Morgunblaðið - 08.03.1998, Blaðsíða 64
Keiko
þarf
leyfí til
að fara
SÆKJA þarf um leyfi banda-
rísku sjávarútvegsstofnunar-
innar (NMFS) fyrir því að há-
hyrningurinn Keiko verði flutt-
ur frá Bandaríkjunum. Gordon
Helm, talsmaður stofnunarinn-
ar, sagðist í samtali við Morg-
unblaðið engu geta spáð um af-
greiðslu málsins. Það hefði ekki
verið tekið til athugunar enda
hefði engin formleg umsókn þar
að lútandi borist.
Vegna áhuga almennings á
máli Keikos hefur stofiiunin
hins vegar gefið út bæklinginn
„Hvað þurfum við að vita áður
en við sleppum Willy?“ þar sem
m.a. kemur fram að fram til
þessa hafi stofnunin einungis
afgreitt tvö slík mál, sem bæði
varði reyndar höfrunga en ekki
háhyrninga.
I bæklingnum er vitnað í yfir-
lýsingu Bandaríkjaþings frá ár-
inu 1994 þar sem fram kemur
að tömdum sjávarspendýrum
• - *■ skuli einungis sleppt í tilrauna-
skyni uns frekari gagna hafi
verið aflað og að slíkt skuli ætíð
gert með ýtrustu varkámi.
Höfrungar hungraðir
og veikir
Einnig kemur fram í bæk-
lingnum að árangur þeirra til-
rauna sem gerðar hafi verið
hingað til sé ekki uppörvandi.
Árið 1992 var níu höfrungum
sleppt í sitt upprunalega um-
hverfi í áströlsku verkefni. Að
43 dögum liðnum var einn
þeirra talinn dauður og þrír
höfðu verið fangaðir á ný þar
sem þeir þjáðust af hungri og
veikindum. Þá var fjórum
þekktum höfrungum sleppt í
Flórída án tilskilinna leyfa árið
1996. Tveir hétu Bogie og Bacall
og er ekkert vitað um afdrif
þeirra. Hinh’ tveir, Luther og
Buck, voru hins vegai- fangaðh-
aftur innan tveggja vikna -
hungraðir, þjáðir af uppþomun
líkamsvefja og með opin sár.
Þrfr bflar í hörðum árekstri á Vesturlandsvegi
Kona beið bana og
einn stórslasaður
BANASLYS varð á Vesturlands-
vegi í gærmorgun, skammt frá
gatnamótunum við Víkurveg, er
þrír bílar lentu í hörðum árekstri.
Bíll á leið norður fór yfir á rangan
vegarhelming, rakst á bíl á suður-
leið og lenti síðan harkalega á
næsta bíl þar fyrir aftan sem
einnig var á suðurléið.
Sá er lést var kona sem var far-
þegi í bílnum á suðurleið. Var hún
úrskurðuð látin á slysstað. Bílstjóri
þess bíls slasaðist lífshættulega.
Hann var í aðgerð á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur í gær og á
fleiri aðgerðir fyrir höndum. í bíln-
um á norðurleið vora tveir karl-
menn sem einnig slösuðust talsvert
en era ekki í lífshættu. Ökumaður
þess bíls er granaður um ölvun.
Lögreglan í Reykjavík fékk til-
kynningu um árekstur gegnum
neyðarlínuna klukkan 8.30 í gær-
morgun og segir varðstjóri að í
fyrstu tilkynningu hafi ekki verið
getið um slys á fólki. Skömmu síð-
ar hafi hins vegar borist upplýsing-
ar um það, að um mjög alvarlegt
umferðarslys væri að ræða og vora
þá strax gerðar viðeigandi ráðstaf-
anir. Fimm sjúkrabflar vora sendir
á vettvang auk tækjabíls. Einnig
var kallaður á vettvang læknir á
slysadeild til aðstoðar við að ná
fólkinu úr bílflökunum. Varð að
loka Vesturlandsvegi í á aðra
klukkustund þar sem langan tíma
tók að ná hinum slösuðu úr bflun-
BILARNIR eru illa farnir eftir áreksturinn á Vesturlandsvegi í gærmorgun.
Sendi
út neyð-
arkall
FRANSKUR ferðamaður,
Stéphane Dutraiux, sem hugð-
ist ganga þvert yfir ísland á
snjóþrúgum, sendi út neyðar-
kall í gegnum gervihnött í
gær. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar fór á staðinn og fann
manninn við Kistufell í norð-
vestanverðum Vatnajökli.
Hann var óslasaður en kaldur
og kalinn á höndum og fótum.
