Morgunblaðið - 26.09.1998, Side 4
4 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
SÝSLUMENN landsins og aðrir fundargestir á aðalfundi Sýslumannafélags íslands sem haldinn var á ísafirði á fímmtudag og föstudag.
> ----------------------------------------------------------------------
Flugleiðir
flugu til
Flórída
FLUGLEIÐIR flugu áleiðis
til Orlando á Flórída seinni-
partinn í gær og hafði fellibyl-
urinn George ekki áhrif á
áætlun félagsins.
Einar Sigurðsson, aðstoðar-
maður forstjóra Flugleiða,
sagði um það leyti sem vélin
fór í loftið að veðrið í Orlando
væri í lagi, en það væri hvasst
sunnar á Flórídaskaganum.
Ef veðrið í Orlando ætti eftir
að versna yrði ekki teflt í
neina tvísýnu heldur lent í
Jacksonville, norðar á skagan-
um.
Sýslumenn landsins funda á Isafírði
ísaflrði. Morgunblaðið.
Sveitarstjórnarmenn um málefni
Kísiliðjunnar hf,
Atelja stjórn-
völd fyrir af-
skiptaleysi
ÁRLEGUR aðalfundur Sýslu-
mannafélags Islands var haldinn
á Isafirði á fimmtudag og föstu-
dag. Til fundarins mættu 25 af
27 sýslumönnum landsins auk
setts lögreglustjóra í Reykjavík,
ríkissaksóknara, saksóknara
ríkislögreglusljóra og fleiri
gesta. Þá sótti fundinn einn
heiðursfélagi Sýslumannafélags-
ins, Jón Isberg, fyrrverandi
sýslumaður á Blönduósi.
Áður en aðalfundurinn hófst
var haldinn svonefndur Sýslu-
mannafundur, en slíkir fundir
eru haldnir nokkrum sinnum á
ári. Auk hefðbundinna aðalfund-
arstarfa, ræddu fundarmenn
m.a. um framtíðarstefnu lög-
reglunnar, saksókn, bflamál og
íjármál sýslumannsembættanna
Fundur-
inn endaði
með brúð-
kaupi
svo fátt eitt sé talið. Að aðal-
fundinum Ioknum fóru fundar-
menn og makar í skoðunarferð
um ísafjörð og nágrenni og
snæddu síðan saman hátíðar-
kvöldverð á Hótel Isafirði.
Einn fundarmanna, Björn
Rögnvaldsson sýslumaður á
Ólafsfirði, ákvað að ganga í hjú-
skap og gekk hann að eiga sam-
býliskonu sína, Auði Helenu Hin-
riksdóttur, í Turnhúsinu í
Neðstakaupstað á Isafirði. Það
var sýslumaðurinn á Isafirði,
Ólafur Helgi Kjartansson, sem
gaf þau saman að viðstöddum
flestum sýslumönnunum sem
sóttu aðalfundinn og mökum
þeirra. Svaramenn brúðhjón-
anna voru tveir sýslumenn, þeir
Björn Jósef Amviðarson á Akur-
eyri og Ríkharður Másson á
Sauðárkróki.
Að athöfninni iokinni sungu
tvær ísfirskar stúlkur, þær Þór-
unn Ama Kristjánsdóttir og
Herdís Jónasdóttir, tvö lög fyrir
brúðhjónin og síðan var skálað í
kampavíni.
í ÁLYKTUN um málefni Kísiliðj-
unnar hf. í Mývatnssveit átelur
sveitarstjóm Skútustaðahrepps
stjómvöld fyrir afskiptaleysi af
framgangi fyrirtækisins. Ekki hef-
ur verið starfandi forstjóri hjá fyr-
irtækinu síðastliðið ár heldur hafa
tveir starfsmenn séð um daglegan
rekstur þess. Annar þeirra er nú
hættur störfum. Segir enn fremur í
ályktuninni að iðnaðarráðherra átti
sig ekki á þeim vanda sem blasi við
Kísiliðjunni, en er að mati sveitar-
stjómarmanna áþekkur vanda
þeim er blasti við Landsbankanum
í vor þegar ljóst þótti að bankinn
gæti ekki án bankastjóra verið,
enda hafi ráðherra lagt kapp á að
ráða hann hið fyrsta. „Fljótt og vel
var bmgðist við þegar uppbygging
álvers í Hvalfirði varð möguleg.
Skjótt og skynsamlega er bmgðist
við hugmyndum erlendra kvik-
myndagerðarmanna. Ekki síður er
nauðsynlegt að bregðast við vanda
þar sem byggð er í hættu, svo sem
í Mývatnssveit og nágrannabyggð-
um,“ segir í ályktuninni.
Ráðuneytið hefur lagt áherslu á
ráðningu nýs forstjóra
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra mótmælir því að stjómvöld
hafi sýnt málefnum Kísiliðjunnar
afskiptaleysi og segir aðspurður
hvers vegna fyrirtækið hafi verið
forstjóralaust í eitt ár, að það sé
ekki ráðuneytisins að ráða forstjór-
ann, heldur stjórnar Kísiliðjunnar.
