Morgunblaðið - 26.09.1998, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.09.1998, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 UR VERINU MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Barri og Fossvogsstöðin sameinast Framleiðsla einræktaðra plantna aukin Nýja skólaskipið Sæbjörg var vígt í gær Morgunblaðið/Ásdís HILMAR Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, heilsar gestum í Sæbjörgu í gær. • • 011 aðstaða betri og tvöfalt stærri FORSETI Slysavarnafélags íslands, Gunnar Témasson, ávarpaði gesti. SKÓGRÆKTARSTÖÐIN Barri á Egilsstöðum og Fossvogsstöðin í Reykjavík, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur rekið, hafa sam- einast undir nýju nafni, Barri-Foss- vogsstöðin hf. Með sameiningunni verður til stórt fyrirtæki á sviði skógar- og garðplöntuframleiðslu og helsti keppinautur stöðvarinnar verður, að sögn Jóns Amarsonar fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins, Skóg- rækt ríkisins. Skógrækt ríkisins er jafnframt annar stærsti viðskipta- vinur Barra-Fossvogsstöðvarinnar. Ætlunin er m.a. að leggja aukna áherslu á vefjaræktun, eða einrækt- un plantna, í sameinuðu fyrirtæki. Reknar sem tvær deildir Eins og komið hefur fram í Morg- unblaðinu leitaði fyrirtækið álits Samkeppnisstofnunar á samrunan- um og gerði Samkeppnisstofnun ekki athugasemd við hann. Að sögn Jóns fór sameiningin þannig fram að Barri keypti rekst- ur og búnað Fossvogsstöðvarinnar en mun leigja fasteignir Fossvogs- stöðvarinnar af Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Skógræktarstöðv- arnar tvær verða nú reknar sem tvær deildir innan sama fyrirtæk- RUSSNESKA stjórnin hefur til- kynnt að hún muni aftur koma á ein- okun á framleiðslu og sölu á sterku áfengi, bæði af félagslegri og efna- hagslegri nauðsyn. Barátta stjómvalda gegn ólöglega framleiddu áfengi mun gefa mikið í aðra hönd. í fyrra drakku Rússar 2,15 milljarða lítra af sterku áfengi - aðallega vodka - en aðeins 860 millj- ónir lítra vora framleiddar með lög- legum hætti eða fluttir inn á lögleg- an hátt. „Pað táknar að rúmlega 1,2 millj- arðar lítra eru framleiddir ólöglega. Rúmlega 30 milljörðum rúblna (1,9 milljörðum dollara) hefur verið stolið frá ríkinu vegna þess að þetta magn var ekki framleitt á löglegan hátt,“ sagði Gennady Kuli varaland- búnaðaráðherra. Gífurleg tekjulind „Þetta getur verið gífurleg tekju- lind, ein af þeim fáu sem eru örugg- ar í Rússlandi," sagði smásölusér- fræðingur MFK Renaissance, Kim Iskyan. „Stjórnin vill fá mjólkurkú sína aftur, nokkrum árum eftir að UBS AG, stærsti banki Evrópu, segir að bankinn muni tapa einum milljarði svissneskra franka, eða 718 milljónum dollara, á þriðja árs- fjórðungi, þar sem umrót á heims- mörkuðum hafí grafið undan hagn- aði í einn mánuð. Union-bankinn sagði þó að hann stæði traustum fótum þrátt fyrir áfóll á nýjum mörkuðum, niður- sveiflu á verðbréfamörkuðum og erfíðleika af völdum bágstadds áhættusjóðs í Bandaríkjunum, Long-Term Capital Management (LTCM). „Þessi kaup era fjármögnuð með aukningu hlutafjár í Barra þannig að Fossvogsstöðin verður 25% hlut- hafí í Barra,“ sagði Jón. Hann sagði að kaupin hefðu ýmsa kosti í fór með sér, fyrirtækið verð- ur samkeppnishæfara, útsölustöð- um fjölgar, framleiðslan verður fjöl- breyttari og áhætta af rekstrinum