Morgunblaðið - 10.02.1998, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Þorri Bandaríkja-
manna styður Clinton
Slys á heræfíngu
Washington. Reuters, The Daily Telegraph.
SKOÐANAKÖNNUN, sem birt var
á sunnudag, bendir til þess að þorri
Bandaríkjamanna styðji Bill Clint-
on Bandaríkjaforseta og vilji að
Kenneth Starr saksóknari hætti að
rannsaka ásakanir um
að forsetinn hafi haldið
við Monicu Lewinsky,
fyrrverandi starfsstúlku
Hvíta hússins, og hvatt
hana til að bera ljúgvitni
um samband þeirra.
Ef marka má skoð-
anakönnun NBC og
Wall Street Joumal telja
64% Bandaríkjamanna
að „flokkapólitík" liggi
að baki rannsókn Starrs
á máli Lewinsky. Aðeins
22% aðspurðra töldu
rannsókn Starrs sann-
gjama og óvilhalla.
57% aðspurðra sögðu
að staðreyndir málsins
lægju þegar fyrir og St-
arr ætti að hætta rann-
sókninni. 39% aðspurðra
töldu þó að Clinton hefði
borið ijúgvitni en 32%
sögðust telja að hann
hefði sagt satt um sam-
band sitt við Lewinsky.
79% aðspurðra vom
ánægð með frammistöðu
Clintons í forsetaemb-
ættinu, fleiri en nokkru
sinni fyrr. Áður en mál
Lewinsky komst í há-
mæli voru 59% Banda-
ríkjamanna ánægð með
störf forsetans.
Vikublaðið Time birti
um helgina grein eftir William Gins-
burg, lögmann Lewinsky, þar sem
hann segir skjólstæðing sinn „fast-
an í vef flókinna átaka“, sem menn
með pólitísk markmið hafi ofið.
Hann segir Lewinsky vilja bera
vitni um samband sitt við forsetann
að því tilskildu að hún verði ekki
sótt til saka fyrir meinsæri. „Öll
sagan er ef til vill ekki það sem St-
arr vill. Hún er ef til vill ekki það
sem Clinton vill. En hún er trúverð-
ug.“
Vikublaðið Newsweek skýrði
ennfremur frá því að vinkona
Lewinsky í Hvíta húsinu, Ashley
Raines, hefði rætt við aðstoðar-
menn Starrs og veitt þeim ítarlegar
upplýsingar um hvað Lewinsky
hefði sagt henni um meint ástar-
samband sitt við Clinton. Raines er
sögð hafa skýrt frá því að hún hefði
hlustað á skilaboð frá Clinton á sím-
svara Lewinsky.
The Daily Telegraph segir að
móðir Raines sé hótelstjóri Excelsi-
or Hotel í Little Rock, þar sem
Paula Jones, sem hefur höfðað mál
gegn forsetanum, segist hafa sætt
kynferðislegri áreitni af hálfu Clint-
ons árið 1991. Newsweek skýrði
57% vilja að Kenn-
eth Starr hætti
rannsókninni
ennfremur frá þvi að Betty Currie,
ritari forsetans, kunni að hafa tekið
þátt í að hylma yfir meint ástarsam-
band Clintons og Lewinsky. Síma-
númer hennar hafi verið á miða,
sem Lewinsky útfyllti til að tilgreina
innihald pakka sem hún sendi í
Hvíta húsið.
Fréttamaður spurði Currie hvort
hún vissi um þessa pakka en hún var
sögð hafa neitað því. Hins vegar
kemur fram í hljóðrituðum samtöl-
um Lewinsky og vinkonu hennar,
Lindu Starr, að Currie hafi hringt í
Lewinsky nokkrum mínútum eftir
samtalið við fréttamanninn til að
vara hana við því að hann væri far-
inn að grennslast fyrir um pakkana.
Lögfræðingar Clintons
í gagnsókn
Lögfræðingar Clintons hafa blás-
ið til gagnsóknar gegn Starr og að-
stoðarmönnum hans og sakað þá um
að hafa „lekið“ til fjölmiðla upplýs-
ingum um vitnisburð fyrir sérstök-
um kviðdómi, sem á að skera úr um
hvort ákæra verði heimiluð vegna
málsins. Paul Begala, ráðgjafi for-
setans, sagði í sjónvarpsviðtali um
helgina að með þessum fréttalekum
kynnu aðstoðarmenn Starrs að hafa
framið lögbrot sem væru alvarlegri
en meint meinsæri Lewinsky.
Haft var eftir embættismanni í
Hvíta húsinu, sem vildi ekki láta
nafns síns getið, að með
þessum lekum væru St-
arr og aðstoðarmenn
hans að reyna að knýja
Lewinsky til að bera
vitni og vildu útkljá málið
í fjölmiðlunum.
David Kendall, lög-
fræðingur Clintons,
hyggst leita til dómstóla
vegna fréttalekanna og
óska eftir því að þeir
verði rannsakaðir.
