Morgunblaðið - 10.10.1998, Page 12
12 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hátíð við
upphaf
kirkjuþings
HÁTÍÐ sem markar upphaf nýs
kirkjuþings hefst í Dómkirkjunni
klukkan 20 á sunnudagskvöld.
Kirkjuþing stendur á ýmsum
tímamótum þar sem nú eru 40 ár
liðin frá því fyrsta kirkjuþing var
haldið, í ár starfar það í fyrsta
sinn eftir nýjum lögum um mál-
efni kirkjunnar og með nýjum
biskupi. Guðsþjónustan er öllum
opin.
„Með guðsþjónustunni minnum
við á að þjóðkirkjan er íslenskust
þess sem ísienskt er eftir þúsund
ára samfylgd við þjóðina, samofin
lífí hennar og örlögum," segir
Karl Sigurbjörnsson biskup. „Um
leið er hún alþjóðlegt samfélag og
það kemur skýrt fram í guðsþjón-
ustunni þar sem menningararf-
leifð okkar mun óma i sálmum og
stefjum jafnframt því sem þar
munu hljóma söngvar frá Suður-
Ameríku og Suður-Afríku og text-
ar heyrast á þessum tungum.
Ég minnist á þetta alþjóðlega
samhengi vegna þess veruleika
sem samfélag okkar horfist í augu
við, samfélag sem er á stundum
svo grimmilegt á mörgum sviðum.
Múrar hafa fallið og landamæri
þurrkast út en við sjálum líka alls
konar merki um þjóðernisremb-
ing og óbilgirni, hatur og mann-
fyrirlitningu í nafni þjóðernis eða
trúar. Kirkjan okkar á að sýna að
hún vill í nafni Krists standa gegn
öllu slíku og verða tákn og afl ein-
ingar og sáttargjörðar," segir
biskup ennfremur.
Af þessu tilefni er þess einnig
minnst að 50 ár eru um þessar
mundir liðin frá því að Alkirlgu-
ráðið var stofnað og var íslenska
þjóðkirkjan meðal stofnenda. Inn-
an vébanda þess eru 330 kirkjur í
100 löndum og leitast ráðið við að
styrkja samstarf kirkjudeilda,
styrkir rannsóknir í guðfræði og
vinnur gegn ranglæti og kúgun.
Við guðsþjónustuna í Dómkirkj-
unni prédikar biskup, margir
prestar þjóna fyrir altari og Mar-
teinn H. Friðriksson sér um orgel-
leik. Messusönginn leiðir ung-
lingakór Grafarvogskirkju, sem
er yngsti söfnuður þjóðkirkjunn-
ar.
---------------
Nýir menn 1
kirkjuráð
NÝTT kirkjuráð verður kosið á
kirkjuþingi. Það skipa tveir leik-
menn og tveir prestar en biskup
er í forsæti.
I kirkjuráði hafa setið séra
Hreinn Hjartarson, séra Sigurjón
Einarsson, fyrrverandi prófastur,
Helgi K. Hjálmsson og Gunnlaug-
ur Finnsson. Tveir gefa ekki kost
á sér til áframhaldandi setu í
kirkjuráði, þeir séra Sigurjón,
sem hefur nýverið látið af störf-
um, og Gunnlaugur, en hann hef-
ur setið á kirkjuþingi og í kirkju-
ráði frá árinu 1976.
------♦-♦-♦----
Fundir í safn-
aðarheimili
Háteigskirkju
FUNDIR kirkjuþings fara að
þessu sinni fram í safnaðarheimili
Háteigskirkju, en mörg undanfar-
in ár hefur þingið fengið inni og
notið góðs atlætis í Bústaðakirkju.
Áður voru fundirnir um skeið
haldnir í Hallgrímskirkju og þar
áður í Neskirkju. Þannig má segja
að kirkjuþingsfundir séu í róleg-
heitum færðir á milli kirkna og
safnaðarheimila borgarinnar.
Kirkjuþing hefur alltaf verið háð í
Reykjavík og fyrsti fundur þess
fór fram á Fríkirkjuvegi 11.
Kirkjuþing með nýju fyrirkomulagi sett á mánudagsmorgun
Morgunblaðið/Kristinn
ÞAU leggja á ráðin áður en kirkjuþing hefst. Frá vinstri: Ragnhildur Benediktsdóttir skrifstofustjóri, Karl Sigurbjörnsson biskup, Þorvaldur Karl
Helgason biskupsritari, Hanna Sampsted fulltrúi og Sigríður Dögg Geirsdóttir fjármálastjóri.
