Morgunblaðið - 19.04.1998, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 19. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
;í
I
I
i
Baldvin Vilhelm
Jóhannsson fædd-
ist á Hóli í Fjörðum
16. október 1919.
Hann lést á heimili
sínu, Hrafnistu í
Reykjavík, hinn 11.
apríl síðastliðinn. For-
eldrar hans voru Jó-
hann Sigurðsson og
Sigríður Jónsdóttir.
Eftirlifandi systkini
Baldvins ei-u Ingi-
björg, Garðar, Sigur-
^laug og Hjörleifur, en
látin eru Sigurður,
Margrét, Ingólfur,
Magnús og Jónina
Hólmfríður.
Baldvin kvæntist Kristínu Snæ-
björnsdóttur 20. mars 1952, en
hún lést 29. apríl 1989. Varð þeim
Baldvin Jóhannsson lést 11. apríl
sl. Hann var afskaplega léttur í lund
og allir vildu vináttu hans eiga. Minn-
ingar eru svo margar og góðar að við
komum til með að lifa með þeim um
ókomna tíð. Síðustu ár ævinnar þjáð-
ist Baldvin af erfiðum sjúkdómi og
þurfti mikla aðstoð frá degi til dags,
en starfsfólk og hjúkrunarfólk á deild
E-2, Hrafnistu, hugsaði um hann
>S<eð qeinstakri ástúð og nærgætni til
hinstu stundar og var hann þeim
þakklátur fyrir.
Elsku bróðir, við systkinin áttum
margar glaðar stundir með þér bæði
utanlands og víðar. Þú varst svo
söngelskur og kátur hvar sem þú
varst. Við spiluðum mikið saman og
oft var gaman að koma tO ykkar
engra barna auðið, en
sonur Kristínar frá
fyrra hjónabandi er
Halldór Ágústsson.
Börn hans eru Sigur-
jón, Linda Björg og
Kristín Ásta. Dóttir
Kristínar Ástu er
Diljá Catherine Þið-
riksdóttir. Baldvin
ólst upp í Fjörðum til
10 ára aldurs. Hann
fluttist til Reykjavík-
ur 1955. Hann lauk
meistaraprófi í kjöt-
iðn 1968 og starfaði í
um 40 ár hjá Sláturfé-
lagi Suðurlands sem
deildarstjóri niðursuðudeildar.
Útfór Baldvins fer fram frá Ás-
kirkju mánudaginn 20. aprfl og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Kristínar á Hjallaveginum. Það væri
svo margt sem hægt væri að rifja
upp. Það er mjög sárt að sjá á eftir
ykkur systkinum og mökum á örfá-
um árum, en minningarnar lifa og þú
verður hjá okkur þótt þú sért farinn.
Hafðu þökk fyrir allt og ég veit þér
líður vel þar sem þú ert laus við allar
þær þjáningar sem þú máttir þola.
Guð varðveiti þig, elsku bróðir.
Fyrir hönd okkar systkinanna og
fjölskyldna,
Ingibjörg Jóhannsdóttir.
Elsku besti Villi afí minn.
Fregnin af veikindum þínum og
andláti olli mér mikilli sorg og mér
leið illa að vera svona langt í burtu
frá þér. Söknuður og tómleiki umlék
mig og margar fallegar og góðar
minningar komu upp í huga mér. Ég
er þakklát fyrir það að við systurnar
vorum í símasambandi og ég fékk að
fylgjast með síðustu stundum þínum.
Þegar ég kom til þín í mars síðast-
liðnum grunaði mig ekki að það yrðu
okkar síðustu stundir saman.
