Morgunblaðið - 17.01.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 31
hljóð, gi-afík og hreyfimyndir.
Olík skjákort og örgjörvar
Skjákort eru fjölmörg og fjöl-
margir ólíkir örgjöi-var, þótt ekki
séu þeir eins margir og grafíkstaðl-
amir. Þar líkt og í grafíkinni hafa
nokkrir afgerandi yfirburði, en
veður skipast skjótt í lofti á þeim
markaði. Til er gömul regla nefnd
eftir einum af stofnendum Intel-ör-
gjörvaframleiðandans sem hljóðar
upp á það að reiknigeta örgjörva
tvöfaldist með átján mánaða milli-
bili. Sú hefur haldið
merkilega vel síðustu
ár, en þróun grafík-
örgjörva er öllu örari
því þar gildir að
reiknigeta ör-
gjörvans áttfaldist á
hverjum átján mán-
uðum.
Þrívíddarskjákort
eru yfirleitt sett sem
viðbót í tölvur sem
eru með tvívíddar-
skjákort fyrir, þó
vissulega séu til kort
sem fela í sér hvort
tveggja. Þau kort
hafa aftur á móti ekki
notið mikillar hylli,
enda algengast að
notendur sem á ann-
að borð vilja
góða grafík séu
búnir að koma
sér upp góðu
tvívíddarkorti
þegar þeir fá
sér þrívíddar-
kort og því
ódýrara að
kaupa sér
slíkt og nýta
þannig gamla
kortið. I dag
er aftur á
móti ódýrast
að kaupa
lausn sem
sameinar
hvort
tveggja, ef
menn eru
að kaupa
nýja tölvu
á annað
borð, og
mörg góð
skjákort á
markaði sem sameina þrí-
vídd og tvfvídd. Mikill kostur er og
að ekki þarf nema eitt PCI-tengi
fyrir slíkt kort, en þau eru jafnan
af skornum skammti. Nýtt tengi
fyrir skjákort frá Intel, AGP, veð-
ur og eflaust til þess að fjölga kort-
um sem eru með tvívíddar- og þrí-
víddarhraða á einu og sama kort-
inu.
Helstu skjákort
A síðasta ári náði eitt fyrirtæki,
3Dfx, yfirburðastöðu á markaðn-
um. Það setti á markað svonefnt
Voodoo örgjörvasett sem notað
hefur verið á fjölmörg skjákort.
Voodoo-kortin eru aðeins þrívídd-
arkort, þ.e. þau koma ekki í stað
hefðbundinna skjákorta, sem flest-
ir eru reyndar með í tölvunni hvort
eð er. A árinu kom einnig út annað
örgjörvasett frá 3Dfx sem kallast
Voodoo Rush og er ætlað fyrir tví-
víddar/þrívíddarkort, en hefur ekki
notið sömu hylli og Voodoo-kortin.
Væntanlegt er nýtt örgjörvasett
frá 3Dfx sem kallast einfaldlega
Voodoo 2 og kemur út á þessu ári.
Samkvæmt prófunum á frumgerð
korta með Voodoo 2 eru þau fimm
sinnum hraðvirkari eða meira í
GlQuake en eldri borðin og enn má
auka hraðann með því að hafa tvö
Voodoo 2 kort í vélinni. Samkvæmt
fréttum frá 3Dfx þarf ekki sér-
staka rekla til að nota kortið í leikj-
um sem þegar styðja 3Dfx, þeir
keyi’i einfaldlega hraðar, en til að
nýta það að fullu þurfi nýja rekla.
Fyrstu kortin verða PCI-kort, en
síðar kemur AGP-útgáfa.
Helsti keppinautur 3Dfx er Riva
128-örgvjörvasettið sem NVida
framleiðir og náði reyndar hæsta
skori í prófunum Mercury Rese-
arch frá því í ágúst sl. Einnig er
vert að geta Rendition, sem varð í
öðru sæti með V2200, sem er meðal
annars með aukinn stuðning fyiir
MPEG-2 og DVD-spilun. Skammt
þar undan var Voodoo-kort og síð-
an Voodoo Rush í fjórða sæti.
Það villir eflaust um fyrir ein-
hverjum að örgjörvasettin eni
framleidd af einum aðila, en aðrir
framleiða kortin. Til að mynda
framleiðir Diamond Voodoo kort,
Monster 3D, Hercules Voodoo
Rush-kort, Creative Labs og Di-
amond Voodoo 2-kort sem koma á
markað á næstu vikum. Diamond
framleiðir og kort með Rendition
og kallar þau Diamond Stealth, en
Hercules framleiðir einnig slík kort
og kallar Thriller 3D. Sjá slóðina
http://www.next-generation.com-
/asking/faqs/3daccelerator.chtml.
