Morgunblaðið - 17.01.1998, Síða 18

Morgunblaðið - 17.01.1998, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 VIÐSKIPTI MORGUNB LAÐIÐ Vextir á verðtryggðum bréfum lækka áfram á verðbréfamarkaði Nýtt met í lækkunarhrinu Ávöxtunarkrafa frá 16. desember HEILDARVIÐSKIPTI á Verð- bréfaþingi Islands í gær námu 3,44 milljörðum króna og eru það mestu viðskipti á einum degi í sögu þings- ins en fyira met var frá 15. desem- ber síðastliðnum. Þriðji stærsti dagurinn frá upphafi var hins veg- ar sl. fímmtudag. Viðskipti þessar- ar viku hafa því verið mjög lífleg og námu heildarviðskipti vikunnar 10,4 milljörðum króna. Sem fyrr urðu mestu viðskiptin á peningamarkaði. Heildarviðskipti dagsins með ríkisvíxla námu tæp- lega 1,8 milljörðum, tæpum 700 milljónum með spariskírteini og rúmum 400 milljónum króna með húsbréf. Vaxtalækkanir á verðtryggðum ríkisskuldabréfum héldu áfram í gær. Avöxtunarkrafa húsbréfa lækkaði um 5 punkta í 5,19% og hefur krafan þá lækkað um 9 punkta á tveimur dögum. Ávöxtun- arkrafa spariskírteina ríkissjóðs til 20 ára lækkaði um 7 punkta í 4,75% og hefur krafan þá lækkað um 10 punkta í þessari viku. Almennt lækkuðu verðtryggðir vextir um 4- 7 punkta í gær. Á verðbréfamarkaði virðist al- mennt búist við áframhaldandi lækkunum á verðtryggðum vöxtum og er allt eins reiknað með því að ávöxtunarkrafa húsbréfa kunni að vera komin niður undir 5% innan skamms. Sú hindrun sem fjárfestar hafí séð fyrir sér í gjalddaga endur- hverfra verðbréfakaupa sé nú að baki og greinilegt að bönkum og sparisjóðum hafi tekist að kljúfa þá greiðslu án þess að hleypa upp vöxtum. Því komi nú saman minni spenna í bankakerfmu og almennar vænt- ingar um vaxtalækkanir. Þá var út- dráttardagur húsbréfa á fímmtu- dag og það hafí í för með sér tals- vert fjárinnstreymi í lífeyrissjóð- ina. Engu tilboði tekið í ríkisvíxla Engu tilboði var tekið í útboði Lánasýslunnar á ríkisvíxlum í gær. Alls bárust tilboð að fjárhæð 2.156 milljónir króna og var mest ásókn í 3 mánaða ríkisvíxla. I síð- asta útboði Lánasýslunnar fyrir mánuði var tekið tilboðum fyrir tæpar 1.700 milljónir króna í ríkis- víxla til 3 mánaða á meðalávöxtun- arkröfunni 7,21%. Ávöxtunai'krafa þeirra lækkaði um 7 punkta á eft- irmarkaði í gær og var 7,20% við lokun. Viðskipti á hlutabréfamarkaði tóku lítillega við sér í gær en féllu þó í skugga viðskiptahrinunnar á peningamarkaði. Mest viðskipti áttu sér stað á Opna tilboðsmark- aðnum með hlutabréf í SH að nafnvirði 6 milljónir króna. Gengi viðskiptanna var 5,15 sem er um 5% hækkun frá síðustu viðskipt- um. Lækkanir einkenndu hins vegar hlutabréfaviðskipti á Verð- bréfaþingi og lækkaði hlutabréfa- vísitala þingsins um tæp 0,6%. Hefur hún þá lækkað um 2,3% frá áramótum. Ericsson • • Or þróun í fjar- skiptum JAN Wennerholm, framkvæmda- stjóri þróunarsviðs Ericsson og að- alhöfundur framtíðarskýrslunnai’ 2005 - Eiicsson entering the 21st Century (2005 - Ericsson stígur inn í 21. öldina), hélt erindi á morgun- verðarfundi samgönguráðuneytisins og Skýrslutæknifélags fslands í gær. f erindi sínu gerði Wennerholm gi’ein fyrir því hvernig meira en 500 sérfræðingar og stjómendur Erics- son íyrirtækisins veltu fyrir sér þróuninni í fjarskiptum og fjölmiðl- un