Morgunblaðið - 19.04.1998, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.04.1998, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 19. APRÍL 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Tónleikar Kvenna- kórs Suður- nesja KVENNAKÓR Suðurnesja er um þessar mundir að fara af stað með sína árlegu vor- tónleika. Þeir fyrstu verða haldnir í Grindavíkurkirkju mánudag- inn 20. apríl, í Ytri-Njarðvík- urkirkju miðvikudaginn 22. apríl og mánudaginn 27. apríl. Miðvikudaginn 29. aprfl syng- ur kórinn í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði. Allir tónleikamir hefjast kl. 20.30. Efnisskráin verður fjöl- breytt. Islensk og erlend tón- verk með og án undirleiks. Söngstjóri er Ágota Joó. Ein- söng og tvísöng syngja Sigrún Ósk Ingadóttir og Guðrún Egilsdóttir. Á píanó leikur Vilberg Viggósson, bassa Þórólfur Þórsson, slagverk Baldur Jósefsson og harm- oníku Ásgeir Gunnarsson. Kórinn fer síðan í söng- ferðalag til Stykkishólms dag- ana 8.-10. maí nk. Kór Stranda- manna í Kópavogs- kirkju Á YFIRSTANDANDI ári eru 35 ár síðan Kópavogskirkja var vígð. Af því tilefni hafa ýmsir kórar komið í heimsókn i kirkjuna í vetur og sungið í guðsþjónustum. I dag sunnudaginn 19. apr- fl kl. 14 mun Kór Átthagafé- lags Strandamanna heim- sækja kirkjuna og syngja sér- staklega í guðsþjónustunni en stjórnandi hans er Þóra Vig- dís Guðmundsdóttir. Þá mun kórinn leiða safnað- arsöng ásamt félögum úr kór Kópavogskirkju. Fastur liður í menningarlífi Sunnlendinga Selfossi. Morgunblaðið. PÁSKASYNING Myndlistar- félags Ámessýslu fór fram dagana 9.-13. apríl. Á sýning- unni, sem haldin var í Lista- safni Amesinga, voru verk eftir fjölmarga listamenn sem allir em félagsmenn í Mynd- listarfélaginu. Sýningin er orðin fastur lið- ur í menningarlífi Sunnlend- inga. Fyrsta samsýning fé- lagsins var haldin árið 1980, á stofnári félagsins. Myndlistar- félagið hefur síðan staðið að ótal námskeiðum og sýning- um. Sú nýbreytni var tekin upp þetta árið að fá myndlistar- manninn Kristinn Harðarson til þess að setja sýninguna upp og skapa þannig tilbreyt- ingu og stemmningu í sýning- una. Kristinn er Sunnlending- um kunnugur. Hann var alinn upp í Laugarási í Biskups- tungum og foreldrar hans em nú búsettir á Selfossi. Haukur Dór í Dressmann HAUKUR Dór listmálari opnaði íyrir páska sýningu í glugga verslunarinnar Dress- mann, Laugavegi 18b. Hið óhagg- anlega líf MYNPLIST Ilafnarliorg PASTELMYNDIR Verk Louisu Matthíasdóttur. Opið alla daga nema þriðjudaga frá 12-18. í allt húsið. Til 27 apríl. Aðgangur 200 kr. Sýningarskrá 1.500 kr. ALLNOKKUR ár líða á milli sýninga verka Louisu Matthías- dóttur, og fyrir vikið teljast þær mikilsháttar og fágætur listvið- burður. Það þóttu nokkur tíðindi er sýningarnefnd FIM tókst að fá listakonuna, sem búsett hafði verið í New York allar götur frá 1943, til að vera sérstakur gestur Haustsýn- ingar félagsins 1974. Markaði við- líka tímamót og er tekið var upp samband við Guðmund Erró í París, 1969. Var þetta liður í mikl- um viðhorfsbreytingum og upp- stokkunum sem lyftu undir alla sýn- ingastarfsemi félagsins á þessum áram. Eftir þetta urðu tengsl beggja málararanna við fóðurlandið ólíkt meiri, og þannig skilst mér að Louise hafi dvalið hér hluta úr sumri svo til ár