Morgunblaðið - 26.09.1998, Síða 14

Morgunblaðið - 26.09.1998, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Hræringar meðal lækna á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri Fara í leyfí og segja upp STEFÁN Yngvason, yfirlæknir á Kristnesi, hef- ur fengið ársleyfi frá störfum og tekið við nýrri stöðu á Grensásdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Hjörtur Oddsson, hjartasérfræðingur á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri, hefur nýlega látið af störfum og þá hefur Nick Cariglia, sérfræðing- ur í lyflækningum og meltingafæralækningum, sagt stöðu sinni á FSA lausri og lætur af störfum í lok október að óbreyttu. Leitað leiða til að halda f Nick Magnús Stefánsson, yfirlæknir barnadeildar og formaður Iæknaráðs FSA, sagði ekki hægt að tala um flótta frá stofnuninni en hins vegar ættu sér stað hræringar í húsinu. „Menn eru að hugsa sér til hreyfings og þar liggja að baki fleiri en ein og fleiri en tvær ástæður.“ Magnús sagði að þótt Nick væri búinn að segja upp kæmi vonandi ekki til þess að hann hætti. Hann sagði unnið að því að leita leiða til að halda í Nick og í raun hefði sú vinna verið hafin áður en hann sagði upp. Magnús sagði að staða hjarta- læknis yrði auglýst aftur þar sem Hjörtur Odds- son hefur látið af störfum. „Það virðist vanta menn með þá hjartalæknismenntun sem okkur vantar hér, þar sem hátæknin er orðin svo mikil. En það hefst á endanum að manna þessa stöðu.“ Magnús sagði að Stefán Yngvason, endurhæf- ingarlæknir og yfirlækni á Kristnesi, hefði verið valinn til að takast á við nýja og mjög spennandi stöðu á Grensásdeild. Hann hefur því fengið árs- leyfi, alla vega til að byrja með. I stöðu yfirlækn- is á Kristnesi var ráðinn Páll Helgason sem einnig er endurhæfingarlæknir. Þá hefur einn af bæklunarlæknum FSA sótt um stöðu í Reykjavík að sögn Magnúsar en sá hinn sami sótti einnig um nýja yfirlæknisstöðu á slysadeild FSA og því ekki ljóst á þessari stundu hvort og þá hvenær hann fer. Erfiðar vaktir Magnús sagði að unnið hefði verið að þvi að fjölga sérfræðingum við sjúkrahúsið en stofnunin hefði ekkert úr allt of miklum peningum að moða í því augnamiði. „En það má segja að hér séu hræringar og kannski meiri í ár en um tíma en ekkert meiri en fyrir um 5 árum og þetta virðist koma í bylgjum. Því er þó ekki að neita að hér er mikil þyngd í dagvinnu og á vöktum og vaktir á FSA eru þrisvar sinnum þéttari hér á sumum deildum en á stóru sjúkrahúsunum tveimur í Reykjavík. Og þegar menn eldast leita þeir á önnur mið til að geta átt rólegri efri ár.“ Skákfélag Akureyrar Fimmtán mínútna mót FIMMTÁN mínútna mót verður haldið í skákheimilinu við Þingvallastræti 18 á morg- un, sunnudaginn 27. septem- ber, og hefst það kl. 14. Tveir félagar úr Skákfélagi Akureyrar far með ólympíu- skáksveit Islands til Elista í Rússlandi til að taka þátt í ólympíumótinu sem þar verð- ur haldið, þeir Jón Garðar Við- arsson og Áskell Örn Kárason sem er fararstjóri. Á aðalfundi Skákfélags Akureyrar, sem haldinn var í vikunni, voru kosnir í stjórn þeir Sigurður Eiríksson for- maður, Einar Garðar Hjalta- son, Rúnar Sigurpálsson, Val- gerður Davíðsdóttir og Karl