Morgunblaðið - 26.09.1998, Side 57

Morgunblaðið - 26.09.1998, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1998 57 MINNINGAR GUNNAR BJARNASON + Gunnar Bjarna- son fæddist á Húsavík 13. desem- ber 1915. Hann lést á hjúkrunarheimil- inu Eir 15. septem- ber síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hvítasunnu- kirkjunni Ffladelfíu 25. september. Nú er fallinn í valinn í hárri elli einhver fræknasti merkisberi íslenska hestsins, Gunnar Bjarnason, fyiTverandi hrossaræktarráðunaut- ur. Gunnar tók við starfí hrossa- ræktarráðunautar árið 1940. Eftir að hann hóf störf urðu á fáeinum árum slíkar sviptingar í vélvæðingu landbúnaðarins að íslenski hestur- inn varð að steingervingi í flestra augum. Til allrar hamingju hafði Gunnar kynnst mönnum sem voru hestamenn frá innstu hjartans taug og hrifist af þeim og þeir af honum. Þeir sættu sig ekki við það að veg- ferð íslenska hestsins væri svo gott sem lokið. í þeirri baráttu sem framundan var nýttust eðliskostir Gunnars til fullnustu; leiftrandi hugmyndaflug, flugmælska og kjarkur sem jaðraði við fífldirfsku. Sigur vannst og reisti hann sér bautasteina sem aldrei munu falla. Til að efla metnað í hrossarækt og félagslegt gildi hestamennsk- unnar umbylti Gunnar mótahaldinu og beitti sér fyrir að stórmót yrðu háð. Fyrsta landsmótið var haldið á Þingvöllum 1950 en áður stóð hann að stofnun Landssambands hesta- mannafélaga, m.a. til að skapa sér samstarfsaðila við mótahaldið. A fyrsta landsmótinu kom hann fram með fyrsta skilgreinda dómkvarð- ann viðvíkjandi ræktun íslenska hestsins. Jafnframt á hann heiður- inn að því að hérlendis voru hross dæmd á tölulegum kvarða en ekki einungis flokkuð eins og tíðkaðist erlendis. Þá er enn ótahð það sem merkast er í ferli Gunnars en það er sköpun heils útflutningsatvinnu- vegar. Gunnar lét af starfí hrossarækt- arráðunautar 1961 en hafði þá um árabil staðið í mikilli baráttu við að efla útflutning íslenskra hrossa og vinna hestinum sess meðal erlendra þjóða. í þessari baráttu nýttust eðliskostir hans til hins ýtrasta. Þessu starfi sinnti Gunnar allt til 1987. Árangurinn þekkja allir en ís- lenski hesturinn hefur nú unnið sér alþjóðlega viðurkenningu og er enda einstakur í sinni röð. I baráttu sinni fyrir útflutningi íslenska hestsins og við að vinna honum sess í útlöndum beitti hann sér fyrir stofnun FEIF sem eru alþjóðleg samtök eigenda og unnenda ís- lenska hestsins. Auk þess átti hann öðrum fremur heiðurinn af því að atvinnumennska í hestamennsku vann sér sess hér heima. Vegferð frumkvöðulsins Gunnars Bjarnasonar er lokið. í störfum sín- um ruddi hann brautina fyrir þá sem eftir koma og stendur íslensk hrossarækt í ævarandi þakkar- skuld við hann. Þeirri þökk vil ég hér með koma því á framfæri fyrir hönd hrossaræktarinnar í landinu og votta afkomendum Gunnars hina dýpstu samúð. Kristinn Hugason hrossaræktarráðunautur. Það var haustkvöld 1963. Við skólapiltar sátum í eldrideildarstof- unni á Hvanneyri og biðum þess að Guðmundur skólastjóri setti skól- ann. Flestir höfðu tekið sér sæti. Skyndilega er hurðinni svipt upp. Inn stormar fasmikill maður með konu sinni, háleitur og býður gott kvöld háum rómi: Það leyndi sér ekki að í stofu hafði gengið Gunnar Bjarnason, þjóðsagnapersóna þá löngu orðinn þótt skorti enn þrjú ár í fimmtugt. Eldri nem- endur höfðu sagt okk- ur hinum