Morgunblaðið - 19.04.1998, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.04.1998, Blaðsíða 38
SUNNUDAGUR 19. APRÍL 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkaer eiginmaöur minn, faðir okkar, sonur og tengdasonur, GUÐMUNDUR JÓNAS JÓHANNSSON, Funafold 7, Reykjavík, varð bráðkvaddur föstudaginn 17. apríl. Aðalheiður Anna Guðmundsdóttir, Úlfar Óli, Jóhann Tómas, Tryggvi Snær, Jóhann T. Bjarnason, Sigrún Stefánsdóttir, Guðmundur Tr. Sigurðsson, Kristín R. Einarsdóttir. i + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR KR. GUÐMUNDSSON skipstjóri, Miðbraut 4, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Seltjarnarnesskirkju miðvikudaginn 22. apríl kl. 15.00. Þeir, sem vildu minnast hans, eru beðnir að láta Krabbameinsfélag íslands njóta þess. Oddný Sigtryggsdóttir, Erna D. Guðmundsdóttir, Guðmundur Kr. Guðmundsson, Þóra Benediktsdóttir, Sigrún V. Guðmundsdóttir, Sigþór Sigurjónsson, Friðrik Örn Guðmundsson, Margrét Gunnarsdóttir, Ingibjörg Alda Guðmundsdóttir, Sigurbjörn Einarsson, barnaböm og barnabarnabörn. Elskulegur afi okkar, langafi og bróðir, BALDVIN VILHELM JÓHANNSSON, Hrafnistu, Reykjavfk, lést á Hrafnistu laugardaginn 11. apríl síðast- liðinn. Útför hans verður gerð frá Áskirkju mánu- daginn 20. apríl kl. 13.30. Linda Björg Halldórsdóttir, Sigurjón Ó. Halldórsson, Kristín Ásta Halldórsdóttir, Diljá Catherine Þiðriksdóttir, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Siguriaug Jóhannsdóttir, Garðar Jóhannsson, Hjörleifur Jóhannsson. + Móðir mín, amma og vinkona, HRAFNHILDUR LEIFSDÓTTIR, Skúlagötu 78, lést á Landspítalanum þann 12. apríl. Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 20. apríl kl. 13.30. Hildur Hjálmarsdóttir, Haukur Heiðar Leifsson, Hjálmar Örn Leifsson, Guðrún Bryndfs Leifs, Magnús Magnússon. + Ástkær faðir okkar, sonur, bróðir og afi, HELGI SIGURÐUR ÞÓRISSON frá Fellsenda, Langholtsvegi 3, Reykjavík, sem varð bráðkvaddur á heimili sínu mánu- daginn 6. apríl, verður jarðsunginn frá Lang- holtskirkju mánudaginn 20. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast hans, eru beðnir að láta Kknarstofnanir njóta þess. Fyrir hönd aðstandenda, Inga Dóra Helgadóttir, fris Björg Helgadóttir. HELGIS. ÞÓRISSON + Helgi S. Þóris- son fæddist á Garði í Mosfellssveit 5. október 1944 en ólst upp að Fells- enda í Þingvalla- sveit. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu í Reykjavík 6. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans eru Þór- ir Haraldsson, f. 29.3. 1921, d. 25.2. 1995, og Dóra Helgadóttir, f. 4.12. 1919. Systkini Helga eru albróðirinn Gunnar og hálf- systkinin, Hafberg, Ásmundur Sigurður, Þórir, Benedikt, Bjarni og Halldóra Þórisbörn. Helgi eignaðist dæturnar Ingu Dóru, f. 30.12. 1969, móðir Helga Hansdóttir; og Irisi Björgu, f. 5.6. 1976, móðir Svala Hjaltadóttir. Útför Helga fer fram frá Langholtskirkju á morgun, mánudaginn 20. apríl, og hefst athöfnin klukkan 15. í fáeinum orðum viljum við kveðja vin okkar Helga Þórisson, sem aidrei var annað en Bubbi í okkar huga. Fyrstu kynni okkar hófust íyrir u.