Morgunblaðið - 19.04.1998, Síða 25

Morgunblaðið - 19.04.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. APRÍL 1998 25 vettvangsnám, starfi við söfnin á sumrin eða samhliða námi. „Áður- nefnd könnun er gott dæmi um samstarf háskólanema og bóka- safna því það voru tveir nemar, Brynhildur Frímannsdóttir og Ragnhildur Helgadóttir, sem unnu hana. Nemarnir hafa flestir áhuga á tækninni sem slíkri en þegar þeir koma á vettvang upp- götva þeir að það felst sitthvað fleira í starfinu. Kannski væri ráð að kenna bókasafns- og upplýs- ingafræði sem viðbót við annað nám líkt og tíðkast sums staðar,“ leggur Anna til. „Þá hefði fólk grunnmenntun í sagnfræði, bók- menntum, mannfræði eða öðrum fögum sem leiddi til fjölbreyttari þekkingar inni á söfnunum. í Bandaríkjunum er t.d. algengt að bókasafnsfræði sé meistaranám ofan á BA-gráðu í öðru fagi sem er að mínu viti ágætt fyrirkomulag. Því má svo ekki gleyma að reynsla og áhugi eru ekki síður mikilvægir eiginleikar en góð menntun." Treyst um of á tðlvur Anna er að eigin sögn tæknilega sinnuð en leggur áherslu á að bókasöfn varðveiti mannlega þátt- inn. „Tækniþróun er í veldisvexti og hefur þegar gjörbreytt starfs- umhverfinu. Enn eru breytingar í augsýn og það er í raun fullt starj að fylgjast með þróun upplýsinga tækninnai-. En það er ekki alli fengið með tækni og vísindum hingað munu gestir áfram koma til þess að handleika bækumar sínai og við verðum að hlúa að þeirri hlið þjónustunnar.“ Hún bendir á að tölvutæknin sé ekki markmið í sjálfu sér heldur leið að öðram markmiðum. „Það er svolítið merkilegt að allar þær at- huganir sem gerðar hafa verið á gæðum upplýsingaþjónustu leiða það sama í ljós: Fólk treystir um of á tölvurnar og lítur ekki í viðeig- andi handbækur uppi í hillu. Það vill gleymast að stór hluti upplýs- inga er ennþá í bókum.“ Utgáfa efnis á tölvutæku formi fer þó vaxandi. Að sögn Önnu sjá forlög oft um slíkar útgáfur en bókasöfn koma í sumum tilfellum nærri. „Algengt er að gefa út greinar í tímaritum, kort, myndir, handrit og a.m.k. sýnishorn af bókmenntaverkum á tölvutæku formi. Sumt af þessu „framefni“ er í eigu safna, skjala-, lista-, ljós- mynda- eða bókasafna, og hefur ekki verið aðgengilegt öðram en útvöldum sérfræðingum. Með því að færa efnið á tölvutækt form geta allir notið þess. Hugmyndin er að koma upplýsingum um safn- kost íslenskra bókasafna í eitt kerfi sem yrði opnað almenningi á veraldarvefnum. Þá gæti hver lán- þegi séð í heimilstölvunni sinni hvort bókin sem hann langar að lesa væri inni áður en hann rölti út á safn.“ • SJÁ NÆSTU SÍÐU Hugsar þú stundum umframtíðina? Kysir þú að hafa betri stjórn á henni? Er það hœgt? Peningar tryggja ekki hamingjuríka framtíð. En þeir geta gert hana öruggari, skemmtilegri og auðveldari. Getum við hjá VÍB aðstoðað þig? Þjónusta okkar er nú fjölbreyttari og metnaðarfyllri en nokkru sinni fyrr.Við leggjum okkur fram um að aðstoða viðskiptavini okkar við að ávaxta fjármuni sína sem best og byggja mark- visst upp eignir fyrir framtíðina. Hvort sem þú hefur háar eða lágar tekjur, átt töluverðar eignir eða ert rétt að byrja að spara, hjálpum við þér að fmna réttu leiðina fyrir þig. Við leggjum áherslu á að hugsa fram í tímann og skipuleggja ávöxtun fjármunanna vel, því þannig verður árangurinn bestur. Verið velkomin í VIB, til verðbréfafuíltrúa í útibúum Islatidsbanka og á heimasíðu okkar, www.vib.is Kirkjusandi • Sími 560 89 00 • Myndsendir: 560 89 10 • Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.