Morgunblaðið - 17.01.1998, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
rl
LANDIÐ
Heilsdagsvistun í nýrri álmu leikskólans Undralands í Hveragerði
Fiskiðjan Freyja hf. á Suðureyri
Stjórn Verkalýðsfélagsins Baldurs á Isafírði
t
e.
LEIKSKÓLABÖRN tóku lagið við opnun nýju byggingarinnar.
EFTIR breytingu rúmar Leikskólinn Undralaud þrjár deildir, þar af eina heilsdags sem er nýjung í Hveragerði
Samvinna um bygg-
ingu leikskóla
Héraðsdomur
staðfestir
nauðasamning
Isafirði - Héraðsdómur Vestfjarða
staðfesti á fostudag nauðasamning
Fiskiðjunnar Freyju hf. á Suðureyri
•við lánardrottna á grundvelli frum-
varps er samþykkt var á fundi at-
kvæðismanna sem haldinn var 19.
desember sl. Samkvæmt fi-umvarp-
inu mun fyrirtækið greiða 15%
samningskrafna og ki-öfur allt að
75.000 kr. verða greiddar til fulls.
Greiðslumar munu fara fram með
reiðufé innan 3ja mánaða frá stað-
festingu nauðasamnings og verða
þær án vaxta. Á framangreindum
fundi þurfti samþykki 85% atkvæðis-
manna eftir höfðatölu og fjárhæðum
til að frumvarpjð fengist samþykkt.
Samþykkh' frumvarpinu voru at-
kvæðismenn sem fóru með 96,97%
atkvæða eftir höfðatölu og 98,76%
atkvæða eftir fjárhæðum.
Heildarskuldir Fiskiðjunnar
Freyju samkvæmt bókhaldi félags-
ins, miðað við 30. september 1997,
nema um 231,8 milljónum króna en
eignir eru metnar á 95,4 milljónir
króna. Stærstu skuldir fyrirtækisins
eru langtímaskuldir að fjárhæð tæp-
ar 102,3 milljónir króna, afurðalán að
fjárhæð 38,8 milljónir, viðskipta-
skuldir 35,6 milljónir, víkjandi lán
frá Byggðastofnun 23,8 milljónir og
yfirdráttui' á tékkareikningi 16,7
milljónir króna. Helstu eignir fyi-ir-
tækisins eru fiskverkunarhús ásamt
lausafé og viðbygging við frystihús
og lausafé sem metnar eru á 44,6
mUljónir króna og vörubirgðir sem
metnar eru á 34,5 milljónir króna.
Fiskiðjunni Freyju hf. var veitt
heimild til að leita nauðasamninga 4.
nóvember á síðasta ári. Frá þeim
tíma hefur Grái-ófa ehf. sem er félag
í eigu heimamanna verið með rekst-
ur frystihússins á leigu en sá leigu-
samningur rennur út 4. febrúar nk.
Motmæla launalækkun
hjá Heilbrigðisstofnun «
Ísafírði - Stjórn Verkalýðsfélgsins
Baldurs á Isafirði hefur sent frá sér
hörð mótmæli vegna þeirra aðferða
og aðgerða sem stjórnendur Heil-
brigðisstofnunar Isafjarðarbæjar
hafa beitt almennt starfsfólk í ræst-
ingu og eldhúsi með lækkun launa og
meira vinnuálagi sem samkomulag
hefur gilt um undanfarin ár eins og
segir í frétt frá félaginu. Stjórn fé-
lagsins hefur óskað eftir fundi með
samninganefnd ríkisins vegna þessa
máls þar sem reynt verði að fá fram
nánari skilgreiningu á rétti starfs-
manna. Að öðrum kosti muni félagið
leita réttar á öðrum vettvangi.
f samþykkt sljómar Baldurs segir
ennfi-emur: ,Á sama tíma og laun betur
settra starfsmanna era hækkuð er lág-
launahópum í sto&uninni sagt upp störf-
um og síðan boðin endurráðning í allt
önnur erfiðari störf og jafnvel á lægri
launum. Að öði-um kosti getí þeir leitað
sér annan-a starfa."
Stjórn Baldurs er þess fullviss að
félagar í Baldri, sem starfa á sjúkra-
húsum og heilsugæslustöð séu til-
búnir að taka þátt í að finna sparnað-
arleiðir í rekstri stofnunarinnar til
jafns við aðra. Þá telur stjórn Bald-
urs aðgerðir stjórnenda Heilbrigðis-
stofnunar ísafjarðarbæjar siðlausar
og í engu samræmi við þær vænting-
ar sem síðustu kjarasamningar gáfu
fólki. Stjórn félagsins hefur sam-
þykkt að leita allra leiða til að koma í
veg fyrir endurteknar árásir á laun
og kjör starfsfólks stofnunarinnar.
í bréfi sem stjóm Verkalýðsfé-
lagsins Baldurs hefur sent Gunnari
Björnssyni, formanni samninga-
nefndar ríkisins, segir að hér sé um
að ræða einhliða breytingu vinnu-
veitenda á verkefnum starfsfólks
sem felur í sér verulega meira álag á
hvern starfsmann og um leið kjara-
rýrnun vegna lækkunar starfshlut-
falls og fækkun álagstíma. „Stai-fs-
fólk og verkalýðsfélag reyndu í sam-
einingu að ná samkomulagi um
breytingar innan skynsamlegra
marka en án árangurs. Stofnunin
greip þá til þess ráðs að segja öllu
starfsfólki í þessari grein upp störf-
um og auglýsa störfin á ný til að g.
komast hjá eðlilegu samráði við hinn
samningsaðilann. Nú er haldið áfram
þessari einhliða „hagræðingu". Ollu ^
starfsfólki í eldhúsi hefur verið sagt
upp, þar sem það beygði sig ekki
undir einhliðar tillögur yfirmanna,"
segir m.a. í bi'éfi Baldurs til for-
manns samninganefndar ríkisins.