dreifíst. Stefnt að því að einfalda reksturinn Barri hefur að sögn Jóns nær ein- göngu stundað framleiðslu skógar- plantna sem síðan era seldar til skógræktarfélaga og annarra aðila í skógrækt. Með sameiningunni bæt- ist framleiðsla á garðplöntum við af- urðir fyrirtækisins. Velta Barra á síðasta ári var 30 mkr. en velta Fossvogsstöðvarinnar var heldur meiri að sögn Jóns. Stefnt er að því að einfalda rekst- ur fyrirtækisins og lögð verður höf- uðáhersla á skógarplönturæktun og svokallaða vefjaræktun sem er ein- ræktun á plöntum sem Fossvogs- stöðin hefur, ein skógræktarstöðva á Islandi, framleitt til þessa. „Við vonumst til að auka þann þátt í framleiðslunni og munum einkum leggja áherslu á framleiðslu á birki og reyniviði á því sviði.“ hún fórnaði henni af fúsum og frjálsum vilja.“ Samkvæmt nýrri áætlun Evgenis Primakovs forsætisráðherra mun stjórnin fá ráðandi hlut í fyrirtækj- um, sem framleiða drykki með meira en 28% alkóhólinnihaldi. Takmark- aður fjöldi fyrirtækja fær leyfi til að framleiða áfengi. Rúmlega 800 slík fyrirtæki starfa nú í Rússlandi. Auk þess munu stjómvöld herða eftirlit með sölu og framleiðslu veik- ara áfengis eins og bjórs og léttra vína. Sérfræðingar segja að enn sé ekki Ijóst hve mikið vald stjómin muni hafa yfir áfengisframleiðendum. „Ef meginmarkmiðið er að auka tekjur ríkisins verða þeir sem era yf- ir verksmiðjunum líklega látnir um að stjóma þeim. Einkafyrirtæki ganga betur en ríkisfyrirtæki,“ sagði Iskyan. Ekki eru allir vissir um þetta og benda á að tilraunir ríksstjórnar- innar til að ráða yfir áfengisiðnað- inum séu líklegar til að mistakast eins og fyrri tilraunir hafi þegar gert nokkram sinnum á þessari öld. í yfirlýsingu UBS bankans sagði að hann gerði samt ráð fyrir „sæmi- legum" hagnaði á síðari hluta árs- ins. Verð hlutabréfa í UBS féll um tæp 11% áður en yfirlýsingin var birt, skömmu eftir að viðskiptum lauk í svissnesku kauphöllinni. Óstyrkir fjárfestar losuðu sig við bankabréf víða í Evrópu þegar UBS boðaði til óvænts blaðamannafund- ar og neitaði að tiltaka ástæðuna. Verð bréfa í UBS lækkaði um 44 franka í 365, lægsta verð á þessu ári. FJÖLMENNI var viðstatt vígslu Sæbjargar, hins nýja skólaskips Slysavamaskóla sjómanna, í gær, en það er gamla Akraborgin sem fengið hefur þetta nýja hlutverk. Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavamaskólans, tjáði Morgun- blaðinu að öll aðstaða um borð væri mun betri og tvöfalt stærri enda skipið stórt og mikið en hann sagði menn þó sakna gömlu Sæbjargar. Esther Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri Slysavarnafélags ís- lands, sagði tilkomu skipsins vera stóra stund fyrir félagið. Gunnar Tómasson, forseti SVFÍ, sagði við vígsluathöfnina í gær að nýja Sæ- björgin kæmi á besta tíma, um leið og auknar kröfur væru gerðar um kennslu og þjálfun sjómanna í björgunarstörfum og gamla Sæ- björgin gæti ekki lengur þjónað skólanum. Aðsókn að Slysavama- skólanum sagði Gunnar vera með besta móti og nú væri skilyrði fyrir lögskráningu sjómanna að þefr hefðu sótt námskeið hjá skólanum eða sambærileg námskeið. Nú væri einnig ráðgert að gera sjómönnum skylt að sækja upprifjunarnám- skeið á fimm ára fresti. Rétt viðbrögð skipta sköpum Forseti Slysavamafélagsins sagði sjómenn oft hafa látið þess getið þegar þeir hefðu