Morgunblaðið - 08.03.1998, Síða 6

Morgunblaðið - 08.03.1998, Síða 6
6 SUNNUDAGUR 8. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Rcuters NÁIST pólitiskt samkomulag á Norður-írlandi er gert ráð fyrir að sambandssinninn David Trimbleverði forsætisráðherra í sam- ráðsstjórn mótmælenda og kaþólikka Reuters SINN Féin, stjórnmálaarmi írska lýðveldishersins, verður boðið til viðræðnanna á Norður-írlandi á ný eftir helgi. Gerry Adams er leiðtogi samtakanna. Styttist biðin eftir sam- komulagi á N-Irlandi? Það er skammt stórra högga á milli á Norður-Irlandi. Stutt er síðan menn héldu því fram að friðarlíkur værU meiri en áður, enda hafði þá Sinn Féin, stjórn- málaarmur Irska lýðveldishersins, IRA, í fyrsta skipti gengið að samningaborði um framtíð Norður-Irlands, segir Davíð Logi Sigurðsson. Nú velta menn fyrir sér hvort morðin 1 vikunni hreki friðarlest Tonys Blairs út af sporinu eða hvort þau verði til þess að menn herði enn róðurinn og nái samkomulagi. Reuters VINIRNIR tveir, sem skotnir voru í bænum Poyntzpass á miðvikudag, voru bornir til grafar í vikulok. Trimble og Adams lykilmenn MORÐIN á tveimur vin- um í smábænum Poyntzpass, sem stað- settur er í Armagh- sýslu suður af Belfast, hafa vakið mikla andúð á Bretlandseyjum. Poyntzpass er einn af fáum stöð- um á Norður-írlandi þar sem kaþólikkar og mótmælendur lifa í sátt og samlyndi og það er mörg- um því reiðarslag að ódæðismenn, sem taldir eru tilheyra litlum öfgahópi sambandssinna (LVF), skyldu láta til skarar skríða þarna, ekki síst þar sem mennim- ir tilheyrðu hvor sinni kirkju- deildinni. Morðin koma í kjölfar næstum tuttugu annarra sem átt hafa sér stað frá jólum en segja má að þessi alda ódæðisverka hafi haf- ist með morðinu á _____________ Billy Wright, leiðtoga og stofnanda LVF, í Maze-fangelsinu rétt utan við Belfast. _____________ Wright var höfuðpaur öfgasinnaðra sambandsinna, gekk undir viðurnefninu „King rat“ og hafði ýmislegt misjafnt á samviskunni. LVF hefur í kjöl- farið tekið látinn leiðtoga sinn í tölu píslarvotta og morðin í vik- unni eru þau síðustu í grimmi- legri hefnd samtakanna. Herskáir þjóðernissinnar hafa fyrir sitt leyti tekið þátt í að magna ástandið upp, með því að standa einnig fyrir ódæðisverk- um, en ekki er alveg ljóst hvort þar hafi IRA komið beint að málum, eða hvort smærri og rót- Sameining ír lands getur beðið tækari samtök hafi þar staðið í stórræðum. Áhrif á friðarumleitanir Þessi alda ódæðisverka og sprengjutilrauna hefur óhjá- kvæmilega haft áhrif á friðarvið- ræðumar og andrúmsloftið á Norður-írlandi. Nú síðast var Sinn Féin, stjómmálaarmi IRA, vísað frá viðræðunum en sú ráð- stöfun reitti leiðtoga Sinn Féin, Gerry Adams, mjög til reiði því hann taldi flokknum ómaklega vikið á brott. Sinn Féin er heimilt að koma aftur inn í viðræðumar eftir helgi en Adams krefst fund- ar með breska forsætisráðherran- um Tony Blair áður en Sinn Féin snýr aftur að samningaborðinu. Sambandssinnar eru fyrir sitt ________ leyti- óánægðir með fundi Blairs með Ad- ams, enda teija þeir hendur Adams blóði ________ drifnar. David Trimble, leiðtogi Sambands- flokks Ulster (UUP), hefur hins vegar látið sér nægja kröftug mótmæli og er vonast eftir því að sáttfýsi hans að undanförnu skili á endanum niðurstöðu