Morgunblaðið - 17.01.1998, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Fyrsti
sunnudagaskólinn á nýju ári í Safn-
aðarheimilinu kl. 11 á morgun.
Munið kirkjubflana. Guðsþjónusta
kl. 14. Molasopi í Safnaðarheimili
eftir messu þar sem rætt verður um
prédikunartexta dagsins sem er úr
Matteusarguðspjalli, fjallað verður
um merkingu textans og gildi hans í
samtíðinni og fengist við spurningar
sem hann kveikir. Aðalfundur
æskulýðsfélagsins kl. 17 á morgun í
kapellu. Starfið fram á vor skipu-
lagt. Bibh'ulestur í Safnaðarheimili
kl. 20.30 á mánudagskvöld.
Mömmumorgunn frá 10 til 12 á mið-
vikudag, fyrirbænaguðsþjónusta kl.
17.15 á fimmtudag. Bænarefnum
má koma til prestanna.
GLERÁRKIRKJA: Kirkjuskóli
barnanna hefst að nýju eftir áramót
í dag, laugardag, kl. 13, litríkt og
skemmtilegt efni, foreldrar hvattir
til að mæta með bömum sínum.
Guðsþjónusta kl. 14. Fundur æsku-
lýðsfélagsins kl. 17, ath. breyttan
tíma. KyiTðar- og tilbeiðslustund kl.
18.10 á þriðjudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, almenn
samkoma kl. 17 og unglingasam-
koma kl. 20. Heimilasambandið kl.
15 á mánudag, hjálpai-flokkur kl.
20.30 um kvöldið og krakkaklúbbur
kl. 17 á miðvikudag.
HRÍSEYJARPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli kl. 11 i Hríseyjar-
kirkju. Sunnudagaskóli verður í
Stærri-Árskógskirkju kl. 11 á
morgun og guðsþjónusta kl. 14.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Safnað-
arsamkoma, brauðsbrotning, kl. 11
á sunnudag, G. Theodór Birgisson
prédikar. Fjölskyldusamkoma kl. 14
sama dag, Jóhannes Hinriksson
prédikar. Mikill og fjölbreyttur
söngur. Vonarlínan, 462 1210, sím-
svari allan sólarhringinn með upp-
örvunarorð úr ritningunni.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag, kl. 18 og á sunnu-
dag kl. 11 í kirkjunni við Eyrar-
landsveg.
KFUM og K: Bænastund kl. 20 á
morgun, sunnudag. Fundur í yngri
deild, fyrir 8-12 ára fyrir drengi og
stúlkur kl. 17.30 á mánudag.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli í
Lundarskóla kl. 13.30 á morgun, öll
böm velkomnin. Ástjarnarfundur
fyrir 6-12 ára börn ki. 18.
Fulltrúar foreldrafélaga í tíu leikskólum
Morgunblaðið/Kristján
BÖRNIN á leikskólanum Holtakoti fóru áhyggjulaus í gönguferð í gærmorgun, en foreldrar margra barna á
Ieikskólum bæjarins hafa hins vegar áhyggjur af hækkun leikskólagjalda um næstu mánaðamót.
Hæstu leikskóla-
gjöldin á Akureyri
FULLTRÚAR foreldrafélaga á tíu
leikskólum á Akureyri hafa lagt fram
bréf til bæjarráðs og bæjarstjómar
þar sem m.a. kemur fram að á Akur-
eyri verði greidd hæstu leikskóla-
gjöld á öllu landinu þegar samþykkt
10% hækkun á leikskólagjöldum tek-
ur gildi um næstu mánaðamót.
Fram kemur í bréfí frá foreldrafé-
lögunum að eftir hækkun verður
gjaldið á Akureyri 22.020 krónur fyrir
9 tíma dvöl og fullt fæði, en fæðis-
gjald hækkar um 5% um komandi
mánaðamót, úr 4000 krónum á mán-
uði í 4.200 krónur. í Kópavogi er
gjaldið 20.800 krónur fyrir 9 tíma
dvöl en sami tími er verðlagður á
18.750 krónur á leikskólum í Reykja-
vík. Samkvæmt Árbók sveitarfélag-
anna frá 1996 er hlutur foreldra í
rekstarkostnaði leikskóla á Akureyri
41,6% en 35% i Reykjavík að því er
fram kemur í bréfí foreldrafélaganna.
Ætlum að verða sýnilegri
Elín Hanna Jónsdóttir, formaður
Hólmasólar, foreldrafélagsins á leik-
skólanum Klöppum segist vita um
þrjú pör sem fluttu frá Akureyri
einkum vegna hárra leikskólagjalda,
um væri að ræða pör þar sem annar
makinn var í háskólanámi en hinum
hafi ekki gengið vel að fá vinnu í
bænum. „Þegar leikskólagjöldin eru
þetta há er þetta hreint peninga-
spursmál," sagði Elín Hanna, en eft-
ir hækkun greiða foreldrar sem eru
með bam á leikskóla allan daginn
tæplega 36 þúsund krónum meira á
ári en foreldrar í Reykjavík og er
sumarfrí tekið með í dæmið. „Þetta
auðveldar barnafólki ekki að búa í
þessu sveitarfélagi,“ sagði Elín
Hanna.
