Morgunblaðið - 26.09.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 27
Blendnar til-
finningar
almennings
Viðhorf Bandaríkjamanna til vandræða
Clintons hafa verið blendin en skoðana-
kannanir gefa nú til kynna að meirihluti
þjóðarinnar vilji fyrirgefa forsetanum.
Rakel Þorbergsdóttir skrifar frá Boston
___en þangað kom Clinton í stutta
heimsókn á dögunum.
BANDARÍSKUR almenningur er
löngu búinn að fá nóg af öllu fárinu
í kringum samband Bills Clintons
og Monicu Lewinsky og virðist
ekkert fremur vilja en að stjórn-
völd einbeiti sér að raunverulegum
störfum sínum og ljúki málinu.
Prátt fyrir að Massachusetts sé
þekkt fyrir að vera ríki demókrata
hafa nokkrir frammámenn þess í
flokknum lýst yfir óánægju sinni
vegna hneykslismála forsetans og í
nýafstaðinni heimsókn Clintons til
Boston sýndu sumir andstöðu sína
með því að vera fjarverandi og
neita að standa við hlið hans. Að
þeirra mati hefur forsetinn tapað
þeim siðferðilega trúverðugleika
sem embættinu er nauðsynlegur
og á að sýna manndóm sinn með
því að láta af embætti.
Sú umræða hefur verið áberandi
hér í landi að þær nákvæmu og
persónulegu upplýsingar, sem
hafa verið gerðar opinberar í
Lewinsky málinu og fjölmiðlar
hafa miðlað almenningi, hafi farið
út fyrir öll velsæmismörk. Itarleg-
ar lýsingar á kynlífí forsetans hafa
verið prentaðar, þeim útvarpað og
sjónvarpað og dreift á netinu. Ott-
ast margir að ekki verði aftur snú-
ið og það frelsi sem fjölmiðlar hafa
leyft sér í opinskárri umfjöllun á
málinu verði ekki aftur tekið. Inni-
hald skýrslu Kenneths Starrs hef-
ur undanfarið verið endalaus upp-
spretta klámbrandara, pólitískrar-
og siðferðilegrar umræðu í sjón-
varpi og útvarpi þar sem svæsn-
ustu bitar skýrslunnar eru tuggðir
aftur og aftur. Þrátt fyrir að al-
menningur gleypi við þeim upplýs-
ingum sem veittar eru í málinu má
heyra að hneykslun fólks og
skömm tengist miklu fremur opin-
beruninni á kynlífi forsetans held-
ur en sjálfu athæfinu.
Stanslausar skoðanakannanir,
umræðuþættii-, „ný“ sjónarhorn
og umræða á götunni sýna að allir
hafa skoðun á Lewinsky málinu. I
skoðanakönnun sem The New
York Times birti í gær er fylgi for-
setans nú mjög á uppleið og virðist
sem opinber birting myndbands af
yfirheyrslu Kenneths Starrs yfir
honum á mánudag hafi, þótt ótrú-
legt megi virðast, bætt stöðu for-
setans.
Virðast Bandaríkjamenn sam-
mála um að dómsmálanefnd
Bandaríkjaþings sé hlutdræg og
að hún hafi gengið of langt er hún
ákvað að birta myndbandið opin-
berlega, segja 78% aðspurðra að
aldrei hefði átt gera það opinbert
enda snerti umræðuefni þess
einkalíf forsetans sem engan varði
um. Sögðust 65% telja að
repúblikanar, sem hafa meirihluti
á þinginu, séu með óheiðarlegum
hætti að reyna að veikja stöðu
Clintons og Demókrataflokksins.
í heildina litið hefur fylgi Clint-
ons aukist verulega, fleiri treysta
honum nú en í síðustu viku sem
leiðtoga þjóðarinnar, Bandaríkja-
menn kunna betur við hann og
telja síður að hann hafi gerst sekur
um meinsæri í vitnisburði sínum.
Fylgi við hann í starfi er nú 67%
og vilja einungis 46% Bandaríkja-
manna að þingið samþykki vítur á
forsetann en 57% vildu það fyrir
viku. Einungis 11% vilja að þingið
höfði mál á hendur honum til emb-
ættismissis. 31% vilja reyndar að
hann segi af sér en 29% vilja að-
eins að hann biðjist afsökunar og
26% vilja að málið verði látið niður
falla.
Arðvænleg heimsókn
Clintons
Daglöðin hér í Boston hafa verið
í hópi þeirra blaða sem hafa hvatt
foretann til afsagnar og hefur The
Boston Herald hvað eftir annað
vakið athygli á því hversu slæmt
þetta hneyksli er fyrir Bandaríkin
og forsetaembættið. The Boston
Globe hefur verið á sömu nótum
en er íhaldssamara dagblað og fer
varlegar í fréttaflutningi sínum og
reynir að forðast þá æsifrétta-
mennsku sem hefur annars ein-
kennt málið.
Clinton kom í stutta heimsókn
til Boston í síðustu viku og endur-
spegluðu móttökurnar blendnar
tilfinningar borgarbúa gagnvart
forsetanum sem heilsuðu upp á
hann með mótmælaspjöldum jafnt
sem stuðningsyfirlýsingum í mið-
borginni. Tilefni heimsóknar for-
setans var fjáröflun Demókrata-
flokksins og safnaðist rúmlega ein
milljón dollara sem þykir dágóð
upphæð á einum degi jafnvel fyrir
Boston sem er eitt helsta vígi
flokksins.