af Gunnari. Víst var ég spenntari að kynnast kennslu hans en annarra við skólann. Fyrsta verk Gunn- ars þetta haust var að fara með okkur fram- haldsdeildungum í gegnum atvinnusögu. Kápugrænt námsbók- arkorn höfðum við keypt. Ur því man ég nú lítið. Stundimar hjá Gunnari þeim mun betur. Strax kom í ljós að vinnubrögð kennarans voru nokkuð óhefðbundin; töskukorn þunnt hafði hann með sér. Sennilega hef- ur téð kennslubók oftast verið þar ofan í. Kennarinn hlassaði sér ofan í stólinn, teygði vel úr sér með krosslagða fætur og greipar spenntar við hnakka ellegar hann tyllti sér út í gluggakistu. Stöku sinnum tók hann upp bókina, svona til þess að finna út hvar við værum; allt eins spurði hann okkur nem- endurna, sem vorum aðeins fimm, hvert umræðuefnið hefði verið í síð- asta tíma. Síðan hófst kennslan: efnispunktur var gripinn, ræddur og krufinn; hamingjan mátti vita hvaðan sá var kominn: Sauðagullið, Hornafjarðarstofninn, þingeysk bændamenning, germedín (sótt- hreinsiefni!), lífsskoðanir Hallgríms Þorbergssonar á Halldórsstöðum (sem Gunnar mat þá meira en aðra menn), júgurbólgan í Hvanneyrar- kúnum ellegar dönsku samvinnufé- lögin svo fáein dæmi séu tekin. Þú spyrð hvað þetta átti skylt við at- vinnusögu? Tja, það er nú það. Áhyggjur af því liðu fljótlega hjá - kápugræna bókin hlaut að sjá til þess. Hins vegar sat tvennt eftir: annars vegar sú unun að heyra Gunnar flytja mál sitt: meitlað, myndrænt og leiftrandi, og hins vegar listileg rökræða hans sem hvatti til efniskrufningar og spurn- inga, já nánast manaði alla til um- hugsunar og andsvara. Enginn varð kátari en Gunnar, tækist hon- um að magna upp snarpa rökræðu - þá efldist hann um allan helming og hló gjarnan svo glumdi víða. Þurfti sjaldnast að velkjast í vafa um í hvaða stofu Gunnar Bjarnason var að kenna. En fleiri hliðar átti Gunnar. Um þessar mundir var hann að skrifa bók sína, Búfjárfræði, eitt mesta ritverk sem unnið hefur verið af einstaklingi á sviði íslenskra bú- fræða. Hugur hans var bundinn verkinu; því leyndi ekki kennsla hans. Þá var ekki farið með himin- skautum; af nákvæmni leiddi hann okkur í gegnum leyndardóma fóð- urfræðinnar. Nutum við þess þá líka að hann var nýkominn úr fram- haldsnámi í greininni, hafði kynnst nýrri þekkingu og svall móður að koma henni áfram. Rýmið leyfir ekki upprifjun fleiri minninga um þátt Gunnars Bjama- sonar í kennslu og skólastarfi á Hvanneyri á þessum árum. Hafði hann þó mörg fleiri járn í eldi, sem hann hamraði þétt bæði og fast. í fasi Gunnars Bjarnasonar sá ég löngum fyrir mér hinn glófexta höfðingja íslensku heiðanna sem ekkert þráir eins mikið og frelsið, lætur skíðgarða og skorninga hvorki hefta för sína né breyta henni og tekur mótvindinn sem hressandi súrefnisauka er leysir enn meiri þrótt úr læðingi. Á mót- unarárum í skóla eru það forrétt- indi að fá að kynnast slíkum mönn- um; þeir eru sem saltið og piparinn í hversdagsjafning fræðanna. Sú staðreynd leitar æ oftar á huga minn sem fékk að setjast í kennara- stól Gunnars á Hvanneyri er hann hvarf þaðan fyrir réttum fjórðungi aldar. Nú hljóðnar hófadynurinn frá Gjallarbrú. Jóreykurinn eftir skeið Gunnars Bjamasonar um völl ís- lensks landbúnaðar mun þó seint setjast því eftir stendur sterk minning; minning sem hvetur og vekur gleði, minning sem Ijúft er að þakka. Blessuð sé hún. Frá Hvann- eyri era fjölskyldu