Deilt um þögn
Clintons
Repúblikanar hafa
komið StaiT til varnar og
segja gagnsókn lögfræð-
inga Clintons lið í til-
raunum þeirra til að
beina athyglinni frá
ásökununum á hendur
forsetanum og koma sér
hjá því að svara spum-
ingum um samband hans
við Lewinsky. Starr
kvaðst hafa „miklar
áhyggjur" af fréttalekun-
um og ætla að gera við-
eigandi ráðstafanir
vegna þeirra. Clinton
hefur neitað því að hafa
átt í kynferðislegu sam-
bandi við Lewinsky og
fengið hana til að bera
ljúgvitni. Hann hefur
hins vegar ekki viljað svara því
hvemig sambandi þeirra var háttað
og borið því við að hann mætti það
ekki meðan verið væri að rannsaka
málið. Lögspekingar segja þó að
ekki séu til lög eða réttarreglur sem
banni forsetanum að svara spum-
ingunum. Begala sagði þó að slík
regla væri til. „Sú skynsamlega
regla heilbrigðrar skynsemi sem
lögfræðingar hans hafa lagt fram og
ég er þeim sammála þótt pólitískt
telji ég æskilegt að hann geri strax
hreint fyrir sínum dyrum." Lög-
fræðingurinn bætti við að Clinton
þyrfti að einbeita sér að skyldustörf-
um sínum í stað þess að „eyða tíma í
að tjá sig um hvem fréttaleka og
hverja lygi sem kemur frá Starr“.
George Stephanopoulos, fyrrver-
andi ráðgjafi Clintons, sagði að
a.m.k. nokkrir af ráðgjöfum forset-
ans væm staðráðnir í að veitast að
Starr, fjölmiðlunum og pólitískum
andstæðingum forsetans í stað þess
að svara spumingunum um sam-
band hans og Lewinsky. „Forsetinn
sagði að hann myndi aldrei segja af
sér og ég hygg að nokkrir aðstoðar-
menn hans vilji að hann taki alla
með sér í fallinu."
TVEIR hollenskir hermenn létust
og þrír slösuðust alvarlega þegar
flutningabifreið fór út af vegi
skammt frá Kristjánssandi í gær.
Voru þeir við heræfingar á vegum
FÆREYSKI Pjóðveldisflokkurinn,
sem berst fyrir algeru sjálfstæði
eyjanna, myndi bæta við sig miklu
fylgi ef efnt væri til kosninga nú.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem
blaðið Dimmalætting birti sl. laug-
ardag, fengi flokkurinn rúmlega
fjórðung atkvæða og yrði stærsti
stjómmálafiokkurinn í Færeyjum.
Þjóðveldisflokkurinn fengi nú
25,2% atkvæða og tvöfaldaði full-
trúatölu sína á lögþinginu úr fjórum
í átta. Stærsti flokkurinn nú, Sam-
bandsflokkurinn, sem er hlynntur
áframhaldandi sambandi við Dan-
mörk, myndi tapa 2,7% og fá 20,7%
í stað 23,4% í síðustu kosningum
1994. Tapaði hann einum fulltrúa og
fengi sjö.
Könnunin sýnir, að flokkamir
þrír, sem nú mynda stjórn, Sam-
bandsflokkur, Fólkaflokkur og
NOKKRIR danskir þingmenn hafa
óskað eftir því að lögfræðingar
dómsmálaráðuneytisins rannsaki
frekar þátt Mogens Lykketofts, fjár-
málai'áðherra Danmerkur, í
Færeyjamálinu.
Lykketoft þykir ekki hafa skýrt á
sannfærandi hátt hvers vegna hann
kynnti ekki færeysku landstjórninni
hugmyndir um að hún tæki við bank-
anum og drög að samningi þess efnis
Atlantshafsbandalagsins, NATO,
og voru fremst í fimm bfla lest. Er
mikilli hálku kennt um slysið.
Tveir hermannanna sem slösuðust
eru hér bornir f björgunarþyrlu.
Verkamannafylkingin, myndu tapa
næstum 10 prósentustigum miðað
við síðustu kosningar og fá nú
39,6% í stað 49%. Jafnaðarflokkur-
inn, sem krefst nýrra sjálfstjórnar-
laga og hefur deilt hart á Poul Nyr-
up Rasmussen forsætisráðherra og
bróðurflokkinn danska, myndi bæta
við sig fylgi, fara úr 15,4% í 16,7%
og fá fimm fulltrúa í stað fjögurra.
Fólkaflokkurinn fengi 17,2% í
stað 16% og hefði eins og nú sex
fulltrúa; Sjálvstýrisflokkurinn 6,5%
á móti 5,6% og tvo menn; Kristilegi
fólkaflokkurinn 3,6% á móti 6,3% og
einn fulltrúa; Miðflokkurinn 7,1% á
móti 5,8% og tvo menn en yngsti
flokkurinn, Verkamannafylkingin,
sem klofnaði nýlega, þurrkaðist út.
