Morgunblaðið - 17.01.1998, Page 55

Morgunblaðið - 17.01.1998, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ______________________ FÓLK í FRÉTTUM LAUGARDAGSMYNDIR SJÓNVARPSSTÖÐVANNA Stöð 2 ►13.10 Hádegismyndin er að vervju fyrir alla fjölskylduna. Ævintýri Sinbads (The Golden Voyage of Sin- bad, ‘74), er prýðileg sem slík. Efnið er sótt í Þúsund og eina nótt, um sæ- fara sem finnur landakort er færir hann á vit ævintýranna. Ein fyrsta mynd brellumeistarans Ray Harryhousen en leikstjórnin í höndum Gordon Hessler, sem enn fæst við risavaxnar B-myndir vel yfir meðal- lagi. Sú síðasta var Star Truckers Sýn K21.00 Brellumeistari úr kvik- myndaheiminum (Barry Brown) er fenginn til að sviðsetja morð á mafiósa en mysan er morandi í möðkum. Við AI gáfum Sviðsett morð (F/X Murder by Illusion, ‘86) ★*'/2 og sögðum myndina „...mjög frambæri- legan þiiller með góðum leikarahópi og ágætum húmor en lengi að koma sér að efninu og ekki alltaf þrungin spennu..." Með Brian Dennehy og Cliff De Young. Leikstjóri Robert Mandel. Stöð 2 ►21.00 Hart á móti hörðu: Leyndarmálið (Hart to Hart: Secrets of the Hart, ‘92) er einsog nafnið bendir til, sjónvai-psmynd um Harthjónin (Robert Wagner, Steph- anie Powers), sem eitt sinn nutu vin- sælda í samnefndri þáttaröð. Pyrir að- dáendurna. Sjónvarpið ►21.15 Síðustu stráka- pörin (The Lies Boys Tell, ‘94), er gamall kunningi úr myndbandageiran- um, sjónvai'psmynd um dauðvona mann (Kirk Douglas) sem leggur land undir fót ásamt svarta sauðnum syni sínum (Craig T. Nelson). Dulítið vina- leg og skondin gamanmynd um gaml- Úr safni leiðtoga eða uppreisnarmanns? ÞAÐ ER á engan hallað þó fullyrt sé að Spike Lee sé kunnasti og afkastamesti þeldökki kvikmyndagerðar- maður Bandaríkjanna um þessar mundir. Og einn sá um- deildasti. Lee hafði ekki lokið námi við kvikmyndadeild New York University þegar fyrsta mynd hans, Joe’s Bed-Stuy Barbershop: We Cut Heads var frumsýnd 1983 og vakti mikla athygli. M.a. sýnd í Lincoln Center. Síðan hefur Lee gert urmul mynda. Hann er rétt- nefndur kvikmyndaskáld, þar sem hann bæði skrifar og leik- stýrir myndum sínum auk þess að framleiða þær og fara oft- ast með hlutverk. Myndir hans hafa flestar verið lofaðar í há- stert en margir hafa gagnrýnt ofbeldið og nokkuð einlita mynd sem hann dregur gjarn- an upp af samskiptum kynþátt- anna. Hvítir segja hann ala á uppreisnaranda, litaðir líta á hann sem leiðtoga. Þó hafa myndir hans ekki fengið um- talsverðar viðtökur, aðsóknin oftast valdið dreifingaraðilum miklum vonbrigðum og tjóni, ekki síst hin fokdýra Malcolm X, ‘92. Lee heldur sínu striki, hvað sem tautar og raular. Crooklyn, ‘94, er sjálfsævi- söguleg, einsog margar aðrar myndir hans. Delroy Lindo leikur heimilisföður í Bedford- Stuveysant hverfinu á áttunda áratuginum. Rokk og önnur popptónlist hafa gert þennan jasstónlistarmann atvinnulaus- an. Móðirin og kennslukonan (Alfre Woodard) reynir að ná endum saman og hafa hemil á fyrirferðarmiklum krakkahóp. Ekki ein af bestu myndum Lees, en fínasta skemmtun sem gefur skondna og dramat- íska innsýn í heimilishald við strembnar aðstæður. Vel leikin og skrifuð, enda byggð á Qöl- skyldu höfundarins og jass- músikantinn, faðir Lees, semur tónlistina. Sæbjörn Valdimarsson ingja sem langar að upplifa æskuslóð- irnar í hinsta sinn með vandræða- gemlingnum, syni sínum. Douglas er nokkuð góður, Nelson slarkfær en myndin er brokkgeng og gengur á köflum útí öfgar (golfleikurinn er ekki gott innlegg). ★★ Stöð 2 ►22.30 Það hefur verið hljótt um Fuglinn í flöskunni (Crazy Hong Kong, ‘93), þriðju myndinni í röð sem kennd er við The God’s Must be Crazy, ‘81. Þær fóru versnandi. Þessi er gerð af Hong Kong mönnum með Nixau karlinn í aðalhlutverki. Nú í ógöngum í bresku nýlendunni, fyir- verandi. Kókflaska kemur líka við sögu. Kannxske er það sú sem setti alla vitleysuna í gang? Það kemur í ljós. Sjónvarpið ►22.50 Ekkert er að finna um þýsku sakamálamyndina Listrænt morð (Der absurde Mord, ‘96). Lítur ekki út fyrir að vera til- breyting frá hinu hefðbundna, ensku- mælandi fóðri sjónvarpsglápara. Einkaspæjari rannsakar dularfullt morð... Leikstjóri Rainer Bár, í aðal- hlutverkum Peter Sattmann og Nina Hoger. Stöð 2^0.05 Óvenjumikið af ómerk- ingum í kvöld. Kóngulóin og flugan (The Spider and the Fly, ‘94), er ein þeirra. Óþekkt stærð þó leitað hafi verið með logandi ljósi. Sjónvarps- mynd þar sem Mel Harris leikur reyfarahöfund sem skrifar bók með sögufléttu sem skömmu síðar endur- tekur sig í raunveruleikanum. Stöð 2 ►1.30 Crooklyn,(‘94) Sjá umfjöllun í ramma. Sæbjörn Valdimarsson Tékkaðu á rauðu bókinni þinniog gáðu hvort númerið 16074 er prentað ihnan á baksíðuna. A* H Efsvo er ...hefurþú unniö tveggja, vikna ævintýraferö til Afríku meö Encounter Overland og ert beöin(n) um aö vitja vinningsjns á Feröaskrifstofu stúdenta fyrir næstu áramót. FERÐASKRIFSTOFA STÚDENTA -kjarnimálsins! LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 55 CHA * CHA Oplð sunnudag kl 13-17 CHA * CHA Kringlunni Kennsla í byrjenda og framhalds- flokkum hefst dagana 26. til 31. janúar n.k. 10 vikna námskeió. LiJ Skákskóli f S L A N D S ALþjóðlegir titilhafar annast aLLa kennslu. Kennt veróur frá kl. 17.00-19.00 aLLa virka daga og frá kL. 11.00-12.30, 12.30-14.00 og 14.00-16.00 um helgar. Einnig fer fram skráning í hina vinsælu fuLlorðinsflokka. KennsLubókin Skák og mát eftir AnatoLij Karpov nýbakaðan heimsmeistara er innifaLin í námskeiðs- gjaLdi í byrjenda- flokkum. Nánari upplýsingar og skráning aila virka daga og helgarfrá kl. 10.00-13.00 i síma 568 9141. Athugið systkinaafiláttinn ...I-------I-----------I_____h - lokað í dog útsolcin hefst sunnud. 18. jonúor kl. 13-18 v* v* xV’at bong$i bonkostræti 1 sími 552 8310

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.