Morgunblaðið - 10.02.1998, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Helgi Hjörvar sló í gegn 1 prófkjöri Reykjavikurlistans:
NÚ máttu sko aldeilis passa þig Árni minn, ég er komin með súper nag-la
í súpuna mína ...
Skemmt-
anaskattur
afnuminn
Skráning flugvéla hér á landi
Fjöldi stórra flug-
véla þrefaldast
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi
sínum sl. föstudag að skemmtana-
skattur skyldi afnuminn úr lögum
og verður það gert með frumvarpi
fjármálaráðherra um breytingar á
áfengisgjaldi o.fl. Björn Bjarnason
menntamálaráðherra segir skemmt-
anaskattinn barn síns tíma en síð-
ustu lög um hann eru frá árinu 1970.
Skemmtanaskattur hefur m.a. verið
innheimtur af verði aðgöngumiða að
kvikmyndasýningum, tónleikum og
skemmtistöðum.
Að sögn ráðherra hefur komið í
ljós á undanfómum ámm að æ erfið-
ara hafi verið orðið að framfylgja
lögunum og þess vegna hafi mennta-
málaráðuneytið talið skynsamlegast
að afnema þau. „Skatturinn hefur til
dæmis verið lagður á aðgöngumiða
að kvikmyndahúsum og var sá þátt-
ur starfseminnar kærður til Sam-
keppnisráðs, þar sem kvikmynda-
húsaeigendur töldu skattinn ekki
leggjast jafnt á þá alla,“ segir Björn.
Aðspurður hvort annað gjald
muni á einhvem hátt koma í staðinn
fyrir skemmtanaskattinn segir hann
svo ekki vera. „Ekki er ætlunin að
setja nýjan skatt á skemmtanir
landsmanna," segir hann.
ÍSLENSKI flugflotinn hefur
aldrei verið stærri en árið 1997 en
í árslok voru skráð 332 loftför hjá
loftferðaeftirliti Flugmálastjórnar
eða tæp 1% fleiri en á sama tíma
árið áður.
Flugflotinn skiptist þannig:
Þungar (stórar) flugvélar (yfir 5,7
tonnum) vom 41, léttar flugvélar
(undir 5,7 tonnum) voru 255, sviffl-
ugur voru 31 og þyrluflotinn var
fjórar vélar. Á árinu 1997 fjölgaði
þungum flugvélum um sex en hins
vegar fækkaði í flotanum um þrjár
léttar flugvélar og eina svifflugu.
Mikil aukning á nýjum og
endurnýjuðum skírteinum
hjá loftferðaefdrlitinu
I frétt frá Flugmálastjórn segir
að athygli veki að á síðastliðnum
tíu áram hafi svokölluðum þungum
flugvélum, sem skráðar eru hér á
landi, fjölgað um 260%. Árið 1987
vora þær sextán talsins en í árslok
voru þær orðnar 41. Þetta era flug-
vélar sem era þyngri en 5,7 tonn og
nær allar í rekstri í innanlands- og
millilandaflugi íslensku flugfélag-
anna. Alls voru 2.210 skírteini ein-
staklinga ásamt flugkennara- og
blindflugsáritunum í gildi hér á
landi í árslok 1997 en það er 8%
aukning á milli ára. Árið 1997 gaf
loftferðaeftirlitið út 486 ný skír-
teini til einstaklinga sem er 20%
meira en árið áður. Auk þess end-
urnýjuðu einstaklingar 525 skír-
teini eða 15% fleiri en árið áður.
Fjölmennustu hópar skírteinis-
hafa í lok sl. árs 1997 voru: einka-
flugmenn 575, atvinnuflugmenn
540, flugvéltæknar 246, flugnemar
164, flugkennarar 116, flugum-
ferðarstjórar 89, flugvélstjórar 44,
svifflugmenn 40 og flugumsjónar-
menn 29. Árið 1997 fjölgaði í eftir-
töldum hópum; flugnemum fjölg-
aði um 36%, flugumsjónarmönn-
um um 31%, flugkennurum um
13%, atvinnuflugmönnum um 8%
og einkaflugmönnum um 5%. I
eftirtöldum hópum varð hins veg-
ar fækkun: Flugvélstjóram fækk-
aði um 23%, svifflugmönnum um
10%, flugumferðarstjórum um 6%
og flugvéltæknum fækkaði um
5%.
