Morgunblaðið - 26.09.1998, Side 43

Morgunblaðið - 26.09.1998, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 43 B arnamyndir Við brosum - þú líka Skráning heilsufars-, ættar- og erfðafræði upplýsinga barna EINS og kunnugt er á sér stað umræða í þjóðfélaginu um víð- tækari samsöfnun upp- lýsinga um einkahagi einstaklinga og sam- tengingu þeirra á ein- um stað en áður hefur þekkst. Ljóst er að mál þetta snertir marga fleti ís- lensks mannlífs, ekki hvað síst komandi kyn- slóðir. Því er að minni hyggju mikilvægt að gætt sé að réttarstöðu barna og hvemig færsla allra heilsufars- og félagslegra upplýs- inga þeirra geti haft áhrif á líf þeirra í framtíðinni. Eitt mikilvæg- asta atriðið í þessu sambandi er Mikilvægt er að gætt sé að réttarstöðu barna, segir Reynir Arngrímsson, og hvernig færsla allra heilsufars- og félags- legra upplýsinga þeirra geti haft áhrif á líf þeirra í framtíðinni. samtenging heilsufarsupplýsinga, ættarupplýsinga, félagslegrar stöðu og erfðaeiginleika einstaklingsins. í dag er mögulegt að meta áhættu einstaklings, bams eða full- orðins á að veikjast af ákveðnum arfgengum sjúkdómum. Enn sem komið er nær þetta fyrst og fremst til sjaldgæfra sjúkdóma, en þó er í sumum löndum, s.s. Bandaríkjunum og ýmsum löndum Evrópu, hægt að fá keypt erfðafræðileg próf sem lúta Reynir Arngrímsson að algengari heilsufars- vandamálum s.s. brjóstakrabbameini og Alzheimer-sjúkdómi (snemmkomin elliglöp og heilabilun). Ljóst er að með hverju ári sem líður fjölgar þessum forspárprófum sjúk- dóma, svo mjög að lög- gjafanum í Bandaríkj- unum, Bretlandi og fleiri Evrópulöndum hefur þótt ástæða til að setja sérstaka löggjöf sem bannar mismunun einstaklinga á grund- velli erfðauppbygging- ar, t.d. með tilliti til trygginga (þ.m.t. sjúkratrygginga) og atvinnumöguleika. Sumir ganga svo langt að óheimilt sé að spyrjast fyrir um fjölskyldusögu hvað þá að krefjast eða afla upplýsinga um erfðafræðileg greiningarpróf. En slíkar upplýsingar verða óneitan- lega til um alla íslendinga verði af gerð miðlægs gagnagrunns á heil- brigðissviði. I þeirri umræðu sem nú á sér stað á Islandi um gerð miðlægs gagnagrunns hefur ekki verið tekið á því hvemig bmgðist skuli við rannsóknarniðurstöðum sem hafi forspárgildi um þróun slíkra sjúk- dóma. I hinu dulkóðaða kei-fí er gert ráð fyrir að hægt sé að rjúfa kóðann og fínna hinn umrædda ein- stakling (þ.e.a.s ekki er gert ráð fyrir fullkominni aftengingu per- sónu- og heilsufarsupplýsinga). Því vaknar sú spurning hvort okkur beri siðferðileg skylda til að láta einstakling, fjölskyldur eða hópa vita af slíkum upplýsingum gefi þær vísbendingar um yfirvofandi sjúk- dóm í ókominni framtíð eða hvort slíkt gæti skaðað viðkomandi ein- stakling, fjölskyldu eða hóp (t.d. með tilliti til atvinnumöguleika og trygginga). Einnig er mikilvægt að taka af- Meiriháttar pelsúlpur með hettu Mörg snið Stuttar og síðar pelskápur Opið laugard. 10-16. \o<Pms\ö Mörkinni 6, sími 588 5518. Ert þú Silki-damask EINMANA? í metratali í úrvali Við erum til staðarl Póstsendum VINALINAN vinur í raun CT 561 6464 fe(+)! 800 6464 öll kvöld ki. 20-23 fp nonon)- UflaggB Skólavördustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050. stöðu til þess hvernig skuli farið með upplýsingar um börn í þessu sambandi. Hvort yfir höfuð skuli leyfa færslu upplýsinga og rann- sóknh' sem geti haft forspárgildi um heilsufar þeima eins og óumdeilan- lega verður hægt í hinum miðlæga gagnagrunni, út frá fjölskyldusögu einni saman eða erfðarannsóknum á skyldum einstaklingum. Flestir sem að þessum málum hafa komið út frá erfðafræðilegu sjónarmiði hafa dregið þá ályktun að hvorki foreldrar né samfélagið geti tekið slíka ákvörðun fyrir hönd barnanna, nema brýn læknisfræði- leg ástæða liggi fyrir því s.s. að sé sjúkdómurinn ekki greindur í tíma geti það leitt til varanlegs skaða fyrir barnið. Þannig er t.d. réttlætt að leita á meðal nýbura að ákveðn- um efnaskiptasjúkdómum sem ómeðhöndlaðir leiða til alvarlegrar vangefni. Öðru máli skiptir um sjúkdóma sem koma fram síðar á ævinni. Þá þykir rétt að bíða eftir að barnið verði sjálfráða og geti sem fullveðja einstaklingur tekið sínar eigin ákvarðanir og veitt upp- lýst samþykki fyrir þátttöku. Að mínu mati verður íslenska þjóðin og Aiþingi íslendinga að taka afstöðu til skráningar upplýsinga um böm á jafnvíðtækan hátt og er fyrirhugað, sérstaklega þar sem ekki er ætlað að aftengja heilsufars- (þ.m.t. erfðafræðileg gögn sbr. skil- gr. frumvarps til laga um gagna- grann á heilbrigðissviði) og félags- legu gögnin persónuupplýsingum um bamið heldur einungis dulkóða sem þýðir að í framtíðinni verður hægt að auðkenna einstaklinginn á ný með hjálp dulkóðunar-lykilsins. Hvað framtíðin ber í skauti sér, t.d. með tilkomu erfðafræðilegs stýri- kerfís í heilbrigðissviði, sem forsæt- isráðherra boðaði á fundi SUS ný- verið vitum við ekki, en mikilvægt er að við byggjum nú ekki upp upp- lýsingakerfi sem getur mismunað börnum okkar síðar. Höfundur er dr. med. dósent ( klínískri erfðafræði og sérfræðing- ur ( erfðalæknisfræði og erfðasjúk- dómum. BARNA ^FJÖLSKYIDU LJOSMYNDIR Ármúla 38 • sími 588-7644 Gunnar Leifur Jónasson HSM pappírstætarar Leiðandi merki - Margar stærðir Þýzk gæði - Örugg framleiðsla HSM390 m/vsk. m/vsk. m/vsk. m/vsk. Kr. 123.685 m/vsk. J. ÍÍSTVniDSSON HF. Shiphoki 33,105 Revkjovík, sími 533 3535 Þægilegur og flottur róttagalli sem fæst í svörtu og bláu í stærðum 92-164 og kostar aðeins HAGKAÐP AHtaf betri kaup

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.