Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 29
Vantraust á sænsku
stjórnina fellt
Stokkhólmi. Reuters.
RÍKISSTJÓRN Görans Perssons
stóð léttilega af sér vantrauststil-
lögu Hægriflokksins á sænska
þinginu á fimmtudag enda ákváðu
hinir mið- og hægriflokkamir þrír
að styðja hana ekki. Er niðurstað-
an sögð álitshnekkir fyrir Carl
Bildt, leiðtoga Hægriflokksins,
sem hafi ekki uppskorið annað en
að einangra flokkinn.
186 þingmenn greiddu atkvæði
gegn vantrauststillögunni, 82 voru
henni samþykkir og 74 sátu hjá.
Sjö voru fjarverandi. Bildt sagði,
að ástæðan fyrir tillögunni væri sú,
að Persson ætlaði að sitja áfram
þrátt fyrir mesta kosningaósigur
jafnaðai-manna frá árinu 1920.
Engin líkindi voru til, að tillag-
an yrði samþykkt því að jafnaðar-
menn hafa stuðning Vinstriflokks-
ins og græningja en auk þess
vildu hugsanlegir bandamenn
hægrimanna, frjálslyndir, kristi-
legir og miðflokksmenn, ekki
styðja þá.
Stjórnmálaskýrandinn Olof Ruin
segir, að ljóst sé, að klofningur sé
kominn upp meðal borgaraflokk-
anna, sem unnu sumir vel saman í
kosningabaráttunni. Sænsku fjöl-
miðlamir fóm heldm' hörðum orð-
um um frammistöðu Bildts og
sögðu, að vantrauststillagan hefði
verið óvenjulega illa gmnduð. Hún
hefði opnað frjálslyndum og kristi-
legum leið til að vinna með jafnað-
armönnum eða stefna að ríkis-
stjómarsamstarfi síðai'.
Reuters
SÉRFRÆÐINGAR vinna við uppgröft líka í stærstu ijöldagröf
sem fundist hefur í Bosniu.
Stór fjöldagröf
fundin í
Saraj_evó. Reuters.
FJOLDAGRÖF sem fannst nálægt
bænum Zvornik í Bosníu í vikunni
er talin sú stærsta sem fundist hef-
ur eftir Bosníustríðið, en þar era
sennilega um 300 múslimar grafn-
ir, að því er embættismenn skýrðu
frá í gær.
Þegar hafa fundist 160 lík í gröf-
inni, og telja sérfræðingar að mun
fleiri eigi eftir að koma í ljós. Emb-
ættismenn sögðu að líkin hefðu
verið pökkuð í númeraða plastpoka
merkta júgóslavneska hernum.
Þau væra því vel varðveitt, og
Bosníu
hægt væri að bera kennsl á nokkur
fórnarlambanna með því að taka
fingrafór. Talið er að Serbar hafi
myrt mennina árið 1992.
Yfir 200 þúsund manns létu lífið í
styrjöldinni í Bosníu. Múslimskir
íbúar Zvornic, líkt og annama
þorpa í austurhluta Bosníu, urðu
fyrir þjóðernishreinsunum af hálfu
Serba. Eftir að stríðinu lauk hafa
um 400 fjöldagrafir fundist um alla
Bosníu, og einna flestar í nágrenni
Zvornik, sem liggur nærri
serbnesku landamæranum.
sem
kostar
flott við
þröngar
gallahuxur
með
uppabroti.
Saramago
gagnrýnir
Páfagarð
Madríd. Reuters.
JOSE Saramago, sem í fyrra-
dag varð fyrstur portúgalski'a
rithöfunda til að hljóta bók-
menntaverðlaun Nóbels, varði
í gær kommúníska hugmynda-
fræði sína og gagnrýndi Páfa-
garð en þar á bæ hafa menn
verið allt annað en ánægðir
með verk Saramagos.
