Morgunblaðið - 19.04.1998, Page 18
18 SUNNUDAGUR 19. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Lífeyrissj óðurinn Framsýn
Ársfundur Lífeyrissjóðsins Framsýnar verður
haldinn á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn
29. apríl 1998 og hefst kl. 17:00.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Breytingar á reglugerð sjóðsins.
3. Önnur mál löglega upp borin.
Allir greiðandi sjóðfélagar, svo og elli- og
örorkulífeyrisþegar sjóðsins, eiga rétt til setu á
ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Þeir
sjóðfélagar sem hyggjast nýta sér þennan rétt eru
beðnir að tilkynna það skrifstofu sjóðsins eigi síðar
en 24. apríl nk. og munu þeir þá fá fundargögn við
setningu fundarins.
Þeir sjóðfélagar sem vilja kynna sér tillögur til
breytinga á reglugerð sjóðsins sem lagðar verða fram
á fundinum geta fengið þær afhentar á skrifstofu
sjóðsins eða fengið þær sendar í pósti með því að "
o
hafa samband við skrifstofu sjóðsins. |
<
Reykjavík 10. apríl 1998
Stjórn Lífeyrissjóðsins Framsýnar
LÍFEYRISSJÓÐURINN FRAMSÝN
LISTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRÁ verðlaunaafhendingunni. Ragnheiður Torfadóttir, rektor MR, Lára Bryndís Eggertsdóttir,
Sverrir Teitsson og Hreggviður Ingason.
Verðlaun í ritgerða-
samkeppni í minningu
Pálma rektors
VERÐLAUN í ritgerðasam-
keppni sem Minningarsjóður
Pálma Hannessonar, rektors
Menntaskólans í Reykjavík 1929-
1956, efndi til voru veitt fyrir
helgi. Tilefni samkeppninnar var
að á þessu ári eru eitt hundrað
ár liðin frá fæðingu Pálma og
var efnið einkum á sviði /slenskr-
ar náttúrufræði, en Pálmi var
náttúrufræðingur og mikilvirkur
á því sviði sem öðrum.
Þrenn verðlaun voru veitt og
komu 1. verðlaun, 60.000 kr., í
hlut Sverris Teitssonar sem er
nemandi í 3. bekk. Sverrir skrif-
aði undir dulnefninu Logi Jökuls-
son og bar ritgerðin titilinn
„Þegar eldhjartað slær“ og fjall-
ar um eldsumbrot í Vatnajökli.
Hann fléttar saman jarðfræði,
sögu og þjóðlífi í fortíð, nútíð og
framtíð og íjallar um umhverfis-
áhrif eldgosa og stórflóða og
rannsóknir á þeim.
Lára Eggertsdóttir í 5. bekk
náttúrufræðideildar og Hregg-
viður Ingason í 6. bekk náttúru-
fræðideildar skiptu með sér 2. og
3. verðlaunum fyrir ritgerðir sín-
ar „Hver á sér fegra fóðurland"
sem íjallar um nýtingu og ofnýt-
ingu lands og „Uppruni manns-
ins“ sem fjallar um þróunarsögu
mannsins frá upphafi.
Minningarsjóður Pálma rektors
var stofnaður af kennurum og
nemendum skólans ásamt fleirum
eftir sviplegt fráfall Pálma. Venja
er að veita verðlaun úr sjóðnum
við skólauppsögn.
Verðlaunaafhendingin fór
fram á Háti'ðasal Menntaskólans í'
Reykjavík að viðstöddum að-
standendum Pálma, kennurum
og nemendum. Magnús Magnús-
son prófessor minntist Pálma
Hannessonar og Rut Ingólfsdótt-
fir fiðluleikari, sem hlaut á sínum
tíma verðlaun úr sjóðnum, lék á
fiðlu. Kór Menntaskólans í
Reykjavík undir sljórn Marteins
H. Friðrikssonar söng lag eftir
Þorkel Sigurbjörnsson tónskáld
sem einnig hlaut verðlaun úr
sjóðnum á sínum tíma.
Sumargleði
IBBY í
Norræna
húsinu
SUMARGLEÐI Barnabóka-
ráðsins, íslandsdeildar IBBY,
verður haldin í Norræna hús-
inu sumardaginn fyrsta og
hefst klukkan 14. Þar verða
árlegar viðurkenningar fé-
lagsins veittar fyrir menning-
arstarf í þágu bama og ung-
linga.
