Morgunblaðið - 10.02.1998, Blaðsíða 64
Atvinnutryggingar
Við sníðum
þær að þínu
fyrirtæki.
3 fll0r0i!íjtj.M$íM§>
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Rflrisstjdrnin leggur fram frumvarp sem stöðvar verkfall sjómanna
Afskipti þings óhjákvæmileg
Stjórnarand-
staðan hafnaði
því að taka
frumvarpið
strax á dagskrá
RÍKISSTJÓRNIN tók í gær
ákvörðun um að leggja fram frum-
varp á Alþingi um stöðvun verkfalla
á fiskiskipaflotanum. Stefnt var að
að hefja umræðu um frumvarpið
í gær, en þingmenn stjórnarand-
stöðunnar komu í veg fyrir það með
því að fella tillögu um að frumvarpið
mætti koma á dagskrá. Umræða um
frumvarpið mun því ekki hefjast
fyrr en á morgun og bendir flest til
þess að frumvarpið verði ekki að
lögum fyrr en í lok vikunnar.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
skipuð verði nefnd þriggja manna
sem kanni verðmyndun á fiski. Til-
lögur nefndarinnar eiga að beinast
__,§ð því að koma í veg íyrir að við-
skipti með aflaheimildir hafi óeðli-
leg áhrif á skiptakjör sjómanna.
Nefndin á að skila tillögum fyrir 10.
mars nk. og er stefnt að því að til-
lögur nefndarinnar verði afgreiddar
sem lög frá Alþingi fyrir þinglok.
Frumvarpið felur jafnframt í sér að
samningar verði framlengdir til 30.
júní nk. og verði samningsaðilum
óheimilt að boða verkfall eða verk-
bönn á samningstímanum, en það
felur í sér að því verkfalli, sem hófst
2. febrúar, verði aflýst.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SJÓMENN fjölmenntu á pallana þegar taka átti frumvarp um lög á verkfall sjómanna á dagskrá.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að staðan í samningaviðræðum
sjómanna og útvegsmanna væri með
þeim hætti að ekki væri hægt að
komast hjá afskiptum Alþingis af
deilunni. Aður en tilkynnt var að lagt
yrði ffam lagafrumvarp ræddu for-
ystumenn ríkisstjómarinnar við full-
trúa deiluaðila og ríkissáttasemjara.
Nýtt verkfall boðað
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambandsins, sagði í gær
að frumvarpið fæli í sér árás á
samningsrétt stéttarfélaganna í
landinu. Hann sagði að stjórn Sjó-
mannasambandsins myndi koma
saman til fundar í dag og þar myndi
hann leggja fram tillögu um að boð-
að yrði nýtt verkfall. Helgi Laxdal,
foi-maður Vélstjórafélagsins, sagði
að vélstjórar myndu einnig boða
verkfall síðar á árinu ef sýnt þætti
að þeir myndu ekki með samning-
um ná fram kröfu um hækkaðan
skiptahlut.
Guðjón A. Kristjánsson, formað-
ur Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins, sagði sjómenn hafa verið
að Ijúka samningsbundnum hafnar-
fríum í gær og verkfallið væri því
rétt að byrja að hafa áhrif. Pessi
niðurstaða væri algerlega óviðun-
andi fyrir sjómenn.
Kristján Ragnarsson, formaður
LIU, sagðist gera ráð fyrir að
stjórnvöld hefðu metið stöðuna svo,
að fengnum upplýsingum frá ríkis-
sáttasemjara, að frekari viðræður
næstu daga væru tilgangslausar og
engin von væri til þess að þær
myndu leiða til niðurstöðu. Á samn-
Forsætisráðherra minntist Halldórs Kiljans Laxness á Alþingi
Stórveldis-
draumur lít-
illar þjóðar
—"FORSÆTISRÁÐHERRA, Davíð Oddsson,
ávarpaði Alþingi við upphaf þingfundar í
gær til að votta fjölskyldu Halldórs Lax-
ness samúð sína og íslensku þjóðinni. For-
seti Islands, Ólafur Ragnar Grímsson,
færði Auði Laxness og fjölskyldu Halldórs
Laxness samúðarkveðjur íslensku þjóðar-
innar í gær vegna fráfalls Halldórs.
Forsætisráðherra sagði m.a. í ávarpi
sínu: „Hið mikla vald hans á íslensku máli,
endurnýjunarmáttur hans, sköpunargleði
og orðkynngi, samfara næmu skopskyni,
valda því, að menn munu njóta verka hans
um ókomna tíð. Þótt Halldór segði sjálfur í
^JJósvíkingnum, að fegurðin og mannlífið
væru tveir elskendur, sem fengju ekki að
hittast, má ýkjulaust segja, að fegurðin og
mannlífið hafi hist í verkum hans.
