinga lýstu sér með áber-
andi hætti í Indónesíu, fjölmenn-
asta múslimaríki heims, þar sem
námsmenn efndu til mótmæla gegn
stjóm Suhartos forseta og kröfðust
afsagnar hans í gær. Þeir mót-
mæltu einnig skilyrðunum fyrir
efnahagsaðstoðinni sem IMF hefur
forystu um að veita, þar sem þau
hefðu mikið harðræði í för með sér
íyrir þjóðina. Stjórnarflokkurinn
Golkar lýsti þvi hins vegar yfir að
Suharto yrði frambjóðandi flokks-
ins til að gegna forsetaembættinu
sjöunda kjörtímabilið í röð, en for-
setakosningar eiga að fara fram í
Indónesíu í marz nk. Þrjátíu ár eru
síðan Suharto tók við stjómar-
taumunum í landinu og er hann nú
76 ára að aldri.
Gestagangur
hjá Suharto
Stjóm Suhartos tilkynnti í gær
um aðgerðir ætlaðar tU að afstýra
því að enn verr fari fyrir efnahags-
ástandinu í landinu en nú þegar er
orðið. Meðal þessara aðgerða era
tollalækkanir og afnám ýmissa við-
skiptahafta, sem iðnaðar- og við-
skiptaráðherrann Tunky Ariwi-
bowo sagði að væra á döfinni.
Mar’ie Muhammad fjármálaráð-
herra sagði að fjái'lagaframvarpið
fyrir fjárlagaárið 1998/99, sem
mikill styiT stóð um í liðinni viku,
yrði endurskoðað.
Þessar yfirlýsingar fylgdu í kjöl-
far viðræðna sem Lawrence Sum-
mers, aðstoðarfjármálaráðherra
Bandaríkjanna, átti við ráðamenn í
FJÖLMENNT lögreglulið var
kallað að verðbréfamarkaðnum í
Tókýó síðdegis í gær þar sem
byssumaður hélt embættismanni
í gíslingu í sex klukkustundir.
Að endingu gafst ræninginn upp,
eftir að lögregla hafði útvegað
honum te og sígarettur.
Byssumaðurinn er öfgasinnað-
ur þjóðernissinni og krafðist
þess að viðskiptum yrði hætt og
að fjármálaráðherrann, Hiroshi
Mitsuzuka, kæmi að ræða við
sig. Fékk hann hvorugu fram-
Djakarta. Eftir fund sinn með Su-
harto í gær sagði Summers að for-
setinn gerði sér grein fyrir því að
óhjákvæmilegt væri að „taka
ákveðin skref* sem samið hefði
verið um við IMF sem skilyrði fyr-
ir að landið fengi 43 milljarða
Bandaríkjadala í aðstoð.
William Cohen, vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, kom til
Djakarta í gær til að eiga viðræður
við Suharto. Hann staðfesti vilja
bandarískra stjórnvalda til að
gengt. Að sögn lögreglu vildi
ræninginn koma í veg fyrir svo-
nefndan „miklahveli", eða rýmk-
un á reglum um peningamarkaði
í Japan sem taka eiga gildi í apr-
fl næstkomandi, og munu gera
erlendum fyrirtækjum auðveld-
ara um vik að eiga viðskipti á
mörkuðunum.
I Japan eru margir uggandi
vegna fyrirliugaðra breytinga á
reglugerðum og óttast að minni
verðbréfafyrirtæki og bankar
verði undir í samkeppni.
hlaupa undir bagga með
Indónesíubúum, en lagði áherzlu á
að öll þau lönd álfunnar sem nú
ættu í kröggum yrðu að gera rót-
tækar umbætur á efnahagskerfinu
og uppræta spillingu.
Forsetisráðherra Singapores,
Goh Chok Tong, sótti einnig Su-
harto heim í gær og sagði að fundi
með honum loknum að forsetinn
hefði fullvissað sig um að ríkis-
stjórn Indónesíu væri staðráðin í
að fylgja þeim umbótum eftir sem
þörf krefði.