Kannski hef ég samt sem áður vitað
það í undirmeðvitundinni því ég
kvaddi þig svo vel og minnti þig á
hversu mikið ég elska þig. Það
reyndist mér erfítt að fara frá þér
síðasta daginn áður en ég fór til Sví-
þjóðar. Ég kom til íslands eins oft og
ég gat og ég hlakkaði alltaf til að
hitta þig. Endurfundir okkar voru
alltaf ánægjulegir og yndislegir. Þá
rifjuðum við upp margar liðnar
stundir eins og til dæmis þegar þú
kenndir mér að veiða og þú þræddir
ánamaðkinn á öngulinn því það gat
ég ómögulega gert. Og einnig þegar
við spiluðum saman ólsen ólsen eða
matador og þú leyfðir mér stundum
að vinna spilin svo ég yrði ekki sár.
Og ekki má gleyma öllum ferðalög-
unum sem þú, ég og amma Stína fór-
um saman. Það var alltaf svo gott að
koma á Hjallaveginn til ykkar ömmu
Stínu. Alltaf gátum við brallað eitt-
hvað saman og léttleiki þinn og glað-
værð var aldrei langt undan. Mér er
minnisstætt hversu mikill dýravinur
þú varst, og hvað þú varst hrifinn af
kisunni minni, henni Bonný, sem
fékk líka að gista hjá ykkur ömmu
Stínu af og til. Ég er mjög þakklát
fyrir að ég fékk að kynnast þér og
fyrir þann stuðning sem þú veittir
mér alla tíð. Ég trúi því að þér líði vel
núna, elsku Villi afi minn, og_ að þú
sért sáttur við allt og alla. I huga
mínum verður þú alltaf hjá mér, eins
og þú hefur alltaf verið.
Þín
Linda Björg.
Elsku besti Villi afi.
Nú hefur þú fengið langþráða hvíld
og ég get ekki annað en samglaðst
þér, þó ég finni fyrir tómleika og
söknuði inni í mér. En ég vil trúa því
að nú sért þú kominn til ömmu Stinu
aftur og þar eru engir hjólastólar.
Þessi trú veitir mér styrk nú. Þegar
ég sat hjá þér síðustu dagana svo
veikum rifjuðust um margar fallegar
og skemmtilegar minningar, þær
runnu í gegnum huga mér líkt og
kvikmynd og þá fengu tárin að renna
óhindrað.
Ég mun alltaf minnast ferðalag-
anna sem ég fór með þér og ömmu
Stínu á hverju sumri þegar ég var
lítil. Þær ferðir voru alltaf mikið til-
hlökkunarefni fyrir mig og aldrei
brugðust væntingar mínar. Þessi
ferðalög okkar saman voru bæði
skemmtileg og fræðandi, því bæði þú
og amma voruð dugleg að fræða mig
um þá staði sem við heimsóttum.
Með ykkur kynntist ég fallega land-
inu okkar með öllum sínum lit- og
veðrabrigðum. Ég man svo vel eitt
sinn, í roki og rigningu og varla
stætt úti, þegar ég harðneitaði að
gista hjá ættingjum. Þið komuð til
móts við þessa ósk mina, því þið
skilduð mig svo vel. Þú, afi minn, lést
þig hafa það að fara út í rokið og
tjalda tjaldinu og einhvemveginn
tókst þér það, en ekki stóð það lengi
uppi, við vorum ný lögst til hvílu
þegar rokið reif það ofan af okkur og
ekki var um annað að ræða en að
gista innan dyra. Á þessum ferðalög-
um heimsóttum við marga ættingja
og vini og við heimsóttum líka allar
kirkjur sem urðu á vegi okkar. Alltaf
fannst mér jafn fallegt að koma inn í
þær og ófáar eru myndirnar af mér
standandi við altari í hinum ýmsu
kirkjum landsins. Uppáhaldskirkjan
okkar var Grundartórkja og mér
fannst og finnst enn í dag hún vera
BALDVIN VILHELM
JÓHANNSSON
+
^ Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
HALLBJARGAR TEITSDÓTTUR,
Bjarkargrund 3,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks A-deildar
Sjúkrahúss Akraness fyrir góða umönnun.