Kosningar verða í Færeyjum á
árinu en ekki hefur enn verið ákveð-
ið hvenær.
um leið og þau lágu fyrir 11. mars
1993, heldur dró það um meira en
viku og rak síðan á eftir landstjórn-
inni að samþykkja samninginn 22.
mars. Ennfremur þarf ráðherrann
að skýra hvers vegna hann bað for-
stöðumann danska bankaeftirlitsins
„að flýta sér hægt“ við að fara í
saumana á stöðu Færeyjabanka með
þeim afleiðingum að slík skoðun fór
ekki fram fyrr en síðar.
Reuters
BILL Clinton Bandaríkjaforseti og eiginkona hans, HiII-
ary, heilsa leikkonunni Whoopi Goldberg á skemmtun í
Ford's-leikhúsinu í Washington.
Skoðanakönnun í Færeyjum
Þjóð veldisflokk-
urinn stærstur
Þórshöfn. Morgunblaðið.
Lykketoft ekki laus
við Færeyjamálið
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Hagfræðingar vilja
seinka EMU
Lundúnum. Reuters.
YFIR 150 þýzkir hagfræðipró-
fessorar hafa hvatt til þess að stofn-
un Efnahags- og myntbandalags
Evrópu, EMU, verði seinkað, með
þeim rökum að efnahagslegar
kringumstæður séu ekki heppilegar
til þess enn sem komið er.
Þýzki stjómlagadómstóllinn -
sem nú hefur til umfjöllunar kæru
sem gengur út á að véfengja lög-
mæti myntbandalagsins - og máls-
metandi stjómmálamenn í Þýzka-
landi létu hins vegar þau boð út
ganga í gær að engin ástæða væri
til að óttast að nokkuð verði til þess
að hindra að EMU-áformin nái
fram að ganga seinkunarlaust 1.
janúar 1999.
Manfred Neumann, prófessor við
háskólann í Bonn og sérfræðingur í
stefnumörkun í efnahagsmálum, fer
fyrir hópi 155 prófessora í hagfræði
við þýzka háskóla, sem útlista sjón-
armið sín varðandi EMU í bréfi sem
birtist í gær í F inancial Times og
Frankfurter Allgemeine Zeitung.
Bréf þeirra birtist samtímis því
að þýzki stjómlagadómstóllinn er
að meta hvort hann taki fyrir kæru
fjögurra þýzkra háskólamanna, sem
vilja freista þess fyrir dómstólum að
hindra að af myntbandalaginu verði
um næstu áramót, eins og áformað
er.
Einn upphafsmanna kærunnar,
lögfræðiprófessorinn Karl Albrecht
Schac unnudag að hann teldi að
dómstóllinn væri kominn á fremsta
hlunn með að samþykkja að taka
málið fyrir. Þessu vísuðu talsmenn
dómstólsins í Karlsruhe á bug í
gær.
Helmut Kohl kanzlari ítrekaði að
hin sameiginlega Evrópumynt, evr-
óið, yrði að veruleika á tilsettum
tíma. Theo Waigel, fjármálaráð-
herra, sagðist ekki skilja röksemda-
færslu hagfræðinganna sem vilja
seinka myntbandalaginu og varaði
við afleiðingum umræðu um seink-
un; hún gæti valdið miklum skaða.
Aðstæður óhagstæðar
í bréfinu lýsa prófessorarnir
þeirri skoðun sinni, að samrunaþró-
unin í Evrópu væri sem slík eðlileg
og æskileg og að myntbandalag
væri sjálfsagður hluti hennar þegar
til lengri tíma væri litið. En þeir
fullyrða að of fljótt sé af stað farið
ef áformaðri stofndagsetningu þess
verði haldið til streitu.
„Núverandi aðstæður í efnahags-
málum eru stofnun myntbandalags
mjög óhagstæðar," segir í bréfinu.
„Það verður að íhuga alvarlega
sem pólitískan kost að fresta þessu
nokkur ár, að viðbættum skilyrðum
um frekari framfarir hvað varðar
stjórn ríkisfjármála [í tilvonandi að-
ildarríkjum EMU],“ segir þar enn-
fremur.
Að mati prófessoranna fóru ríkis-
stjórnir ESB-landanna of seint af
stað með að beita nauðsynlegu að-
haldi í ríkisfjármálum og það ekki
gert að nægilegri ákveðni heldur.
Halli á rekstri ríkissjóða lykilríkj-
anna, sem verða að vera með ef
EMU á nokkru sinni að verða að
veruleika, hefði ekki verið minnkað-
ur eins mikið og þörf krefði.
Loks lýsa þeir efasemdum yfir
því að svokallaður „stöðugleikasátt-
máli“, sem samið var um að undir-
lagi þýzku stjórnarinnar í því skyni
að tryggja að aðhaldi verði áfram
beitt í ríkisfjármálum aðildarland-
anna eftir að myntbandalagið er
komið á laggirnar, skili þeim ár-
angri sem vonir standi til.