Morgunblaðið - 10.02.1998, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Lögmaður
— fasteignasala
Öflug fasteignasala óskar eftir samstarfi við
hæstaréttar- eða héraðsdómslögmann.
Mjög góð vinnuaðstaða er fyrir hendi.
Starfið býður uppá mikla möguleika við önnur
störf samhliða fasteignasölu.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., fyrir
13. febrúar, merktar: „L — 3466".
HÚSNÆBI ÓSKAST
3ja—4ra herb. íbúð óskast
Leitum að 80 fm (ekki minni) íbúð fyrir traust fyrir-
tæki í miðbæ Reykjavíkur eða vesturbænum.
Vinsamlega hafið samband.
|1
■iEIGULISTINN
sími 511 1600.
RAÐAUGLÝSINGAR
TIL SÖLLf
Glæsilegur veitingastaður
Vorum að fá í einkasölu glæsilegan veitinga-
stað, sem rekinn ersem kaffitería og kaffihús,
veislueldhús og veitingastaður með heilsu-
fæði, sem aldeilis er vinsælt í dag. Fyrirtækið
er frábærlega staðsett og vel tækjum búið.
Allar nánari uppl. gefur fyrirtækjasala Hóls.
Hóli — fyrirtækjasala,
Skipholti 50b, sími 551 9400.
®Verslunin íslenskur
heimilisiðnaður
Heimilisiðnaðarfélag íslands auglýsirtil sölu
rekstur á versluninni í Hafnarstræti 1—3.
Áhugasamir leggi nöfn sín inná afgreiðslu Mbl.
fyrir 20. feb., merkt:,, Heimilisiðnaður".
Er við því að búast?
Semja sjómenn uppréttirvið útgerðirsem
Alþingi afhendirfiskikvóta til veiða, útleigu,
veðsetningar og sölu? Bókin Skýrsla um sam-
félag, sem lýsir stjórnarfari íslendinga, fæst
í Leshúsi, Bókhlöðustíg 6b, opið kl. 16—19.
KEISIIMSLA
Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið.
íbúð óskast á svæði 107
2ja—3ja herbergja íbúð óskast á svæði 107
til leigu sem fyrst.
Leggið inn nafn og símanúmer á afgreiðslu
Mbl. merkt: „I — 3471".
FUIMDIR/ MAMIMFAOMABUR
Opinn kynningarfundur
um aðalskipulag Akureyrar 1998—2018
Skipulagsnefnd Akureyrar boðartil almenns
kynningarfundar um tillögu að aðalskipulagi
Akureyrar 1998—2018 miðvikudaginn
11. febrúar nk. kl. 20.30 í félagsmiðstöðinni
við Víðilund.
Hlutverk aðalskipulags er að marka stefnu um
þróun byggðar, landnotkun, samgöngu- og
þjónustukerfi og umhverfismál. Kynntarverða
helstu forsendur og markmið tillögunnar og
breytingar frá gildandi aðalskipulagi.
Að lokinni kynningu verður tillagan lögð fyrir
bæjarstjórn til fyrri umræðu og síðan auglýst
og höfð til sýnis í 6 vikur. Almenningur á þá
kost á að kynna sértillöguna og gera við hana
athugasemdir eins og kveðið er á um í skipu-
lagslögum.
Skipulagsstjóri Akureyrarbæjar.
Aðalfundur
Löggildingarnámskeið
í fótaaðgerðafræðum
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, í
samvinnu við menntamálaráðuneytið og Fjöl-
brautaskólann við Ármúla, ráðgerir að halda
löggildingarnámskeið í fótaaðgerðafræðum
laugardaginn 14. mars 1998 — föstudagsins
20. mars 1998. Rétt til að taka þátt í ofannefndu
námskeiði eiga þeir, sem lokið höfðu námi í
fótaaðgerð fyrir gildistöku reglugerðar nr. 184,
17. apríl 1991, útgefinni af heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu, um menntun, rétt-
indi og skyldurfótaaðgerðafræðinga, enda
hafi þeir eigi áður hlotið starfsleyfi heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra.
Þeir, sem áhuga hafa og telja sig eiga rétt á
að taka þátt í þessu námskeiði, láti skrá sig á
skrifstofu Fjölbrautaskólans við Ármúla, sími
581 4022, fyrir 20. febrúar 1998.
Þátttökugjald kr. 20.000.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið.
Kennsla einhverfra
Umsjónarfélag einhverfra auglýsir
námsstefnu:
Kennsla einhverfra, frá kenningum til að-
gerða. Námsstefnan verður haldinn þann
17. og 18. febrúar. Þau Theo Peeters og
Hilde De Clercq frá Belgíu munu flytja erindi.
Þau hafa haldið fyrirlestra um einhverfu út um
allan heim. Námsstefnan er einkum ætluð for-
eldrum og fagfólki sem vinna með fólki með
einhverfu og Asperger heilkenni. Námsstefnan
fer fram á ensku. Skráning og upplýsingar á
skrifstofu UE, Laugavegi 26, þriðjud. og mið-
vikud. kl. 9.00-15.00, s. 562 1590/f. 551 3567.
UMSJÓNARFÉLAG
EINHVERFRA
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík heldur
aðalfund í Höllubúð, Sóltúni 20, fimmtudaginn
19. febrúar kl. 20.00.
Dagskrá:
Kosning stjórnar.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Mætum vel. Þorramatur.
Stjórnin.
Fundarboð
Opinn fundur um kjaradeilu sjómanna og út-
vegsmanna verður haldinn í Kænunni í dag,
þriðjudaginn 10. febrúar, kl. 16.00.