þ.b. 23 árum og hafa verið órofin síðan. Margar ferðir höfum við farið saman í góðra vina hópi þar sem Bubbi var einatt miðdepill gleði og spaugilegra atvika, enda eru fáar minningar sem ekki vekja gleði og bros. Það væri ekki í anda Bubba að hlaða lofi eða mærðarvellu á mann- inn, sem kvaddi án þess að hafa nokkru sinni innheimt það sem okkur finnst hann eiga hjá okkur sem öðrum. Ófáar stundir vann hann við bfla- viðgerðir stórar sem smáar án þess að taka þóknun fyrir og þá var ekki starað á klukku eða dagatal. Það sem einkenndi Bubba helst var sá mikli fróðleikur sem hann bjó yfir og jafnframt óslökkvandi fróðleiksþorsti, enda gat hann alltaf miðlað öðrum af sínum brunni, jafnt á ferðalögum sem við önnur tækifæri. Hvort sem var með sögum eða vísum, sem gjam- an voru ætlaðar til að ýta við al- vörugefnu fólki, enda var Bubbi aldrei gefinn fyrir tæpitungu. Mar- goft skemmtum við okkur yfir kveðskap og þá ósjald- an dembt á Bubba tor- veldum fyrripörtum sem stóðu í flestum. En aldrei brást Bubbi með sína ógleyman- legu tækifærisbotna sem munu lifa áfram og vekja gleði og hlát- ur sem til var ætlast. Við vitum að eina ástæðan fyi'ir því að þú varst kallaður svo fljótt hlýtur að vera skortur á góðum mönnum fyrir handan. Vonandi verður engin tæpitunga töluð þegar við finnum þig handan móðunnar miklu. Þá verður þú öllum hnútum kunnugur og leiðir vini þína um vegi þess eina sannleika sem vert er að kunna. Frá amstri lífsins áttu frí þig allir vinir trega. Aldrei brástu, Bubbi, því að botna skringilega. Þá að bæði skúr og skin sem skuggar gangi yfir. Minningin um mætan vin í mínum huga lifir. Með söknuði kveðjum við þig, kæri vinur, og bíðum þess tíma er við hittumst á ný. Við vottum Irisi, Anítu og Dóru innilega samúð okk- ar. Fjölskyldurnar Velli 2 og Ásakoti. Mig langar til að minnast Helga frænda míns í fáeinum orðum. Bubbi eins og hann var oftast kall- aður var um margt óvenjulegur maður og ég er þess raunar full- viss að það væri honum ekki að skapi að ég skrifaði um hann mærðarlega lofgrein. Það ætla ég líka að forðast. Bubbi var einn af þessum sjálfmenntuðu sveita- mönnum sem lærði að bjarga sér í lífinu af eigin rammleik. Hann ólst upp á arfleifð afa okkar og ömmu á Fellsenda í Þingvallasveit. Hann var ekki fæddur með silfurskeið í munninum og hefur sennilega aldrei eignast silfurskeið. Hvað hefði hann svo sem átt að gera við hana? Áhugi Bubba hneigðist ekki að hefðbundnum bústörfum, en allt sem snýr að vélum og viðgerðum lá opið fyrir honum. Það er reyndar HRAFNHILD UR LEIFSDÓTTIR + Hrafnhildur Leifsdóttir fæddist í Neskaup- stað 3. aprfl 1929. Hún lést á Landspít- ala 12. apríl síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Leifur Björnsson og Pálína Guðmundsdóttir, bæði látin. Bróðir Hrafnhildar var Gústaf Leifsson, f. 1931, látinn 1990. Hinn 31. des. 1951 giftist Hrafn- hildur Hjálmari Halldórssyni frá Seyðisfirði, f. 1916, d. 23.10. 1974. Þau eignuðust tvö börn, Leif, f. 16.11. 1955, d. 22.12. 1989, og Hildi, f. 26.3. 1958, býr í Reykja- vík. Einnig á Hrafn- hildur dóttur, Guð- rúnu B. Leifs, f. 9.7. 1948, býr í Dan- mörku. Útför Hrafnhild- ar fer fram frá Fossvogskapellu á niorgun, mánudag- inn 20. aprfl, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku mamma, nú ertu búin að fá hvfld og frið frá þínum erfiðu veikindum, sem lögðust svo þungt á þig. Hinn 25. des. var þér horfinn allur kraftur og máttur og þín mörgu tár horfin, þornuð. Þú varst komin til pabba, Leifs og Hnoðra þíns. Ég sakna þín mikið sem móð- ur og vinkonu, því við vorum einar eftir, gerðum svo margt saman þrátt fyrir veikindi okkar beggja. Þú studdir mig alltaf og fylgdist svo vel með mér þegar veikindin komu og fóru hjá mér. Svo ég reyndi eftir bestu getu að vera hjá þér og hugga, því aldrei komstu heim aftur. En hinn 3. apríl áttum við góðan afmælisdag, þú 69 ára. Þér fannst tertan svo góð og það komu bæði gleðitár og undrun. Ég þakka