Helgi Jónsson,
Áslaug Helgadóttir, Gunnar Guðmundsson,
Jón Helgason, Sigríður K. Valdimarsdóttir,
Sigrfður Helgadóttir, Ólafur Þorsteinsson,
Helgi Teitur Helgason, Guðrún Hildur Pétursdóttir
og barnabörn.
TSk
SIGURÐUR KRISTJÁN
GISS URARSON
+ Sigurður Krislján Gissurar-
son fæddist á Byggðarhomi í
Sandvíkurhreppi 21. nóvember
1918. Hann lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 4. aprfl síðastliðinn
og fór útfor hans fram frá Landa-
kirkju 18. apríl.
„Hvað er að frétta?“, „Dj... var
þetta góður leikur í gær!“ og íleiri
athugasemdir í þessum dúr eru mér
minnisstæðar þegar ég rita þessar
fáu línur um góðan vin minn sem
fallinn er frá. Sigurður Kristján
Gissurarson eða Siggi Giss, eins og
allir þekktu hann, er fallinn frá eftir
stutt veikindastríð og talsvert um
aldur fram.
Siggi var einn af þessum föstu
póstum í tilverunni sem hressa upp
á bæjarlífið með því að vera til og
koma til dyranna eins og þeir eru
klæddir. Hann var mikill áhugamað-
ur um íþróttir og bar þar knatt-
spyrnuna hæst, enda kynntist ég
manninum í gegnum hans brenn-
andi áhuga á IBV og Eyjunum.
Hann hafði ákveðnar skoðanir á
hlutunum hvort sem þar var um að
+
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
AÐÓLFS FRIÐFINNSSONAR
frá Skriðu f Hörgárdal,
Hraunbæ 103,
Reykjavík.
Sigríður Jónsdóttir,
Steinunn Aðólfsdóttir, Páll Ó. Hafliðason,
Emil Aðólfsson, Margrét Árnadóttir,
Pálína H. Aðólfsdóttir, Jakob Ólafsson,
Jóna A. Aðólfsdóttir, Reynir Karlsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdámóðir, amma og
langamma,
SIGURBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
mánudaginn 20. apríl kl. 13.30.
Guðrún Ólafía Sigurgeirsdóttir,
Guðjón Viðar Sigurgeirsson, Sigrún H. Jóhannesdóttir,
Sigmundur Sigurgeirsson, Guðný Guðnadóttir,
Helga Sigurgeirsdóttir, Jón Berg Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall elskulegs eiginmanns Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og
mlns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ALBERTS ÞORBJÖRNSSONAR, SVERRIR S. EINARSSON L J" JjpF
Arnarsmára 8, rektor Menntaskólans við Hamrahlfð,
Kópavogi. Drápuhlfð 40, \ M/
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju, miðvikudaginn
Laufey Þorleifsdóttir, 22. apríl kl. 13.30. '^11
Hreiðar S. Albertsson, María Olgeirsdóttir, Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeir sem vilja minnast
Sigurlaug Albertsdóttir, Eyþór Þórarinsson, hans láti heimahlynningu Krabbameinsfélagsins njóta þess.
Guðrún Albertsdóttir, Hákon E. Farestveit,
Elfn Albertsdóttir, Ásgeir Tómasson, Karólfna Hulda Guðmundsdóttir,
Þorbjörg Albertsdóttir, Leópold Sveinsson, Helga Sverrisdóttir, Hildur Sverrisdóttir,
Guðrún Egilsdóttir, Bjarni Kjartansson, Guðmundur Sverrisson, Kristfn Sverrisdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn. Einar Sigurjónsson.
fallegasta kirkja sem ég hef séð og
sjö ára gömul sagði ég ykkur ömmu
að í þessari tórkju ætlaði ég að gifta
mig. Það heit hef ég ekki staðið við
ennþá, en hver veit! Á ferðalögum
okkar var veiðistöngin ómissandi
ferðafélagi og þý nýttir hvert tæki-
færi til að renna fyrir silung og auð-
vitað kenndir þú mér handbrögðin.
