Morgunblaðið - 10.10.1998, Page 16
16 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998
MORGUNB LAÐIÐ
Q-
C0
o
Engin tilviljun ræður því að myndin á íslensku krónunni er af þorski.
Flest sem íslendingar þurfa til daglegra nota verður að kaupa frá
útlöndum og til þess að geta það er nauðsynlegt að flytja út vörur.
Sjötíu prósent af verðmæti alls vamings sem við seljum til útlanda eru
sjávarafurðir. En þorskurinn einn stendur fyrir tæpum helmingi af
öllum vöruútflutningi.
Ef illa árar í hafinu bitnar það á öllu atvinnulffinu. Á sama hátt lifnar
allt við þegar vel gengur í sjávarútvegi. Sjómenn, fiskvinnslufólk og
aðrir starfsmenn fá laun. Rannsóknarstofnanir, vélsmiðjur, trygginga-
fyrirtæki og olíufélög hafa einnig tekjur af sjávarútveginum. Viðskipti
fara síðan í gang á ólíkum sviðum; fjármagn streymir um allt samfélagið
og til verður það sem hagfræðingar kalla margfeldisáhrif.
Eðlilega skilar sjávarútvegurinn því miklum fjármunum í sameiginlega
sjóði landsmanna. Auk þess greiðir hann margvísleg gjöld sem tengjast
honum sérstaklega; aflagjald og veiðieftirlitsgjald, svo dæmi séu nefnd.
Þá greiðir hann nær milljarð króna í Þróunarsjóð.
Útflutningur á vörum 1997
Yfir 70% af heildarútflutningi íslendinga eru sjávarafuröir. Á undanfömum áratugum hafa atvinnuhættir okkar breyst
mikið en þó er ljóst að um langa framtíð mun sjávarútvegurinn verða undirstaðan í efnahagslífinu.
(Heimild: Hagstofa íslands: Hagtíðindi, jan. 1998, 83. árg. nr. 1, bls. 26.)
Þorskur, sem kallast gadus morhua á máli fræðimanna, er talinn með botnfiskum eins og ýsa, ufsi, karfi, grálúða og skarkoli. Til uppsjávarfiska teljast aftur á móti loðna, síld og kolmunni. Þorskur hefur alltaf verið einn af okkar verðmætustu nytjafiskum
og það segir sitt um mikilvægi hans að oft var hann einfaldlega kallaður fiskurinn. Þorskur hefur líka verið kallaður „sá guli" í gcgnum tíðina. Þorskígildi er aftur á móti nýlcgt hugtak. Talað er um þorskígildi þegar verðmæti annarra fisktegunda er umreiknaö
í verðmæti þeirra í þorski. Þannig var t.d. þorksígildi karfa 0,70 á síðasta fiskveiðiári, sem þýðir að kíló af karfa jafngilti 700 grömmum af slægðum þorski. Enginn gjaldmiðill hefur reynst íslendingum betur en fiskurinn.