Morgunblaðið - 19.04.1998, Page 10

Morgunblaðið - 19.04.1998, Page 10
10 SUNNUDAGUR 19. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ Á fyrsta starfsári sínu kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp 36 úrskurði .. opna fyrir Páli Á fyrsta starfsári úrskurðarnefndar um upplýsingamál kvað hún upp 36 formlega úrskurði og þar reyndi á mörg atriði laganna. Ragnhildur Sverrisdóttir kynnti sér starf nefndarinnar, sem hefur skýrt undanþáguákvæði upplýsingalaganna þröngt og leitast þannig við að tryggja eins rúman upplýsingarétt og önnur ákvæði laganna framast leyfa. UPPLÝSINGALÖG tóku gildi 1. janúar 1997, eftir nokkuð erfíða fæðingu. Þingsályktunartillaga um upplýsingaskyldu stjómvalda kom fyrst fram á þingi árið 1969 og var samþykkt þegar hún var flutt þriðja sinni árið 1972. Þegar Davíð Oddsson forsætisráðherra mælti árið 1996 fyrir frumvarpi því, sem síðar varð að upplýsingalögum, sagði hann að það væri í sjötta skipti sem stjómarfrumvarp þessa efnis væri lagt fyrir Alþingi til efn- islegrar meðferðar. Forsætisráð- herra vísaði til þess, að áform um setningu reglna af þessu tagi hefðu verið boðuð í málefnasamningum og stefnuyfírlýsingum allra ríkis- stjórna sem setið hefðu frá 1988 og umboðsmaður Alþingis hefði hvatt til slíkrar lagasetningar. Fyrri frumvörp hefðu þó sætt gagnrýni, sem virtist einkum hafa beinst að samspili meginreglu þeirra um óheftan aðgang að opinbemm gögnum við þær undanþágur sem gera þyrfti og hversu víðtækar þær þyrftu að vera. Minna hefði hins vegar farið fyrir umræðu um þjóðfélagslega nauðsyn lagareglna sem þessara og hvert markmið þeirra ætti að vera. „Það hefur til skamms tíma einkennt og að ég hygg bagað stjórnsýslu hins opin- bera að starfslið þess hefur ekki búið að settum reglum um aðgang að upplýsingum í vörslu stjóm- valda og virðist reyndar vera al- gengara að starfsskilyrði þeirra séu vörðuð á hinn veginn með þagnarskylduákvæðum, ýmist al- menns eðlis eða um sérgreind til- vik,“ sagði forsætisráðherra, þegar hann mælti fyrir framvarpinu og einnig: „Ein forsenda þess að unnt sé að tala um lýðræðislega stjórn- arhætti er sú að borguram sé gert kleift að fylgjast með og kynnast athöfnum og starfsemi þeirra stofnana sem reknar era í almenn- ingsþágu." Tryggir samræmi í framkvæmd laganna Lögin litu svo dagsins ljós og í samræmi við 5. kafla þeirra var skipuð úrskurðarnefnd um upplýs- ingamál. Til hennar kasta kemur ef sá sem óskar aðgangs að gögnum sættir sig ekki við synjun stjóm- valds þar að lútandi. I greinargerð með frumvarpi til upplýsingalaga sagði, að þessi háttur væri fallinn til að auka réttaröryggi og skil- virkni á þessu sviði, þar sem al- menningi gæfíst þá færi á að skjóta synjun um aðgang að upplýsingum með einföldum og skjótum hætti til úrskurðar sjálfstæðrar og óháðrar nefndar, auk þess sem vænta mætti að þetta fyrirkomulag væri til þess fallið að tryggja samræmi í framkvæmd laganna. Forsætisráðherra skipaði úr- skurðamefndina í desember 1996. Formaður nefndarinnar er Eiríkur Tómasson lagaprófessor við Há- skóla íslands og aðrir nefndarmenn era Valtýr Sigurðsson héraðsdóm- ari í Reykjavík og varaformaður nefndarinnar og Elín Hirst frétta- maður. Varamenn þeirra era Stein- unn Guðbjartsdóttir héraðdómslög- maður, Sif Konráðsdóttir héraðs- dómslögmaður og Ólafur E. Frið- riksson blaðamaður. Nefndarmenn era skipaðir til fjögurra ára í senn. Nefndin fékk strax nóg að iðja og á fyrsta árinu kvað hún upp 36 formlega úrskurði. Hún veitti að- gang að gögnum í 12 málum, að- gang að hluta í 11 málum, vísaði 5 kæram frá, staðfesti synjun í 6 til- fellum og í tveimur málum taldi hún stjómvaldi ekki skylt að verða við beiðni um aðgang. Að auki af- greiddi nefndin 19 mál án úrskurð- ar, til dæmis þar sem þau féllu ut- an starfssviðs hennar, m.a. vegna þess að synjun stjómvalds um að- gang að gögnum lá ekki fyrir þegar kært var, eða kærendur féllu frá kæru, þar á meðal vegna þess að stjórnvöld urðu við beiðni um að- gang að gögnum eftir að kæra var lögð fram. Oftast vora synjanir ráðuneyta kærðar, en ríkisstofnanir og sveit- arfélög komu einnig við sögu. Þar sem úrskurðir nefndarinnar era enn tiltölulega fáir er ekki hægt að draga ályktanir um að eitt stjórn- vald standi sig öðra ver við að framfylgja upplýsingalögum. Þögn stjórnvalds frestar ekki úrskurði Eiríkur Tómasson fjallaði um fyrsta starfsárið á morgunverðar- fundi Félags lögfræðinga í lok janúar. Hann