Morgunblaðið - 19.04.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.04.1998, Blaðsíða 1
112 SIÐUR B/C/D/E STOFNAÐ 1913 88. TBL. 86. ÁRG. SUNNUDAGUR19. APRÍL 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLADSINS Bálför Pols Pots gerð í Kambódíu Rauðu khmer- arnir syrgja ekki Pol Pot Sa-ngaam. Reuters. BÁLFÖR Pols Pots, fyrrverandi leiðtoga Rauðu khmeranna og eins illræmdasta harðstjóra aldarinnar, fór fram frá litlu þorpi í norðurhluta Kambódíu í gærmorgun. Um tutt- ugu manns voru viðstaddir bálför- ina sem var látlaus og stóð aðeins í um stundarfjórðung. Ösku Pols Pots verður dreift á þremur stöðum í Kambódíu, þar sem hann ólst upp og á tveimur svæðum sem Rauðu khmerarnir réðu áður. Líkið var ekki krufið og yfirvöld í Kambódíu, sem höfðu krafist þess að fá það í hendur, kváðust ekki sannfærð um að líkið hefði verið af Pol Pot. Tælenski herinn staðfesti það hins vegar á fimmtudag og tók fingrafór og hár því til staðfesting- ar. Lík Pols Pots var brennt fyrir ut- an skúrinn sem það stóð uppi í. Var kista hans borin út og henni komið fyrir á bálkesti úr rúmdýnu hans og hjólbörðum og var nokkrum eftir- lætismunum Pols Pots komið fyrir ofan á, m.a. stól hans og göngustaf. Að því búnu var bensíni hellt yfir köstinn og kveikt í. „Hafði glatað öllu“ Viðstaddir voru nokkrir félagar í Rauðu khmerunum en hvorki hin fertuga eiginkona hans né fjórtán ára dóttir. Engar ræður voru haldn- ar og að sögn Nuans Nos, tals- manns Rauðu khmeranna, voru við- staddir ekki sorgmæddir. „Við gleðjumst í raun þvi nú erum við lausir við frekari gagnrýni þjóða heims vegna Pols Pots,“ sagði Nu- an. Ástæðu þess að fyrrverandi vopnabræður Pols Pots voru ekki viðstaddir, sagði Nuan vera þá að þeir hafi deilt við hann undir það síðasta. „Á þeim tíma glataði Pol Pot nær öllu, þar á meðal virðuleik sínum, stjórn á hersveitum og fólk- Reuters KISTA, sem fullyrt er að lík Pols Pots hvfli í, brennur skammt frá litlu þorpi í norðurhluta Kambódíu. Á bál- kestinum var komið fyrir nokkrum eftirlætishlutum Pols Pots, m.a. stól hans, dýnu og göngustaf. inu. Hann átti ekki neitt síðustu átta mánuðina." Núverandi stjóm Rauðu khmer- anna steypti Pol Pot af stóli og dæmdi hann í lífstíðarfangelsi undir lok síðasta árs. Rauðu khmeramir berjast nú við stjómarherinn í Kam- bódíu og heyrðust skothvellir og sprengingar úr fjarlægð er lík Pols Pots var brennt. Áð sögn Nuans Nos hafa um 1.000 hðsmenn og stuðn- ingsmenn Rauðu khmeranna gefið sig stjómarhernum á vald í þessum mánuði en hann sagði samtökin halda baráttu sinni áfram ótrauð. Reuters Jeltsín kátur í Japan Yiðræður Kóreu- ríkja út um þúfur Peking. Reuters. UUP fellst á friðar- áætlun Belfast. Reuter. SAMBANDSFLOKKUR mótmæl- enda á Norður-írlandi (UUP) sam- þykkti í gær friðaráætlun sem samið var um á föstudaginn langa. David Trimble, leiðtogi UUP, var einn þeirra sem þátt tóku í friðar- viðræðunum en flokkur hans er stærsti stjórnmálaflokkur Sam- bandssinna á Norður-írlandi. Um 800 flokksmenn sátu fund UUP í gær og greiddu 540 atkvæði með friðaráætluninni en 210 voru henni andvígir. Áður en flokksfundurinn hófst höfðu mótmælendur komið sér fyrir við fundarstaðinn. Krafðist fólkið þess að friðarsamkomulagið yrði fellt þar sem flokkurinn hefði svikið Norður-írland í hendur andstæð- ingsins. Heitar umræður voru um samkomulagið áður en það var sam- þykkt en í lok fundarins var Trimble fagnað með langvinnu lófataki. ÓVENJU vel lá á Borís Jeltsín Rússlandsforseta er hann kom til Japans í gær. Þar á hann fund með Ryutaro Hashimoto, forsætisráðherra landsins, m.a. um yfirráð yfir Kúrileyjum. Jeltsín þótti ekki sýna nein merki um að þar færi heilsuveill maður er hann steig út úr flug- vélinni eftir tíu stunda flug og virtist láta sér stjórnarkrepp- una heimafyrir í léttu rúmi liggja. Fundur Jeltsíns og Hashimotos er haldinn í borginni Kawana og til að undirstrika að fundurinn væri óformlegur, reif Jeltsín af sér bindið við komuna. ÞRATT iyrir að viðræður Norður- og Suður-Kóreu um aðstoð við sveltandi íbúa Norður-Kóreu og sameiningu fjölskyldna, færu út um þúfur í Peking í gær, virtust samningamenn Suður-Kóreu sann- færðir um að Norður-Kóreumenn myndu snúa aftur að samninga- borðinu innan skamms. Viðræðurnar í Peking eru hinar fyrstu sem háttsettir embættis- menn þjóðanna eiga í fjögur ár. Hafa Suður-Kóreumenn boðið Norður-Kóreumönnum áburð en uppskerubrestur er ein helsta ástæða þess hve illa er nú komið fyrir íbúum norðurhluta Kóreu- skagans. Þess í stað krefjast Suð- ur-Kóreumenn að yfirvöld í Norð- ur-Kóreu taki þátt í að gera fjöl- skyldum, sem sundruðust í Kóreustríðinu, kleift að hittast að nýju. Yfirsamningamaður Suður- Kóreu, Jeong Se-hyon, sagði að erfitt yrði fyrir Norður-Kóreu- menn að hunsa tilboð Suður- Kóreu um aðstoð vegna ástands- ins í landinu og var vongóður um að viðræður hæfust að nýju innan skamms. Havel á bágt með öndun Vín. Reuters. VACLAV Havel, forseti Tékk- lands, gekkst í gær undir aðgerð á lunga, vegna skyndilegra önd- unarörðugleika. Forsetinn var skorinn upp á þriðjudag vegna iðrasýkingar. Havel var sagður á „furðugóð- um“ batavegi eftir uppskurðinn en í fyrrinótt hafði safnast mikið slím fyrir í lungum hans, sem olli því að hann átti í erfiðleikum með að anda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.