starfsfólkinu fyrir þennan dag á 32A. Og ekki var gleðin nauðsynlegt að kunna skil á þeim hlutum við búskap í sveit. Bubbi fór snemma að heiman eins og títt er með ungt fólk í sveitum. Leiðin lá til Reykjavíkur og þar vann hann aðallega vinnu sem tengdist bflum og bílaviðgerðum. Lengst starfaði hann hjá Ræsi hf. á vara- hlutalager og þar starfaði hann til dauðadags. Bubbi var mjög greiðugur mað- ur og var oft leitað til hans með bil- aða bíla. Óhætt mun að fullyrða að hann sparaði mörgum, þar á meðal mér, viðgerðarkostnað á bílum. Ekki er úr vegi að álykta að bif- reiðaverkstæði borgarinnar sjái þess stað í veltuaukningu að Bubbi er nú fallinn frá. Sama er að segja um varahlutaverslanir, en hann átti varahluti í flestar gerðir bif- reiða uppi á lofti hjá sér. Sjálfur átti Bubbi marga bfla. Heildar- verðmæti þeirra var þó ekki hátt metið. Af hverju að kaupa bfl fyrir milljón þegar hægt er að fá bíl iyr- ir þúsundkall? átti hann til að segja. Stundum lánaði hann mér bíl, þegar ég þurfti á að halda. Eitt sinn þegar ég hafði fengið bfl að láni hjá honum, heyrði ég ókenni- leg hljóð í gírkassanum. Ég setti mig að sjálfsögðu í samband við eigandann og viðgerðarmanninn og tjáði honum ástand mála. I þetta sinn ráðlagði hann mér að fá mér bara tappa í eyrun, svo ég heyrði ekki óhljóðin, það væri í senn ódýrasta og besta viðgerðin. Bubbi bar enga sérstaka virð- ingu fyrir heldri mönnum umfram almúgann. Eitt sinn kom til hans í varahlutaverslun Ræsis hf. „heldri maður“ sem vantaði varahlut í Bensinn sinn. Hluturinn var því miður ekki til í augnablikinu og sagði Bubbi sem satt var. Maður- inn sagði þá til nafns, en Bubbi sagði að það breytti engu, hlutur- inn væri ekki til þrátt fyrir það. Hjá Ræsi hf. var Bubbi að sjálf- sögðu metinn að verðleikum og hefur starfsfólk og stjómendur Ræsis hf. reynst aðstandendum sérstaklega vel við fráfall hans. Þeim aðilum eru hér færðar sér- stakar þakkir fyrir það. Ég hef reynt að bregða upp nokkrum myndum af Helga Þóris- syni, eins og hann kom mér fyrir sjónir. Hann var einn af þeim sam- ferðamönnum sem batt bagga sína ekki sömu hnútum og aðrir. Ef til vill eru það einmitt þeir sem verða manni minnisstæðir þegar frá líð- ur. Ég á einungis góðar og skemmtilegar minningar um Bubba og tel mig á allan hátt ríkari af samskiptunum við hann. Helgi Gunnarsson. minni þegar Eva kisan mín kom til þín um kvöldið, þú varst svo mikill dýravinur. Svo varstu orðin þreytt og sæl þann daginn. Og þessi dag- ur var mér dýrmætur. En tíminn var ekki langur eftir. Sem persóna áttir þú stórt skap, varst stríðin og vildir heiðarleika og réttlæti, en húmor áttirðu og varst alltaf dugleg að bjarga þér. En þetta voru erfiðir þrír mánuðir sem við áttum þegar þú varst svona mikið veik. Stundum var ég að gefast upp, elsku mamma mín, en ég lofa að vera sterk, þó tóm- leikinn sé mikill og minningar vakni frá því að við vorum Öll sam- an. En ég er þakklát fyrir bróður- synina tvo og fjölskyldu þeirra sem hafa hjálpað mér oft. Og svo 12. aprfl á páskadag versnaði þér mik- ið. Ég er Guði þakklát fyrir að hafa getað verið hjá þér síðasta augna- blikið. Það var ró og friður hjá okk- ur þessa síðustu stund og ég er þakklát Guði að leyfa þér að fá hvíld og lina þjáningar þínar. Nú ertu hjá þínum ástvinum á himnasæng. Ég kveð þig, mamma mín. Drottinn blessi þig. Ég vil þakka Dadda frænda fyrir alla umhyggju og stuðning og öllum sem komu og hugsuðu til okkar. Þín dóttir, Hildur Hjálmarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.