Morgunblaðið - 09.08.1998, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ 4 SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 1998 33
MINNINGAR
I
I
]
I
I
!
1
I
I
I
I
I
!
I
I
i
<
<
(
(
(
(
i
(
(
(
(
<
(
I
(
(
1
nógan tíma eftir bæði til að fara
upp á Esju, á skíði og skauta. Það
er ekki fyrr en nú að ég átta mig á
hvað lífíð er hverfult. Nú ertu farin
og ég mun aldrei gleyma lífsgleð-
inni og baráttuviljanum þínum. Eg
er þér þakklát f'yrir allar stundirn-
ar sem við eyddum saman. Eg
sakna þín.
Guð blessi þig, Svanný mín,
þín vinkona
Pála Kristín.
Mig langar að minnast Svanhvít-
ar vinkonu minnar með nokkrum
orðum. Dugnaður Svanhvitar var
með einsdæmum og þrátt fyrir
veikindi sín hélt hún ótrauð áfram,
sannfærð um að hún myndi ná sér.
Svanhvít var mér mjög kær og
kom hún oft til mín í stuttar heim-
sóknir hún hafði alltaf svo mikið að
gera að hún gaf sér sjaldan tíma til
að setjast niður. Svanhvit var mjög
ánægð að vera flutt aftur í Hafnar-
fjörð þar sem flestir hennar vinir
og vandamenn búa. Hún fékk góð-
an stuðning hjá Júlla fósturfóður
sínum og hefur hann reynst henni
einstaklega vel. Elsku Svanhvít,
síðastliðin þrjú ár hafa verið þér
erfíð vegna veikinda þinna en nú
hefur þú fundið frið hjá mömmu
þinni.
Elsku Óli, Pétur og Júlli ég votta
ykkur mína dýpstu samúð en
minningin um góða stúlku lifir.
Guðbjörg.
Nú er komið að kveðjustund
elsku Svanhvít mín, ég hélt að þú
fengir lengri tíma með okkur. Eg
hef aldrei séð annað eins bros og
kæti þegar þú komst til mín um
daginn og sagðir mér að nú værir
þú búin að fá almennilega vinnu, en
það hafði verið ósk þin lengi að fá
vinnu við hæfi. Svanhvít var sú
þrjóskasta sem ég hef iyrirhitt,
hún var staðráðin í að sýna öllum
að hún gæti hvað sem var þrátt
fyrir fötlun sína. Við mamma feng-
um hvor sitt kortið frá henni þegar
hún fór í skíðaferð til Austurríkis í
janúar sl., á mínu korti var skíða-
stökkvari og þar stóð: „Var það
ekki frábært þegar þessi mynd var
tekin af mér í gær!“ Þetta var
henni líkt. Hún fór m.a. á skíði,
spilaði tennis og golf og æfði stíft í
World Class, hún var staðráðin í að
ná sér. Það koma svo margar
minningar upp í hugann þegar ég
hugsa til baka, ég hef þekkt Svan-
hvíti allt mitt líf en nú er hún farin.
Þegar Svanhvít veiktist fyrir þrem-
ur árum stóð vinskapur tveggja
vinkvenna hennar upp úr og talaði
hún oft um Guðmundu og Helgu
með mikilli hlýju og eiga þær heið-
ur skilinn fyrir þá hjálp og vænt-
umþykju sem þær sýndu henni á
erfiðum tímum. Elsku Óli, Júlli,
Pétur og fjölskylda, megi guð vera
með ykkur á erfíðri stundu.
Rannveig Grétarsdóttir.