í viðræðun- um. Það vakti mönnum sannar- lega nokki'ar vonir að sjá Trimble og Séamus Mallon, varaformann flokks hófsamra kaþólikka (SDLP), heimsækja Poyntzpass saman í kjölfar morðanna, sem þeir fordæmdu báðir harkalega, en slík uppákoma er algert ný- mæli og góðs viti að mati stjórn- málaskýrenda. að varanlegum friði Trimble neitar sem fyrr að hitta Adams að máli en á það er bent að engin sátt fáist á Norður- Irlandi nema þessir menn setjist niður við sama borð enda standa þeir fyrir stærsta stjómmálaafl sambandssinna annars vegar, og hins vegar róttækari arm þjóð- emissinna, þann sem samráð hef- ur við IRA. Þótt hægara sé um tala en í að komast þá era það þessi andstæðu öfl sem verða að ná sáttum til að pólitískt sam- komulag sé nokkurs virði. Það er nefnilega ljóst að fundur milli Ad- ams og Trimbles myndi hafa svo mikið táknrænt gildi að næsta víst er að hann hefði mikilvæg áhrif á andrúmsloftið allt, gæti reynst sem upphaf sögulegra sátta. Trimble vill hins vegar fara varlega og slíkur fundur mun ör- ugglega ekki eiga sér stað á allra næstu vikum eða mánuðum þótt ljóst virðist að á endanum muni hann reynast nauðsynlegur. Það vekur athygli að í nýrri skoðanakönnun breska ríkissjón- varpsins BBC vildu 55% mótmæl- enda beinar viðræður sambands- sinna við Sinn Féin, og allt að 50% sambandssinna vildu að Dav- id Trimble hitti Gerry Adams að máli. Þessi niðurstaða sýnir kannski hversu mjög fólk á Norð- ur-írlandi þráir frið, svo virðist sem það sé reiðubúið til að sjá leiðtoga sína taka umtalsverða áhættu til að sá friður náist. Tony Blair og Bertie Ahem, forsætisráðherra Irlands, hafa lagt áherslu á að samkomulag liggi fyrir í maí og er gert ráð fyr- ir að það verði lagt fyrir þjóðarat- kvæðagreiðslu bæði á írlandi og Norður-írlandi seinnihluta maí- mánaðar, sennilega þann 22. maí. Stjómmálaskýrendur telja góðar líkur á að þetta takist en spurn- ingin er hversu margir munu hafa komið að því og hverjir flokkanna muni styðja það. Samkomulagið verður að minnsta kosti að hafa fullan stuðning Trimbles og flokks hans og hófsamra kaþ- ólikka í SDLP en betra væri ef Adams og félagar í Sinn Féin væra því að minnsta kosti ekki mótfallnir. Pólitískt samkomulag er nefnilega einskis virði ef öfga- mennimir hunsa það og halda áfram morðum sínum og sprengjuherferðum. Hvað verður í samkomulaginu? í stóram dráttum má gera ráð fyrir að í samkomulaginu verði sett á stofn sérstök ríkisstjórn fyrir Norður-írland, væntanlega með David Trimble sem forsætis- ráðhema, en lögð áhersla á að kaþólikkar hafi umtalsverð áhrif. Það skiptir höfuðmáli að kaþólsk- um finnist ekki að verið ______ sé að snúa .aftur til þeirra daga þegar sam- bandssinnar höfðu hreint meirihlutavald, eins og þeir gerðu þeg- ar Norður-Irland var stjómarsvæði 1920-72, kom nefnilega fram í könnun BBC að 75% kaþólikka sætta sig þrátt fyrir allt við að Norður-ír- land verði ekki sameinað írlandi að svo stöddu og skýrir það ef til vill nýja stefnu Sinn Féin í þess- um málum. Þeir skynja að kaþ- ólikkar, sem mótmælendur, era langeygh' eftir friði, sameining Ir- lands getur beðið. Fyrir sitt leyti verður írska ríkisstjórnin síðan að fjarlægja úr stjómarskrá sinni umdeilda kröfu til alls landsvæðis írsku eyjunnar en þetta ákvæði hefur