Gunnars sendar innilegar samúðarkveðjur. Bjarni Guðmundsson. Það er mikil eftirsjá að Gunnari Bjarnasyni. Með tungutaki hesta- manna má segja að Gunnar hafi verið glæsilegur og fasmikill gæð- ingur, fjölhæfur, geðgóður og vilja- mikill, og blessunarlega aldrei full- taminn. Hefði ekki hentað vel í keppni á litlum hringvelli. Gunnar gat farið mikinn, nánast með himin- hvolfum. Á öllum fundum átti hann salinn. Hann heillaði flesta og hrelldi suma. Af dæmafáum dugn- aði fór hann um lönd og kynnti ís- lenska hestinn. Hann var sölumað- ur af guðsnáð og trúði sjálfur öllu sem hann sagði - og margt af því var mjög fallegt. Hann er maðurinn á bak við sigurgöngu íslenska hestsins víða um heim. Það er dýr- mætt að hafa fengið að kynnast Gunnari Bjarnasyni og fyrir þau kynni skal hér þakkað. Ragnar Tómasson. Með þakklátum huga og virðingu minnist ég vinar míns og samferða- manns um langt árabil. Eg kynntist Gunnari Bjarnasyni og fyrri konu hans Svövu þegar þau vora næstu nágrannar okkar á Hvanneyri. Á þeim tíma var Hvanneyri miklu fá- mennara en í dag og vora húsin á staðnum ekki mörg. Aðeins örfáir metrar vora á milli heimila okkar en Gunnar bjó þá í Álfhóli en við í Svíra og stóðu bæði húsin á sama hólnum. Samgangur var að sjálf- sögðu mikill milli heimilanna. Gunnar var kennari á Hvanneyri og hrossaræktarráðunautur Is- lands á þessum tíma og á ég honum mikið að þakka fyrir leiðbeiningar og handleiðslu á mínum fyrstu skrefum um hrossaræktina. Það var Gunnar Bjamason sem fyrst stýrði mér inn á braut hrossarækt- unarinnar. Það var honum að þakka að hryssurnar mínar Skeifa og Komma komust í ættbók. Hann sagði einfaldlega: „Hryssurnar era góðar, þú þjálfar þær vel og mætir með þær á Landsmót á Þingvöll- um“. Hann hafði svo hvetjandi áhrif og var aldrei letjandi. Eg fór eftir orðum hans af bestu getu og undir- búningurinn að því starfi hófst, sem síðan hefur loðað við mig og mína fjölskyldu. Gleymi ég seint þegar Svava, fyrri kona hans, kom hlaup- andi yfir tU mín með kveðju frá Gunnari, sem þá var staddur austur á landi við dómstörf og úrtökur fyr- ir Landsmót. Sagði hann að tíminn væri farinn að líða ansi hratt og Landsmótið að skella á, skyldi ég því leggja áherslu á hæga töltið hjá Skeifu; skeiðið væri öruggt hjá henni. Þannig hvatti hann og fylgd- ist með okkur hestafólkinu. Þökk sé heiðursmanni. Þegar á mótsstað kom og keppni var hafin var enginn í raun neðstur. Hann talaði ekki niður tU okkar, sem sum hver vor- um með kvíðaherping í maganum. Allir hestar og menn fengu umfjöll- un sem framsett var á diplómatísk- an og rómantískan hátt. Maður fylltist von og bjartsýni um að hægt væri að bæta og laga og gera betur, svo miklu, miklu betur næst! Oneitanlega verða ýmsar sveiflur á langri ævi og um tíma fór Gunnar frá Hvanneyri og gerðist skóla- stjóri á Hólum í Hjaltadal. En kom svo síðar aftur að Hvanneyri ásamt Guðbjörgu, seinni konu sinni og nýrri fjölskyldu og jörpu hestunum sínum sem hann hélt mikið uppá. Við Gunnar og Guðbjörg höfðum þá saman hesthús á Tungutúnshólnum og ógleymanlegir voru óteljandi út- reiðartúramir um Hvanneyrarfit- ina, niður á Hvítárhól og út í Land sem kallað var. Þekktum við orðið þar hverja þúfu. Heimsóknir til ná- grannanna í Andakíl og Skorradal vora ógleymanlegar, t.d. Péturs á Miðfossum, Sigurðar á Indriðastöð- um, Guðrúnar á Grand, Jóns á