Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
230. TBL. 86. ÁRG.
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ekkert bdlar enn á efnahagsáætlun í Rússlandi
Rússar óska eftir
matvælaaðstoð
Moskvu, Reuters.
DRENGIR af albönskum ættum hreinsa rústir skóla sem brann til
kaldra kola í árásum Serba á þorpið Zatric í Kosovo.
Auknar líkur á íhlutun NATO í Serbíu
Arásir heimilað-
ar um helgina?
Brussel. Reuters.
JEVGENI Prímakov, sem hefur
nú verið forsætisráðhen-a Rúss-
lands í mánuð, viðurkenndi í gær
að hann vissi ekki enn hvaðan
stjórnin gæti fengið fé til að fylla
upp í fjárlagagatið og binda enda á
fjármálakreppuna í landinu. Hann
neyddist ennfremur til þess að
óska eftir matvælaaðstoð frá Evr-
ópusambandinu (ESB).
Prímakov ræddi við Jacques
Santer, forseta framkvæmda-
stjómar ESB, í Moskvu og tíund-
aði efnahagsvanda Rússlands, m.a.
launa- og lífeyrisskuldir ríkisins,
minnkandi framleiðslu og skuldir
við erlenda banka.
Talsmaður Santers sagði að
Prímakov hefði óskað eftir mann-
úðaraðstoð og Evrópusambandið
myndi íhuga beiðnina. Hins vegar
kæmi ekki til greina að svo stöddu
að ESB veitti Rússum lán.
Kosningar
sniðgengnar
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR í
Aserbaídsjan efndu í gær til
mótmælagöngu í Bakú, höfuðborg
landsins, og sögðust ekki ætla að
viðurkenna úrslit forsetakosninga,
sem frarn fara á sunnudag. Fimm
flokkar hafa ákveðið að sniðganga
kosningamar og saka Haydar
Alíjev forseta um að hafa
undirbúið stórfelld kosningasvik
til að halda embættinu. Um 10.000
manns tóku þátt í mótmælunum
þótt lögreglan hefði verið með
mikinn viðbúnað til að hindra þau.
Sharon í
utanríkis-
ráðuneytið
Jerúsalem. Reuters.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra Israels, tilkynnti í gær að
Ariel Sharon, fyri’verandi varnar-
málaráðherra, yrði næsti utanríkis-
ráðherra landsins. Sharon á að
stýra viðræðum við Palestínumenn,
sem hefjast í Bandaríkjunum í
næstu viku, ásamt Netanyahu sem
sjálfur hefur gegnt utanríkisráð-
herraembættinu síðan í janúar.
Sharon hefur undanfarin ár
barist harðast allra gegn því að ísr-
ael gefi eftir land á Vesturbakkan-
um og óttast því sumir um afdrif
viðræðnanna. Aðrir benda hins veg-
ar á að með Sharon í forystusveit
sinni hafi Netanyahu tekist að friða
harðlínumenn í ríkisstjóm sinni.
Saeb Erekat, aðalsamningamað-
ur Palestínumanna, varð ókvæða
við tíðindin í gær og sagði Netan-
yahu augsýnilega ekki vilja frið í
Mið-Austurlöndum.
■ Pólitískri útlegð/28
Prímakov sér
enga lausn á fjár-
lagavandanum
Vjatsjeslav Tsjemoívanov land-
búnaðan-áðherra sagði í gær að
Rússar myndu ekki þurfa að flytja
inn korn þar sem kornframleiðsla
þeirra dygði til að fuOnægja eftir-
spurn. Þótt kornuppskeran í ár
væri miklu minni en á síðasta ári
væm gæðin meiri, þannig að kom-
ið nýttist betur til manneldis.
Rússar fluttu inn þriðjung allra
matvæla, sem þeir neyttu á síðasta
ári, en gengishrun rúblunnar í ágúst
hefur orðið til þess að þeir geta ekki
lengur greitt fyrir innflutt matvæli.
Heildarinnflutningur þeirra minnk-
aði um 45% í september.
ROMANO Prodi, forsætisráðherra
Italíu, sagði af sér í gær eftir að hafa
beðið ósigur í atkvæðagreiðslu á
þinginu um tOlögu þess efnis að
þingið lýsti yfir stuðningi við stjórn-
ina. Tillagan vai' felld með aðeins
eins atkvæðis mun og þar með féll
55. stjórn Italíu eftir síðari heims-
styi'jöldina.
Þingið hafnaði tillögunni með 313
atkvæðum gegn 312. Oscar Luigi
Scalfaro forseti féllst á afsagnar-
beiðni Prodis en bað hann um að
gegna forsætisráðherraembættinu
til bráðabirgða.
Berlusconi vill kosningar
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
kom fjármálamörkuðum og stuðn-
ingsmönnum Prodis í opna skjöldu.
Stjóm Prímakovs hefur ekki enn
gengið frá áætlun um hvemig
bregðast eigi við efnahagsvandan-
um og dagblaðið Vremja sagði að
Prímakov hefði veitt aðstoðarfor-
sætisráðherranum Júrí Masljúkov,
sem er kommúnisti, frest til 20.
október til að leggja fram tillögur
um efnahagsaðgerðir.