„Tvö síðustú ár þegar gjöldin hafa
hækkað höfum við sent bæjaryfir-
völdum undúskriftalista og mót-
mælt, en nú ætlum við að vera sýni-
legri. Fólk er reitt,“ sagði Elín
Hanna.
Samanburður verður gerður
á gjaldskrám
Ingólfur Ármannsson, fræðslu-
málastjóri Akureyrarbæjar, sagði að
samanburðurinn væri Akureyri
óhagstæður eins og er miðað við
samþykkta hækkun, en hún hafí tek-
ið mið af kjarasamningum á síðasta
ári og verðlagsbreytingum. Önnur
sveitarfélög hafi enn ekki tilkynnt
um hækkun á leikskólagjöldum.
Bæjarráð fól fræðslumálastjóra að
útfæra samanburð á gjaldskrám
leikskóla í nokkrum sveitarfélögum.
og sagði Ingólfur að verið væri að
safna saman upplýsingum. Þegar
unnið hefði verið úr þeim yrðí málið
kynnt.
Vélsleðamenn
valda ónæði
LÖGREGLAN á Akureyri hafði
afskipti af vélsleðamönum vegna
aksturs innanbæjar í fyrrakvöld
og var skýrsla tekin af nokkrum
þeirra. í kjölfar þessa atviks sendi
stjóm Félags vélsleðamanna í
Eyjafirði frá sér fréttatilkynn-
ingu, þar sem slíkur akstur er for-
dæmdur og eigendur vélsleða
jafnframt hvattir til að halda sett-
ar reglur.
Nokkuð hefur borið á kvörtun-
um frá bæjarbúum vegna aksturs
vélsleðamanna í þéttbýli en slíkt
er óheimilt í flestum tilfellum. Jó-
hannes Sigfússon, varðstjóri í lög-
reglunni, segir að alltaf sé eitt-
hvað um að menn séu ósvífnir á
þessum tækjum og fari þá jafnvel
yfir garða hjá fólki.
Samkvæmt lögreglusamþykkt
Akureyrar er eigendum slíkra
ökutækja í undantekningartilfell-
um og þegar aðstæður leyfa heim-
ilt að aka frá heimili sínu út úr
bænum stystu leið og til baka aft-
ur að lokinni ferð. Sama á við um
eldneytistöku.
Vélsleðar réttlausir
Stjóm Félags vélsleðamanna
minnir á að óskráðir eða ótryggð-
ir vélsleðar eigi engan rétt í um-
ferðinni, hvorki innan bæjar-
markanna né utan. Eigendur
óskráðra tækja beri alfarið
ábyrgð á notkun þeirra. Félagið
er í samstarfi við umhverfisdeild
bæjarins og lögregluyfirvöld um
að beina umferð vélsleða úr bæn-
um og á svæði utan bæjarins þar
sem hún á betur heima.
Á síðasta ári vora settar reglur
um umferð vélsleða í Hlíðarfjalli,
ofan Akureyrar, og á allra næstu
dögum verða breytingar kynntar
en umferð á skíðasvæðunum er
algerlega bönnuð.
Blað allra landsmanna!
- kjarni niálsins!
Mýflug sýnir áhuga
á sjúkraflugi en
ekki áætlunarflugi
LEIFUR Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri flugfélagsins Mýflugs
í Mývatnssveit, segir ekki ólíklegt
að félagið geri tilboð í sjúkraflug,
annað hvort frá Egilsstöðum eða
ísafirði þegar það verður boðið út.
Hann sagði hins vegar ekki áhuga-
verðan kost að standa að áætlunar-
flugi til Raufarhafnar, Grímseyjar
eða Gjögurs, þrátt fyrir rfldsstyrk.
Umræðan hefur að undanfömu
að mestu snúist um Flugfélag ís-
lands og íslandsflug. Mýflug á tvær
Piper-vélar, 7 og 9 manna, og Leif-
ur bendir á að það sé vél frá
Mýflugi sem standi undjr sjúkra-
flugsvakt íslandsflugs á ísafirði og
einnig á Egilsstöðum þegar vél frá
Flugfélagi Austurlands hefur verið
biluð eða í skoðun.
„Eg reikna því með að við mun-
um taka þátt í þeim útboðum sem
snúa að sjúkrafluginu og þá frekar
frá Egilsstöðum, þótt margt sé enn
óljóst varðandi þessi útboðsmál."
Leifur sagði Mýflug vera í góðu
samstarfi við íslandsflug og þá ekki
síður Flugfélag íslands og ekki
stæði til að fara að keppa við þau fé-
lög í áætlunarfluginu. „Við eram svo
litlir og eigum mikið undir því að
eiga gott samstarf við stóra aðilana."