hvert upp frá þvi. Myndefni sín hefur hún sömuleiðis að stóram hluta sótt til Islands eftir það, að samstillingum, dýra- og mannamyndum undanskildum. Erró kemur einnig nokkuð reglu- lega til landsins, þótt ekki geri hann það í sama mæli til að fiska eftir myndefnum, enda af öðra upplagi. Jafnaðarlega hefur Louise sýnt málverk, stór og smá, er líka nafn- kenndust íyrir afrek sín í þeim geira myndlistarinnar, en nú bregður svo við að á sýningu henn- ar í Hafnarborg era eingöngu pastelmyndir, frá ýmsum tímabil- um á ferli hennar og hefur hún kos- ið að tímasetja þær ekki. Þeirri sér- visku tekur rýnirinn ekki fagnandi, því mikilvægt er að geta borið sam- an verk myndlistarmanna frá af- mörkuðum tímaskeiðum á ferli þeirra og unnin eru í ólíkan efnivið. Enn skal áréttað, að það telst yf- irmáta mikið mál að ná framúr- skarandi árangri í pasteltækni, einkum fyrir þá sök hve áferð lit- anna er falleg og freistar því margra til auðveldra lausna. Eins og tilfellið er með dúk- og tréristu telst innan seilingar að ná þokka- legum árangri, en jafn erfitt að lyfta miðlunum upp í æðri hæðir, útheimtir mikila vinnu og átök. Hin gagngera skólun Louise, og mikla þjálfun fyrir framan málara- trönumar, er hér sem í olíumynd- unum hinn styrki og ótvíræði bak- hjarl og sem fyrri daginn era það áhrifamögn hins sláandi einfaldleika sem leiðina marka. Án nokkurs vafa er afstæðið og einfaldleikinn flókn- ustu fyrirbæri náttúrunnar og myndlistarinnar um leið. I báðum tilvikum er allt samanlagt sköpun- arferlið haft í huga, mun síður öll þau smáatriði sem kunna að vera undirstaða þess. Það sem býr að baki einfaldri en traustri burðar- grind á myndfleti er öðra framar aginn, hin mikla vinna og langa þroskaferli. Þennan aga verða menn fljótlega varir við frammi fyr- ir vel upp byggðri myndheild sem er afkvæmi djúprar sjálfsprottinnar skynjunar, víðfeðms hugsæis á við- fangsefnið og innri lífæðar mynd- flatarins. Telst svo fullgild hug- myndafræði á vettvangi myndlistar- innar. I þessu tilviki felst afstæðið í því, að líkast er sem myndverkið sem maður stendur frammi fyrir sé tímalaust, fullmótað óútskýranlegt náttúralögmál líkt og börnin. Þegar þau eru loks komin í heiminn, er líkt og þau hafi alltaf verið til, séu nátt- úralegasta mál, þó að að baki hvers nýs einstaklings liggi milljónir ára og býsna margbrotið þróunarferli. Og eins og mannskepnan heldur áfram að þróast er ekld til fullgert myndverk, vegna þess að fyrir hinu opna augliti endurnýjar það sig stöðugt. Fullgert myndverk er dáið, andvana fætt. Og sá er horfir á mik- ilfenglegt landslag eða stórbrotið listaverk sljóum augum og tæmir fyrirbærin um leið er andlega staðl- aður, ófrjór. Hann skynjar ekki kraftbirting sjónheimisins, hvort heldur um er að ræða mikilfenglegt landslag, ljósgjafana sólina og tunglið, sem halda áfram ferð sinni um himnafestinguna þó órokkanleg- ir sýnist, eða blóðríka myndheild. Þetta og fleira kom upp í hugann er ég virti fyrir mér hinar einföldu pastelmyndir Louise Matthíasdótt- ur í aðalrými Hafnarborgar á dög- unum. Öllu öðru fremur fyrir það UPPSTILLING, pastel á pappír, 51x66 cm. hve óhagganlegir hlutirnh- eru á myndfletinum og þó gæddir innri lífsmögnum. Einfaldleikinn í fyrir- rúmi, en menn verða ekki fullkom- lega