Morgunblaðið - 14.01.1998, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 41
20 í próf-
i ••• /
kjor í
Reykja-
nesbæ
ÁKVEÐINN hefur verið listi
yfir þátttakendur í prófkjöri
Bæjarmálafélags jafnaðar- og
félagshyggjufólks í Reykjanes-
bæ sem fer fram dagana 7. og
8. febrúar nk.
Kjörnefnd hefur rétt til að
bæta við fulltrúum til þátttöku
í prófkjörinu til 16. janúar en í
ljósi þess fjölda sem gefur kost
á sér telur nefndin ekki ástæðu
til að nýta sér þann rétt.
„Kjömefnd Bæjarmálafélags
jafnaðar- og félagshyggjufólks
í Reykjanesbæ fagnar því þeim
fjölda efnilegra frambjóðenda
sem gefið hefur kost á sér til
þátttöku í prófkjöri félagsins. í
þeim hópi er að fínna fólk sem
nú er flokksbundið í þeim
flokkum sem hafa ákveðið að
bjóða ekki fram við næstkom-
andi bæjarstjórnarkosningar
og einnig mikinn fjölda fólks
sem hefur kosið að standa utan
stjórnmálaflokka," segir í
fréttatilkynningu.
Þátttakendur eru: Agnar
Breiðfjörð Þorkelsson, ver-
stjóri, Eðvarð Þór Eðvarðsson,
kennari og sundþjálfari, Ey-
steinn Eyjólfsson, húsfaðir,
Friðrik K. Jónsson, lögreglu-
maður, Grétar Þórðardóttir,
skrifstofumaður, Guðbjörg
Glóð Logadóttir, sölu- og
markaðsfulltrúi, Guðbrandur
Einarsson, verslunarstjóri,
Halla Kr. Sveinsdóttir, fram-
reiðslumaður, Hauður Helga
Stefánsdóttir, rekstrarfræðing-
ur, Haukur Guðmundsson,
vörubifreiðastjóri, Hilmar
Jónsson, rithöfundur, Hulda
Ólafsdóttir, leikskólastjóri,
Jenný Magnúsdóttir, starfs-
leiðbeinandi, Jóhann Geirdal,
bæjarfulltrúi, Kristján Gunn-
arsson, bæjarfulltrúi, Krist-
mundur Ásmundsson, heimilis-
læknir, Ólafur Thordersen,
framkvæmdastjóri, Sveindís
Valdimarsdóttir, kennari,
Theodór Magnússon, kerfís-
fræðingur og Valur Armann
Gunnarsson, flokksstjóri.
Fulltrúaráðs-
fundur Varðar
VÖRÐUR, fulltrúaráð sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík, heldur full-
trúaráðsfund í Arsal Hótel Sögu
miðvikudaginn 14. janúar kl. 20.30.
A fundinum verðm- ákvörðun um
skipan framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík við borgar-
stjómarkosningarnar í vor og Árni
Sigfússon, oddviti borgarstjórnar-
flokks sjálfstæðismanna, flytur
ræðu.
---------------
LEIÐRÉTT
Summers er aðstoðarfjármála-
ráðherra
I frétt um efnahagsástandið í
Indónesíu í Morgunblaðinu á
sunnudag var Lawrence Summers
sagður fjármálai-áðherra Banda-
ríkjanna. Hið rétta er að Summers
gegnir embætti aðstoðarfjármála-
ráðherra í ríkisstjóm Bandaríkj-
anna.
Millinafni ofaukið
Rangt var farið með nafn Marínó
Njálssonar, skrifstofustjóra hjá
Innkaupastofnun Reykjavíkurborg-
ar og hann sagður heita Marínó G.
Njálsson í frétt í blaðinu í gær. Er
beðist velvirðingar á þessu um leið
og þessari leiðréttingu er komið á
framfæri.
FRÉTTIR
ræður vélstjóra og útgerðarmanna
geti borið árangur nú þegar Far-
manna- og fiskimannasambandið
og Sjómannasambandið hafa boðað
verkfall eftir hálfan mánuð hafí
samningar ekki náðst fyrir þann
tíma. Við þær aðstæður er ekki'
verjandi að halda dýrustu og öflug-
ustu fiskiskipum íslenska flotans
við bryggju vitandi að ekki verði
komið að samningaborðinu fyrsta
hálfan mánuð verkfallsins. Slíkt
getur ekki stuðlað að bættum kjör-
um sjómanna. Itrekað skal að vél-
stjórar gátu á engan hátt vitað
þegar ákveðið var að boða til verk-
falls á sínum tíma hvort og hvenær
hin sjómannasamtökin hygðust
grípa til aðgerða gegn útgerðar-
mönnum.