AGPí
stað PCI
Gamli VGA-staðallinn, sem
flestir þekkja, var upplausn
uppá 648x480 pixel, eða
myndeiningar, sem þýddi að
307.200 pixel þurfti til að þekja
skjáinn. f 16 litum þurfti
156.600 bæti af minni. Meðal-
skjákort fyllti það minni á ein-
um tíunda úr sekúndu og það
sem endurteikning skjásins,
eða skjátíðni, í VGA var 60 Hz
þurfti að senda 150 Kb til
skjásins 60 sinnum á sekúndu,
sem þýddi að minnisbandvíddin
varð að vera rúm 9 Mbás. Þeg-
ar komið er út í SVGA, sem er
helsti skjástaðall í dag, eru
upplausnin og litadýptin orðin
mun meiri, 1024x768 pixel í
65.536 litum (16 bita lit).
Skjáminnið verður því að rúma
1,6 Mb af gögnum og minnis-
bandvíddin að vera 16 Mbás.
Með svökölluðu PCI-tengi, sem
er algengast í einkatölvum í
dag, PC-tölvum og Macintosh,
næst 60 Mbás gagnaflutningur
sein ræður hæglega við það, en
þegar skjátíðnin er komin í 75
Hz kallar það á samfellt gagna-
streymi upp á 75x1,6 eða 120
Mbás. Þegar komið er út í
meiri upplausn, til að mynda
1280x1024, krefst það sam-
fellds 196 Mbás gagnastreymis.
Þrívíddargögn eru talsvert
umfangsmeiri og flóknari
viðureignar. Svar við þessu er
að auka skjáminni með hrað-
virkara minni, en einnig hefur
örgjörvarisinn Intel kynnt nýja
og verulega betri skjágagna-
gátt sem kallast AGP. AGP-
skjákort, sem eru þegar farin
að koma á markað, nýta sér-
stakt tengi á móðurborði tölv-
unnar sem er talsvert hrað-
virkara en PCI-tengi, auk þess
sem AGP-skjákort geta nýtt
innra minni tölvunnar sem við-
bótarminni við skjáminnið.
Viðnám og tilfínning
JAÐARTÆKI
Microsoft Force Feedback,
stýripinni frá Microsoft með inn-
byggðum mótorum. Hægt er að
nota pinnann við tölvu sem er að
minnsta kosti 75 MHz Pentium,
keyrir Windows 95, hefur 8 Mb
innra minni hið minnsta, tveggja
hraða geisladrif fyrir innsetningu
og hljóðkort með leikja- eða MIDI-
tengi. Pinnanum fylgir sérstök út-
gáfa af Interstate 76 og kynningar-
eintök af Shadows of the Empire
og MDK.
STÝRIPINNAR hafa tekið stór-
stígum framförum undanfarin
misseri í takt við gríðarlega
söluaukningu á tölvum.
Nýjasta nýtt í þeim
efnum kalla menn
Force Feedback,
sem byggist á
því að í
stýripinnan-
um eru raf-
mótorar sem
er ætlað að
gera spila-
mennskuna
raunverulegri.
Bestu leikjapinn-
arnir eru að margra mati
Microsoft-pinnarnir, sérstak-
lega Sidewinder-pinnarnir sem eru
með stafrænni stillingu og þarf því
ekki að jafnvægisstilla í gríð og
erg. Nýjasti stýripinni þeirrar teg-
undar frá Microsoft er með viðbót
sem kallast Force Feedback og
byggist á því að í fótstykki pinnans
eru rafmótorar sem bregðast við
eftir því sem notandinn er að gera.
Þetta kemur vel í ljós sé reynd sér-
útgáfa af Interstate 76 sem fylgir
með því hún er með slíkri stillingu
og fyrir vikið bregst stýripinninn
við með hnykkjum og þegar keyrt
er á ójöfnum vegi, aukinheldur sem
það fer ekki á milli mála hvað er í
gangi þegar skotið er af byssu.
Viðnám og tilfínning
eins og hver vill
Stýripinninn fellur frábærlega
vel að hendinni og hnappar era all-
ir innan þægilegrar seilingai’, en
vinstri hendinni er ætlað að stýra
hnöppum á fótstykkinu. Þegar
pinninn er ekki í gangi er hann
laufléttur en þegar mótorarnir
taka við kemur viðnám og tilfinn-
ing í hann eins og hver vill, en
hægt er að stilla það.
Forcce
Feed-
back nýtist
ekki nema leik-
urinn styðji það
og sem stendur
eru þeir leikir
sem það gera
ekki ýkja
margir. Það
stendur þó allt
til bóta og ef
leikurinn er
ekki fyrir Force
Feedback hagar
stýripinninn sér
eins og hver annar
stýripinni með þeirri
viðbót að fínstilla má
viðbragðið og mótstöðuna.
Flestir hafa orð á því hve hávaða-
samur pinninn er, enda fara mótor-
ar í gang þegar kveikt er á tölvunni
og verður hver að meta fyrir sig
hvort honum þykir það óþægilegt.
Árni Matthíasson
siqrDtshlhn hefst
MRNUDHG HL. 9:00
DUO