fram á næstu öld. Þetta plagg var síðan lagt til grundvallar stefnu- mótun fyrirtækisins. Samkvæmt framtíðarskýrslunni mun tækniþróunin verða samhliða miklum breytingum í viðskiptaum- hverfinu á þessu sviði. Wennerholm sagði þróunina á tæknisviðinu hafa orðið örari en skýrsluhöfundar þorðu að ætla árið 1995. Til dæmis nefndi hann alnetið sem nú þegar hefur áhrif á flestum sviðum vest- ræns þjóðfélags. Rússar leggja niður rúmlega 250 flugfélög Moskvu. Reuters. RÚSSAR hafa kveðið upp dauða- dóm yfír flestum litlu flugfélögun- um, sem tóku við af Aeroflot, og verða rúmlega 250 þeirra lögð nið- ur fyrir aldamót. Samkvæmt góðum heimildum mun skráðum flugfélögum fækka í 53 úr 315 á næstu þremur árum. Lögð verða niður flugfélög, sem fullnægja ekki nýjum og ströngum kröfum um fjármál og öryggi. Ivan Valov, annar æðsti maður rússnesku flugmálaþjónustunnar (FAS), sagði að stefnt væri að því að átta millilanda- og 40-45 lands- hlutaflugfélög yrðu starfandi. Aeroflot skipt í 500 félög Einokun Aerofiots á rússnesku innanlands- og millilandaflugi lauk 1992 þegar því var skipt í um 500 lítil einkaflugfélög og nokkur stærri fyrirtæki. -------♦ ♦♦------ Ford fjárfest- ir íRússlandi Moskvu. Reuters. FORD Motor Co. hyggur á um 150 milljóna dollara fjárfestingu í rúss- neskri bílaverksmiðju og vonast til að geta skýrt frá stofnun sameign- arfélags á fyrri hluta þessa árs að sögn samningamanns Fords. Samningamaðurinn, Len Meany, sagði að viðræður hefðu farið fram í rúmlega eitt ár við yfirvöld í Len- ingrad fylki í grennd við St Péturs- borg. Að hans sögn stendur til að end- umýja hluta Russky Dizel verk- smiðjunnar í Vsevolozhsk og verð- ur sameignarfyrirtæki líklega komið á fót. Ford hyggst koma upp fulbúinni verksmiðju, sem getur framleitt 25,000 bfla fyrst í stað að sögn Meanys. Fiat undirritaði 854 milljóna dollara samning við GAZ í desem- ber og Renault skrifaði undir 350 milljóna dollara samning við stjómina í Moskvu um smíði Renault Meganes í hinni bág- stöddu Moskvitsj verksmiðju Morgunblaðið/Ásdís KEPPINAUTARNIR Ómar Benediktsson, framkvæmdastjóri íslandsflugs (t.v.), og Pétur J. Eiríksson, fram- kvæmdastjóri viðskipta- og þróunarsviðs Flugleiða, voru hýrir á brá er þeir undirrituðu samstarfssamning- inn í gær. Að baki þeim standa Sigfús Sigfússon, markaðsstjóri fslandsflugs og Helga Þóra Eiðsdóttir, for- stöðumaður á viðskipta- og þróunarsviði Flugleiða. Til móts við þarfír notenda Skýrsluhöfundar Ericsson gera ráð fyrir að opinber afskipti af fjar- skiptum og fjölmiðlun muni líklega minnka, fyrirtækjum eigi eftir að fækka. Eftir standi fjölþjóðlegar samsteypur sem veita fjölbreytta þjónustu. Aukin áhersla verður lögð á að mæta þörfum og óskum notenda. Skil verða á milli þeirra sem búa til dagskrárefni og geyma upplýsingar og svo hinna sem dreifa efninu til notenda. í stað þess að skipta við mörg fyrirtæki á sviði fjarskipta, fjölmiðlunar og afþreyingar, muni viðskiptavinir fá alla þessa þjónustu og fleira hjá sama aðila. Sá muni virka líkt og verðbréfamiðlari, sem býður upp á þjónustu sem fellur að þörfum hvers og eins viðskiptavinar. Kostnaður notenda mun væntan- lega lækka og líklegt að þeim gefist kostur á tækjabúnaði, fjarskipta- þjónustu og