varir við hann nema þeir gangi fast að myndunum og uppgötva hve mikfu hlutverki hinn tónaði pappír gegnir. Það sem í fyrstu virtist vera grannlitur er í raun vandlega valinn litatónn í pappírnum sjálfum, sem er í samræmi við litina sem gengið skal út frá. Það er nokkuð langt síð- an listamenn uppgötvuðu áhrifa- mátt tónaðs pappírs, og á það eink- um við grafíklistina, og Hollending- urinn Hercule Seghers (1589-1639) var einn sá fyrsti. Seghers gerði margvíslegar tilraunir í málmæt- ingum og meðal annars notaði hann mismunandi tónaðan pappír til að þrykkja plöturnar á sem gaf þeim svip af einþrykki, gerði þær fágæt- ari og um leið verðmætari. Hafði Seghers mikil áhrif á Rembrandt, sem sagði hann meistara sinn. Öryggið er aðal bestu mynda sýningarinnar og það kemur eink- um fram á vinstri langvegg, sem er yfirburðaveggur og þeim myndum öðram er svipar til þess besta sem þar hangir. Erfitt er að nefna sér- staklega einstakar myndir, þær jafngóðar og speglanir í gleri og gerviljós gera manni erfitt um vik, en óhætt er að segja að rauða sjálfsmyndin sé hrein perla í öllum sínum samþjappaða, þróttmikla og afhjúpandi einfaldleika. I mörgum myndanna kemur mjög vel fram hve lagið Louisu er að meðhöndla hættulega liti og komast vel frá því, jafnvel meistaralega vel. Á ég hér einkum við rauð- og fjólubláu litina. Og eftirtektarvert er hve fjöl- breytnin er mikil frá einni mynd til annarrar, þótt um keimlík myndefni sé að ræða. Jafnframt tapar sýningin engu við endurtekna skoðun fyrir það hve óþvingað og eðlilega listakonan gengur til verks. Er stöðugt að finna nýjar lausnir og ný blæbrigði í útfærslunni sem er afrakstur rökréttra vinnu- bragða, verða til jafnóðum milli handanna í sjálfum átökunum við myndefnin. Gefin hefur verið út vel hönnuð sýningarskrá, prýdd nokkrum lit- myndum, og ritar Petrún Péturs- dóttir stuttan inngang, en Aðal- steinn Ingólfsson listsögufræðingm- fjallar um listakonuna og verk hennar. Aftast eru svo upplýsingar ýmiss konar, og fylgir enskur texti öllum skrifunum. Afar einfalt og skilvirkt og þannig séð góð heimild, hins vegar hefði litgreiningin mátt vera nákvæmari, sérstaklega í rauðu sjálfsmyndinni. Bragi Ásgeirsson Með ýmislegt í kollinum LEIKLIST IVðtt og Dagur í sain- starfi við Allrahanda og Loftkastalann NÓTTIN SKÖMMU FYRIR SKÓGANA Höfundur; Bernard-Marie Kolt'es. Þýðandi: Friðrik Rafnsson. Leikstjóri: Stephen Hutton. Leikari: Ólafur Darri Ólafsson. Mánudagur 13. aprfl. ÞESSI rúmlega tvítugi einleikur ratar nú loksins fyrir sjónir áhorf- enda á íslandi. Það er gaman að fá einhverja nasasjón af verkum Kolt'es, en nýleg leikverk frá hin- um rómönskumælandi heimi era sjaldséð hér í leikhúsum og áhorf- endur fá því mjög brotakennda mynd af þróun í leiklistinni þar um slóðir. Einleikir geta, ef ekki er varlega farið, ofreynt athyglisgáfu áhorf- andans. Sýningin hér varir í sjö stundarfjórðunga þannig að halda verður vel á spöðunum til að halda athygli áhorfenda í litlu rými sem býður upp á takmarkaðan fjölda leiklausna. Hugmyndin að láta leik- inn fara fram í strætisvagni er góð; margir hafa upplifað óþægilega og ógnandi tilburði samferðafólks í þessu lukta, litla rými og geta borið slíkar minningar saman við áhrifin af leik Ólafs Darra. Samt verður