Morgunblaðið - 17.01.1998, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 21
ERLENT
Rannsóknir á fuglaflensuveirunni
Hugsanlegt að
bóluefni fínnist
Washington. Reuters.
VÍSINDAMENN hafa uppgötvað
vísbendingu um hvað gerir veiruna
sem veldur hinni svokölluðu
fuglaflensu eins banvæna og hún
hefur reynzt. Telja vísindamennim-
ir mögulegt að hægt verði að búa til
bóluefni gegn sjúkdómnum eftir að
þeim tókst að greina erfðafræðilega
byggingu veirunnar.
Niðurstöður vísindamannanna
benda til að breyting á einu geni
sem leikur lykilhlutverk í veirunni
geri að verkum að hún geti sýkt
fleiri líffæri en lungun. I fuglum
gerir þetta veiruna bráðabanvæna;
nærri hver einasti fugl sem sýkist
deyr. Vísindamennina grunar að
hliðstæð breyting á veirunni sé
ástæðan fyrir því hvers vegna hún
sé svo hættuleg mönnum.
Sex manns hafa látizt úr sjúk-
dómnum fram að þessu í Hong
Kong, en átján manns sýkzt, svo
vitað sé. Nýjasta fómarlambið var
25 ára gömul kona sem sýktist rétt
áður en hafizt var handa við að
slátra kjúklingum í stómm stíl í
Hong Kong, en hún lézt í fyrradag.
Ekki fullskilið
Veiran fannst fyrst í þriggja ára
gömlum dreng í maímánuðu sl., en
sýni úr líki hans hafa verið rannsök-
uð á rannsóknastofum í Atlanta í
Georgíuríki í Bandaríkjunum, og
fleimm.
„Við skiljum ekki til fullnustu
hvað gerir veiranni kleift að smitast
milh dýrategunda," sagði Kanta
Sabbarao við farsóttarannsókna-
stofnun Bandaríkjanna (CDC) í Atl-
anta, en hún stýrði rannsókninni.
„Þetta er nokkuð sem við verðum
að rannsaka og komast til botns í
því það sem gerðist gæti endurtekið
sig,“ sagði Sabbarao. En góðu frétt-
irnar era þær að hennar sögn að
veiran sé greinilega fuglaveira og
engar vísbendingar væru um að hún
hefði skipt á framukjama við mann-
lega flensuveiru. Ef það gerðist
væri voðinn vís.
Það sem gerir veirasjúkdóma svo
erfiða viðureignar er sá eiginleiki
veiranna að geta skipzt á frumu-
kjörnum og stökkbreytzt þannig.
Þetta er ástæðan fyrir því að nýr
flensufaraldur gengur yfir heims-
byggðina með reglulegu millibili.
En eins lengi og fuglaflensuveiran
heldur sínum upprunalega kjama
er nær ómögulegt að hún smitizt frá
manni til manns og því þykir ekki
hætta á faraldri.
Sumir sérfræðingar telja að veir-
an sem olli „spænsku veikinni“ árið
1918, sem kostaði fleiri lífið en
heimsstyrjöldin fyrri, sé hættulega
lík fuglaflensuveiranni, en um þess-
ar mundir era vísindamenn einnig
að rannsaka spænsku veiki-veirana
í þeim tilgangi að reyna að fá ná-
kvæmar skýringar á því hvers
vegna hún reyndist svo skæð.
Eftirlitshópur Sameinuðu þjóðanna farinn frá Bagdad
Breskt flugmóður-
skip sent á Persaflóa
Bagdatl, Washington, París. Reuters.
BRESKA stjórnin sendi í gær flug-
móðurskipið Invincible á Persaflóa
og George Robertson, varnarmála-
ráðherra Bretlands, kvaðst ekki
geta útilokað að írakar yrðu beittir
hervaldi. Eftirlitshópur undir stjóm
Bandaríkjamannsins Scotts Ritters,
sem írakar saka um njósnir, fór frá
Bagdad í gær en Ritter sagði að það
þýddi ekki að Sameinuðu þjóðimar
létu undan kröfum Iraka um breyt-
ingar á eftirhtinu.
