Morgunblaðið - 10.02.1998, Side 26

Morgunblaðið - 10.02.1998, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ • ■ n !•;• /< . /i;n/. 26 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRUAR 1998 ERLENT Shevardn- adze sýnt banatilræði Albright segir Bandarfldn hafa „það vald sem þarf ‘ Reuters Á KAFFIHÚSI í Baghdad spiluðu menn kotru og reyktu pípu í gær. Washington, London, Kúveit, Moskvu, Róm, Baghdad. Reuters. MADELEINE Albright, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að Bandaríkjamenn hefðu vald, ábyrgð, möguleika og vilja til að hefja umtalsverðar hernaðaraðgerð- ir gegn írak ef ekki tækjust samn- ingar um vopnaeftirlit Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Baghdad. „Ef stefna íraskra stjómvalda breytist ekki er okkur nauðugur einn kostur að grípa til harkalegra aðgerða... Velkist ekki í vafa. Við höfum það vald sem þarf, berum ábyrgðina, eigum möguleikann og höfum viljann," sagði hún í ræðu í gær, þar sem hún ræddi aðallega um stækkun Atlantshafsbandalagsins (NATO). Hún tók fram að þau Evr- ópuríki sem síðast hefði verið boðin aðild, Pólland, Ungverjaland og Tékkland, styddu Bandaríkjamenn til aðgerða í írak. Hússein Jórdaníukonungur sagð- ist í gær ekki geta lýst stuðningi við árásir sem myndu koma niður á óbreyttum borgurum í Irak. Hussein sagði þetta að loknum fundi með Tony Blair, forsætisráðheira Bret- lands, í London í gær. Sagði Hussein að íraska þjóðin hefði „liðið nóg“. Skoraði hann á Iraka að komast hjá árásum með því að fylgja samþykkt- um'SÞ og leyfa vopnaeftirlit. Á fundinum tjáði Blair konungin- um að Bretum væri ljóst að hætta væri fólgin í því að gera árás á írak, en gætu samt ekki útilokað mögu- leikann á að til þeirra yrði gripið. Cohen sannfærður William Cohen, vamarmálaráð- herra Bandaríkjanna, kom í gær til Kúveit frá Saudi-Ai-abíu, og sagði á fréttamannafundi að möguleikarnir á samningalausn á deilunni við Iraka færu sífellt minnkandi. „Ef samn- ingaleiðin bregst ber Saddam Hussein alla ábyrgð á afleiðingun- um,“ sagði Cöhen. Eftir að hafa átt fundi með ráða- mönnum í Saudi-Arabíu á sunnudag sagði Cohen að hann væri sannfærð- ur um eindrægan stuðning og sam- starf þeirra. Hann vildi ekki greina í smáatriðum hvað farið hefði þeim í milli, en sagði stjórnvöld í Saudi- Arabíu „eindregið fylgjandi veru okkar á Persaflóá1. Sultan prins, varnarmálaráðherra Saudi-Arabíu, sagði á sunnudag að þarlend yfirvöld væru ekki hlynnt því að gerð yrði árás á Irak, en ekki var ljóst hvort hann átti við að Saudi-Arabar myndu hafna hemað- araðgerðum undir öllum kringum- stæðum. Cohen hélt í gær áfram frá Kúveit til Oman, en hann mun heim- sækja sex ríki við Persaflóa í för sinni. Óljóst með Baghdad- för Annans Jevgeníj Prímakov, utanríkisráð- herra Rússlands, sagði á sunnudag að viðræður við írösk stjómvöld um áframhald vopnaeftirlits snerust fyrst og fremst um það með hvaða hætti eftirlit í forsetahöllum í Bag- hdad myndi fara fram. Ekki væri rætt um að hverfa frá neinum meg- inatriðum eftirlitsins. Borís Jeltsín Rússlandsforseti sagði í gær að Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, myndi fara til Baghdad og hafa milli- göngu um sáttatilraunir í vopnaeftir- litsdeilunni. Annan sagði hins vegar í gær að hann hefði engar áætlanir gert um að fara til Baghdad í bráð, en tals- maður framkvæmdastjórans sagði síðar að slík fór væri ekki með öllu útilokuð. frakar ræða stöðuna Saddam Hussein, forseti íraks, hefur átt fundi með háttsettum emb- ættismönnum til þess að ræða „nú- verandi stjórnmálastöðu", að því er Iraska fréttastofan greindi frá í gær. Fjórir embættismenn, þ.