Hann segir hins vegar að ráðuneyti
sitt hafi á síðastliðnu ári gefið skýr
fyrirmæli þess efnis að ráðinn yrði
forstjóri.
„Stjóm Kísiliðjunnar er vandi á
höndum því það em erlendir með-
eigendur okkar sem hafa lagst
gegn því að forstjóri verði ráðinn,
en stjórnin veit að ráðuneytið hef-
ur lagt þunga áherslu á að það væri
gert. Ef Mývetningar em að deila
á stjómvöld fyrir að fyrirtækið sé
forstjóralaust þá er þeim ádeilum
beint í ranga átt,“ segir Finnur.
Hann segist ekki vita hvers vegna
erlendir meðeigendur leggist gegn
því að ráðinn verði nýr forstjóri
Kísiliðjunnar, en ætlar hann að
krefja þá skýringa? „Fulltrúi minn
átti fund með þessum erlendu sam-
starfsaðilum fyrir fáum dögum þar
sem þetta var tekið upp og ég von-
ast til þess að í kjölfar þess fundar
verði auglýst eftir forstjóra."
Hreiðar Karlsson, stjómarfor-
maður Kísiliðjunnar staðfesti í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
auglýst yrði um helgina starf for-
stjóra Kísiliðjunnar.
BRÚÐHJÓNIN Björn Rögnvaldsson og Auður Helena Hinriksdóttir ásamt dótturinni, Hafdísi Huld, svara-
mönnum og sýslumanninum á ísafirði fyrir framan Tumhúsið á ísafirði.
Framkvæmdastjóri Dagvistar barna segir minnispunkta leikskólastjóra hafa farið í skjalasafn af vangá
Voru aldrei
neitt gagn
í málinu
BERGUR Felixson, framkvæmdastjóri
Dagvistar barna, segir að þeir „minnisp-
unktar" sem Tölvunefnd beindi til Dagvist-
ar barna að yrði eytt úr skjölum stofnunar-
innar hafí aldrei verið neitt gagn í málinu
vegna uppsagnar Guðrúnar Maríu Oskars-
dóttur, fyrrverandi starfsmanns leikskól-
ans Laufásborgar. Minnispunktunum hafí
verið eytt strax og þeir bámst honum í
hendur í upphafi en hins vegar hafí afrit
þeirra verið varðveitt af vangá í skjalasafni
borgarinnar.
Bergur sagðist bera ábyrgð á þeim mis-
tökum. Hann sagði að minnisblöð gengju
gjaman milli undirmanna og yfirmanna og
hann kvaðst hafa beðið leikskólastjórann að
taka saman „einhverja punkta um uppsögn-
ina“ og hefði hann fengið þessa minnisp-
unkta. Bergur sagði að sér hefði strax fund-
ist orka tvímælis að nota þá punkta í málinu.
„Málið snerist um lögmæta eða ólögmæta
uppsögn, ekki um neina persónu. Ég fékk
ráðgjöf hjá lögfræðingi borgarinnar sem var
mér alveg sammála. Þessir minnispunktar
vom því ekki innlegg í málið og aldrei liður í
neinni meðferð þess. Ég eyddi þeim strax í
tætara,“ sagði Bergur.
Bárust í skjalasafn af vangá
Bergur sagði að afrit af minnispunktunum
hefði hins vegar fyrir einhver mistök orðið
eftir í skjalasafni starfsmannaskrifstofu
borgarinnar. Það hefði hann ekki uppgötvað
fyrr en hann fékk sendingu frá umboðs-
manni Alþingis með þessum punktum eftir
að umboðsmaður lauk umfjöllun um málið
en umboðsmaður hafði fengið minnispunkt-
ana senda með öðmm gögnum borgarinnar
eftir að kvörtun Guðrúnar Maríu barst hon-
um.
Bergur segir rangt í frétt Morgunblaðsins
í gær að umboðsmaður Alþingis hafi ekki
tekið efnislega afstöðu til uppsagnarinnar.
Niðurstaða umboðsmanns hafi verið sú að af
gögnum málsins verði ekki ráðið að önnur
sjónarmið en málefnaleg hafi legið tii gmnd-
vallar ákvörðun um uppsögn Guðrúnar Mar-
íu. Bergur sagðist því telja frétt Morgun-
blaðsins í gær ekki gefa rétta mynd af mál-
inu.
„Við þóttumst gera vel við Guðrúnu Maríu
með því að samþykkja að hún fengi bæði
áunninn veikindarétt og uppsagnarfrest
greiddan," sagði Bergur. „Ég var í góðri trú
þegar ég sagði Guðrúnu Maríu að slíkir
punktar væm ekki til því ég hafði eytt þeim
og ég eyddi þeim í annað skipti eftir að við
samþykktum að verða við tilmælum Tölvu-
nefndar."
Bergur sagði að uppsögn Guðrúnar Maríu
hefði átt rætur að rekja til samstarfsörðug-
leika við leikskólastjóra. Það hefði verið farið
ofan í málið, m.a. á fundum með stéttarfélagi
hennar, og hefði niðurstaðan verið sú að rétt
hefði verið staðið að uppsögninni. Lögfræðiá-
lit með sömu niðurstöðu lægi fyrir.