George Robertson sagði að breska
stjómin hefði ákveðið að senda flug-
móðurskipið Invincible á Persaflóa
með nítján herþotur af gerðinni
Harrier. Hann sagði að stjórnvöld í
Bretlandi og fleiri aðildarríkjum ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna
myndu halda áfram að reyna að
leysa deiluna um vopnaeftirlitið með
friðsamlegum hætti. „Ef það tekst
ekki verðum við að íhuga aðrar að-
gerðir, meðal annars valdbeitingu."
Leitaði gagna um
sýklavopnatilraunir
Hópur Ritters fékk síðast að
starfa á mánudag og leitaði þá að
gögnum um tilraunir á sýkla- og
efnavopnum til að ganga úr skugga
um hvort írakar hefðu notað fanga
sem tilraunadýr á áranum 1994-95.
Hópurinn fann engin gögn frá þess-
um tíma. írakar viðurkenndu árið
1995 að hafa notað dýr við tilraunir
á sýkla- og efnavopnum og lögðu
fram gögn um þær. Eftirlitsnefnd
SÞ er að rannsaka ásakanir um að
fangar hafi verið notaðir við tilraun-
imar, en írakar hafa sagt að ekkert
sé hæft í þeim.
Hubert Vedrine, utanríkisráð-
herra Frakklands, sagði í gær að
enn léki mikill vafi á því að Irakar
hefðu orðið við þeirri kröfu SÞ að
eyðileggja efna- og sýklavopn. Eftir-
litsnefnd Sameinuðu þjóðanna teldi
hins vegar að Irakar hefðu fullnægt
kröfum um að eyðileggja kjarna-
vopn og eldflaugar.
Khamenei andvígur
öllum samskiptum
Dubai, Teheran. Reuters.
KAMAL Kharrazi, utanríkisráð-
herra írans, sagði í gær, að ekki
yrði leitað eftir neinum viðræðum
við Bandaríkjastjóm fyrr en hún
léti af „fjandskap“ sínum við írönsk
stjómvöld.
Erkiklerkurinn AIi Khamenei og
einn valdamesti maður í íran sagði
hins vegar við bænagjörð í einni
stærstu mosku Teherans, að engin
samskipti yrðu höfð við Bandaríkin
þar sem þau myndu skaða sjálf-
Brussel, Genf. Eeuters.
MANUEL Marin, sem sæti á I fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
(ESB), sagði í gær að hann væri
sannfærður um að alsírsk sljómvöld
hefðu engan þátt tekið í fjöldamorð-
unum er framin hafa verið á allt að
1.400 manns í landinu frá því fóstu-
mánuður múslíma, ramadan, hófst
30. desember.
Marin, sem mun fylgja sendinefnd
stæði írana og hagsmuni múslima
um allan heim. Breska stjómin
hefur hvatt Bandaríkjastjóm til að
endurskoða afstöðu sína til írans.
Mohammad Khatami, forseti
Irans, hvatti til þess í viðtali við
bandarísku sjónvarpsstöðina CNN
7. janúar, að borað yrði gat á „tor-
tryggnismúrinn" milli írana og
Bandaríkjamanna, en lagði þó ekki
beint til að viðræður yrðu teknar
upp.
ESB til Alsír í næstu viku, hefur á
sinni könnu tengsl ESB við ríki við
Miðjarðarhaf sunnanvert og Mið-
Austurlönd. „Það sem gera þarf er
að koma á viðræðum við alsírsk
stjórnvöld, hefja viðræðurnar, sinna
þeim og huga í framtíðinni nákvæm-
lega að því hvað um er að ræða,“
sagði hann á fréttamannafundi í
gær.
Glenn aftur
út í geim
FYRSTI bandaríski geimfarinn,
John Glenn, sem fór þijá hringi
um jörðu árið 1962, verður í áhöfn
bandarísku geimfeijunnar í októ-
ber næstkomandi, standist hann
læknispróf, að því er tilkynnt var í
gær. Verður hann þá 78 ára og
þar með elsti maðurinn sem skotið
hefur verið út í geiminn. Hér er
Glenn eftir komuna til jarðar úr
leiðangrinum með Mercury-farinu.
ESB-nefnd til Alsír
Úrskurður WTO um hormónakjötsbann ESB
Ekki í samræmi
við GATT-samning
Genf. Reuters.
