Morgunblaðið - 26.09.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 25
ERLENT
Salman Rushdie getur nú ioks
um frjáist höfuð strokið
Reuters
RITHÖFUNDURINN Salman Rushdie var kampakátur á blaðamanna-
fundi í London í gær.
„Stórkost-
legur dagur“
London. Reuters.
RITHÖFUNDURINN Salman
Rushdie sagði á fundi með frétta-
mönnum í gær að sú yfirlýsing
Iransstjórnar að hún myndi ekki
ógna lífi hans markaði endalok öm-
urlegs tímabils. „Petta er stórkost-
legur dagur,“ sagði Rushdie, og
kvað líklegt að næsta bók sín myndi
fjalla um þá reynslu að hafa dauða-
dóm yfir höfði sér í heilan áratug.
Rushdie hefur verið undir lög-
regluvernd í Bretlandi síðan árið
1989, þegar Khomeini, erkiklerkur í
Iran, gaf út trúarlega tilskipun um
að hann væri réttdræpur hvar sem
til hans næðist, vegna bókarinnar
Söngvar Satans, sem þótti innihalda
guðlast. „Það eina sem ég hef þráð
er að geta snúið aftur til venjulegs
lífs, eða í öllu falli venjulegs lífs rit-
höfundar", sagði Rushdie aðspurður
hvað hann teldi sig mundu endur-
heimta, nú þegar ógnin væri yfir-
staðin.
„Venjulegt líf er afar hversdags-
legt, en mér hefur verið neitað um
það. Að taka eigin ákvarðanir án
þess að þurfa að bera þær undir
aðra. Að gera eitthvað nákvæmlega
þegar mann langar til, eins og til
dæmis að fara í göngutúr. Þetta er
ómögulegt þegar maður er undir
öryggisgæslu," sagði Rushdie við
fréttamenn.
Þó er ljóst að nokkur bið muni
verða á því að hann öðlist fullkom-
lega „venjulegt líf‘. Flugfélagið
British Airways ítrekaði til dæmis í
gær að það tæki ekki í mál að fljúga
með hann. Þá þurfti á síðustu
stundu að finna nýjan stað fyrir
blaðamannafund hans í gær, eftir
mótmæli í byggingunni þar sem
fundurinn átti upphaflega að fara
fram.
Undarleg reynsla
Það er varla hægt að ofmeta
áhrifin sem dauðadómur Khomeinis
hefur haft á líf Rushdies. Fyi-rver-
andi eiginkona hans, bandaríski rit-
höfundurinn Marianne Wiggins,
sagði skilið við hann vegna álagsins,
en hann kvæntist á ný og hefur
eignast son með núverandi eigin-
konu sinni. Hann segir að stuðning-
ur fjölskyldunnar hafi verið sér lífs-
nauðsynlegur, og ekki skal efa að
hann hafi þurft á uppörvun að
halda.
„Það er mjög undarleg reynsla að
sjá fólk ganga um stræti í fjarlæg-
um borgum með mynd af manni
sjálfum sem búið er að rífa augun
úr, öskrandi dauðahótanir,“ sagði
Rushdie. Hann skýi-ði jafnframt frá
því að breskir embættismenn hefðu
tjáð sér að yfir tuttugu mönnum
hefði verið vísað úr landi vegna
gruns um að þeir hefðu í hyggju að
framfylgja dauðadómnum. Síðustu
ár hefur hann þó hægt og rólega
farið að láta meira á sér bera, og
hefur jafnvel áritað bækur sínar op-
inberlega og farið á knattspyrnu-
leiki.
Rushdie kvaðst ekki sjá eftir
neinu. Hann sagði að Söngvar
Satans hefði verið óhjákvæmilegt
skref á rithöfundarferli sínum og af-
tók að hann myndi biðjast afsökun-
ar á innihaldi bókarinnar. Rushdie
og stuðningsmenn hans hafa barist
einarðlega fyrir frelsi einstaklings-
ins til að tjá skoðanir sínar. „Þetta
er barátta fyrir grundvaliaratriðum,
fyrir hugsanafrelsi, fyrir málfrelsi,
fyrir réttinum til að geta gengið úti
á götu í heimalandi sínu án þess að
þurfa að óttast“, sagði hann. -
Á blaðamannafundinum í gær
sagði Rushdie að sig hefði lengi
langað að skrifa bók um reynslu
sína, en að sér hefði fundist að rétti
tíminn til þess yrði þegar hann
vissi hvernig síðasti kaflinn ætti að
enda.
Samkomulaginu fagnað
Utanríkisráðherrar Irans og
Bretlands komust á fimmtudag að
samkomulagi um að taka upp fullt
stjórnmálasamband að nýju, eftir að
Bretar töldu sjg hafa fengið full-
vissu um að Iranar myndu ekki
ógna lífi Rushdies. Robin Cook, ut-
anrikisráðherra Bretlands, sagði að
samkomulagið markaði þáttaskil í
samskiptum Breta, sem og allra
ríkja Evrópusambandsins, við Iran.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sa-
meinuðu þjóðanna, lýsti yfir ánægju
með þróun mála, og hefur ásamt
Jacques Chirac Frakklandsforseta
borið lof á stjórnvöld í Iran.
Stjórnmálaskýrendur hafa fullyrt
að þessi tímamót-séu til marks um
sterka stöðu Mohammads Khatam-
is, forseta írans, sem hefur orð á
sór fyrir að vera umbótasinnaður og
jákvæðari í garð Vesturlanda en
margir landar hans.
Lítil viðbrögð hafa enn sem kom-
ið er orðið við samkomulaginu í ír-
an. Enginn vafi leikur þó á því að
þar finnist ennþá menn sem hafi
fullan hug á að koma Rushdie fyrir
kattarnef. Góðgerðarstofnun í
Teheran, sem hefur heitið hverjum
þeim sem banaði honum jafnvirði
nær 200 milljóna íslenskra króna,
hefur til að mynda ekki dregið það
til baka. Áratugarafmæli tilskipun-
ar Khomeinis í febrúar á næsta ári
verður líkast til prófsteinn á afstöðu
heittrúaðra Irana til málsins.
Á réttri hillu
®?Ofnasmlt]an
Háteigsvegi 7 • 105 Re\
Reykjavík
Sími 511 1100 • Fax 511 1110
ofnasmidjan@ofn.is • www.ofn.is
Oekkjahillur, furuhillur, skilrúm í hillur, piastskúffur o.fl.
Ekki bara fyrir geymsluna, lagerinn og bíiskúrinn heldur
einnig vörur á tiiboösveröi fyrir ailar tegundir verslana.
Hillurnar ar auðvelt að
setja saman og eru afhentar
í flötum pakknlngum