Hagfræðingar og sérfræðingar í
bankamálum sögðu ennfremur í
gær að Indónesíustjórn yrði tafar-
laust að grípa til ráðstafana til að
hindra frekara gengisfall gjaldmið-
ils landsins, rúpíunnar, en það hef-
ur nú þegar fallið um meira en 70%
frá því í júlí í fyrra.
Sumir héldu því fram að lykillinn
að vandanum lægi í einkageira
efnahagslífsins í Indónesíu, sem
burðast með skuldir upp á 65 millj-
arða dala auk þess sem meirihluti
fyrirtækja sem skráð era í kaup-
höllinni í Djakarta séu í raun gjald-
þrota.
Bandaríkjamenn
áhyggjufullir
Meðal bandarískra ráðamanna
er vaxandi ótti um að þetta ástand í
Indónesíu, með sínum 200 milljón-
um íbúa sem flestir era múslimar,
geti leitt til uppþota sem illmögu-
legt yrði að hafa taumhald á.
„Ráðamenn í Washington era mjög
áhyggjufullir yfir ástandinu í
Indónesíu og því stórkostlega
hrani sem þar gæti orðið,“ var haft
eftir háttsettum starfsmanni al-
þjóðlegs banka í Washington.
„Allt er mögulegt í augnablikinu.
Það er mikið um að vera í [banda-
ríska] utanríkisráðuneytinu.
Tæland gæti farið í hundana án
þess að áhrifin yrðu teljandi. En ef
Indónesía hrynur algjörlega og
bókstafstrúarmenn ná yfirhönd-
inni, má ímynda sér áhrifin á tiltrú
umheimsins á þessum heimshluta."
Nauðlentu
á leið til
Jeltsíns
BORÍS Jeltsín Rússlandsfor-
seti hélt í gær sinn fyrsta fund
á þessu ári með ráðherra í
stjórn sinni er hann hitti Borís
Nemtsov, fyrsta aðstoðarfor-
sætisráðherra, í bústað sínum
í Valdaj, þar sem hann er í
leyfi. Þyrla sem flutti
Nemtsov, yngri dóttur
Jeltsíns, Tatjönu Djatsjenko,
ungan son hennar, Gelb,
Sergej Jastrzhembsky, blaða-
fulltrúa forsetans, og aðra
háttsetta embættismenn varð
að nauðlenda á leiðinni til
Valdaj er viðvöranarljós um
eldsvoða kviknuðu. Ekkert
reyndist að en hópurinn hélt
áfram með þyrlu af samskonar
gerð.
Afhjúpa
skattsvik
SAMEIGINLEG skyndiskoð-
un í Danmörku, Svíþjóð, Finn-
landi og Noregi á bókhaldi 13
stórfyrirtækja hefur leitt í ljós
vangoldna skatta og opinber
gjöld að andvirði 1,2 milljarð-
ar danskra króna, tæplega 13
milljarðar ísl. króna. Helming-
ur fjárins a.m.k. heyrir ríkis-
sjóði Svíþjóðar til. Fyi-st og
fremst er um að ræða skatta
og gjöld sem fyrirtækin hafa
innheimt af viðskiptavinum en
ekki skilað í ríkissjóð.
Apa ekki eftir
sjónvarpi
RANNSÓKN breskra sál-
fræðinga á börnum á hinni af-
skekktu eyju Sankti Helenu í
Suður-Atlantshafi hefur leitt í
ijós, að börn leiðast ekki út í
að fremja ofbeldisverk eftir að
hafa horft á ofbeldisfullar
sjónvarpsmyndir.
17 bjarg-að
á Kattegat
SAUTJÁN skipverjum norska
flutningaskipsins Altnes var
bjargað úr björgunarbátum
um borð í flutningaskipið
Shannon, sem skráð er á Kýp-
ur, eftir árekstur skipanna í
svartaþoku á Kattegat í gær.