Steingrímsson. Morgunblaðið/Kristján BUNDIÐ slitlag verður komið á nýja veginn yfir Fljótsheiði í dag og um Ieið verður umferð hleypt á veg- inn. Þeir voru því að vonum ánægðir með lífið í góða veðrinu á heiðinni í gær, Rúnar Jónsson, eftirlitsmað- ur Vegagerðarinnar t.v., Gestur Pálsson, einn eigenda Slitlags ehf., og Sigurður Oddsson, deildarsfjóri framkvæmda hjá Vegagerðinni. Sigurður sagði opnun vegarins gríðarlega stóra stund. Tölvustýrðar skurðarvélar frá Marel Nýi vegurinn yfir Fljótsheiði opnaður fyrir umferð í dag Utgerðarfélag Akureyr- inga kaupir 100. vélina Mikil sam- göngubót HUNDRAÐASTA tölvu- stýrða skurðarvélin frá Marel var afhent for- svarsmönnum Utgerðar- félags Akureyringa í gær. Skurðarvélin, sem byggir á tölvusónartækni, tekur mynd af hverju flaki og ákvarðar hvaða bita er hagkvæmast að skera úr hverju flaki og sker þá síðan með meiri nákvæmni en manns- höndin getur að jafnaði gert. Afköst vélarinnar eru 1.200 til 1.800 kíló á klukkustund. Með kaupum UA á skurðarvélinni er félagið að setja upp þriðju Marel skurðarvélina í fiskvinnsl- una hjá sér. Það gerir ÚA að einum afkastamesta fiskbitaframleiðenda í heimi nú um stundir. ÚA endurnýjaði vinnslu- búnað sinn á sl. ári í samstarfi við Marel og fleiri en það hefur skilað sér í auknum afköstum og betri nýtingu hráefnis í verðmætari af- urðir. Marel hóf framleiðslu á tölvu- stýrðu skurðarvélinni árið 1994. I upphafi var markmiðið að skera fiskflök í bita af ákveðinni stærð en notkunarsviðið hefur þróast í að skera heilan lax í bita, nauta- og svínakjöt í ákveðnar sneiðar ásamt því að skera niður kjúklinga og kalkún í bita eða strimla. Jafnframt því er vélin nýtt um borð í frysti- togurum. Vélin hefur verið seld til yfir 10 landa og er Marel nú stærsti fram- leiðandi í heiminum á tölvustýrðum skurðarvélum fyrir matvælaiðnað. NÝI vegurinn yfir Fljótsheiði í S- Þingeyjarsýslu verður opnaður fyr- ir umferð um hádegisbil í dag, laug- ardag, en þá er stefnt að því að lok- ið verði við að leggja klæðingu á veginn. Halldór Blöndal, samgöngu- ráðherra, sagði nýja veginn mikla samgöngubót, „og nú hillir undir að komið verði bundið slitlag til Mý- vatnssveitar og á næstu 5-6 árum til Egilsstaða," sagði Halldór. Halldór fór um nýja veginn sl. miðvikudag og sagði hann mjög fal- legan. „Ég gat ekki stiilt mig um að hringja þá á Veðurstofuna og efir það samtal var ég ekki bjartsýnn á að veður gæfi. En til allrar ham- ingju hefur verið hægt að vinna við slitlagið og það er mjög mikilvægt að þessum áfanga skuli nú að ljúka.“ Vegurinn yfir Fljótsheiði er um 10 km langur og liggur 33 metrum lægra yfir sjó en gamli vegurinn, að sögn Sigurðar Oddssonar, deildar- stjóra framkvæmda hjá Vegagerð- inni á Norðurlandi eystra. Mesti halli er um 6-7% en mesti halli á gamla veginum er allt upp í 14%. Sigurður sagði nýja veginn vel upp- byggðan og hann ætti því að vera snjóléttur en ákveðið hefur verið að moka Fljótsheiðina fjórum sinnum í viku í vetur. Þá er meiningin að setja strax upp stikur við veginn í öryggisskyni fyrir vegfarendur. Snyrting og frágangur eftir Háfell hf. var aðalverktaki verks- ins en undirverktakar voru Alverk, Fínverk ehf., Arnarfell hf. og Slitlag