fjölmiðlum sem alfarið verður kostuð af auglýsingum. Tækniþróunin mun upphefja landfræðilegar fjarlægðir og fjar- skiptakerfin verða bæði þráðlaus og þráðbundin. Wennerholm taldi að sá kostur yrði fyrir valinu í hverju tilviki sem þýddi lægstan reksturs- kostnað. Hægt er að nálgast enskan úr- drátt úr framtíðarskýrslunni á slóð- inni http://www.ericsson.se/annu- al report/2005.html. Islandsflug semur við Vildarklúbbinn ÍSLANDSFLU G hf. og Vildar- klúbbur Flugleiða hafa gengið frá samstarfssamningi um ferða- punkta. Samkvæmt honum munu félagar í Vildarklúbbi Flugleiða safna punktum þegar þeir fljúga með íslandsflugi. Hægt er að inn- leysa punktana við greiðslu far- gjalds hjá Islandsflugi og Flug- leiðum eða við þjónustu annarra samstarfsaðila Vildarklúbbsins. Samningurinn tekur gildi þriðju- daginn 20. janúar. Að sögn Sigfúsar Sigfússonar, markaðsstjóra Islandsfíugs, mun verðskrá félagsins haldast óbreytt þrátt fyrir inngöngu í Vildarklúbb Flugleiða. Gefnir eru 700 punktar af almennu far- gjaldi aðra leið en 1.400 punktar báðar leiðir. Almennt fargjald kostar nú 4.900 krónur aðra leið en 8.900 báðar leiðir. Ekki eru gefnir punktar fyrir ódýrasta fargjaldið en það er 3.600 krónur aðra leiðina en 6.900 báðar leiðir. Félagar í Vildarklúbbnum eru orðnir 50 þúsund Á siðasta ári fjölgaði félögum í Vildarklúbbi Flugleiða um 100% og eru þeir nú tæplega 50 þúsund að því er kemur fram í frétt frá Flugleiðum. Segir þar að mark- mið Vildarklúbbsins sé að fjölga þeim fyrirtækjum sem eru í sam- starfí við hann. Um 200 innlend og erlend fyrirtæki, flugfélög, fyrirtæki í ferðaþjónustu, verslun og bankaviðskiptum, svo einhver séu nefhd, gefa viðskiptavinum sínum nú færi á að safna ferða- punktum í Vildarklúbbnum í sam- ræmi við gildandi punktatöflu. Áformað er að kynna nýja töflu í byijun febrúar. Asíukreppan dregur úr olíueftirspurn London. Reuters. UMRÓTIÐ á fjármálamörkuðum Asíu mun hægja á aukningu eftir- spurnar eftir olíu í heiminum þar sem það mun draga úr eldsneytis- notkun í heimshlutanum og ef til vill valda skakkaföllum á hagkerf- um annarra landa að sögn Alþjóða- orkustofnunarinnar, IEA. Stofnunin hefur lækkað spá um eftirspum í heiminum 1998 um 280.000 tunnur á dag í 75,34 millj- ónir vegna kreppunnar í Asíu, þeim orkumarkaði heims sem hef- ur verið í örustum vexti. Spáin lækkuð um 230.000 tunnur „Búizt er við að hið erfiða efna- hagsástand fari að hafa áhrif á olíu- eftirspum í verulegum mæli á þessu ári,“ segir í mánaðarlegri ol- íuskýrslu IEA. „Spáin um eftirspurnina getur haldið áfram að lækka, ef efna- hagsástandið í heimshlutanum versnar eða ef áhrifin í öðrum heimshlutum verða veruleg.“ IEA skar niður spá sína um eft- irspum í Asíu, að Japan og Kína undanskildum, um 230.000 tunnur á dag í 9,39 milljónir. Áfall fyrir OPEC Spáin er áfall fyrir samtök olíu- söluríkja, OPEC, sem hafa aukið framleiðslukvóta sinn um 10% í ár til að endurheimta markaðshlut- deild, sem lönd utan OPEC hafa náð á undanförnum árum. Helztu ríki OPEC sem hyggjast auka framleiðslu sína hafa fyrst og fremst ætlað að auka söluna í Asíu. Tæpur helmingur aukningar á eft- irspurn eftir olíu í heiminum hefur orðið í Asíu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.