ratað í raun- ir að þekking og rétt viðbrögð sem þeir lærðu og æfðu í Slysavama- skólanum hefði skipt sköpum við björgun, yfírveguð viðbrögð skiptu máli þegar menn stæðu frammi fyrir háska. Hann sagði margar góðar minningar tengdar gömlu Sæbjörginni enda hefði þar farið fram farsælt starf. Gunnar sagði Sæbjörgu hafa borist gjafir, m.a. sjö tonna krani frá Samherja á Akureyri, málning frá Slippfélag- inu, sýningartjald frá Bræðrunum Ormsson og viðhaldskerfi frá As- geiri Guðmundssyni. Hann þakkaði starfsmönnum Slippstöðvarinnar á Akureyri og starfsmönnum skólans fyrir vel heppnaða breytingu á skipinu úr ferju í skólaskip. „Ég óska þess að hér megi fara fram árangursríkt og öflugt fræðslustarf og gæfa fylgi skipi og áhöfn þess hér eftir sem hingað til,“ sagði Gunnar Tómasson að lokum. Fleiri gjafir bárust Sæbjörgu við vígsluathöfnina, m.a. Markúsarnet, tölva, kennslugögn og fleira. Séra Pálmi Matthíasson blessaði skipið og áhöfn þess, minnti á frásögnina af Kristi þegar hann kyrrði vind og vatn og sagði það hafa verið sæ- björg. Hann sagði áhöfn Sæbjarg- ar vera eins konar postula sem þýða mætti sem brautryðjandi, boðberi, frumherji og erindreki. Hilmar Snorrason sagði að með- al breytinga sem fram hefðu farið á skipinu væri að farþegasalnum hefði verið breytt í kennslustofu, bar skipsins í skrifstofu en mestu breytingarnar væru þó á bflaþilfór- unum. Milliþilfarið, sem gripið var til þegar aðalbflaþilfarið dugði ekki, hefur verið gert að aðstöðu fyrir æfingar með flotbúninga og reykköfunartæki og á bílaþilfarinu verður æfð notkun sjóbjörgunar- tækja og báta. Hilmar sagði tak- mark skólans að engir sjómenn lentu í slysi. Sex leiðbeinendur eru í fóstu starfi á Sæbjörgu og til viðbótar eru fengnir sérstakir kennarar á einstök námskeið. Gunnar Tómas- son sagði nú kleift að sigla Sæ- björginni umhverfis landið árið um kring, en ekki aðeins að sumarlagi eins og gamla Sæbjörg hafði leyfi fyrir. Sagði hann skipulagningu námskeiða úti um land nú í undir- búningi. Meðal þeirra sem fluttu ávörp úr hópi gesta var Guðmundur Hall- varðsson alþingismaður sem sagði sjómenn fagna hinu nýja skólaskipi og óskaði áhöfn gæfu og gengis í fyrirbyggjandi starfi. Hann sagði slys á sjómönnum of mörg á ári hverju og þótt þeim hefði fækkað hefði Slysavamaskólinn enn verk að vinna. Átak fyrir björgunar- bátasjóð Slysavarnafélagið stendur um þessar mundir fyrir herferð til að minna á björgunarskip sín, sem nú eru átta, og er leitað til landsmanna eftir fjárstuðningi við rekstur þeirra. Hefur verið sendur upplýs- ingabæklingur og gefið út átta síðna rit um björgunarskipin. Gunnar Tómasson tjáði Morgun- blaðinu að sameiginlegur sjóður SVFÍ legði um 30 milljónir á ári til björgunarskipaflotans. Þar væri um að ræða laun vélstjóranna, tryggingar og ýmsar viðgerðir en við þá upphæð bættist rekstrar- kostnaður skipanna sem björgun- arsveitimar sjálfar bæru. Næsta skref sagði hann vera endumýjun á elstu skipunum. í framhaldi af því væri síðan ráðgert að kaupa eitt til tvö björgunarskip til viðbótar. Auk björgunarskipanna átta á SVFÍ 17 harðbotna slöngubáta og 80 aðra slöngubáta um landið allt. ís. Einokun á áfengi í Rússlandi á ný Moskvu. Reuters. UBS-bankií Sviss með mikið tap ZUrich. Reuters.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.