ehf. Heildarefnismagn í veginn var um 430 þúsund rúmmetrar. Samn- ingur Háfells og Vegagerðarinnar var undirritaður 11. júní árið 1996. Tilboð Háfells hljóðaði upp á 133 milljónir króna, sem var um 71% af kostnaðaráætlun. Framkvæmdin á Fijótsheiði er stærsta verk á vegum Vegagerðarinnar á Norðurlandi til þessa fyrir utan Ólafsfjarðargöngin. Framkvæmdin er nokkuð á eftir upphaflegri áætlun, m.a. vegna magnaukningar á efni, erfiðs tíðar- fars og fleira. Eftir verður öll snyrt- ing og frágangur við veginn en að sögn Sigurðar verður þeim þætti lokið næsta sumar. Vörður Islenskri dagskrá fagnað VÖRÐUR, félag ungra sjálf- stæðismanna á Akureyri fagn- ar því framtaki Ríkisútvarps- ins Sjónvarps að sýna íslenskt efni þessa vikuna. Hvetur fé- lagið forráðamenn stofnunar- innar að gera það að reglu fremur en undantekningu að senda út íslenskt sjónvarps- efni. Telur Vörður það bæði ánægjulegt og nauðsynlegt að Ríkisútvarpið Sjónvarp stígi stöku sinnum upp frá endur- varpi lágmenningar og taki af skarið sem öflugur miðill ís- lenskrar menningar, segir í ályktun félagins. Einnig segir að íslensk tunga megi ekki undir nokkrum kringumstæð- um grotna niður af völdum mistækra aðgerða í menning- armálum. Gott sé fyrir alþjóð að vita að Sjónvarpið geti staðið undir því hlutverki sínu að framleiða, varðveita og senda út íslenskt sjónvarps- efni. Messur AKUREYRARKIRKJA: Fyrsti sunnudagaskóli vetrar- ins verður í kirkjunni kl. 11 á morgun, sunnudag. Öll börn hjartanlega velkomnin. Guðs- þjónusta kl. 14 sama dag, sr. Birgir Snæbjömsson messar. Mömmumorgun í safnaðar- heimilinu frá 10 til 12 á mið- vikudagsmorgun, 30. septem- ber. Kristbjörg Magnadóttir frá Punktinum kemur í heim- sókn. GLERÁRKIRKJA: Fjöl- skylduguðsþjónusta í kirkj-' unni kl. 11. Léttir söngvar sungnir og barnaefni vetrarins kynnt. Foreldrar og aðrir for- ráðamenn hvattir til að styrkja fjölskylduna og mæta með börnum sínum, eiga með þeim uppbyggilega og helga gleðistund í kirkjunni. Kyrrð- ar- og tilbeiðslustund í kirkj- unni kl. 18.10 þriðjudag. Há- degissamvera frá kl. 12 til 13 á miðvikudögum. Helgistund og léttur málsverður á eftir gegn vægu verði. Sr. Gunnlaugur Garðarsson. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Verkleg þjálfun fyrir unglinga kl. 14 í dag, laugardag. Bæna- stund kl. 20 í kvöld. Sunnu- dagaskóli fjölskyldunnar á morgun, sunnudag 27. sept- ember kl. 11.13. Biblíukennsla fyrir alla aldurshópa, Jóhann Pálsson prédikar, léttur há- degisverður á vægu verði á eftir. Samkoma sama dag kl. 20, Yngvi R. Yngvason prédik- ar, fjölbreyttur söngur, barnapössun fyrir börn yngri en 6 ára. Vonarlínan: 462- 1210, símsvari með uppörvun- arorð úr ritningunni. ÓLAFSFJARÐARKIRKJA: Messa í Ólafsfjarðarkirkju kl. 14 á morgun, sunnudag. Fermingarbömum síðasta árs sérstaklega boðið til kirkju með fjölskyldum sínum. Upp- haf fermingarstarfs vetrarins. Kirkjukaffi. RÚN, samtök um sorg og sorgarviðbrögð á Ólafsfirði og Dalvík, halda fyrsta fund vetrarins í safnað- arheimili Ólafsfjarðarkirkju kl. 20.30 á þriðjudagskvöld, 29. september. Vetrarstarfið skipulagt. Allir velkomnir. Sr. Sigríður Guðmarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.