Forsetinn sótti kvöldverðarboð
á Park Plaza hótelinu þar sem um
sex hundruð stuðningsmenn
flokksins mættu og opnuðu pyngj-
ur sínar. Höfuð Kennedy-ættar-
innar, Edward M. Kennedy, fór
þar fremstur í flokki og í ræðu sem
hann hélt af tilefninu lét hann þau
orð falla að Boston hefði verið
Clinton-svæði árið 1992, Clinton-
svæði árið 1996 og væri enn Clint-
on-svæði, við mikinn fögnuð við-
staddra.
Margir af helstu frammámönn-
um Boston voru viðstaddii’ og þar
á meðal var ríkissaksóknarinn og
nýkjörinn frambjóðandi demókra-
taflokksins í komandi fylkisstjóra:
kosningum, Scott Harshbarger. í
ræðu sem forsetinn hélt í kvöld-
verðarboðinu lagði hann áherslu á
stefnuskrá flokksins og stjómmál
og sleppti öllum afsökunar- og iðr-
unarorðum vegna Lewinsky-máls-
ins.
rökordýr-Hvalir"!
arzvp
5kolavörðustíg 1a
Andlit Breta-
drottningar ekki
á Evró-seðlum
30.000
umsækj-
endur aft-
ur í próf
Brussel. Reuters.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins (ESB) hefur
ógilt niðurstöður prófs, sem
lagt var fyrir 30.000 umsækj-
endur um störf hjá ESB, vegna
kvartana próftaka um svindl.
Talskona framkvæmdasijórnar-
innar sagði prófið verða lagt
fyrir að nýju eins fljótt og unnt
væri, en
það kostar
Evrópu-
sambandið
um 100
milljónir
íslenskra
króna.
Mikil sam-
keppni er um störf hjá fram-
kvæmdastjórn ESB í Brussel.
Prófið var hið fyrsta í röð sam-
keppnisprófa, sem lögð eru fyr-
ir tilvonandi starfsmenn ESB, á
37 stöðum víðs vegar um álf-
una.
Verið er að rannsaka ásakan-
ir um svindl og talið er sannað
að prófinu hafi verið „lekið“ til
próftaka á Ítalíu. Einnig er Ijóst
að einhveijir próftakar hafa
hringt úr farsímum sínum inni
á salerni til þess að verða sér
úti um rétt svör við spurning-
unum. Fyrirlagning í Brussel,
Róm og Mflanó er í sérstakri at-
hugun.
Brussel, London. The Daily Telegraph.
BANKASTJÓRN Evrópubankans
hefur tilkynnt að Bretum muni ekki
verða heimilt að setja andlit Breta-
drottningar á evró-seðla gangi þeir
í Efnahags- og myntbandalag Evr-
ópu (EMU). Munu ráðherrar Evr-
ópusambandslandanna lengi hafa
staðið í þeirri trú að hverri ESB-
þjóð yrði heimilt að setja tiltekin
þjóðartákn á hluta seðlanna en nú
hefur Evrópubankinn tekið af öll
tvímæli um þetta.
Mun ákvörðun Evr-
ópubankans valda Tony
Blair, forsætisráðherra
Bretlands, nokkrum
áhyggjum enda ræddi
hann fyrir síðustu þing-
kosningar um þau
„sterku tilfinningabönd"
sem vöknuðu við það að sjá andlit
Bretadrottningar á breskum gjald-
miðli. Hafa þingmenn andstæðir
Evrópusamstarfinu þegar mótmælt
því sem þeir telja „móðgun“ við
konungdæmið og segja að hér gefi
að líta vísbendingu um hvernig litið
yrði framhjá hagsmunum Bret-
lands gangi landið einhvern tíma í
EMU.
Talið er að Verkamannaflokkur-
inn breski muni nú eiga í enn frekari
erfiðleikum með að sannfæra al-
menning í Bretlandi um að kveðja
pund sitt og taka upp evruna, gjald-
miðil ESB sem tekinn verður í notk-
un í byrjun næsta árs. Reyndu full-
trúar í fjármála- og forsætisráðu-
neytinu að gera Iítið úr málinu og
sögðust skilja þær tilfinningar sem
menn bæru til pundsins breska.
Mun Gordon Brown, breski fjár-
málaráðherrann, ætla að beijast
fyrir undanþágu til handa Bretlandi.
Fulltrúar Evrópubankans ítreka
hins vegar að ekki verði um neinar
undanþágur að ræða. Segja þeir að
með því að setja sérstakt þjóðar-
tákn á evró-seðla í hverju landi
væri verið að flækja mjög fram-
leiðsluferli seðlanna, rugla almenn-
ing í ESB-löndunum enn frekar og
auka gífurlega kostnað við seðlaút-
gáfuna.
Hague segir um
„viðvörun" að ræða
William Hague, leiðtogi íhalds-
flokksins breska, reyndi þegar að
nýta sér ákvörðun Evrópubankans
í baráttu flokksins fyrir því að
halda Bretlandi fyrir utan EMU.
Sagði hann ákvörðunina „viðvörun"
til bresku þjóðarinnar. „Andlit
drottningarinnar á gjaldmiðli okkar
er öflugt tákn um sjálfstæði þjóðar-
innar og getu okkar til að taka
ákvarðanir í þeim málefnum sem
snerta þjóðarhag."
Gordon Brown hefur þegar feng-
ið samþykkt að gangi Bretland í
EMU muni Evrópuþankinn ekki
mótmæla því að andlit drottningar
verði á annarri hlið Evi'ópumyntar-
innar. Búist er hins vegar við miklu
meiri útbreiðslu Evrópuseðlanna
og veldur það ákvörðun Evrópu-
bankans nú.
3 Jólahýasintur
Kra 199,=
111196 LAUQARDAQ @§ 8UNNUDAD
10 Túlípanar
Kra 199,=
10 Krókusar
Kr. 199,=