Skeljabrekku, Davíðs á Hvítárvöll- um, Leifs og Rúnu á Heggsstöðum, Einars á Hesti og Guðjóns á Syðstufossum. Þar sem við fengum á hverjum stað, með kaffinu, fróð- leik og sögur um hesta og menn. Gunnar þekkti alla og allir þekktu Gunnar og ég fékk að kynnast því með honum. Eg tók eftir að Gunnar heilsaði ávallt með kveðjunni: Komdu sæll, vinur, eða sæl vin- kona. Kvaddi hann á sama hátt. Hann umgekkst alla að heldri manna hætti með miklum glæsi- brag. Hann var alltaf vel klæddur á hestamótum og öðrum mannfagn- aði og þegar hann mokaði undan hestunum sínum eða kenndi þeim var hann alltaf í hálfsíðum sloppi, alltaf hreinn og snyrtilegur. Gunnar var hugsuður og framúr- stefnumaður og langt á undan sinni samtíð. Hann hafði stóra framtíðar- drauma um íslenska hestinn og kom þeim til skila til þeirra sem vildu hlusta og skilja og þeim fjölg- ar óðum. Hann var fullur af eld- móði og án vanmetakenndar. Að hlusta á Gunnar lýsa dómum kyn- bótahrossa var sérstök upplifun, engum leiddist á meðan. Hann hafði algert og óþvingað vald á blæ- brigðum íslenskrar tungu og nýtti sér þessa hæfileika sína vel. Hann var diplómat af Guðs náð. Ef inni er þröngt, tak hnakk þinn og hest. Og hleyptu á burt undir loftsins þök. Hýstu aldrei þinn harm. Það er best. Að heiman, út, ef þú berst í vök. Það finnst ekki mein, sem ei breytist og bæt- ist, ei böl, sem ei þaggast, ei lund, sem ei kætist. Við fjörgammsins stoltu og sterku tök. Lát hann stökkva, svo draumar þíns hjarta rætist. (Einar Ben.) Gunnar eignaðist sanna trú og athvarf hjá Guði sínum bæði í gleði og sorgum. Far þú í friði, kæri vinur, og hafðu kæra þökk fyrir það sem þú varst mér og minni fjölskyldu. Inni- legar samúðarkveðjur sendi ég að- standendum og vinum. Sigurborg Ágústa Jónsdóttir. Kveðja frá Félagi hrossabænda Einn merkasti maður í sögu hrossaræktar og kynningu íslenska hestsins er fallinn. Ekki er ætlun mín að rekja feril Gunnars Bjaraa- sonar hér en afrek hans í þágu hrossaræktenda á Islandi era ótelj- andi. Ég kynntist Gunnari sjálf ekki fyrr en ég tók til starfa fyrir Félag hrossabænda fyrir rúmum tveimur áram. Þá hafði ég lesið um þennan merka mann og fylgst með verkum hans frá barnsaldri og þótti því mikið til um þegar hann bank- aði upp á hjá mér einn morguninn og bauð mig velkomna til starfa. Handtak hans var þétt og ekki er því að neita að mér hafi þótt nóg um þegar hann spurði mig hvemig væri að vera komin í skóna hans. Ég svaraði því til að það væri spennandi, en innst inni hugsaði ég að sama væri hvað ég legði á mig og næði fram í nýju starfi, aldrei myndi ég passa í skóna hans Gunn- ars Bjarnasonar. Gunnar var þá um áttrætt og hafði enn fyrir sið að koma akandi í morgunkaffi í Bændahöllina. Oft heimsótti hann mig og ræddi markaðssetningu ís- lenska hestsins, þessa fjársjóðs sem honum var svo í mun að kynna fyrir heimsbyggðinni allri. Mér þótti vænt um þessar morgunheim- sóknir og oft fórum við á flug í hug- myndum um aðferðir við að koma íslenska gæðingnum á framfæri. Eldmóður og leiftrandi hugmynda- auðgi einkenndi alla framsetningu Gunnars og auðvelt var að sjá hvernig hann hefur sannfært fólk um ágæti hestakyns okkar í gegn- um tíðina. Sögur Gunnars af upp- hafi markaðssetningar erlendis eru ógleymanlegar og ævintýri eins og ferð nokkurra knapa á íslenskum hestum yfir gervöll Bandaríkin árið 1976 era ótrúleg. Af Gunnari gustaði alla tíð og eins og hann segir sjálfur á bls. 13. í 1. bindi Ættbókar og sögu íslenska hestsins var sjaldan lognmolla í kringum hann: „Oft hefur loft verið lævi blandið; skoðanamunur og átök; fólk hefur staðið í hópum saman í freyðandi brimgarði geð- hrifa; menn hafa orðið fjandmenn á stund dómsúrskurðar, og aðrir hafa bundist hlýjum vináttuböndum í bili á friðsælum stöðum í jaðri lit- ríkra og ólgandi hestaþinga.