Hér er ekki um að ræða hvort
vélstjórar vilji eða vilji ekki vera í
samfloti með hinum sjómannasam-
tökunum í þessari deilu. Ekki verð-
ur séð hvernig leysa eigi ágreining
sjómanna og útgerðarmanna um
verðmyndun á sjávarafla án þátt-
töku þeirra. Verðmyndunin er
grundvallaratriði sem snertir alla
sjómenn, jafnt vélstjóra sem aðra í
áhöfn. Nær útilokað er að útvegs-
menn semji við Farmanna- og físki-
mannasambandið og Sjómannasam-
bandið um þessi atriði án þátttöku
vélstjóra. Sjómenn eiga sinn hlut í
aflanum og verðmæti hans hljóta að
verða fundin á einn hátt íyrir alla
sjómenn en ekki á mismunandi
vegu eftir félagsaðild.
Vélstjórar vilja að þessi deila'
standi sem styst og valdi sem
minnstri röskun fyrir þjóðarbúið.
Framangreindar röksemdir ættu að
geta skýrt betur afstöðu vélstjóra
um nauðsyn þess að fresta verkfall-
inu í annað sinn fram að þeim tíma
að verkfall hinna sjómannasamtak-
anna hefst.“
VÉLSTJÓRAR hafa tekið^ þá
ákvörðun með samþykki LIÚ að
fresta boðuðu verkfalli vélstjóra á
fiskiskipum með aðalvél 1.501 kw og
yfir sem hefjast átti 16. janúar nk.
til miðnættis 2. febrúar.
Samninganefnd vélstjóra sendi í
gær frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
„Þetta er í annað sinn sem vélstjór-
ar fresta boðuðu verkfalli sínu.
Ástæður þær er lágu að baki frest-
un verkfalls er hefjast átti 1. janúar
sl. voru tvíþættar. í fyrsta lagi lá þá
ekki fyrir niðurstaða í atkvæða-
gi-eiðslu Farmanna- og fiskimanna-
sambands Islands og Sjómannsam-
bands Islands um verkfallsboðun en
úrslit hennar lágu fyrst fyrir 8. jan-
úar sl.
I öðru lagi höfðu yfírlýsingar tals-
manna LIÖ, þess efnis að sérkrafa
vélstjóra væri með öllu óaðgengileg
og að ekki yrði samið um hana und-
ir neinum kringumstæðum, þau
áhrif að samninganefnd vélstjóra
taldi verulegar líkur á að gripið yrði
inn í deiluna með setningu bráða-
birgðalaga. Slík afskipti ráðamanna
af deilum sjómanna og útgerðar-
manna eru ekki óþekkt og er
skemmst að minnast verkfallsátak-
anna 1994 þegar bráðabirgðalög
voru sett á þá deilu.
Með hliðsjón af þessu var tekin
sú ákvörðun að færa upphaf verk-
fallsaðgerða nær þeim tíma er Al-
þingi kæmi saman aftur eftir hlé og
veita sem minnst svigrúm til setn-
ingar bráðabirgðalaga.
Frá því þessi ákvörðun vélstjóra
um frestun boðaðs verkfalls var tek-
in hafa forsendur enn breyst. Þar
ber hæst að félagsmenn Farmanna-
og fiskimannasambands Islands og
Sjómannasambands íslands hafa
samþykkt að hefja verkfallsaðgerð-
ir 2. febrúar nk.
Ekki er líklegt að samningavið-
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Jarðyrkjustörf í janúar
Hrunamannahreppi - Morgunblaðið
Þótt tíðarfar hafi oft verið gott
um þetta leyti árs man enginn
eftir því hér um slóðir að unnið
hafið verið við að plægja jörð í
janúarmánuði. Magnús Páll
Brynjólfsson, bóndi í Dalbæ í
Miðfellshverfí, var að notfæra
sér góðu tíðina sl. laugardag og
vinna sér í haginn fyrir vorið. Þá
tóku sumarbústaðaeigendur upp
kartöflur á sunnudaginn.
Nú síðustu sólarhringa í þeirri
stífu norðanátt er óvenju mikið
rykmistur á lofti hér á Suður-
landi sem berst af hálendinu í
hvassviðrinu. Miklar líkur ei-u á
að gróðurskemmdir hafi orðið
enda býður þessi veðrátta hætt-
unni heim hvað uppblástur varð-
ar þegar jörð er auð og ófrosin.