Seinna fórst þú að veiða lax og það
fannst þér alltaf meira spennandi.
Þegar þú komst heim úr veiðitúrun-
um sagðir þú okkur ömmu Stínu
skemmtilegar veiðisögur og stund-
um skreyttir þú þær svolítið til að
hafa þær enn meira spennandi og við
amma tómdum til hvor annarrar og
létum sem við tryðum þessu öllu
saman.
Það var aldrei langt í grínið og
glensið hjá þér, afi minn, og þú
elskaðir að syngja og dansa. Oft sát-
um við saman ég og þú og sungum
inn á segulbandið mitt og stundum
kom amma og söng líka með. Þetta
fannst mér alltaf jafn skemmtilegt og
ég lét sem ég væri fræg söngkona
með hljóðnema og allt og þú tókst
fullan þátt í þessum leik. Eg man líka
vel hversu glaður þú varst þegar ég
sagði þér fyrir 9 árum að ég ætti von
á barni, enda varst þú svo barnelskur
og þú hlakkaðir mitóð til að verða
langafi. Þú varst henni Diljá minni
góður langafi og hún mun sakna þín
sárt.
Elsku Villi afi minn, ég á þér svo
margt að þakka, engin orð megna að
lýsa líðan minni nú, en ég veit að þú
og amma Stína verðið alltaf hjá okk-
ur Diljá eins og þið hafið alltaf verið.
Ég votta eftirlifandi systkinum þín-
um samúð mína og einnig vil ég
þakka starfsfóltó á deild E2 á Hrafn-
istu fyrir alúð í þinn garð og góða
umönnun.
Þín
Kristín.
ræða áhugamálin eða tilveruna og
var alltaf hreinn og beinn. Því var
alltaf mjög gaman að hitta Sigga á
fömum vegi og var honum mikið í
mun að fylgjast vel með undirbún-
ingi okkar í knattspyrnunni ár hvert
°g fylgja því svo eftir með góðum
leiðbeiningum og mitólli hvatningu á
sumrin. Ef honum fannst ástandið
ektó nógu gott þá hringdi hann
ósjaldan og þá voru málin krufin
hvort sem vel eða illa gekk.
Á síðasta sumri náðum við í ÍBV
að landa titlinum stóra eftir 18 ára
bið og gladdi það gamla manninn
mikið, enda var hann mjög dugleg-
ur að fylgja liðinu í útileikina, hvort
sem farið var í Grindavík, Akranes
eða í höfuðborgina. Þar voru bama-
börnin dugleg að fylgja honum og
sá maður hvað hann fékk mitóð út
úr þessum ferðum. Er ég ektó frá
því að eftir að hann missti lífsföru-
naut sinn þá hafi knattspyrnan ver-
ið hans mál númer eitt, tvö og þrjú.
Því var það ánægjulegt að Siggi
skyldi lifa þann dag að nýju að sjá
titilinn heima í Eyjum.
Sigga verður sárt saknað hvar
sem er í bænum, því hann var víð-
förall alla daga um bæjarfélagið og
tók púlsinn á bæði mönnum og mál-
efnum. Hann mun nú hverfa á vit
nýrra ævintýra og hitta þar fyrir
mæta menn, unga sem aldna, sem
bára hag knattspyrnunnar í Eyjum
fyrir brjósti. Viss er ég um að vinur
mínn Siggi mun þar fylgjast vel
með knattspyrnunni sem fyrr og
vera þar í stúkusæti ásamt hinum
áhugamönnunum og styðja liðið á
ögurstund.
Aðstandendum sendi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur og
kveð hér minn góða vin sem gaf líf-
inu aukið gildi með því að vera hann
sjálfur og bera umhyggju fyrir
mönnum og málefnum.
Ingi Sigurðsson.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Pað eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.