Elsku Svanný. Fegurð sólarinn-
ar fölnar, eitt augnablik, á stundu
sem þessari. Það eru rúm tuttugu
ár síðan við kynntumst fyrst og all-
ar götur síðan höfum við haldið
kunningsskapinn. Við upplifðum
grunnskólaárin saman, fyrstu sam-
kvæmin og skólaböllin, og eftir það
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Olsen, Sverrír Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
höfum við verið samferða, við og
við, á lífsleiðinni. Það voru forrétt-
indi að fá að kynnast þér og lífsvið-
horfum þínum. Þú sýndir mér fram
á mikilvægi lífsins. Kenndir mér að
njóta þess fallega og góða sem gef-
ið er hverju sinni. Einnig sagðir þú
við mig að ég skyldi aldrei gefast
upp þótt á móti blési, því eins og þú
veist best er ekkert sjálfgefið hér í
þessari tilvist. Þú vissir að jarðvist
þín var háð duttlungum tímans, en
ekki léstu þá vitneskju aftra þér
frá því að gera hlutina á þinn hátt.
Atorka þín og dugnaður er öðrum
til eftirbreytni. Þú varst ekki alltaf
sátt við umhverfi þitt, né þær
þrautir er lagðar voru fyrir þig, en
með þroska þínum og innri fegurð
reyndir þú alltaf að sjá sóhna á bak
við skýin. Síðast er ég hitti þig,
spurðir þú mig að því hvort ég væri
ekki byrjaður í golfinu. Þegar ég
kvað svo ekki vera, settir þú upp
undrunarsvip og sagðir að það
væri eitthvað sem ég yrði að byrja
á. Kæra Svanný, þrátt fyrir að
jarðvist þinni sé lokið að sinni, veit
ég að við eigum eftir að hittast aft-
ur, á öðrum stað og öðrum tíma, og
hver veit nema að þá tökum við
einn golfhring saman í guðsgi-ænni
náttúrunni.
Guð blessi þig og varðveiti.
Eyjólfur Lárusson.
Með þessari stuttu grein ætlum
við, undiiTÍtuð, að kveðja þá já-
kvæðustu og duglegustu stúlku
sem við höfum nokkurn tíma
kynnst. Það var í janúar 1997 að
við urðum þeirrar ánægju aðnjót-
andi að fá að kynnast Svanhvíti
Jónsdóttur, þessari kraftmiklu og
ákveðnu stúlku sem kennt hefur
okkur svo margt um að gefast ekki
upp. 20. júní 1995 fékk Svanhvít
heilablóðfall og lamaðist að hálfu.
Þessi veikindi áttu eftir að há henni
alveg fram að enda, en ekki stöðv-
uðu veikindin samt hennar já-
kvæða hugarfar og ákveðni í að
standa á eigin fótum hvað sem
hver sagði. Það var svo í janúar
1997 að leið Svanhvítar lá til náms
hjá Hringsjá, starfsþjálfun fatl-
aðra. Strax í upphafí mættum við
sterkri og ákveðinni stúlku sem
byrjaði á því í upphafi að standa
upp fyrir framan okkur, stóran hóp
SuðurlandsbrauttO
108 Reykjavík - Sími 553
Opið öll kvöld
12 - einnig um helgar
tingar fyrir ötl tilefni.
o
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tækifæri
Opið til kl.10 öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Fákafeni 11, sími 568 9120
s
I
5
&tmmmm#u*
af fólki sem hún þekkti ekki neitt,
og segja okkur örstutt frá veikind-
um sínum. Jafnframt lét hún okkur
vita að hún vildi enga vorkunn og
enga hjálp, nema ef hún bæði um
hjálpina sjálf, sem gerðist afar
sjaldan. Svanhvít var dugleg og
hélt vel áfram í náminu. Hún var
enginn eftirbátur okkar hinna og
tók virkan þátt í öllu félagsstarfí og
var ákveðin í að njóta hvers augna-
bliks til hins ýtrasta. Svanhvít lagði
stund á bæði golf og skíði þrátt fyr-
ir fötlun sem gerði það ekki beint
auðvelt að iðka þessar íþróttir, með
því sýndi hún okkm- að allt er hægt
ef viljinn er fyrii- hendi. I október
1997 fékk Svanhvít peninga sem
hún var fyrst að hugsa um að nýta
til að gera eitthvað fyrir íbúðina
sína, en þökk sé hinum háa herra
að þá ákvað hún að gera eitthvað
spennandi fyrir sjálfa sig. Ur varð
að hún fór ásamt vinkonu sinni til
Austurríkis á skíði, og eins og hún
orðaði það svo vel sjálf: „Ferðin
var æðisleg“.