.Jtðrir láglaunahópar sjúkrahúss-
ins og félagar í Verkalýðsfélaginu
Baldri, hljóta í framhaldi af því sem
þegar hefur átt sér stað, að óttast ,
mjög um sinn hag. Því sparnaði þeim
sem stjórn stofnunarinnar hefur sett l(
sér virðist eiga að ná öllum með m
auknu álagi á okkar fólk,“ segir í
bréfi Verkalýðsfélagsins Baldurs.
Hveragerði - Ný álma var nýlega
tekin í notkun við leikskólann
Undraland í Hveragerði. A nýju
deildinni verður boðið upp á heils-
dagsvistun og er það nýjung í bæj-
arfélaginu.
I ávarpi við opnun deildarinnar
sagði Einar Mathiesen, bæjarstjóri
Hveragerðisbæjar, að með tilkomu
heilsdagsvistunar væri brotið blað
í þjónustu við íbúa Hveragerðis-
bæjar sem og við þá Ölfusinga sem
hingað sækja þjónustuna. „Hver-
gerðingar og Olfusingar hafa ekki
farið varhluta af þeim breytingum
sem eru að eiga sér stað í þjóðfé-
laginu. Ef við ætlum að standast
samanburð við höfuðborgarsvæðið
verðum við að geta boðið íbúum
okkar sambærilega þjónustu og
helst betri en þar er veitt. Opnun
heilsdagsvistunar er liður í þeirri
viðleitni að efla og treysta byggð-
ina.“ Strax í upphafi leitað eftir
samvinnu við Ölfushrepp um bygg-
inguna enda mikil eftirspurn eftir
leikskólaplássum hjá íbúum búsett-
um i sveitinni kringum Hvera-
gerði. Að sögn Einars var öll sam-
vinna við Ölfushrepp til fyirmynd-
ar en bæjarfélögin hafa starfað ná-
ið saman að ýmsum verkefnum í
gegnum tiðina, svo sem rekstri
grunnskóla, bókasafns og slökkvi-
Iiðs.
Ennfremur var haft samband
við nokkur fyrirtæki í og við
Hveragerði og óskað eftir stofn-
framlögum í bygginguna gegn for-
gangsplássum. Að sögn Einars var
það einungis eitt fyrirtæki sem sá
sér fært að taka þátt í bygging-
unni en það var Dvalarheimilið
Ás/Ásbyrgi.
Framkvæmdir við verkið hófust
þann 5. júlí s.l. Jafnframt bygging-
arframkvæmdum fóru fram um-
fangsmiklar endurbætur á lóð leik-
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
BJARNI Jónsson, oddviti Ölfushrepps, Sesselja Ólafsdóttir, Ieikskóla-
stjóri og Einar Mathiesen, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar voru að von-
um ánægð við opnunina.
skólans. Viðbyggingin er alls 178
fermetrar, þar af 63 fermetrar í
kjallara. Verktaki var Stoðverk
ehf., Hveragerði, en arkitekt húss-
ins er Karl Erik Rochsen. Arkitekt-
ar lóðar eru Reynir Vilhjálmsson
og Þráinn Hauksson. Samkvæmt
bráðabirgðauppgjöri nemur raun-
kostnaður við verkið 22,7 millj. eða
um 96% af kostnaðaráætlun.
Örk og Tröð
Prenthús
sameinast
Húsavík - Á Húsavík hafa undanfarin
ár starfað tvær prentsmiðjur, Tröð
Prenthús og Örk Prentstofa, sem nú
hafa verið sameinaðar og nefnist fyr-
irtækið Örk-Tröð Prenthús.
Brynjar Sigtryggsson hefur átt og
rekið Tröð Prenthús í 18 ár við góð-
an orðstír en hefur nú selt fyrirtæki
sitt til Örk Prenthús sem þeir Sigur-
jón Sigurðsson og Víðir Pétursson
hafa rekið undanfarin ár. Eigendur
fyrirtækjanna töldu lítið svigrúm til
að byggja bæði fyrirtækin frekar
upp og fylgjast með hraðri tækniþró-
un prentiðnaðarins hvort í sínu lagi
Morgunblaðið/Silh
SIGURJÓN Sigurðsson og Víðir Pétursson eigendur
Arkar-Traðar Prenthúss.
en sameinuð gætu þau það.
Fyrst um sinn reka þeir félagar
nýja fyrirtækið í húsakynnum Ti’að-
ar að Hjarðarhól, sem ekki fylgja í
kaupunum, en framvegis verður fyr-
irtækið rekið að Héðinsbraut 13 eftir
að gerðar hafa verið nokkrar breyt-
ingai' á húsnæði þar.
Órk-Tröð verður áfram með þau
umboð sem Tröð hafði áður svo sem
fyrir Odda, Miðaprentun, Umbúða-
miðstöðina og Múlalund.
(»----------- " ........................—
Safnaðarfélag Langholtskirkju
Stofnfundi safnaðarfélags Langholtskirkju
sem vera átti sunnudaginn 18. janúar er
frestað fram í febrúar.
Nánar auglýst síðar.