ávallt verið mikill þyrnir í augum sambandssinna á Norður- frlandi. Sambandssinnar vilja að tengsl- in við bresku krúnuna verði áfram tryggð og neita að ganga of langt í þá átt að samþykkja bein afskipti írskra stjómvalda af Norður-Ir- landi. Hitt er víst að einhvers kon- ar sam-írsku ráði verður komið á fót, spurningin er hvort það verð- ur einungis umsagnai'aðili eða fær einhver völd og um það era þjóð- emissinnar og sambandssinnar ekki sammála. I könnun BBC kom fram að 84% kaþólikka vilja að sam-írska ráðið fái framkvæmda- vald en stuðningur meðal sam- bandssinna er ekki nema 22%. Ljóst er því að þama er um mikil- vægt deilumál að ræða, sem leysa verður svo að sem flestir geti sætt við niðurstöðuna. Mo Mowlam að hætta? Rætt er um að samstarf írsku og bresku ríkisstjórnarinnar sé nú með allra besta móti. Ríkis- stjóm Tonys Blairs hefur lagt á sig mikla vinnu og tekið meiri áhættu en menn hafa áður átt að venjast af breskum ríkisstjómum og sérstaklega hefur Mo Mowlam, ráðherra Norður-ír- landsmálaráðherra, gert sitt ýtrasta til að miðla málum. Þetta veit almenningur á Norð- iu'-írlandi og kom fram í könnun BBC að allt að tveir þriðju að- spurðra kváðust ánægðir með hennar störf. Orðrómur þess efn- is að Mowlam hætti sem ráðherra Norður-írlandsmála í sumar og taki við formennsku í Verka- mannaflokknum vekur hins vegar ýmsar spurningar um framhaldið. Slíkar tilfæringar gætu haft óút- reiknanlegar afleiðingar og ekki endilega til hins betra. Um næstu mánaðamót verða samningsaðilar að Ijúka við að hamra í gegn smáatriði sam- komulagsins ef reynast á unnt að leggja það í dóm kjósenda seinni- pai'tinn í maí. Bæði Mowlam og Blair segjast bjartsýn og Bertie Ahern, forsætisráðherra írlands, kveðst líka sannfærðm’ um árang- ur. Aðrir benda á að bjartsýni sé ekki nóg, ýmsar veigamiklar hindranir séu enn til staðar sem ekki verði auðvelt að yfirstíga. Spurt er hvort Sinn Féin snúi aftur til viðræðnanna og hvaða áhrif fjarvera þeirra gæti haft. Einnig má velta því fyrir sér hversu miklu David Trimble er tilbúinn að fórna fyrir samkomu- lag, hann verður nefnilega alltaf að gæta sín á því að tapa ekki fylgi til Ians Paisley og flokks ----------------- hans (DUP), sem Samstarf íra reynst hefur einarður í og Breta með nfstöðu og neitar að besta móti taka þátt 1 viðræðun- ______________ um. Loks heima- því þá mismunuðu þeir kaþólskum borg- urum mjög. Sinn Féin telur norður-írskt samfélag enn vera fjandsamlegt kaþólikkum og leggur áherslu á úrbætur í lögreglumálum, enda sé lögreglan á Norður-Irlandi andsnúin kaþólikkum og misbeiti oft og tíðum valdi sínu. Á endanum vill Sinn Féin reyndar sameiningu írlands í eitt ríki en þeir vita sem er að slíkt kemur ekki til greina nú. Það er mikilvægt, hvað svo sem almenningur segir í þjóðai-atkvæðagreiðslu, að öfga- sinnamir í samtökum eins og IRA og LVF sætti sig við samkomulag- ið en sennilega mun það reynast þrautin þyngri að sannfæra þá um kosti þess. Venjulegt fólk tekur hins vegar örugglega undir með Tony Blair sem sagði í vikunni að vináttá mannanna tveggja, sem féllu í Poyntzpass, verði að tákna fram- tíð Norður-írlands. Framtíð þar sem kaþólikkar og mótmælendur geta lifað í sátt og samlyndi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.