“ Þannig var Gunnar Bjarnason, ákveðinn eldhugi, umdeildur maður sem, að öðrum ólöstuðum, stóð að baki kynningu íslenska reiðhestsins fyrir heimsbyggðinni og lagði þannig grunninn að uppbyggingu hinnar miklu atvinnugreinar sem hrossaræktin og hestamennskan er orðin í dag. Fyrir hönd Félags hrossabænda þakka ég Gunnari hans ómetanlega framlag í þágu hrossaræktar á Is- landi og sendi börnum Gunnars og öðram aðstandendum samúðar- kveðjur. Hulda G. Geirsdóttir. „Þú sverfur og sverfur en nærð mér aldri á fluginu." (M.Joch). Þessu svaraði skáldið ábendingu um að ljóðin ætti að snurfusa og vanda. Sá er fer með brandi orðsins og vill framfarir, hann læðist ekki með löndum heldur gnæfir yfir með hvatningu og mælsku. Hann er hrópandinn. Samferðamenn setur hljóða fyrst en þurfa síðan að mótmæla og tína til alls kyns ómerkilegt svo úr verði andsvar. Brautryðjandinn færir steina úr stað, þá geta aðrir fótað sig á vegi. Síðar er vegurinn jafnaður og fyllt í holur. Það era einhver mannleg við- brögð að gera þann er fyrstur fór tortryggilegan og varast að skipa honum í fylkingarbrjóst. Arnsúgurinn er mikilfenglegur. En aðrir fuglar hræðast hann. Á kveðjustund minnumst við þess sem skar sig úr fjöldanum. Var langt yfir miðlungsmarkinu, meiri en flestir samferðamenn til vitsmuna og vera. Gunnar Bjarnason var af sterk- um stofni kominn. Margt af því fólki hefir frekar viljað sjá glæsi- spretti en dóla yfir hlutunum. Að ferðalokum er rétt að horfa um stund yfir sviðið. Áhrif Gunnars Bjarnasonar á íslenska hesta- mennsku, ræktunarstarf og sess hestsins í nútímanum eru augljós sannindi, samanburður við upphaf- ið og glæstar sýningar nú eru frá- leitar. Merkinu hefir verið haldið á lofti. Deilur manna á milli era aukaat- riði. Hugsjónir haldast betur vak- andi en ef lognið leggst yfir. Það er takmörkuð speki að gleyma upphafinu. Ræktun reiðhestsins kom í hlut Gunnars. Hann tók við embætti hrossaræktarráðunauts sama ár og þjóðir heims rannu saman í stríði. Islendingar sáu peninga fyrst fyrir vinnu sína svo gagn væri að. Dráttarvélin var ekki nema nokkur ár að leysa hestinn af hólmi. Jeppinn var e.t.v. enn skæðari. Lán okkar liggur í því að sannur bylt- ingarmaður reisti merki sitt svo fagmannlega að bæði hesturinn og jeppinn hafa tekið miklum framför- um. Nokkrir vora þeir er héldu í horfinu, hestamennska og ræktun- arstarf hafa aldrei lognast út af. Ráðunauturinn ungi hafði fast und- ir fæti en um tíma varla meira en sem svarar stiklunum á breiðu vaði. Við þessar aðstæður var verk Gunnars Bjarnasonar að hvetja fólk til hestamennsku og að rækta reiðhestinn. Á miðjum starfstíma ráðunautar- ins var komið í framkvæmd fyrsta landsmóti hestamanna. Nú sem áð- ur var hugsað hátt. Fólkið í landinu og íslenski hesturinn eiga saman einn stað öðram fremur. - Þing- velli. Ekki einasta er Gunnar Bjarna- Sjá næstu síðu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.