Morgunblaðið - 08.03.1998, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ
56 SUNNUDAGUR 8. MARZ 1998
A-.... ..................
FÓLK í FRÉTTUM
SUNNUDAGSMYNDIR SJÓNVARPSSTÖÐVANNA
é1
ís
Svipmyndir frá bernskuárum
Sjónvarpið ► 20.30 Bíódagar
★★V!2, er tregablandin mynd um
nokkra mánuði í ævi Tómasar
(Örvar Jens Arnarson), 10 ára
Reykjavíkurdrengs. Umhverfið
og persónumar sem þroska hann
í borg og sveit á öndverðum sjö-
unda áratugnum. Hvernig sorgin
og alvaran taka að gægjast inn í
áhyggjulausa lífsmyndina, sem
minnir, sem betur fer, oftar á
skemmtileg atriði í bíómyndum,
sem er toppurinn á tilverunni. Að
flestu leyti vel gerð saga sem við
könnumst flest við, en áberandi
kaflaskipt og virkar sundurlaus.
Ungu leikaramir standa sig með
prýði, sama máli gegnir um þá
eldri, þó val eins eða tveggja komi
nokkuð á óvart. Rúrik Haraldsson
og Jón Sigurbjömsson era eftir-
minnilegastir. Guðrún Asmunds-
dóttir fer vel með lítið hlutverk og
Öivar Jens Amarson er trúverð-
ugur í aðallhutverkinu.
Bíódagar er „búningamynd,
gerist á liðnum tíma, og það hefur
tekist nokkurnveginn eins vel og
hægt er að ætlast til - miðað við
fjármagn - að endurskapa um-
hverfið og þann andblæ sem ríkti
fyrir röskum þremur áratugum.
Hlý og notaleg mynd.
Sjónvarpið ► 15.00 Leitin að gröf
Faraós (Legend of the Lost Tomb,
(‘97)). Glæný fjölskyldumynd, og
ekkert um hana að fínna. Gæti verið
bærilegt ævintýri fyrir yngri fjöl-
skyldumeðlimina. Með Kimberley
Petersen og Stacey Keach. Leik-
stjóri Jonathan Winfrey.
Stöð 2 ► 17.25 Önnur ný sjón-
varpsmynd, Lífsvörn (A Case For
Life (‘96)), önnur ráðgáta. Systur á
öndverðum meiði um fóstureyðingar.
Fer í áhættuhóp A 1.
Sjónvarpið ► 20.30 Bíódagar, Sjá
umsögn í ramma.
Stöð 2 ► 21.05 í nærmynd (Up
Close and Personal, (‘96)), er afleit
'Hollywood lumma af gamla skólan-
um. Ung og metnaðarfull sjónvarps-
fréttakona (Michelle Pfeiffer) fær
vinnu við hliðina á gömlum frétta-
hauk (Robert Redford). Þau eiga víst
ekki samleið en verða samt ástfangin
og Hollywood grípur til endaloka af
væmnustu gerð. Góðir leikarar í öm-
urlegum hlutverkum. Auk þess vont
að sjá Redford láta hafa sig útí hlut-
verk við hæfi mikið yngri manns,
gæti verið afi glæsikonunnar Pfeif-
fer, þrátt fyrir málningu og mjúka
myndskerpu. ★★
Sýn ► 22.55 Ógnaröld í Saigon
(Bullet in the Head, (‘88)). John Woo
fer langfremstur í flokki hasar-
myndaleikstjóra í Hong Kong, og er
farinn að gera góða hluti í
Hollywood. Hér höfum við eina
þeirra mynda sem vöktu athygli
bandarískra framleiðenda á mannin-
um, Ógnaröld í Saigon ★★★, er
dæmigerð fyrir hinar ódým myndir
Woos á heimaslóðum; feikihröð, frá-
bærlega tekin og klippt, svo átakaat-
riðin geysast hjá á ógnarhraða, og
Iramatíidn hálfgert bull - að mati
/esturlandabúa, amk. Fyrst og
remst fyrir spennufíkla.
Sæbjörn Valdimarsson
-------------------
Tarantino
og Sorvino
skilin
LEIKKONAN Mira Sorvino og leik-
stjórinn Quentin Tarantino hafa
slitið samvistum og samkvæmt
kynningarfulltrúum beggja skiija
þau sem vinir. Parið hafði verið
saman í tvö ár og hafa iðulega
borist fréttir af meintum skilnaði.
Viku fyrir skilnaðinn sáust Tar-
antino og Sorvino f heitum faðm-
lögum og kossaflensi á veitingastað
í New York og kom því fréttin
nokkuð á óvart.
Mira Sorvino, sem er þrítug og
Harvard-menntuð, þótti afar ólík
hinum 34 ára Tarantino, sem vann
á vídeóleigu þar til frægðin bank-
aði upp á, - ef dálæti beggja á
asískri menningu er undanskilið.
Sorvino lærði um kínverska menn-
ingu í háskóla og talar lunversku
reiprennandi en Tarantino er eid-
heitur aðdáandi kínverskra slags-
málamynda.