Morgunblaðið - 10.02.1998, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
PRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1998 43
I
»
3
i
GUÐBJORG HULDA
GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Guðbjörg Hulda
Guðmundsdótt-
ir fæddist í Þykkva-
bæ 22. október
1914. Hún lést á
Sjúkrahúsi Suður-
nesja 2. febrúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Sign'ð-
ur Vilhjálmsdóttir og
Guðmundur Krist-
jánsson. Hulda var
næst elst af sex
systkinum, elstur
var Kristinn, sem
nú er látinn, þá Jón,
Ragnheiður, Kristjana og Guð-
mundur.
Hulda giftist 1941 Sveini Að-
alsteini Gíslasyni, rafveitu-
sljóra, f. 11.9. 1914, d. 19.5.
1982. Börn þeirra: 1) Ásdís, f.
22.1. 1942, maki Guðlaugur
Guðfinnsson, þau búa í Lúxem-
borg. Dóttir þeirra er Steinunn
Hulda, gift Marck Graas og
eiga þau tvo syni. 2) Gísli, f.
15.1. 1943, lést 16.5. 1970, eftir-
lifandi eiginkona Ingibjörg
Björgvinsdóttir, búsett í
Reykjavík. Dætur þeirra eru
Kolbrún, gift Baldri Davíðssyni
og eiga þau tvö börn, og Hulda,
gift Bjarnfreði Ólafssyni. 3)
Guðmundur, f. 28.6. 1946, býr í
Sandgerði. 4) Reynir, f. 2.6.
1948, maki Guðmundína Krist-
jánsdóttir, þau búa í Sandgerði.
Þeirra börn eru Gísli, unnusta
Eva Dögg, Sigríður, unnusti
Baldur, og yngst er Guðbjörg.
5) Sigurður, f. 28.6. 1949, maki
Sigríður Þórhallsdóttir, þau
búa í Sandgerði. Þeirra synir
eru Elvar, sambýliskona Júlía
Jónsdóttir og eiga þau einn son,
Vilhjálmur, sambýliskona Anna
Lilja Hermannsdóttir og eiga
þau eina dóttur, og yngstur er
Ástþór. 6) Aðalsteinn, f. 12.1.
1952, maki Margrét Högnadótt-
ir, þau búa á ísafírði. Þeirra
böm em Gísli Sveinn og Al-
berta Runný. 7) Sólveig, f. 29.4.
1955, maki Hallbjöm Heið-
mundsson, sem lést 1989, Sól-
veig býr í Sandgerði, þeirra
böm era Aðalsteinn og Berg-
þóra.
Hulda og Aðalsteinn bjuggu
í Sandgerði frá 1943, lengst af
á Tjarnargötu 11, „Sellandi".
Síðustu árin bjó Hulda í Mið-
húsum, íbúðum aldraðra í
Sandgerði.
títför Guðbjargar Huldu fer
fram frá Hvalsneskirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
i
s
i
i
i
Með örfáum orðum
langar mig til að minn-
ast elskulegrar tengda-
móður minnar. Okkar
fyrstu kynni voru fyrir
rúmum 30 árum er ég
kom á . heimili þeirra
hjóna Huldu og Alla.
Þau tóku mér opnum
örmum, ungri og
óframfærinni tilvon-
andi tengdadóttur, Eg
heillaðist af nærveru
hennar og léttleika og
sérstaklega er mér
minnistætt hversu auð-
veldlega allt lék í höndum hennar,
hún var húsmóðir á mannmörgu
heimili og var að mörgu að hyggja.
Hulda var dul kona, sem bar ekki
tilfínningar sínar á torg, hún varð
fyrir þungum áföllum í lífinu, en
styrkur hennar og æðruleysi var að-
dáunarvert. Við urðum hinar bestu
vinkonur og á þá vináttu bar aldrei
skugga, mér þótti vænt um hana,
ekki aðeins fyrir það hvemig hún
var, heldur líka fyrir það hvemig ég
varð sjálf í návist hennar.
Undanfarin ár átti hún við mikil
veikindi að stríða og var henni þá
sem áður frekar umhugað um aðra
en sjálfa sig. Við áttum saman ljúf-
ar stundir á síðustu vikum, fyrir
það er ég þakklát. Að leiðarlokum
vil ég þakka henni umhyggju og
ást, mér og dætrum mínum til
handa.
Guð blessi minningu góðrar konu.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Ingibjörg Björgvinsdóttir.
Elsku amma. Það er sárt að
kveðja þig í dag, en við huggum
okkur við að nú ert þú búin að fá
hvíldina sem þú þráðir svo mjög.