Forseti þingsins kjörinn
úr hópi leikmanna
NÝTT kirkjuþing sem kjörið var í
sumar kemur til fyrsta fundar síns
á mánudag en þingið hefst með
guðsþjónustu í Dómkirkjunni á
sunnudagskvöld. Ný lög um starf-
semi þjóðkirkjunnar tóku gildi um
síðustu áramót sem þýða talsverðar
breytingar á störfum kirkjuþings. í
ár eru liðin 40 ár frá því kirkjuþing
kom fyrst saman, í október 1958.
„Það er því ástæða til að marka
þessi tímamót með fyrirbæn og
fögnuði í sérstakri guðsþjónustu í
Dómkirkjunni,“ sagði herra Karl
Sigurbjörnsson biskup í samtali við
Morgunblaðið en hann var beðinn
að greina frá helstu nýjungunum í
starfi kirkjuþings.
„Kirkjuþing hafði áður hvorki
völd né fjárráð heldur var fyrst og
fremst ráðgefandi samkunda þar
sem lagðar voru fram tillögur og
fjallað um lagafrumvörp," segir
biskup. „Fram til ársins 1982 kom
kirkjuþing aðeins saman annað
hvert ár en upp frá því á hverju ári
og varð kirkjuþing við það nokkru
styrkara."
Er myndug samkoma
„Það sem hefur breyst núna er
að kirkjan starfar frá síðustu ára-
mótum eftir nýjum lögum og fær
þar með aukið hlutverk og vægi.
Kirkjuþing verður nú æðsta stofn-
un þjóðkirkjunnar og er myndug
samkoma sem starfar í umboði
þjóðkirkju sem ber fulla ábyrgð á
málefnum sínum innan ramma lag-
anna. Kirkjuþing hefur nú á valdi
sínu mörg þau mál sem Alþingi
hafði áður á sinni könnu.“
Biskup segir að margt hafí því
breyst með tilkomu laganna og
samningnum um fjármál kirkjunn-
ar sem undirritaður var 4. septem-
ber. Kirkjan er nú fjárhagslega
sjálfstæð, ákveður til dæmis sjálf
hvar prestsembætti eru en það var
áður á valdi Alþingis. Þá segir hann
það ekki minnsta nýmælið að leik-
menn eru nú í meirihluta á kirkju-
þingi:
„Kirkjuþingsfulltrúar, sem
kjörnir eru til fjögurra ára í senn,
eru 21 og af þeim eru 9 prestar en
12 leikmenn, en hlutfallið var áður
Talsverð endurnýjun er á hópi kirkju-
þingsfulltrúa en kirkjuþing verður sett á
mánudagsmorgun. Eitt fyrsta hlutverk
þess er að setja ýmsar starfsreglur.
Jóhannes Tómasson kynnti sér helstu
breytingar sem verða á störfum kirkju-
þings sem nú starfar eftir nýjum lögum.
öfugt. Kjörgengir í kirkjuráð úr
hópi leikmanna eru aðalmenn í
sóknarnefndum, sem samtals eru á
þrettánda hundraðið og við kjör
leikmanna í sumar varð nær algjör
endurnýjun á þeirra hópi. Endur-
nýjunin er heldur hægari í hópi
prestanna. Þá er sú breyting orðin
að biskup er ekki lengur þingforseti
heldur er hann kjörinn úr hópi leik-
manna. Biskup stýrir fundi í upp-
hafi og flytur stefnuræðu en síðan
er forseti kjörinn og stjómar hann
fundi upp frá því.“
Hafa málfrelsi og tillögurétt
Auk hinna kjörinna fulltrúa sitja
eftirtaldir kirkjuþing með málfrelsi
og tillögurétti: Biskup, fulltrúi
kirkjumálaráðuneytis, vígslubiskup-
ar og fulltrúi guðfræðideildar Há-
skóla íslands. Kirkjuþing er hins
vegar opið öllum. Enn ein breyting-
in er því sú að biskup hefur þar ekki
lengur atvæðisrétt. Hvað finnst
biskupi um það?
„Ég verð að viðurkenna að ég
hefði viljað hafa atkvæðisrétt en
fyrir þessu eru ákveðin rök. Stjórn-
kerfi þjóðkirkjunnar byggir á
tveimur meginþáttum, annars veg-
ar af lýðræðislega kjörnum sóknar-
nefndum og kirkjuþingi og hins
vegar embættiskerfinu, prestum,
próföstum, vígslubiskupum og bisk-
upi. Þessir tveir stofnar mætast síð-
an í kirkjuráði þar sem sitja tveir
leikmenn og tveir prestar undir for-
sæti biskups íslands."