Sjómenn eru hvattirtil aðfjölmenna!
Sjómannafélag Hafnarfjarðar
og Skipstjóra- og
stýrimannafélagið Kári.
Vottun verkefnisstjóra
Kynningarfundur um IPMA vottun verkefnis-
stjóra verður haldinn á vegum Verkefnastjórn-
unarfélags íslands fimmtudaginn 12. febrúar
nk. Fundurinn verður í húsi Verkfræðinga-
félagsins á Engjategi 9 og hefst kl. 12.00.
Allir velkomnir.
Stjórn VSFÍ.
FÉLAGSSTARF
Fundur verður haldinn í
Sjálfstæðishúsinu í Njarðvík
miðvikudaginn 11. febrúar
nk. kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 1998.
Framsaga Ellert Eiríksson, bæjarstjóri.
2. Fjölnotaíþróttahús.
Kynning á stöðu verkefnisins. Jónína A.
Sanders, formaður bæjarráðs.
3. Umræður.
Fundarstjóri Böðvar Jónsson.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélögin i Reykjanesbæ.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu
41 fm skrifstofuhúsnæði í mjög snyrtilegu húsi
við Suðurlandsbraut.
Sérinngangur og sérsnyrting.
Upplýsingar í síma 551 5328.
TJLKYIMIMINGAR
Framleiðnisjóður
landbúnaðarins auglýsir:
Á árinu 1998 styrkir Framleiðnisjóður landbúnað-
arins verkefni á eftirtöldum sviðum í þeim mæli,
sem fjármunir hans hrökkva til og innan þess
fjárhagsramma sem stjórn sjóðsins setur sér:
Til greina koma verkefni sem ætlað er að leiða
til hagræðingar í búvöruframleiðslu, úrbóta
á sviði afurðastöðva, markaðsöflunar, atvinnu-
nýsköpunar á lögbýlum og atvinnuuppbygg-
ingar í dreifbýli almennt. Umsóknir sem berast
verða afgreiddar á grundvelli eftirfarandi
starfsreglna, sem gilda fyrir árið 1998:
a. Verkefni sem leiða til hagræðingar í búvöru-
framleiðslunni með lækkun framieiðslu- og
vinnslukostnaðar, hækkun á launahlut bænda
og bættri nýtingu aðfanga sem nota þarf. Brýn-
ast er að efla kunnáttu og færni þeirra, sem
að búvöruframleiðslu og -vinnslu starfa. Einnig
að afla nýrrar þekkingar á þessum sviðum og
miðla henni og hvetja til rannsókna- og þróun-
arstarfs er að þessu miðar.
b. Efling og nýsköpun vænlegrar atvinnu
bænda, einkum þeirrar er nýtir staðbundna
framleiðslukosti. Sérstök áhersla er lögð á
starfsemi, sem beinist að vannýttum markaði
innanlands og erlendum markaði en ennfrem-
ur bættri aðstöðu til búreksturs og annarrar
landnýtingar í framtíðinni.
c. Viðfangsefni, sem styrkt geta og aukið
markaði fyrir búvörurfyrir landbúnaðinn sem
heild eða fyrir einstakar búgreinar, án þess
þó að afurðum hinna ýmsu búgreina sé mis-
munað með óeðlilegum hætti. Innan þessa
flokks njóti þau verkefni forgangs að öðru
jöfnu, sem stefna að markaðsöflun fyrir búvör-
ur erlendis.
d. Úrbætur á sviði afurðavinnslu, er stuðla að
hagræðingu og lækkun kostnaðar í úrvinnslu
búvöru (í samvinnu við Byggðastofnun og
Framkvæmdanefnd búvörusamninga).
e. Atvinnufyrirtæki í dreifbýli í tengslum við
landbúnað og byggjast á sérstakri aðstöðu
og beinast að mörkuðum skv. b-lið.
Mikilvægt er að í umsókn sé
• markmið verkefnis sett fram með skýrum
og mælanlegum hætti,
• sýnt fram á faglega og fjárhagslega mögu-
leika umsækjanda til þess að leysa verkefnið
af hendi,
• glögg grein gerð fyrir kostnaði við verkefnið
og hvernig það skuli fjármagnað; einkum
er mikilvægt að gera grein fyrir eigin fram-
lagi umsækjanda til verkefnisins.
• sýnt fram á fýsileika verkefnis og áætlaðan
ábata af því á fyrirsjáanlegum tíma.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins áskilur
sér rétt til þess
• að meta með sjálfstæðum hætti getu um-
sækjenda til þess að standa undir fyrirætlun-
um sínum og taka tillit til hennar við úthlut-
un styrkja (einkum hvað snertir faglega
kunnáttu/færni á sviðinu og fjárhagslega
burði/möguleika/stöðu);
• að meta framvindu og árangur verkefnis,
sem styrkur hefur verið veittur til og haga
greiðslu hans samkvæmt niðurstöðu slíks
mats. í því sambandi erstyrkþegum skylt
að veita sjóðnum þær upplýsingar sem
hann telur sér nauðsynlegar í allt að fimm
ár frá lokaúthlutun.
Umsóknarfrestur ertil 1. mars 1998 og skal um-
sóknum skilað á skrifstofu Framleiðnisjóðs land-
búnaðarins, Laugavegi 120 — 105 Reykjavík,
á umsóknareyðublöðum sem þarfást.
Umsóknareyðublöð fást einnig á skrifstofum
búnaðarsambandanna.
IMánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Laugavegi 120, 105 Reykjavík,
sími 525 6441/myndsími 525 6439.