að benda blöðrusmáum áhorfendum og þeim þeirra sem háðir eru al- gengustu vímugjöfum á að best er að búa sig vel undir dvölina; það gefst engin undankomuleið á með- an á sýningu stendur. Textinn er merkilegur fyrir margra hluta sakir. Hann einkenn- ist af örvæntingarfullum tilraunum persónunnar til að komast í sam- band við annað fólk sem áhorfend- ur verða hér fulltrúar fyrir. Ein- ræða hans er spunnin úr þrá- hyggju, ranghugmyndum, rökleysu og endurtekningum, og gerist, eins og sagt er í textanum „eftir að ég fór að ragla öllu saman“. Hún er að mörgu leyti snilldarlega samin en það þarf að hafa sig allan við að koma einhverri mynd á frásögnina og heimfæra hana yfir á veruleika- sviðið. Hérna er það auðvitað per- sónusköpunin sem skiptir öllu máli og sú mynd sem Ólafur Darri bygg- ir upp af persónunni verður mjög heilsteypt og athyglisverð. Leik- stjórinn, Stephen Hutton, hefur mjög sterka tilfinningu fyrir því hvenær tími er kominn til að breyta um staðsetningu, fas og hreyfingar til að halda athygli áhorfenda. Textinn er nokkuð einsleitur en Ólafi Darra tekst með firnafallegri rödd og persónuleika sem brýst úr viðjum strætisvagnsins að halda dampi í gegnum alla sýninguna. Það eina sem mætti setja út á í samskiptum leikara og leikstjóra er að áherslur á einstaka setningar era ómarkvissar og þær vilja því týnast í heildartextanum. Þarna hefði íslenskumælandi aðstoðar- leikstjóri komið sér vel. En hvað vakir fyrir persónunni? Hvers vegna þessar örvæntingar- fullu tilraunir til að ná sambandi við fólk? Persónan upplifir sig sterkt utangarðs í þjóðfélaginu, hún nefn- ir sjálfa sig útlending án þess að textinn styðji það í einu eða neinu. Athyglisverðust er kynferðisleg sjálfsmynd persónunnar. Fálm- kennd samskipti hennar við hitt kynið ná hápunkti í frásögn af und- anlegum samföram á brú einni við stúlku sem persónan nefnir „mömmu“: „ummerkin sjást ennþá, þarna niðurfrá í grjótinu" og „á morgnana er allt morandi í fólki og löggum" og stúlkan er ei meir. Til- burðir persónunnar við viðmæland- ann (sem gera verður ráð fyrir að sé karlkyns); frásögn hennar af lík- amsárás sem hún verður fyrir; sýniárátta á almenningssalernum; og eilíf neitun þeirrar sjálfsmyndar, sem á endanum virðist augljós, ger- ir áhorfandanum loks kleift að geta sér til um hverju persónan er að sækjast eftir. Þessi miðlægi hluti verksins væri mun skýrari ef sam- skipti Ólafs Darra við áhorfendur væra beinskeyttari - að hann veldi sér t.d. einn eða nokkra einstaka áhorfendur til að beina orðum sín- um að, í því augnamiði að áhorfend- ur fengju að sjá viðbrögð þeirra við áreitni leikarans í hlutverki persón- unnar. Þó að sýningin væri í alla staði nýstárleg og hugvitsamlega í vagn komið og Ölafur Darri stæði sig eins og hetja í eina hlutverkinu, vantaði herslumun á að verkið yrði nógu grípandi - áhorfendur hefðu þurft að fá að upplifa að sjá við- brögð valinna fórnarlamba úr sín- um hópi við tilburðum Ólafs Darra. Fyrir vikið hefði sýningin orðið beinskeyttari og fengið skýrari heildarmynd og sú ógn sem felst í því að sitja fastur í strætisvagni og eiga sér ekki undankomu auðið undan ógnandi tilburðum skrýtna karlsins hefði orðið að veraleika. Sveinn Haraldsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.