Farið var með manninn til
Akureyrar, þar sem tekið var
eldsneyti, og þaðan áfram til
Reykjavíkur. Dutraiux, sem
er vanur fjallamaður, hafði
ætlað að ganga frá Djúpavogi
um Vatnajökul, Sprengisand,
Hofsjökul, Kerlingarfjöll og
vestur á Snæfellsnes.
3,2 milljónir
skrefa á
heimsenda
ÞEIM Ólafi Erni Haraldssyni,
Haraldi Erni Olafssyni og Ing-
þóri Bjarnasyni, sem gengu á
suðurpólinn, telst svo til að hver
þeirra hafi tekið 3,2 milljónir
skrefa á göngunni og brennt
um 370 þúsund hitaeiningum.
A langri göngunni þurfti hver
maður að innbyrða fimm til sex
þúsund hitaeiningar á dag, en
karlmaður í kyrrsetustarfi þarf
um tvö þúsund kaloríur dag-
lega. Fituþörfin er mikil þegar
barist er áfram í fimbulkulda.
Maturinn nægði þó ekki til, því
hver þeirra brenndi allnokkru
af fituforða líkamans.
■ Á heimsenda/Bl
Kristján Ragnarsson, formaður stjórnar fslandsbanka hf.
„Samruni Lands- og Islands-
banka kemur vel til greina
KRISTJÁN Ragnarsson, formaður stjórnar ís-
landsbanka, segir að samruni íslandsbanka og
Landsbanka komi vel til greina, en Kjartan Gunn-
arsson, fráfarandi formaður bankaráðs Lands-
banka Islands, sagði að sameining þessara tveggja
banka myndi ekki leiða til síðri fjárhagslegrar nið-
urstöðu en samruni Landsbanka og Búnaðar-
banka á aðalfundi Landsbankans á fóstudag.
k Kristján sagðist fagna öllum skoðunum þess
efnis að það þyrfti að bæta bankakerfið og efla það
með samruna. Það væri verið að sameina banka
um allan heim. Bankastarfsemi væri í mjög örri
þróun og miklar breytingar hefðu átt sér stað að
undanfornu. „Að mínu mati er það mikið kappsmál
fyrir íslenskan atvinnurekstur og almenning að
geta notið ódýrari bankastarfsemi en kostur er á í
dag. Það gerist ekki nema með því að styrkja
ssar stoðir með samruna," sagði Kristján.
Hann sagðist telja það fráleitt ef það yrði niður-
staðan eftir hlutafjárvæðingu bankanna að hér
yrðu áfram þrír viðskiptabankar og fjárfestingar-
banki, auk sparisjóða. Þetta séu alltof margar ein-
ingar til að þjóna þessari starfsemi og því fagnaði
hann öllu frumkvæði varðandi það að takast á við
þetta verkefni, ekki síst ef það kæmi frá Lands-
bankanum.
Aðspurður sagðist Kristján telja samruna Is-
landsbanka og Landsbanka vel inni í myndinni og
vert að skoða þann möguleika ef vilji væri til þess
hjá eigendum þess banka. Þeir væru ekki lokaðir
fyrir neinum hugmyndum í þessum efnum og
hefðu fyrst og fremst unnið að því að vekja athygli
á þörfinni á því að takast á við það verkefni að efla
þessa starfsemi. Hann teldi að það gerðist ekki
með samruna Landsbanka og Búnaðarbanka. Þar
væri um að ræða tvær ríkisstofnanir sem ekki
hefðu náð saman á undanförnum árum til neins
hagi-æðis, þrátt fyrir að þær væru báðar í eigu
sama aðila. „Það væri miklu æskilegra að blanda
þessu inn í einkarekstur sem gerði þá hlutabréf
ríkisins líka auðseljanlegri en ella,“ sagði Kristján.
Hann sagðist telja að árangur af sameiningu
Landsbanka og Búnaðarbanka yrði lítill í því að
bæta þetta umhverfi og mæta þeim kröfum sem
markaðurinn gerði í dag. Bankar væra að samein-
ast um allan heim og samkeppni utan frá myndi
gera það að verkum að banka hér dagaði uppi ef
ekki yrði tekist á við þetta verkefni á pólitískum
grundvelli. Þrír bankanna væru í eigu ríkisins,
tveir viðskiptabankai' og einn fjárfestingarbanki,
og frumkvæði yrði þvi að koma þaðan með djörf-
um ákvörðunum í þessum efnum. Annars yrðum
við undir í samkeppninni og bankastarfsemi gæti
orðið fyrir verulegum áföllum.