Atvinnuflug-
menn styðja
baráttu sjó-
manna
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi samþykkt:
„Aðalfundur Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna haldinn 5. febrúar
1998 lýsir eindregnum stuðningi við
kjarabaráttu Sjómannasambands
Islands, Vélstjórafélags íslands og
Farmanna- og fiskimannasambands
íslands.
Fundurinn fordæmir allar til-
raunir til þess að brjóta niður sam-
stöðu samtakanna með verkfalls-
brotum eða öðram ólögmætum að-
gerðum."
gortr fltHrum fmrt uO Wtgtt
Fyrirlestur um barneignir ungs fólks
Huga þarf að
víðtæku
forvarnastarfí
Sóley S. Bender
Eru bameignir al-
gengar meðal ungs
fólks á íslandi? er
yfirskrift fyrirlesturs sem
haldinn er á vegum Rann-
sóknastofu í kvennafræð-
um í dag, þriðjudag. Sóley
S. Bender, lektor og for-
maður Fræðslusamtaka
um kynlíf og barneignir,
flytur fyrirlesturinn.
Hún segir að barneignir
séu algengar meðal ungs
fólks á Islandi þrátt fyrir
að þeim hafi farið fækk-
andi. „Þær era rúmlega
helmingi fleiri en á hinum
Norðurlöndunum svo sem
í Danmörku, Svíþjóð og
Finnlandi. Fæðingartíðni
meðal ungra stúlkna hér á
landi á aldrinum 15-19 ára
er um það bil mitt á milli
hæstu og lægstu fæðing-
artíðni í hinum vestræna heimi.“
Árið 1995 segir Sóley að tíðni
fæðinga meðal ungra stúlkna hér
á landi hafi verið 23,4 á hverjar
þúsund konur. „Sama ár var
tíðnin 8,3 í Danmörku, 8,6 í Sví-
þjóð og 9,8 í Finnlandi."
- Hver telur þú að sé skýring-
in á þessari háu tíðni hérlendis?
„Ég tel að margt geti skýrt
þessa háu tíðni. Þó að ýmislegt
hafi verið gert til að bæta kyn-
fræðslu í skólum þarf að sjá til
þess að hún nái til allra. Þjónusta
varðandi getnaðarvarnir fyrir
ungt fólk hefur ekki miðast sér-
staklega við þarfir þess. Samfé-
lagið hefur lagt ríka áherslu á
mörg böm. Takmarkaður að-
gangur er að vissum getnaðar-
vörnum og verð þeirra of hátt.“
Sóley segir einnig eina af skýr-
ingunum á hárri þungunartíðni
ungra stúlkna vera takmarkaður
aðgangur að svokallaðri neyðar-
getnaðarvörn. „Þetta era horm-
ónatöflur sem ungar stúlkur geta
tekið inn innan 72 tíma frá því að
óvarðar samfarir áttu sér stað.
Þar sem þessi getnaðarvöm hef-
ur verið í notkun í töluverðan
tíma, eins og t.d. í Hollandi, hef-
ur það sýnt sig að fæðingartíðni
er lág meðal ungra stúlkna. Árið
1995 var hún 4,2 þar í landi.“
- Hvað veldur því að fæðing-
um hefur fækkað hérlendis?
„Á sama tíma og fæðingum
hefur farið fækkandi í þessum
aldurshópi þá hefur fóstureyð-
ingum farið fjölgandi. Þetta þýð-
ir að enn era margar þunganir
meðal ungs fólks.“
- Hafa viðhorf ungs fólks til
barneigna verið könnuð?