Þjóðin átti ekki alltaf samleið með skáld-
inu, en hún samfagnaði Halldóri Laxness
innilega þegar hann hlaut Nóbelsverðlaun í
bókmenntum árið 1955. Hann var lifandi
stórveldisdraumur lítillar þjóðar, ein rök-
~~?emdin fyrir áframhaldandi sjálfstæði
hennar og tilveru.
Þegar Halldór tók við nóbelsverðlaunum,
sagði hann, að honum yrði nú hugsað til
þeirrar fámennu fjölskyldu, hinnar
bókelsku þjóðar Islands, sem haft hefði á
honum vakandi auga um langan aldur, hefði
gagnrýnt hann eða talið í hann kjark á
víxl.“
Djúp spor í þjóðarsögu íslendinga
Ólafur Ragnar Grímsson sagði m.a. í
ávarpi sínu er hann færði Auði Laxness og
fjölskyldu Halldórs Laxness samúðarkveðj-
ur íslensku þjóðarinnar: „Hann kenndi
þjóðinni að þekkja sjálfa sig, agaði hana og
ávítti, sýndi henni dýrðina á ásýnd hlutanna
og bauð til veislu mannlífsins.
Svo djúp eru spor Halldórs Laxness í
þjóðarsögu íslendinga að reisn okkar í sam-
félagi þjóðanna verður best rökstudd með
tilvísun til verka hans og skáldbróður hans,
Snorra Sturlusonar, sem er sá eini höfund-
ur íslenskur er Halldóri verður jafnað við.“
■ Halldór Kiljan Laxness/10-17,
■ leiðari og www.mbl.is/laxness/
T
Morgunblaðið/Rax
Fánar blöktu í hálfa stöng
DAVÍÐ Oddsson forsæt-
isráðherra ákvað að fáni
skyldi dreginn í liálfa
stöng í gær við opinberar
stofnanir vegna andláts
Halldórs Laxness. Víða
mátti sjá fána dregna í
hálfa stöng, jafnt við op-
inberar byggingar, fyrir-
tæki sem við íbúðarhús.
ingafundi sl. sunnudag hefðu út-
vegsmenn samþykkt að ræða frekar
þann samningsgrundvöll sem sátta-
semjari lagði fram, en sjómenn
hefðu hafnað honum.
Tillögu um afbrigði hafnað
Leiðtogar ríkisstjórnarinnar fóru
í gær fram á það við formenn þing-
flokka stjórnarandstöðunnar að hún
greiddi fyrir því að lögin fengju
skjóta afgreiðslu á Alþingi. Þessu
hafnaði stjórnarandstaðan. Afstaða
hennar kom fram í því að tillaga um
að veita afbrigði frá þingsköpum
svo að frumvarpið mætti koma á
dagskrá var felld.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að það hefði aldrei gerst áður 1
þingsögunni að afbrigði frá þing-
sköpum hefðu ekki verið samþykkt
þannig að frumvarp gæti gengið
strax til fyrstu umræðu. Hann sagði
að með þessu væra stjórnarand-
stæðingar að tefja lausn málsins og
hafa stórfé af sjómönnum og allri
þjóðinni.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
mótmæltu þessum orðum forsætis-
ráðherra. Steingrímur J. Sigfússon,
þingmaður Alþýðubandalagsins,
sagði að málið bæri allan keim af
því að lagasetning hefði verið lengi í
undirbúningi og aldrei hafí staðið til
hvorki af hálfu útvegsmanna né rík-
isstjórnar að leyfa sjómönnum að
nýta samtakamátt sinn til að knýja
fram úrlausn sinna mála.
■ Átök/4
■ Lagasetning/6
■ Forsætisráðherra/18
Nýtt
vinnu-
ferli við
erfðarann-
sóknir
SAMKOMULAG hefur náðst
um vinnuferli við erfðarann-
sóknir hjá Islenskri erfðagrein-
ingu hf. og gekk Tölvunefnd frá
nýjum skilmálum á fundi sínum
í gær. Markmið reglnanna er að
tryggja nafnleynd þátttakenda í
þeim rannsóknum sem fram
fara hjá Islenskri erfðagrein-
ingu.
Við setningu reglnanna er
það haft að leiðarljósi að rann-
sóknargagna I vörslu sam-
starfslækna Islenskrar erfða-
greiningar hf. sé gætt sem
sjúkragagna í samræmi við
læknalög og reglugerð um
sjúkraski-ár. Að rannsóknar-
gögn hjá íslenskri erfðagrein-
ingu séu án persónueinkenna
og að tenging milli persónu-
greindra gagna hjá samstarfs-
læknum og ópersónugreindra
gagna hjá IE geti ekki átt sér
stað nema með notkun dulmáls-
lykils. Það er einnig haft að
leiðarljósi að notkun dulmáls-
lykils fari ekki fram nema und-
ir eftirliti tilsjónarmanna
Tölvunefndar.
■ Nýir skilmálar/6