Morgunblaðið - 10.10.1998, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 1 7
Á undanfömum árum hefur sjávarútvegurinn stuðlað að margháttaðri
nýsköpun í atvinnulífmu. Búnaður og tæki til fiskveiða og verkunar, sem
hugvitsmenn og iðnfyrirtæki hafa þróað, reynist meðal þess besta sem
völ er á í heiminum. Útflutningur á fiskikörum, umbúðum, fiskinetum,
línum, rafeindavogum, toghlerum og öðrum tækjum skilar nú umtalsverðum
fjármunum inn í hagkerfið.
íslendingar hafa lengi glímt við þorskinn og kostað til miklum fjármunum.
Hann hefur haft sína duttlunga, komið og farið — en stundum höfum við
líka gengið of nærri honum. Á seinustu árum höfum við þó lært að lifa
með þorskinum. Við stöndum nú fyrir ábyrgri og hagkvæmri nýtingu
fiskistofnanna. Þess njóta Islendingar allir.
Sjávarútvegurinn er vissulega stór þáttur af efnahagslífinu og margir
áhættuþættir honum samfara. Einmitt þær staðreyndir kalla á staðfestu og
markviss vinnubrögð, ásamt virðingu fyrir því sem vel er gert.
Við eigum þorskinum margt að þakka. Hann gerir okkur kleift að njóta
menntunar og heilbrigðisþjónustu, lista og menningar. Hann er greifí.
Þessi auglýsing er liður í fræðsluátaki íslenskra útvegsmanna.
\-------------------------------------------------------------------
Fiskurinn leggur
landsmönnum til sjö
af hverjum tíu krónum.
www.liu.is
ÍSLENSKIR ÚTVEGSMENN
Fræðsluátak á ári hafsins