„Ég þurfti ekki að hætta að
vera kommúnisti til að vinna
Nóbelsverðlaunin,“ sagði
Saramago í gær. „Ef ég hefði
þurft að gefa upp hugsjónir
mínar til að bera sigur úr být-
um þá hefði ég frekar hafnað
Nóbelsver ðlaununum
Saramago olli hneykslun
kaþólsku kirkjunnar fyiir bók
sína „The Gospel according to
Jesus Christ“, sem út kom ár-
ið 1991 en hún var jafnframt
ritskoðuð af þáverandi hægri-
stjóm í Portúgal. Lýsti dag-
blaðið L’Osservatore, sem gef-
ið er út í Vatíkaninu, í gær vali
Nóbelsnefndarinnar á Sara-
mago sem „enn einum verð-
laununum sem tengjast póli-
tískri hugmyndafræði".
Saramago kveðst hins vegar
votta Nóbelsnefndinni virð-
ingu sína fyrir að láta pólitísk-
ar hugsjónh' hans ekki standa
í vegi fyrir því að hún veiti
honum bókmenntaverðlaunin.
„Ef páfinn væri í dómnefnd-
inni þá hefði nefndin hins veg-
ar öragglega ekki veitt mér
nein verðlaun.“
Sölumaður
mannslíffæra
handtekinn
San Fransisco. Reuters.
LÖGREGLAN í Róm handtók í
vikunni Bandaríkjamann sem
granaður er um að stunda sölu
mannslíffæra á Netinu. Er talið að
maðurinn sé hluti af bandarískum
glæpahring sem staðið hefur að
ólöglegri sölu líffæra úr fólki frá
Indlandi, Klna, Kambódíu og lönd-
um Suður-Ameríku.
Segir í frétt AP-fréttastofunnar
að maðurinn sé 48 ára gamall Los
Angeles-búi. Lögreglumenn hand-
tóku manninn á gistihúsi í Róma-
borg. Þeir höfðu komið á fundi með
honum undir því yfirskini að þeir
hygðust kaupa af honum líffæri.
Höfðu þeir boðist til að greiða
20.000 Bandaríkjadali, næstum
eina og hálfa milljón ísl. kr., fyrir
nýra úr manni.
Er með handtöku mannsins endi
bundinn á sex mánaða rannsókn
ítölsku lögreglunnar en yfirvöld
leita þó enn annarra meðlima líf-
færasöluhringsins.
EVROPA^.
Framkvauridastjórn ESB veitir
nokkrum aðildarríkjum áminningu
Bretum og- Grikkjum stefnt
fyrir brot á umhverfislöggjöf
Brussel. Reuters.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins, ESB, greindi frá
því í gær að hún hygðist stefna
brezkum og grískum stjómvöldum
fyrir Evrópudómstólinn fyrir að
brjóta umhverfislöggjöf sambands-
ins, og að í undirbúningi væri að
stefna einnig þýzkum stjórnvöldum
fyrir hliðstæðai' sakir.
Talsmaður framkvæmdastjórn-
arinnar sagði að brezk stjórnvöld
hefðu ekki fært með fullnægjandi
hætti í landslög tilskipun ESB sem
kveður á um aðgerðir til að hindra
mengun grunnvatns. Meðal dæma
sem nefnd voru um atriði sem
brytu í bága við ákvæði ESB-lög-
gjafarinnar var nefnt að losun sótt-
hreinsandi baðlagar sem notaður
er til að losa búfé við óværu væri í
ólagi í Bretlandi, en hann inniheld-
ur efni sem geta verið skaðleg
náttúrunni.
Brezk yfirvöld geta þó sloppið við
að sæta sektum ef þau sjá til þess
að viðeigandi löggjöf verði kippt í
liðinn innan þriggja mánaða.
Níu ríki ámiunt
Grískum stjórnvöldum er stefnt
fyrir að brjóta gegn ESB-lögum um
viðskipti með dýr í útrýmingar-
hættu. Og þýzk stjórnvöld mega
eiga von á stefnu vegna brota á
reglum ESB um sorpeyðingu.
Alls sendi framkvæmdastjórnin á
fimmtudag bréf til stjórnvalda níu
af fimmtán aðildarríkjum ESB, þar
sem þau eru hvött til að uppfylla
skuldbindingar sínai' varðandi nátt-
úravernd, sem kveðið er á um í þar
að lútandi löggjöf sambandsins.
HAÍIICATTP WSBSSUSaSSStI
AiiivrAAiiiiu jt -
i|Él ilnral-feetyikaup