Það er erfitt að hugsa til þess að
eiga aldrei eftir að koma í heimsókn
til þín í Miðhúsin. Alltaf þegar við
komum til þín var eithvað gott kom-
ið á borðið, og jafnvel núna síðustu
árin þegar heilsan var orðin slæm
bakaðir þú handa okkur vöfflur þeg-
ar við komum. Þú varst svo
skemmtilega hreinskilin og sagðir
okkar alltaf hvað þér þótti, þó án
þess að særa okkur á nokkurn hátt.
Þú varst alltaf svo sæt og fín.
Elsku amma á Sellandi. Guð
geymi þig.
Kveðja frá
barnabörnum.
S Erfidtykkjur:
3 A 3
H h
H LhíHébBb^J h
H PERLAN h
M Sími 562 0200
frXXITTTTTTin
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og
afi,
ÓLAFUR S. ALEXANDERSSON,
Fannarfelli 12,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 31. janúar sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Auður María Sigurhansdóttir,
Sólveig Ólafsdóttir og börn,
Auður Ólafsdóttir,
Ásgeir Ólafsson.
t
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
MÁLFRÍÐUR HELGADÓTTIR,
elliheimilinu Garðvangi,
Garði,
lést föstudaginn 6. febrúar.
Sigurhans Þorbjörnsson,
Bára Einarsdóttir,
Bragi Sigurðsson,
barnaböm og langömmubörn.
t
Móðir mín,
SVANDfS GfSLADÓTTIR,
Skúlagötu 40b,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 3. febrúar.
Jarðarförin hefur farið fram.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gísli Kristjánsson.
t
Eiginkona mín,
GUÐMUNDA ARNFINNSDÓTTIR,
Merkisteini,
Stokkseyri,
andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands föstudaginn
6. febrúar.
Fyrir hönd barna, tengdabarna, barnabarna
og barnabarnabarna,
Guðmundur Einarsson.
t
Dóttir okkar og systir,
HALLDÓRA JÓNSDÓTTIR,
Laufhaga 20,
Selfossi,
lést af slysförum föstudaginn 6. febrúar.
Þorbjörg Hjaltalín Halldórsdóttir,
Jón Lúðvíksson
og systkini.
t
Faðir, tengdafaðir, afi og langafi okkar,
EGGERT SKÚLASON,
Brunnum 13,
Patreksfirði,
lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar mánudaginn
2. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Jóhannes Eggertsson, Halia Árnadóttir,
böm, tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
SIGRÍÐUR ANDRÉSDÓTTIR,
Efstahjalla 5,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju í dag,
þriðjudaginn 10. febrúar, kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Sjálfsbjörg.
Sigurður R. Guðjónsson,
Ásiaug Sigurðardóttir, Árni Sveinbjörnsson,
Rikharð Sigurðsson, María Christie Páisdóttir,
Sigurjón Sigurðsson, Ásdís Fanney Baldvinsdóttir
og barnabörn.
t
Elsku litli sonur okkar, bróðir og barnabarn,
SfMON BERG STEFÁNSSON,
Dvergabakka 34,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
í dag, þriðjudaginn 10. febrúar, kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vildu minnast hans, er bent á
minningarsjóð, sem stofnaður hefur verið í
hans nafni.
Upplýsingar gefur Fríkirkjan Vegurinn.
Stefán H. Birkisson, Margrét B. Kjartansdóttir,
Dagný Björk og Aron Birkir,
Birkir Þór Gunnarsson, Róshildur Stefánsdóttir,
Kjartan I. Jónsson, Ingibjörg Ámundadóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGURVEIG GUNNARSDÓTTIR
frá Skógum í Öxarfirði,
Fjölnisvegi 13,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju i dag,
þriðjudaginn 10. febrúar, kl. 13.30.
Gunnar Sveinsson,
Kristjana Sveinsdóttir,
Grímur Sveinsson, Jónína Finnsdóttir,
Kristveig Sveinsdóttir, Benedikt Þormóðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, ÖNNU GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR fyrrum húsfreyju á Rútsstöðum í Eyjafirði. Einnig sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins í Skjaldarvík. Fyrir hönd vandamanna, Tryggvi Hjaltason, Rósa Hjaltadóttir, Jóna Hjaltadóttir, Aðalsteinn Hjaltason, Gestur Hjaltason, Þór Hjaltason, Guðmundur Hjaltason. '
Lokað verður í dag, þriðjudaginn 10. febrúar, vegna jarðarfarar SIGRÍÐAR ANDRÉSDÓTTUR. S. Guðjónsson ehf., Auðbrekku 9—11, Kópavogi.