ÚTSKRIFTARNEMENDUR Fjölbrautaskólans f Breiðholti.
Morgunblaðið/Halldór
ÚTSKRIFT nemenda á haustönn
1997 frá Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti fór fram 10. janúar sl.
í Fella- og Hólakirbju. 173 nem-
endur fengu afhent lokaprófs-
skírteini, af þeim fengu 76 nem-
endur skírteini af starfsnáms-
brautum. Bestum árangri á stúd-
entsprófi náði Margrét Pálsdótt-
ir, eðlisfræðibraut, hlaut hún
meðaleinkunnina 9,134.
Athöfnin hófst með því að
Pálmar Ólason kennari lék nokk-
ur lög á pfanó, síðan söng kór
skólans undir stjórn Ernu Guð-
mundsdóttur. Skólameistari,
Kristín Amalds, flutti yfírlits-
ræðu og gerði grein fyrir starfi
og prófum í dag- og kvöldskóla.
Við skólann starfa um 140 starfs-
menn. 1.448 nemendur innrituð-
ust í dagskólann sl. haust og 845
í kvöldskóla. 1.369 nemendur
tóku próf í dagskóla. Skólameist-
ari gat þess í ræðu sinni að út-
skriftin nú væri óvanaleg að því
leyti að útskrifað væri í upphafi
árs en með þessari breytingu
tókst að fjölga kennsludögum
sem skólanum bar skv. nýjum
173 luku
lokaprófí
frá FB
framhaldsskólalögum.
í frétt frá FB kemur fram að
þrír nemendur útskrifúðust nú af
tveimur brautum. Einnig kemur
fram að nemandi sem lauk nú
sjúkraliðaprófi hefur áður lokið
stúdentsprófi frá FB. Þá útskrif-
aði Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
nú 400. sjúkraliðann og er það
Sesselja Gunnarsdóttir. Loks má
nefna að mæðgin útskrifuðust frá
skólanum að þessu sinni, Guð-
mundur Snorrason af eðlisfræðis-
braut dagskóla og Lilja Jónsdóttir
af markaðsbraut kvöldskóla.
Brýnt að vinna gegn ffkniefna-
vandanum
f útskriftarræðu sinni vék
skólameistari að fíkniefnavanda
ungmenna á Islandi og kvað
brýnt að vinna gegn þeim vágesti
með öllum tiltækum ráðum.
Skólameistari ræddi um að gera
þyrfti heildarúttekt á gæðum
kennslu, námsbrauta og skóla og
væri þegar hafin vinna á þessu
sviði með gæðakönnun í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti.
Vinnan hófst á tréiðnaðardeidl
skólans og hafa kennarar skilað
vandaðri handbók um deildina,
segir í fréttatilkynningu.
Skólameistari ávarpaði nem-
endur og vitnaði í ljóð eftir
Stephan G. Stephansson þar sem
segir: „Hvar sem mest var þörf á
þér/þar er best að vera.“ Hún
árnaði viðstöddum farsældar á
nýbyijuðu ári og lauk athöfninni
með því að allir viðstaddir sungu
Hver á sér fegra föðurland.
Myndakvöld
hjá Ferðafé-
lagi Islands
FYRSTA myndakvöld ársins
hjá Ferðafélagi verður í kvöld
kl. 20.30 í Ferðafélagshúsinu
að Mörkinni 6.
„M.a. verður sýnt frá ævin-
týragöngu sl. sumar þar sem
gengið var með Djúpá að
Grænalóni og niður í Núps-
staðarskóga, spjall og myndir
frá útilegumannaslóðum í
Þórisdal, Hrafntinnusker m.a.
á gönguskíðum, sumarleyfis-
ferð í Héðinsfjörð og Hvanna-
dali.
Meðal þeirra sem eiga
myndir og sýna þær eru Gerð-
ur Jensdóttir, Höskuldur
Jónsson, Gestur Kristjánsson,
Bolli Kjartansson, Sigríður
Þorbjamardóttir o.fl. Kaffi-
veitingar í hléi.
Gengið frá
Ananaustum í
Nauthólsvík
Hafhargönguhópurinn fer í
miðvikudagskvöldgöngu sinni
frá Hafnarhúsinu kl. 20 og
gengur með höfninni vestur í
Ánanaust.
Þar verður litið inn í Skolpu,
nýju frárennslishreinsistöðina,
og að því loknu farið að strönd
Skerjafjarðar og með henni
inn í Nauthólsvík. Val verður
um að ganga til baka eða fara
með SVR. Allir velkomnir.
Yfirlýsing vél-
stjóra vegna frestun-
ar verkfalls