á m. Tareq Aziz aðstoðarforsætisráðherra sátu fundinn með forsetanum. Fréttastof- an greindi ekki frekar frá því hvað rætt var. Utanríkisráðherra Iraks, Mo- hammed Saeed al-Sahaf, hélt í gær frá Baghdad til ferðar um arabaríki til þess að leita stuðnings leiðtoga gegn aðgerðum Bandaiíkjamanna. Fulltrúi stjórnarflokksins í Irak tjáði Reuters að al-Sahaf myndi fara til Sýrlands, Egyptalands og að öllum líkindum Líbanons. Iraska frétta- stofan sagði leiðina einnig myndu liggja til Jórdaníu. Háttsettur embættismaður í stjórnarflokknum kom til Marokkó á sunnudagskvöld og mun ennfremur halda til Alsírs og Túnis í svipuðum erindagjörðum. Norman Sehwarzkopf, sem var yf- irmaður herafla Bandan'kjamanna í Persaflóastríðinu 1991, sagði á sunnudag að Saddam Hussein kynni að vera reiðubúinn til þess að verða fyrir árás Bandaríkjamanna til þess að fá viðskiptaþvingunum á Irak aflétt. Sehwarzkopf sagði ennfremur að árás myndi að líkindum engu breyta um andstöðu Saddams við vopnaeftirlit SÞ, sem komið var á í kjölfar stríðsins 1991. Tbilisj. Reuters. EDÚARD Shevardnadze, forseta Georgíu, var sýnt banatilræði í gær en hann komst lífs af, að sögn tals- manns hans. „Reynt var að ráða forsetann af dögum,“ sagði talsmaðurinn, Vhakhtang Maskhulia. „Það varð sprenging. Forsetinn er á lífi og er í bústað sínum í borginni.“ Fréttamenn á staðnum sögðu að svo virtist sem sprengjum hefði verið kastað á bíla- lest forsetans þegar hann var á leið til embættisbústaðar síns í Tbilisi. Að sögn Maskhulia beið einn lífvarða for- setans bana og þrír særðust. Shevardnadze var í brynvarinni bifreið og fréttamennirnir sögðu að hún hefði skemmst af völdum elds og gat hefði verið á vélarhlíf hennar. Shevardnadze, sem var utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, var einnig sýnt banatilræði við þinghúsið í Tbil- isi 29. ágúst 1995. Forsetinn lýsti til- ræðismönnunum sem hermdarverka- mönnum er vildu að „mafían" kæmist til valda í landinu. -------------------- Rajih kominn til Noregs Ósld. Morgunblaðið. MANSUR Rajih, sem sat í fangelsi í 15 ár í Jemen vegna stjórnmálaskoð- ana sinna, var látinn laus um helgina og kom til Noregs síðdegis í gær. Við komuna til Stavangerflugvallar kvaðst Rajih vart eiga orð til að lýsa þakklæti sínu. Mannréttindasamtökin Amnesty International, norska rithöfundasam- bandið, PEN-samtökin og fleiri hafa um árabil barist fyrir því að Rajih yrði látinn laus. Árið 1984 var hann dreginn fyrir dómstóla og dæmdur sekur um morð sem hann mun ekki hafa framið. I fangelsinu var Rajih beittur miklu harðræði, í sjö ár var honum haldið í fótjárnum og sætti pyntingum um átta mánaða skeið. Afrah Ghalyoun, eiginkona hans, kom með honum til Noregs. Við kom- una þakkaði Rajih öllum þeim sem hafa unnið að því að fá hann lausan, en bætti við að halda yrði áfram bar- áttu fyrir mannréttindum. „Sem fórnarlamb veit ég hversu mikilvægt það er.