Farþegnm fjölgaði um 25%
Mýflug hefur haft með höndum
flug á milli Mývatnssveitar og
Reykjavíkur yfir sumartímann og
voru farþegar í sumar um 25% fleiri
en sumarið 1996. Einnig býður fé-
lagið upp á leiguflug og útsýnisflug í
sveitinni. „Við höfum aldrei verið
með heils árs útgerð og kannski
þess vegna sloppið við það að vera í
taprekstri."
Bæjarmálafundur
Bæjarmálafundur verður haldinn
mánudaginn 19. janúar kl. 20.30 í Kaupangi.
Bœjarmálafutidir eru öllum optiir.
Bæjarmálaráð Sjálfstæðisflokksins.
Dregið í
Akraleiknum
DREGIÐ hefur verið í Akraleik
Smjörlíkisgerðar KEA sem efnt
var til fyrir jólin. I boði voru 5
tölvuvogir frá Tefal og 10 sett af
Ekko bökunarformum. AIls
tóku um 400 manns þátt í leikn-
um.
Þeir sem hlutu tölvuvogir era
Ólöf Sigurvinsdóttir, Keflavík,
Sigrún Pálsdóttir, Reykjavík,
Ólafia G. Steingrímsdóttir,
Akureyri, Guðbjörg Karlsdóttir,
Eskifirði, og Arnheiður Krist-
insdóttir, Akureyiá. Þeir sem
fengu bökunarfoi-min eru Sigur-
laug Þ. Gunnarsdóttir, Akur-
eyri, Sigríður Magnúsdóttir,
Hvammstanga, Jóhanna Ragn-
arsdóttir, Finnastöðum, Egils-
stöðum, Margrét Þóra Sveins-
dóttir, Seltjarnarnesi, Anna H.
Jónsdóttir, Hnjúki, Húsavík,
Sigríður Hálfdánsdótttir, Bol-
ungai-vík, Þórunn Ósk Helga-
dóttir, Akureyri, Guðfinna
Thorlacius, Akureyri, Guðx-ún
Elín Gunnarsdóttir, Akureyri
og Sísi Steindórsdóttir, Sauðár-
króki.
Verðlaunin verða send vinn-
ingshöfum á næstu dögum. Á
myndinni er Sigurlaug Björns-
dóttir, starfsmaður Smjörlíkis-
gerðar KEA, að draga í Ieikn-
um.
*
Iþrótta-
maður Þórs
útnefndur
ÍÞRÓTTAMAÐUR Þórs árið
1997 verður útnefndur í hófí í
Hamri næstkomandi sunnudag,
18. janúar kl. 15. Jafnframt
verður tilkynnt um val á besta
Ieikmanni einstakra deilda, þ.e.
knattspyrnu-, handknattleiks-,
körfuknattleiks- og skíðadeilda.
Alls bárast nöfn átta íþrótta-
manna í kjörinu, tveir frá hverri
deild. Þeir era knattspyrnu-
mennirnir Guðmundur Hákon-
arson og Örlygur Helgason,
handknattleiksmennirnir Axel
Stefánsson og Þorvaldur Sig-
urðsson, körfuknattleiksmenn-
irnir Sigurður Grétai' Sigurðs-
son og Hafsteinn Lúðvíksson og
skíðamennirnir Rúnar Friðriks-
son og Hildur Jana Júlíusdóttir.
Þórsarar og aðrir velunnarar
félagsins á öllum aldri eru
hvattir til að mæta í Hamar á
sunnudag, fylgjast með útsend-
ingunni og þiggja veitingar.
Aldursmörk
gjaldtöku hjá
Akureyrarbæ
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur
samþykkt tillögu frá fræðslu-
málastjóra um aldursmörk
gjaldtöku hjá þeim stofnunum
Ákureyi'arbæjar, þar sem
greiða þarf aðgangseyri og er
um að ræða samræmdar tillög-
ur sem gilda hjá strætisvögn-
um, skíðastöðum, sundlaugúm
bæjarins og söfnum, Davíðs-
húsi, Sigurhæðum og Náttúru-
gripasafni.
Miðað er við að börn sem ekki
eru komin í grunnskóla greiði
engin gjöld, börn á grannskóla-
aldri greiða barnagjöld og er þá
miðað við tímabilið frá 1. sept-
ember árið sem börnin verða 6
ára og 31. ágúst árið sem þau
verða 16 ára. Nemar í fram-
haldsskólum og háskóla greiða
skólagjöld, lífeyrisþegar, frá og
með 67 ára aldri, og öryrkjar
greiða ekki fyrir þessa þjónustu,
nema hvað greitt er fullt far-
gjald með strætisvögnum fyrir
einstakt fargjald en fá afslátt ef
keyptir era 20 miðar. Allir aðrir
greiða fullt gjald miðað við þær
gjaldskrár sem eru í gildi hverju
sinni.