sagði að nefndin legði áherslu á að afgreiða erindi sem henni bærust fljótt og vel, en dráttur á einstaka máli skýrðist einkum af óskýrum málatilbúnaði. Fjöldi máia, sem hefðu borist frá fjölmiðlum, hefði ekki komið á óvart, en hins vegar hefði sá fjöldi mála, sem vísað hefði verið til nefndarinnar frá öðrum aðilum, verið óvæntur og á tímabili hefði álag á nefndina verið mjög mikið. Þá sagði hann, að stjórnvöld hefðu ekki virt sem skyldi það ákvæði upplýsingalaganna að skýra frá ástæðu tafa og hvenær ákvörðunar um aðgang að gögn- um væri að vænta, hefði hún ekki verið tekin innan sjö daga frá því að beiðni barst. Hann sagði að því miður virtist hafa komið fyrir að stjórnvöld drægju að gefa skýr svör og nefndin hefði tekið upp þá vinnureglu að hefðu stjórnvöld ekki svarað erindi innan sjö daga frestsins hefðu þau í raun synjað um aðgang. Nefndin tæki mál þá til úrskurðar á þeim grunni. Loks sagði formaðurinn að verulegur misbrestur væri á því að stjórnvöld leiðbeindu fólki sem sneri sér til þeirra varðandi upp- lýsingar um rétt þess, væri beiðni hafnað, þótt skýr ákvæði um leið- beiningarskyldu stjórnvalda væru í stjórnsýslulögum. Tekist á um form og efni En hvers konar mál hafa komið til kasta nefndarinnar? Þegar úr- skurðir fyrsta starfsárs hennar eru skoðaðir kemur í ljós að reynt hefur á margt í upplýsingalögun- um, bæði að því varðar form og efni. Til dæmis hefur verið fjallað um skilin á milli stjórnsýslulaga annars vegar og lög um skráningu og meðferð persónuupplýsinga hins vegar, en í upplýsingalögum er tekið fram að þau gildi ekki um aðgang að þeim upplýsingum sem fyrrnefndu lögin tilgreina. Nefndin hefur einnig þurft að taka á því hve víðtæk beiðni getur verið. I lögunum er gert ráð fyrir að hún sé einskorðuð við skjöl í einu máli eða tiltekin skjöl. Ur- skurðarnefndin hefur skýrt þessi ákvæði fremur þröngt, þ.e. ekki talið að biðja mætti um aðgang að tugum eða hundruðum skjala. Þótt hægt væri að ráða af beiðn- inni hvaða skjöl átt væri við yrðu menn að vera markvissari þegar um væri að ræða skjöl úr mörgum málum. Af öðrum málum, þar sem reynt hefur á form frekar en efni, má nefna úrskurði nefndarinnar þar sem kemur fram sú afstaða hennar að svari stjórnvöld ekki innan sjö daga teljist þau hafa hafnað beiðni, eins og áður er nefnt. Þrengjandi lögskýring Nefndin hefur tekið þann kost- inn í úrskurðum sínum að skýra þröngt undantekningar frá meg- inreglum laganna um aðgang að gögnum. Sem dæmi má nefna, að í 3. tölulið 4. greinar laganna eru vinnuskjöl, sem stjórnvald hefur ritað til eigin afnota, undanþegin upplýsingarétti. Þar er að vísu tekið fram að veita skuli aðgang að vinnuskjölum ef þau hafi að geyma endanlega ákvörðun um afgreiðslu máls eða upplýsingar sem ekki verði aflað annars stað- ar frá. Þessa lagagrein hefur úr- skurðarnefndin skýrt þannig, að ef sérfræðingar utan stofnana eru beðnir að taka saman skjöl þá falli þau ekki undir hugtakið „vinnu- skjöl“ og skipti þá engu þótt þau séu merkt þannig. Sem dæmi um slíkan úrskurð má nefna, að menntamálaráðuneytið synjaði um aðgang að skýrslu um Þjóð- minjasafn Islands, á þeim grund- velli að um vinnuskjal væri að ræða, ætlað ráðuneytinu til eigin afnota. Úrskurðarnefndin taldi að hið umbeðna skjal hefði ekki að- eins verið ætlað til afnota fyrir ráðuneytið, heldur einnig fyrir formann þjóðminjaráðs. Þjóð- minjaráð hefði verið sjálfstætt stjórnvald og þar með teldist skjalið ekki vinnuskjal samkvæmt hinni þröngu skilgreiningu lag- anna. A sama hátt hefur nefndin túlk- að þröngt ákvæði 6. greinar lag- anna, sem takmarkar upplýsinga- rétt vegna almannahagsmuna. Nefndin hefur ekki talið skipta máli þótt viðkomandi stjórnvald álíti upplýsingar varða t.d. sam- skipti við önnur ríki eða fjölþjóða- stofnanir, viðskipti stofnana og fyrirtækja í eigu ríkis eða sveitar- félaga að því leyti sem þau eru í samkeppni við aðra, eða fyrirhug- aðar ráðstafanir eða próf á vegum ríkis eða sveitarfélaga. Nefndin hefur lagt eigið mat á þetta, skýrt ákvæðið þröngt og nokkrum sinn- um hafnað skýringum stjórnvalda á því að umbeðnar upplýsingar falli undir greinina. I fimm tilvikum á síðasta ári kom mál sem vörðuðu viðskipti stofnana og fyrirtækja í eigu ríkis eða sveitarfélaga til kasta nefnd- arinnar. Sem dæmi má nefna að nefndin hafnaði aðgangi að sam- komulagsdrögum milli Súðavíkur- hrepps, Landsbanka Islands og

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.