Morgunblaðið - 10.10.1998, Page 2
2 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bíll eyði-
lagðist á
Langárbrú
FÓLKSBÍLL gjöreyðilagðist þeg-
ar hann rakst harkalega á brúna
yfir Langá á Mýrum laust eftir
kvöldmat í gær. Hjón voru í bílnum
með tvö böm og voru öll í beltum.
Kvörtuðu þau um stirðleika eftir að
bíllinn hafði kastast til.
Bíllinn var á leið vestur á Snæ-
fellsnes og mætti bíl sem var á suð-
urleið við brúna yfir Langá. Sá bíll
fór á undan inn á brúna en hinn
taldi hann myndu doka við. Þegar
bflstjóri bflsins á suðurleið sá að
hætt var við árekstri gaf hann dug-
lega inn og slapp yfir brúna en
hinn bfllinn nauðhemlaði og lenti á
brúarleiðaranum hægra megin.
Þaðan kastaðist bfllinn inná brúna,
á handriðið vinstra megin og aftur
til hægri og er gjörónýtur eftir.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi fór hér betur en á horfðist og
var bfllinn ekki langt frá því að
kastast gegnum brúarhandriðið og
ofan í ána. Fólkið var flutt á heilsu-
gæslustöðina í Borgamesi til að-
hlynningar.
Enn Vínnur
Þröstur
ÞRÖSTUR ÞórhaOsson vann sína
fjórðu skák í röð þegar ísland
gerði jafntefli við Kasakstan á
Ölympíuskákmótinu í Kalmykíu í
gær.
Islenska sveitin hefur 22 vinn-
inga eftir 10 umferðir en Rússar
era efstir með 27 vinninga. Sveit
Bandaríkjanna hefur hálfum vinn-
ingi minna. Þessar þjóðir mættust í
gær og skildu þá jafnar.
■ Þröstur/69
KÝRNAR í Efra-Langholti í Hrunamannahreppi
voru að vonum ánægðar þar sem þær röðuðu
sér við fóðurkálið á akrinum en mikil spretta
-rT s / o/ v i s 1 • var á grænfóðri í sumar i
|\ A7~F* 1 TDnllT*K íl |l argróða. Var ekkiannað
X X LAJ- 1VClAA fijótlega fara langt með ;
Morgunblaðið/Sig. Sigmundsson
var á grænfóðri í sumar eins og á öðrum jarð-
~ að sjá en að þær myndu
allt stykkið.
Samkomulag náðist um launamál starfsmanna Technopromexport
Gengið var að öllum kröf-
um verkalýðsfelaganna
RÚSSNESKA íyrirtækið Techno-
promexport hefur fallist á allar
kröfur Félags járniðnaðarmanna
og Rafiðnaðarsambandsins um
leiðréttingu launa útlendra starfs-
manna sinna. Guðmundur Gunn-
arsson, formaður Rafiðnaðarsam-
bandsins, áætlar að Techno-
promexport muni þurfa að leggja
út hátt í 20 milljónir íslenskra
króna í aukagreiðslur vegna endur-
skoðunar á fjölda yfirvinnutíma og
breyttrar röðunar í launaflokka.
Guðmundur segir að með þessum
leiðréttingum muni útborguð laun
starfsmanna allt aðþví tvöfaldast.
Samkomulag Technopromexport
og íslensku verkalýðsfélaganna var
undirritað á skrifstofu Rafiðnaðar-
sambandsins á tólfta tímanum í
gærkvöldi.
Þær upplýsingar hafa einnig
borist Landsvirkjun í gegnum
skrifstofu alþjóðlegs endurskoðun-
arfyrirtækis í Moskvu að sam-
kvæmt rússneskum lögum muni
verkamennirnir á næsta ári fá
Helmingur starfsmanna sendur
heim fyrir 1. nóvember
dregna frá skatti þá upphæð sem
þeir hafa greitt í skatt á Islandi.
