Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 23
Morgunblaðið/Silli
JON Friðrik Einarsson veitti faekjunum viðtöku úr
hendi Sigurgeirs Aðalgeirssonar.
Kiwanismenn gefa
fj ar skiptatæki
Húsavík - Kiwanisklúbburinn
Skjálfandi á Húsavík færði Björg-
unarsveitinni Garðari nýlega að gjöf
fjarskiptatæki sem kosta um 500
þús. kr.
Sigurgeir Aðalgeirsson afhenti
gjöfína með þeim orðum að tækin
myndu koma þeim vel við æfíngar
en vonandi þyrfti að nota þau sem
sjaldnast í neyð.
Fomaður björgunarsveitarinnar,
Jón Friðrik Einarsson, veitti tækj-
unum móttöku og gat þess að þessi
tæki leystu vanda sem verið hefði í
einstaka tilfellum í fjarskiptum milli
leitamanna og stjórnstöðvar. Hann
gat þess einnig að þetta væri ekki í
fyrsta skipti sem Kiwanismenn
styrktu björgunarsveitina og fyrir
það færði hann þeim þakkir.
Unnið að
vefsíðugerð
fyrir Stykk-
ishólmsbæ
Stykkishólmi - Með aukinni tölvu-
notkun, netvæðingu og upplýs-
ingaflæði þykir nú orðið sjálfsagt
að hver stofnun eða fyrirtæki út-
búi sína heimasiðu sem almenn-
ingur getur heimsótt og leitað
upplýsinga á. Stykkishólmsbær
vill þar ekki vera eftirbátur ann-
arra í þessum efnum. Nú er hafin
vinna við að gera vef fyrir Stykk-
ishólmsbæ og stofnanir hans.
Það eru ungir strákar frá
Akranesi sem hafa tekið að sér
að hanna og setja upp Stykkis-
hólmsvef. Það eru þeir Páll Þór
Pálsson, 18 ára, og Eling O.
Vignisson, 19 ára. Áhugamál
þeirra undanfarin ár eru tölvur
og allt sem þeim tengist. Þeir
hafa notað allar sínar frístundir
við tölvuna. í sumar stofnuðu
þeir fyrirtækið íslensk upplýs-
ingatækni þar sem þeir veita
þjónustu við vefhönnun og -
smíði. Þeir hafa samið kennslu-
efni í heimasíðugerð og fór mikill
tími í það verkefni. Þeir annast
alla hönnun, uppsetningu og
grafík.
Sú hugmynd kom upp að
tengja vefsíðugerðina grunnskól-
anum í Stykkishólmi. Elstu nem-
endum grunnskólans var boðið
að taka þátt í verkefninu. Nú um
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
UNNH) er að gerð vefs fyrir Stykkishólmsbæ. Það eru ungir strákar frá
Akranesi sem hafa tekið það verkefni að sér og vinna það með aðstoð elstu
nemenda grunnskólans. Um helgina var haldið námskeið í heimasíðugerð.
Á myndinni eru þeir Erling O. Vignisson og Páll Þór Pálsson frá Akranesi
ásamt áhugasömum tölvunemendum Grunnskólans í Stykkishólmi.
helgina var haldið námskeið fyr-
ir þá nemendur sem hafa áhuga
á að tengjast verkefninu. Þar
fengu þeir leiðbeiningar um
heimasíðugerð. Á þennan hátt
nýtist góður tölvukostur skólans
og eins fá nemendur dýrmæta
reynslu og kunnáttu í notkun
tölvu. Umsjón með vinnu nem-
enda hafa þeir Einar Strand og
Eyþór Benediktsson. Er mikill
áhugi fyrir þessu verkefni og er
áætlað að Stykkishólmsvefurinn
verði tilbúinn og kominn á Netið
í lok nóvember. Þá opnast nýjar
leiðir til að fá fréttir úr Hólmin-
um og fréttaritari fær aukna
samkeppni.
Steingrímur
St.Th. sýnir
í Eden
STEINGRÍMUR St.Th. Sig-
urðsson opnar 91. málverkasýn-
ingu sína í Eden í Hveragerði í
dag, laugardag, kl. 16. Á sýn-
ingu Steingríms að þessu sinni
eru 30 verk. Sýningin er opin
virka daga kl. 9-19, laugardaga
er opið til kl. 21, sunnudaga til
kl. 20. Sýningunni lýkur sunnu-
daginn 17. október kl. 21.
SöluAyMÍng a kmnni
AtörglœAÍlegu ogvöndu&ii
SiemettA keimilÍAtœlfjum*
í dag höldum við sannkallaða heimilistækjaveislu
og verðum með ýmis tæki á frábæru tilboðsverði.
Komið í verslun okkar að Nóatúni 4 og gerið
verulega góð kaup á heimilistækjum frá Siemens,
Bomann, Dantax og fleirum.
M.a.:
30% afsláttur á hljómtækjum.
28” sjónvarpstæki frá Dantax á 39.900 kr.
Ríflegur staðgreiðsluafsláttur veittur.
Látið sjá ykkur - kíkið í kaffi - og njótið dagsins
með okkur.
m SMITH &NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 520 3000