Kirkjuþing verður sett næsta
mánudagsmorgun og mun standa
næstu 10 daga. Þingið er haldið um
tveimur vikum fyrr en áður og segir
biskup það m.a. gert til að betri tími
gefist til að ljúka afgreiðslu mála
fyrir áramót, m.a. úthlutunum úr
sjóðum sem áður hefur verið á vor-
in. Segir hann það gefa sóknar-
nefndum og stofnunum kirkjunnar
betra ráðrúm til að skipuleggja
verkáætlanir sínar ef vitað er eigi
síðar en um áramót hvaða fjárfram-
laga megi vænta í hin ýmsu verk-
efni sem sótt er um fyrir. Þá leggur
biskup mikla áherslu á hátíðina í
Dómkirkjunni á sunnudagskvöld og
kveðst hann vonast til að sjá þar
sem flesta meðlimi kirkjunnar,
starfsmenn jafnt sem sóknarbörn.
„Við þessa messu biðjum við fyrir
störfum kirkjuþings um leið og við
minnust þess á hvaða grunni kirkj-
an stendur, hverjar rætur hennar
eru í sögunni og horfum til framtíð-
arinnar. Þjóðkirkjan kveður þessa
öld eftir að hafa gengið í gegnum
meiri breytingar en um langan ald-
ur og er staðráðin í því að mæta 21.
öldinni með endurnýjuðum þrótti
sem myndug og sjálfstæð, biðjandi,
boðandi og þjónandi þjóðkirkja."
Eitt fyrsta verkefni kirkjuþings
er að setja starfsreglur um ýmsa
málaflokka kirkjunnar innan þeirra
marka sem lögin ákveða. „Þetta er
um tugur starfsreglna um margvís-
leg málefni sem áður voru ákveðin
að mestu í lögum. Dæmi um þetta
eru um skipan sókna, prestakalla og
prófastsdæma, reglur um val á
prestum, reglur um kjör kirkju-
þings og um störf sóknarnefnda.
Auk þess liggja fyrir drög að jafn-
réttisáætlun kirkjunnar og reglum
um hvernig fara eigi með kynferðis-
brot innan kirkjunnar."
Biskup segir þessar starfsreglur
hafa verið lengi í undirbúningi og
ræddar víða. „Það voru flestar
ræddar á kirkjuþingi í fyrra og síð-
an hefur farið fram viðamikil kynn-
ing og umræða í kirkjunni, á hér-
aðsfundum og öðrum fundum víða
um land. Þannig vill kirkjan líka
starfa, að málefnin fái góða umfjöll-
un heima fyrir áður en þau eru tek-
in til umræðu á vettvangi eins og
kirkjuþingi.
Kirkjan er í eðli sínu almanna-
hreyfing, það er meginhugsunin í
starfi kirkjunnar og stjórntæki
hennar eru fyrst og fremst hugsuð í
hennar þágu.“
Bæta verður stöðu kvenna
Komið er fram að 21 fulltrúi situr
á kirkjuþingi og eru það allt karlar
nema ein kona sem er í hópi presta.
Hefur biskup áhyggjur af því?
„Mér kom það á óvart að hlutfall
kynjanna skyldi vera svo óhagstætt
þar sem þar er mikið mannval og
fólk með ólíkan bakgrunn og þetta
urðu mér óneitanlega vonbrigði.
Þetta kemur á óvart í ljósi þeirrar
umræðu sem verið hefur um jafn-
rétti innan kirkjunnar og hins að á
sama tíma og kjör kirkjuþingsfull-
trúa fór fram í sumar sendum við
sóknarnefndum drög að jafnréttisá-
ætlun kirkjunnar. Kirkjan verður
að vinna að því að tryggja og
styrkja stöðu kvenna sem svo oft
bera hitann og þungann í störfum
sóknarnefnda og safnaðanna," sagði
biskup. Iiann benti jafnframt á að
af þeim 1.250 sem voru á kjörskrá
leikmanna eru 46% konur en 54%
karlar. „Ég held að þetta leggi enn
meiri ábyrgð á kirkjuþing um að
láta sér umhugað um að stuðla að
því að bæta stöðu kvenna innan
kirkjunnar. En ég vil líka leggja
áherslu á að kirkjuþingsfulltrúar
eru ekki kjörnir til að tryggja ein-
hverja ákveðna hagsmuni heldur
hagsmuni heildarinnar. Kirkjan
skiptist ekki í andstæðar fylkingar í
hagsmunatogstreitu, konur-karlar,
prestar-Ieikmenn, dreifbýli-þétt-
býli, heldur er hún samfylking.“