Guðmundur segir að samkvæmt
samkomulaginu muni verkalýðsfé-
lögin snúa sér til Landsvirkjunar
ef frekara ósamkomulag verður um
launagreiðslur til starfsmanna
Technopromexport.
Guðmundur segir að á fimmtu-
dagskvöld hafi Technopromexport
borgað starfsmönnum út 1.000
dollara, eða um 70 þúsund íslensk-
ar krónur, í laun fyrir september.
Þær greiðslur sem upp á vantar
fyrir allt tímabilið eiga að verða
greiddar út í næstu viku. Leitað
verður til íslenska sendiráðsins í
Moskvu til að koma greiðslum til
þeiraa tveggja starfsmanna sem
þegar era farnir úr landi.
Andrei R. Yankilevsky, einn
framkvæmdastjóra Technoprom-
export, segist mjög sáttur við sam-
komulagið og telur að breytingam-
ar á launagreiðslum séu ekki stór-
vægilegar. Hann fagnar því að það
hafi verið viðurkennt að Techno-
promexport hafi gert rétt í því að
innheimta skatta af launum starfs-
manna íyrir rússnesk yfirvöld.
Munum leita eftir
fleiri verkefnum á Islandi
Yankilevsky segir að Techno-
promexport muni halda áfram að
leita eftir ng bjóða í verkefni á Is-
landi. „Þetta var fyrsta skrefið og
það var erfitt því við þekktum ekki
löggjöfina, reglumar og siðina. Nú
höfum við kynnst vel kröfum
Landsvirkjunar og verkalýðsfélag-
anna og munum því standa betur í
samkeppninni við önnur fyrirtæki.
Okkur líkar vel við landið og fólk-
ið, loftslagið er svipað og í Rúss-
landi.“
Samkomulagið náðist að loknum
fundahöldum sem stóðu í nær allar
gærdag í húsi Landsvirkjunar vic
Háaleitisbraut, en þar era einnig
skrifstofur Rafiðnaðarsambands-
ins. Yfirmenn Technopromexpori
funduðu ýmist með forystumönn-
um verkalýðsfélaganna eða stjóm-
endum Landsvirkjunar.
Yankilevsky segir að á næstr
vikum verði starfsmenn fyrirtækis-
ins sendir heim í áfóngum og ei
gert ráð fyrir að aðeins verði eftii
helmingur 1. nóvember. Stefnt vai
að því að 4-5 færu heim nú um
helgina. Um miðjan nóvember é
verkinu að vera lokið og fara þá all-
ir á brott að undanskfldum
nokkram mönnum sem eiga ac
ganga frá og senda vinnutæki aftui
til Rússlands. Yankilevsky og E
Subbota, framkvæmdastjóri Elect-
rosevkavmontaj, undirverktaks
Technopromexport, munu halda
aftur til Rússlands í dag.
Körfu-
boltavefur
á Netinu
MORGUNBLAÐIÐ á Netinu
hefur opnað sérstakan vef
sem tileinkaður er körfubolta.
A Körfuboltavefnum er að
finna upplýsingar um öll lið og
alla leikmenn úrvalsdeildar
karla, stöðutöflu, umferða-
töflu og lýsingar á öllum leikj-
um. Á vefnum verður fylgst
með gangi leikja í úrvalsdeild-
inni og úrslit birt um leið og
leikjum lýkur. Einnig verður
haldið utan um ítariega töl-
fræði úr leikjum úrvalsdeild-
arinnar. Á vefnum verður að
finna allar helstu fréttir úr
körfuboltaheiminum, þótt
sjónum sé aðallega beint að
úrvalsdeild karla.
LLijDOii
►Aldarafmæli Guðmundar G. Hagalfns
Dagur Dagbókarinnar haldinn í vikunni
Miklabæjar-Solveig í Þjóðleikhúsinu
Samtal við Helga Tómasson
Körfubolti
DHL-deildin
www.mbl.is