ÚRSKURÐARNEFND Heimsvið-
skiptastofnunarinnar, WTO, hefur
komizt að þeirri niðurstöðu að bann
Evrópusambandsins við innflutningi
svokallaðs hormónakjöts samræmist
að nokkra leyti ekki sldlyrðum
GATT-samninganna.
Þessi niðurstaða sáttanefndarinn-
ar, sem hefur ekki verið lögð opin-
berlega fram en gekk á milli fulltrúa
aðildarríkja WTO í Genf í gær, gæti
að mati stjómarerindreka leitt til
meiriháttar deilu milli ESB-ríkjanna
annars vegar og Bandaríkja- og
Kanadamanna hins vegar, en þeir
fólu úrskurðarnefnd WTO að skera
úr um réttmæti bannsins.
Samkvæmt niðurstöðunni verður
farið fram á það við ESB að það færi
aðgerðir sínar „til samræmis við eig-
in skuldbindingar“ í GATT-samn-
ingnum. Er þar átt við innflutnings-
bann sem sambandið setti við inn-
flutningi kjöts af nautgripum sem
ræktaðir hafa verið með vaxtarhvetj-
andi efnum.
En með þessari niðurstöðu breytir
sáttanefndin allnokkuð fyrri úrskurði
um sama mál, sem hafði fallið ESB
afdráttarlaust í óhag. Orðalag nýja
úrskurðarins skilur jafnframt eftir
*★★★ i
evrópaA.
rúm til mismunandi túlkunar á því
hvað ESB ber að gera til þess að upp-
fylla samningsskuldbindingar sínar.
í fyrradag fagnaði fulltrúi Banda-
ríkjanna hjá WTO, Charlene Bars-
hefsky, þegar sigri. Að hennar mati
hafði sáttanefndin úrskurðað að
sjónarmið Bandaríkjamanna í deil-
unni væru rétt, en þau gengu út á að
bann ESB bryti í bága við GATT-
reglur þar sem það væri ekki byggt
á vísindalegum granni.
Bandarískir embættismenn sögð-
ust búast við að nú myndu stjórnvöld
ESB aflétta innflutningsbanninu,
sem hefði hvort eð er aldrei verið til
annars ætlað en að vernda evrópska
kjötframleiðslu fyrir samkeppni. Af-
staða Kanadamanna er sú sama, en
þeir höfðuðu á eigin spýtur mál fyrir
sáttanefnd WTO sem þeir síðan
tengdu máli Bandaríkjamanna.
En heimildamenn innan stjóm-
sýslu Evrópusambandsins í Brassel
sögðu í gær að þeir litu svo á að
þessi nýi úrskurður jafnaðist á við
það að gamla úrskurðinum væri
hnekkt. „Við höfnum því að þetta
þýði að við neyðumst til að aflétta
banninu. Það er fullljóst af úrskurð-
inum að við getum haldið því,“ sagði
embættismaður hjá ESB.
Viðbrögð ESB
varða Island
Deilan var fyrst tekin fyrir hjá
WTO fyrir þremur áram, þegar al-
þjóðlegur samningur gekk í gildi um
aðgerðir sem aðildarríki stofnunar-
innar mega grípa til í nafni matvæla-
heilbrigðisverndar. ísland er líka að-
ili að þessum samningi, en auk þess
hefur ísland skuldbundið sig til að
yfirtaka ákveðinn hluta þeirra
reglna sem gilda á innri markaði
Evrópu um vamir gegn dýrasjúk-
dómum og neytendavemd.
Þannig má gera ráð fyrir að verði
það niðurstaðan að ESB neyðist til
að aflétta innflutningsbanni af
svokölluðu hormónakjöti verði ís-
lendingum ekki stætt á því að hefta
innflutning þess hingað til lands.
# # j Reuters
Ötzi fluttur til Italíu
SÉRFRÆÐINGAR forn-
leifasafnsins í Bolzanó á Ítalíu
rekja umbúðir utan af leifum
hins forsögulega manns, sem
gengur undir nafninu Otzi og
fannst á Similaunjökli í Alpafjöll-
um árið 1991. Verður líkið haft
til sýnis f safninu sem reist hefur
verið sérstaklega til að hýsa það.
ítalir og Austurríkismenn hafa
deilt um eignarrétt á Ötzi sem
sagður er hafa fúndist 10 metr-
um Ítalíumegin við markalfnu
Austurrfkis og ítalfu á jöklinum.