Altnes hvolfdi eftir árekstur-
inn og gat kom á Shannon,
sem komst hjálparlaust til
hafnar.
Clinton hafn-
ar sáttaboði
„SVÍVIRÐILEGU“ sáttaboði
Paulu Jones, sem höfðað hefur
mál á hendur Bill Clinton
Bandaríkjaforseta fyrir kyn-
ferðisáreiti á hótelsvitu í
Arkansas 1991, hefur verið
hafnað, að sögn talsmanna for-
setans. Fór Jones fram á
tveggja milljóna dollara
miskabætur og afsökunar-
beiðni gegn því að málið yrði
fellt niður. Clinton á ekki sjö
dagana sæla vegna málsins því
Universal-kvikmyndafyrir-
tækið hefur hrandið af stað
mikilli auglýsingaherferð fyrir
kvikmynd, Primary Colors,
byggðri á samnefndri bók,
sem frumsýnd verður í mars.
Er bókin og myndin talin vísa
að miklu leyti til kosningabar-
áttu Clintons 1992.
Cook skilur ástkonuna eftir heima
London. Daily Telegraph.
ROBIN Cook utanríkisráðheiTa Breta hætti við
að taka „föranaut" sinn, Gaynor Regan, í 10
daga ferð víðsvegar um heim, eins og hann hafði
ráðgert. Talið er að Tony Blair forsætisráð-
herra hafi knúið hann til þessarar ákvörðunar
en ferðin hófst í dag og liggur leið ráðherrans
m.a. til Washington, Ottawa, Peking og Hong
Kong.
Sérfræðingar segja, að Cook hefði brotið
gegn siðareglum ráðherra, sem Blair gaf út sl.
vor, með því að taka Regan með sér. Þær kveða
á um að ráðherra megi stöku sinnum taka
„maka“ sinn með sér í ferðalög á kostnað hins
opinbera „sé það ótvírætt í þágu hins opinbera
að hann/hún fylgi ráðherranum“.
Siðareglurnar þykja ekki afdráttarlausar, í
þeim er talað um „maka“ en ekki „förunaut" og
því er talið að túlka megi þær með ýmsum
hætti.
Einkamál Cooks hafa verið í kastljósi fjöl-
miðla síðustu daga og mun Blair hafa verið
bragðið þess vegna. Af hálfu forsætisráðuneyt-
isins var því þó haldið fram, að út af fyrir sig gæti
ráðherra tekið fóranaut sinn með sér í utanferðir.
Talsmenn Blair sögðust í gær ekki þekkja
nein dæmi þess að ráðherra tæki hjákonu sína
með í opinbera heimsókn.
Chris Smith menningarmálaráðherra, sem er
samkynhneigður, hefur tekið föranaut sinn með
sér í kvikmyndahús, leikhús og móttökur en
ekki þegar hann hefur komið fram opinberlega.
Cook lýsti því opinberlega yfir sl. sunnudag
að hann elskaði Gaynor Regan og sagði þau
myndu festa ráð sitt um leið og hann hefði hlotið
skilnað að lögum frá eiginkonu sinni.
Mikið hefur verið gert úr málinu í breskum
fjölmiðlum og komið hefur í ljós, að Regan hefur
fylgt Cook á kostnað skattborgaranna í ferðum
hans á vegum hins opinbera, eftir að hann skildi
við konu sína að borði og sæng í ágúst í fyrra.
William Hague, leiðtogi íhaldsflokksins,
sagðist ekki taka undir að Cook bæri að segja af
sér vegna fjölmiðlaumræðu um einkalíf hans.
Hjónaskilnaður gæti aldrei gert mann óhæfan
sem utanríkisráðherra.
Reuters
Vildi hindra „miklahvell“