Það er ótrúlegt að þessi sjálf-
stæða og yndislega stúlka skuli
vera horfin frá okkur, svo kraft-
mikil og full af lífi eins og hún var.
Svanhvít var aðeins þrítug frá því í
janúar og því óhætt að segja að
hún hafi verið hrifin burt frá okkur
öllum í blóma lífsins. Við getum þó
huggað okkur við að sagt er að þeir
deyi ungir sem guðii-nir elska. Við
fráfall þessarar góðu vinkonu okk-
ar finnum við fyrir djúpum söknuði
sem aðeins tíminn mun deyfa,
söknuðurinn mun þó aldrei hverfa.
Brosandi ásjóna hennar mun
ávallt fylgja okkur og hún mun
ætíð eiga sinn stað í hjörtum okk-
ar. Við brosum í gegnum tárin er
við hugsum með velþóknun og
væntumþykju til vinkonu sem
ávallt lét okkur heyra „þið getið
það ef þið viljið“. Eftirlifandi ætt-
ingjum og vinum Svanhvítar send-
um við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur með von um að þessi fá-
tæklegu orð megi milda sorg
þeirra.
Fyrir hönd samnemenda Svan-
hvítar hjá Hringsjá.
Isleifur Jónsson.
, ' v/Nýbýlaveg
SÓLSTEINAR 554 4566
CrfiscJrykkjur
JGAPi-inn
Sími 555-4477
3IÓMríaL)M5iri
öa^ðskom
v/ Fossvogskirkju^a^ð
Símii 554 0500
$ s
Þegar andlát
ber að höndum
Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.
Sími 551 1266
Allan sólarhringinn
+
Elskulegur faðir, stjúpfaðir, mágur og vinur,
BENJAMIN POLASKY,
lést í Fontana, Kaliforníu, mánudaginn 27. júlí. Útförin hefur farið fram.
Fyrir hönd fjölskyldna okkar,
Elsa Sig. Lorange, Ingi Ú. Magnússon.
Maðurinn minn,
SIGURVIN INGVI GUÐJÓNSSON
frá Mjóabóli,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriðjudaginn 11. ágúst kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Guðmundsdóttir.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RAGNA SIGRÍÐUR JÖRGENSDÓTTIR,
Dalbraut 27,
áðurVitastíg 17,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavik
þriðjudaginn 11. ágúst kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem
vildu minnast hennar, er bent á líknarfélög.
Halldór Reynir Ársælsson, Guðfinna Sigurjónsdóttir,
Guðmundur Ingi Sigurðsson, Guðný S. Baldursdóttir,
Kristín Ósk Sigurðardóttir, Viðar Björnsson,
Guðrún Guðmundsdóttir, Jóhannes Ragnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er auðsýnt hafa okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför
JENNÝAR LÁRU GÍSLADÓTTUR,
Holtsgötu 14,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sólvangs, 2. hæð, fyrir einstaka
umönnun og hlýhug
Brynjólfur Jóhannesson, Þórunn Þráinsdóttir,
Emilía Jóhannesdóttir, Kjartan Jónsson,
Sveinn Jóhannesson, Hlín Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnaböm.
+
Okkar hjartkæra,
SVANHVÍT JÓNSDÓTTIR,
Eyrarholti 2,
verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnar-
firði mánudaginn 10. ágúst kl. 13.30.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeim, sem vilja
minnast hennar, er vinsamlegast bent á Heila-
vernd.
Jón Hlífar Aðalsteinsson, Kristín B. Jónsdóttir,
Júlíus Júlíusson, Ólafur Júlíusson,
Pétur Jónsson, Arna Hreinsdóttir,
Einar Aðalsteinn Jónsson, Eyrún Jóhannesdóttir,
Þorbjörg Ó. Jónsdóttir, Karl R. Róbertsson,
Sigurður F. Jónsson,
Björg Ó. Helgadóttir.
Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró
íslensk framleiðsla
MOSAIK .
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/