Seðlaprentun óhjákvæmileg?
Dagblaðið Kommersant sagði að
í drögum að fjárlögum síðasta
fjórðungs þessa árs kæmi fram að
fjárlagahallinn myndi nema hart-
nær 100 milljörðum rúblna, and-
virði 450 milljarða króna. Príma-
kov kvaðst ekki vita hvaðan stjórn-
in gæti fengið þetta fé og gaf til
kynna að hún ætti einskis annars
úrkosti en að prenta seðla ef Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn neitaði að
veita landinu fleiri lán.
Vinstriflokkarnir kenndu hverjir
öðrum um fall stjómarinnar, sem
vai' sú fyrsta undir forystu vinstri-
manna, og Silvio Berlusconi, fyrrver-
andi forsætisráðherra og leiðtogi
bandalags hægri- og miðflokka,
krafðist þess að boðað yrði til kosn-
inga strax.
„Þetta er mjög dapui'legur dagur í
sögu Ítalíu," sagði Massimo D’Aema,
leiðtogi stærsta stjómarflokksins,
Lýðræðisflokks vinstrimanna. Lík-
legt þykii- að Scalfaro feli D’Alema að
mynda nýja stjóm. Talið er að forset>
inn sé andvígur því að efnt verði til
kosninga strax og hann þarf nú að
ráðfæra sig við forseta þingsins, fyrr-
verandi forseta Italíu og leiðtoga
stjórnmálaflokkanna. Þær viðræður
gætu tekið langan tíma.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, vill að aðildarríki Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) sam-
Efnt var til atkvæðagreiðslunnar
vegna andstöðu harðlínumanna í
flokki kommúnista, sem hafði stutt
stjórnina, við fjárlagafrumvarp
hennar. Það var þó ekki þingmaður
úr þeirra röðum sem varð stjórninni
að falli, heldur þingmaður Endur-
nýjunarflokksins, eins af stjórnar-
flokkunum. Leiðtogi hans, Lam-
berto Dini utanríkisráðherra, sagði
að þingmaðurinn yi'ði rekinn úr
flokknum.
Fall stjórnarinnai' er talið verða til
þess að seðlabankinn fresti vaxta-
lækkun sem búist hafði verið við ef
stjómin héldi velli. Öll stjórnarfram-
vörp, sem liggja fyrir þinginu, eru nú
einnig fallin og óvíst er hvort hægt
verður að samþykkja fjárlög næsta
árs fyrir áramót.
þykki um helgina að heimila herafla
bandalagsins að hefja ái'ásir á skot-
mörk í Serbíu til að binda enda á
hernaðaraðgerðir Serba í Kosovo,
að sögn stjórnarerindreka í Brussel
í gær.
Heimildarmennirnir sögðu þó að
stjórnarkreppan á Ítalíu og stjórn-
arskiptin í Þýskalandi gætu orðið
til þess að heimildin til hernaðar-
íhlutunar yrði ekki samþykkt fyrr
en á mánudag eða þriðjudag.
Fá tveggja daga frest
Heimildin er síðasta pólitíska
skrefíð í undirbúningi hugsanlegra
árása og færir Wesley Clark hers-
höfðingja, yfh'manni herafla
NATO, formlegt vald yfír þeim
flugvélum og vopnum, sem NATO-
ríkin hafa lofað til árásanna. Clark
getur þá fyrirskipað árás en
NATO-ríkin geta rift heimildinni
verði Slobodan Milosevic, forseti
Júgóslavíu, við kröfu öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna um tafarlaust
vopnahlé og friðarviðræður við alb-
anska aðskilnaðarsinna í Kosovo.
Stjórnarerindrekarnir sögðu að
ráðamenn í Júgóslavíu fengju tvo
daga til að verða við kröfunni eftir
að heimildin yrði samþykkt. Costas
Simitis, forsætisráðheri'a Grikk-
lands, sagði að tilraunum til að
leysa deiluna með diplómatískum
leiðum kynni að ljúka á mánudag
eða þriðjudag.
Viðræðurnar bera
ekkiárangur
Richard Holbrooke, sendimaður
Bandaríkjastjómar, ræddi í gær
við Milosevic í Belgrad til að freista
þess að fá hann til að verða við
kröfum öryggisráðsins. Holbrooke
sagði ekkert um gang viðræðnanna
en James Foley, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, sagði
að þær hefðu gengið „erfiðlega“ og
ekki borið árangur.
Foley sagði að ekki hefði komið
til átaka í Kosovo í gær en ekkert
benti til þess að Serbar myndu
verða við kröfunni um að kalla allar
öryggissveitirnar til búða sinna.
Milosevic hefur sagt Holbrooke að
Serbar hafi þegar komið á friði í
Kosovo og byrjað að flytja öryggis-
sveitirnar frá héraðinu.
Rikisstjórn ftalíu fell með eins atkvæðis mun
Prodi seffir af sér
Rdmaborg. Reuters. ^