Einnig verða veitt verð-
laun í smásagna- og ljóða-
samkeppni fyrir börn, sem
nokkur almenningsbókasöfn
efndu til, í minningu Halldórs
Laxness. í framhaldi af því
munu nokkur ungskáld á
aldrinum 6-16 ára lesa úr
verkum sínum.
Yngri deild í Skólahljóm-
sveit Mosfellsbæjar leikur
undir stjóm Birgis D. Sveins-
sonar skólastjóra Varmár-
skóla. Ingólfur Steinsson leið-
ir og leikur undir almennan
söng.
Aðgangur er ókeypis.
KOMDU ÞÉR Í FORM MED
Listasafn fslands á degi bókarinnar
púlsmæli
SMART EDGE 1 PROTRAINER XT i XTRAINER PLUS
Púlsmælir sem sýnir kalonu-
eyðslu við þjálfun. Stillir sig
sjálfur inn á þín eigin þjálfunar-
mörk. Hentar vel fyrir þá sem
berjast við aukakílóin.
Púlsmælir fyrir hjólreiðafólk.
Sýnir hraða og vegalengd (sér-
stakur skynjari) auk þess að vera
púls-mælir, klukka m/dagatali og
skeiðklukka.
FuIIkominn reiðhjóla-mælir með
hraða, vegalengd, tima, pedal-
snúninga, (cadence), púls, klukku
og dagatali. Tæplega 6 klst minni
sem er yfirfæranlegt í tölvu.
f>wLAS9.
heart rate monltora
púlsmælar
Helstu söluaðilar á »*• eru:
ÓLAFSS0N eht
íþróttavörur
Trönuhrauni 6 220 Hafnarfirði
Sfmi 5651533
Fax 5653258
Guðmundur B. Hannah Akranesi, Vestursport ísafirði, Halldór Ólafsson Akureyri, Austfirsku Alpamir Egilsstöðum, Flúðasport
Flúðum, Styrkur Selfossi, Hressó Vestmannaeyjum, Sportbúð Óskars Keflavík, Reykjavík: fþrótt, Markið, Sporthús Reykjavíkur
Útilíf, Sport-Kringlan, Ingólfsapótek, World Class, Intersport.
Hreysti Skeifunni og Fosshálsi
Njála lesin
spjaldanna á milli
EFNT verður til upplesturs á
Njálu í Listasafni Islands á degi
bókarinnar sem haldinn verður
hátíðlegur í þriðja sinn á
fimmtudaginn kemur, 23. aprfl.
Öll sagan verður lesin. Jón
Böðvarsson, íslenskufræðingur,
hefur lesturinn klukkan níu að
morgni en si'ðan tekur hver við
af öðrum og eru allir velkomnir
að vera með. Handrit með góðu
letri verður á staðnum, en les-
arar mega koma með sína eigin
Njálu ef þeir vilja, og vilji
erlendir gestir taka þátt lesa
þeir þýðingu á sínu móðurmáli.
Búist er við að lesturinn standi
í' fjórtán klukkutíma.
Gestir sem þátt taka í lestr-
inum geta skráð nafn sitt í
sérstaka gestabók sem liggja
mun frammi, en auk nafns er
einnig leyfllegt að skrifa
stuttan þanka um Njáls sögu.
Þessi gestabók verður svo
bundin inn og varðveitt á
vi'sum stað.
Njálulesturinn er einn af
fjölmörgum viðburðum sem
stjórn Bókasambands íslands
gengst fyrir þennan dag og
hafa fulltrúar Hagþenkis,
félags höfunda fræðirita og
kennslugagna, þeir Gísli Sig-
urðsson og Magnús Guðmunds-
son, umsjón með lestrinum.
Kór Tónlistarskólans
syngur í Grensáskirkju
KÓR Tónlistarskólans í Reykja- Hjálmar H. Ragnarsson. Stjórn-
vík syngur í Grensáskirkju andi kórsins er Marteinn H.
þriðjudaginn 21. apríl kl. 20.30. Friðriksson. Einnig syngja og
Á efnisskrá eru lög eftir Þor- stjórna nemendur úr Tón-
kel Sigurbjörnsson, Jón Leifs og menntakennaradeild.