„í landskönnun meðal 2.500
ungmenna frá 17-20 ára sem ég
gerði árið 1996 kom í ljós að yfir-
gnæfandi meirihluti
hefur ekki hug á bam-
eignum á þessum tíma
ævinnar."
- Hefur ungt fólk þá
ekki greiðan aðgang
að getnaðarvörnum ?
„Jú, ég tel að ungt
fólk geti nálgast þjónustuna á
mjög mörgum stöðum. Það segir
hins vegar ekki til um hvemig sú
þjónusta kemur til móts við ungt
fólk en samkvæmt landskönnun
er meirihluti ekki íyllilega
ánægður með hana. „Þær stúlk-
ur sem hafa nýtt sér þessa þjón-
ustu þora sumar hverjar ekki að
spyrja spuminga, þeim finnst
kvenskoðunin erfið og finnst líka
erfitt að geta ekki rætt þessi mál
betur.“
- Hefur veríð kannað hvcrnig
ungmenni vilja hafa þessa þjón-
ustu?
„Já, í fyrrnefndri landskönnun
► Sóley S. Bender fæddist í
Reykjavík árið 1953. Hún lauk
BS-prófi í hjúkrunarfræði frá
Háskóla íslands árið 1977. Sóley
lauk MS-gráðu í fjölskylduáæt 1-
un frá háskólanum í Minnesota
árið 1983. Hún hefur starfað
fyrir Landlæknisembættið að
bættu kynfræðsluefni í grunn-
skólum landsins og stóð að
stofnun Fræðslusamtaka um
kynlíf og barneignir (FKB) árið
1992 og hefur verið formaður
þeirra frá upphafi. Sóley hefúr
ásamt samstarfshópi FKB unnið
að þróun móttöku fyrir ungt
fólk í Hinu húsinu. I samstarfi
við vinnuhóp á kvennadeild
Landspftalans vinnur hún nú að
þróun móttöku þar um getnað-
arvarnir. Sóley hefur verið
starfandi lektor við námsbraut í
hjúkrunarfræði í Háskóla ís-
lands í tæp tíu ár.
Eiginmaður Sóleyjar er Frið-
rik Kr. Guðbrandsson Iæknir og
eiga þau þrjú böm.
kemur fram að yfir 90% ungs
fólks vill geta leitað til sérhæfðr-
ar móttöku um kynlíf og barn-
eignir. Það vill hafa slíka mót-
töku utan veggja hefðbundinnar
heilbrigðisþjónustu og leggur
áherslu á að hún sé opin flesta
daga vikunnar og helst síðdegis."
Sóley bendir á að ungmennum
finnist nauðsynlegt að auðvelt sé
að nálgast þessa þjónustu og að
starfsfólkið sé vingjarnlegt,
hlusti á þau af athygli og sýni
þeim virðingu.
- Mun tillit verða tekið til
þessara óska?
„Það er mikilvægt að taka tillit
til þeirra sjónvarmiða og skoða
hvað hægt er að gera. Miðað við
erlendar rannsóknir getur bætt
þjónusta varðandi
getnaðarvamir ásamt
öðrum aðgerðum
lækkað tíðni barneigna
í þessum aldurshópi.
Hér þarf að huga að
víðtæku forvarnar-
starfí.
Geta má þess að á vegum
Fræðslusamtaka um kynlíf og
bameignir var haustið 1995 farið
í gang með móttöku fyrir ungt
fólk í Hinu húsinu. Þetta er til-
raunaverkefni á vegum samtak-
anna og þarna er verið að leita
annarra leiða til að ná til ungs
fólks. Þeim býðst fræðsla og ráð-
gjöf sem þau geta komið í sem
einstaklingar eða í hóp til að
ræða um kynlíf, getnaðarvarnir
og bameignir. Auk þess hefur
þar verið veitt ráðgjöf í síma.“
Fyrirlestur Sóleyjar verður
haldinn í Odda í stofu 201 klukk-
an 12 í dag.
Barneignum
fækkar, fóst-
ureyðingum
fjölgar