“ Hjálparsamtök staðfesta fjölda fórnarlamba jarðskjálftanna í norðurhluta Afganistan Slæmt veður og sam- göngur hamla aðstoð Dashtekaia íAfganistan. Reuters. AFGANSKIR embættismenn greindu frá því í gær að alls hefðu nú verið grafin lík 3.800 fórnarlamba jarðskjálftanna sem riðu yflr norður- hluta landsins í síðustu viku. Margra væri þó enn saknað. Hópur starfs- manna hjálparsamtakanna Læknar án landamæra staðfestu í gær að fórnarlömb skjálftanna hefðu vafa- laust verið fleiri en 4.000. Slæmt veður hamlaði enn björg- unaraðgerðum í gær. I nágrenni hörmungasvæðisins, í Takhar-hér- aði, hafði aðeins tekizt að lenda einni lítilli flugvél á vegum Rauða krossins og annarri frá Pakistan, sem flutti nokkur hundruð kíló af ábreiðum og lyfjum til nauðstaddra. Fjórum vöru- bílum sem á sunnudag lögðu, á veg- um matvælahjálpar Sameinuðu þjóð- anna, upp frá Faizabad í Afganistan, skammt frá landamærunum við Ta- djíkistan, tókst í gær að komast með 19,5 tonn af hjálpargögnum alla leið upp í hin afskekktu fjallahéruð sem urðu verst úti í skjálftunum. Sænskir jarðfræðingar segja að sterkasti jarðskjálftinn sem skók héraðið á miðvikudag í síðustu viku hafí verið 6,1 að styrkleika á Richterskvarða. Að sögn talsmanna afgönsku stjómarandstöðuhreyfing- arinnar, sem ræður mestu í hérað- inu, fórust 250 manns til viðbótar í eftirskjálftum um helgina. 10-15.000 manns voru sögð heimilislaus. Gífurlegt tjón Hjálparsamtökin Læknar án landamæra (MSF) voru fyrsti óháði aðilinn sem komst í aðstöðu til að meta hvert manntjónið hefði í raun orðið, en það reyndist mjög nærri því sem talsmenn hvorratveggju, Ta- leban-stjórnarinnar í Kabúl og fjandmanna hennar í hreyfingu stjórnarandstæðinga, höfðu áætlað. „Tjónið er gífurlegt. Það er algjört neyðarástand. Tíminn er að hlaupa frá okkur. Við höfum ekki hugmynd um hve margt varð heimilislaust eða slasaðist, en það er öruggt að fleiri en 4.000 létu Iífíð,“ sagði Bart Oftyn, sem er á vegum MSF á vettvangi, fréttamönnum Reuters í símasamtali til Islamabad. Mat samtakanna var byggt á vett- vangsskoðun tveggja hópa, lækna sem starfa á vegum MSF og með- lima Alþjóðanefndar Rauðakrossfé- laganna (ICRC). Þessum hópum tókst að komast á vettvang um helg- ina þrátt fyrir slæmt flugveður og eyðilagða vegi. Sameinuðu þjóðirnar, Rauði krossinn og aðrar hjálparstofnanir eru að reyna að koma meiri hjálpar- gögnum á neyðarsvæðið með flugi, á vörubílum og á asna- og hestbaki frá Pakistan í suðri og Tadjíkistan í norðri. Áætlað er að 300 tonn af mat og lyfjum dugi til að sjá 15.000 manns fyrir ýtrustu nauðsynjum í fjórar vikur. Stórátaks þörf Jón Valfells, upplýsingafulltrúi Al- þjóðanefndar Rauða krossins í Genf, sagði í samtali við Morgunblaðið að þær upplýsingar sem hingað til hafi borizt frá jarðskjálftasvæðinu beri með sér að stórs átaks sé þörf til að lina þjáningar fólks þar. Þar sem vegir séu rofnir, bæði vegna borg- arastríðsins sem enn geisar í landinu og vegna aurskriða sem fylgdu í kjöl- far skjálftanna, sé mjög erfitt að koma hinum nauðstöddu til hjálpar. Til dæmis um önnur vandamál sem torvelda hjálparstarfíð nefndi Jón að vörubíl með hjálpargögnum, sem Rauði krossinn sendi af stað frá Tadjíkistan, hefði verið vísað til baka frá landamærunum, þar sem landamæraverðimir tóku ekki í mál að hleypa bílnum yfír vegna þess að bflstjórinn var með rússneskt vega- bréf. Meginbrotabelti Afganistans Upptök skjálftans Heimild: National Geographic Society, Restless Earth Skýringar Misgengi v. Yfir-misgengi. Örin sýnir rekstefnu Sniðgengi Jv Örvamar sýna V-j stefnu togkrafta ’

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.